Morgunblaðið - 09.10.2005, Page 1
Tímarit og Atvinna í dag
Tímarit | Þrautseigur Rússi Háskólapróf úr skóla lífsins Frjálslegt og flæð-
andi hár Pistill Steinunnar Ólínu Atvinna | SA telja umræðu um útlendinga á
villigötum Tæknibreytingar kalla á starfsmenntun Kulnun í starfi
STOFNAÐ 1913 273. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Frægðin og
fylgifiskarnir
Renée Zellweger dreymdi um frama
en frægðinni fylgir baggi | 60
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
2
3
7
4
Við réttum þér
hjálparhönd
við bílakaup
Hafðu samband í síma
440 4400 eða kynntu
þér málið á glitnir.is.
ÓTTAST er að yfir þúsund manns
hafi farist þegar mikill jarðskjálfti
reið yfir Pakistan, Afganistan og
Indland um fjögurleytið í gærmorg-
un að íslenskum tíma. Skjálftinn var
7,6 stig á Richterskvarða, að sögn
jarðvísindastofnunar Bandaríkj-
anna, japanskir vísindamenn töldu
hann hafa verið stærri, 7,8 stig. Mest
var manntjónið í Pakistan þar sem
vitað var um mörg hundruð látna en
einnig munu hátt í 200 hafa dáið í
Indlandi, flestir í indverska hluta
Kasmír. Tvö börn dóu í Afganistan.
„Tala látinna gæti verið yfir 1.000,
það gæti hafa orðið geysilegt mann-
tjón en við erum ekki búnir að fá ná-
kvæmar tölur um það ennþá,“ sagði
Shaukat Sultan, talsmaður Pervez
Musharrafs Pakistansforseta, í sam-
tali við AP-fréttastofuna.
Aurskriður í kjölfar skjálftans
Upptökin voru 80–100 km norðan
við Islamabad, höfuðborg Pakistans,
í Kasmír-héraði sem skiptist milli
Pakistans og Indlands. Allmörg
þorp og bæir í norðanverðu Pakistan
grófust undir aurskriðum sem féll í
kjölfar jarðhræringanna.
Skjálftans varð vart um miðbik
Pakistans, í Nýju-Delhí í Indlandi og
í Kabúl í Afganistan auk svæðanna
sem verst urðu úti. Liðsforingjar
sem könnuðu ástandið í norðurhér-
uðum Pakistans úr lofti, sögðust
hafa séð mörg hundruð hús sem
hefðu jafnast við jörðu.
Í Islamabad stóð aðalskjálftinn
yfir í um hálfa mínútu og mikil skelf-
ing greip um sig. Blóðugt fólk sem
ekki gat hrært sig sást sums staðar í
húsarústum, margir hrópuðu á
hjálp, að sögn AFP-fréttastofunnar.
Í Indlandi sögðu talsmenn hersins
að „gríðarlegt tjón“ hefði orðið í Uri-
héraði sem er rétt við markalínuna
sem skiptir Kasmír. Voru aðeins ör-
fá hús sögð standa enn í héraðinu.
AP
Tíu hæða íbúðarhús sem var hluti af stærri húsasamstæðu í Islamabad,
höfuðborg Pakistans, hrundi til grunna í hamförunum í gærmorgun.
Óttast var að tugir manna væru fastir í brakinu, um hádegið var búið
að bjarga rúmlega tuttugu. Rehmatullah, karlmaður sem býr skammt
frá og tók þátt í björgunaraðgerðunum, sagði að fyrst í stað hefði lítið
sést vegna ryksins. „Við drógum einn manninn upp með því að taka af
honum báða fæturna.“
Óttast að yfir
1.000 hafi farist
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Tíu hæða hús hrundi
Mikið manntjón í
jarðskjálfta með
upptök í Kasmír
„MÉR finnst mikil skömm liggja hjá Hæsta-
rétti fyrir að hafa sýknað þennan mann,“
segir Thelma Ásdísardóttir um föður sinn,
sem um árabil beitti hana og systur hennar
fjórar andlegu, líkamlegu og kynferðislegu
ofbeldi. Í gær kom út
bók Gerðar Krist-
nýjar „Myndin af
pabba – saga
Thelmu“ en í henni
segir Thelma frá líf-
inu í gula húsinu í
Hafnarfirðinum þar
sem þær systur ólust
upp.
Allt frá því að þær
voru fimm ára gaml-
ar beitti faðirinn
dætur sínar grófu
kynferðislegu ofbeldi
og seldi öðrum mönn-
um aðgang að þeim til hins sama í skiptum
fyrir áfengi og fíkniefni. Í samtali við Tíma-
rit Morgunblaðsins í dag segir Thelma sögu
sína og gagnrýnir framgöngu yfirvalda í
málefnum fjölskyldunnar. Sérstaklega
gagnrýnir hún Hæstarétt fyrir að hafa sýkn-
að föður hennar af ákærum um kynferðisof-
beldi gegn dóttur sinni, þrátt fyrir sakfell-
ingu héraðsdóms. Málareksturinn tók sex ár
og allan þann tíma og reyndar mun lengur
þurftu stúlkurnar að þola misþyrmingar af
hálfu föður síns og annarra karlmanna. Þá
segir hún skólayfirvöld lítið sem ekkert hafa
gert til að grípa inn í gang mála.
„Í raun finnst mér allt þetta öryggisnet
hafa brugðist. Börn sem eru í svona vand-
ræðum, eins og við vorum þarna í, eiga að
geta treyst því að þeim sé bjargað.“
Mikilvægt að bókin leiði til breytinga
Sigurður Svavarsson, útgáfustjóri Eddu,
segir mikilvægt að bókin leiði til einhverra
breytinga. „Þess vegna ætlum við að senda
hana til helstu ráðherra sem málaflokkurinn
snertir, formanna stjórnmálaflokkanna, for-
manna þingflokkanna og stjórnenda í
stærstu bæjarfélögunum. Þegar fólk sýnir
það hugrekki að segja sögu sína eins og
Thelma gerir í þessari bók þá finnst okkur
að það verði að verða til þess að við bætum
það umhverfi sem börn lifa og þrífast í. Til-
finningin sem við öll fáum, sem höfum lesið
þetta verk, er að þetta megi ekki gerast aft-
ur.“ | Tímarit
Greinir frá grófu kyn-
ferðisofbeldi gegn sér og
fjórum systrum sínum
Öryggis-
netið brást
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Thelma Ásdísardóttir
SVO mikill áhugi er á búsetu í Borg-
arnesi að bæjaryfirvöld hafa varla
við að úthluta lóðum og stækka leik-
skóla og grunnskóla, að því er fram
kemur í samtali við Helgu Halldórs-
dóttur, forseta bæjarstjórnar Borg-
arbyggðar, og Pál Brynjarsson bæj-
arstjóra.
Spennandi hugmyndir eru uppi
um endurnýjun lífdaga gamals versl-
unarhúsnæðis og Mjólkursamlags-
hússins í Borgarnesi þar sem til
stendur að byggja upp listamiðstöð
eða svokallaða Listnámu. Endur-
skipulagning stendur fyrir dyrum á
athafnasvæðinu í Brákarey.
Páll Björgvinsson, arkitekt og
byggingarmeistari, festi kaup á
Mjólkursamlagshúsinu eftir að
ákveðið hafði verið að rífa húsið.
Hann hyggst byggja upp lista-
miðstöð, eða Listnámu, í húsinu.
Endurgerð hússins gerir ráð fyrir að
í því verði innréttaðar fimm litlar
íbúðir með vinnustofum ásamt
vinnuaðstöðu fyrir ólíkar listgreinar
og fjölnota sal undir heitinu Egla.
Unnið er að endurnýjun gamalla
húsa í Englendingavík og við Búð-
arklett þar sem Landnámssetur hef-
ur starfsemi sína næsta vor. Kallað
verður eftir hugmyndum íbúa um
svæðið í Brákarey í október. Ólöf
Davíðsdóttir, listakona og eini íbúi
eyjarinnar, er ekki í neinum vafa um
að svæðið yrði best nýtt sem fólk-
vangur og útivistarparadís.
Uppbygging í Borgarbyggð
Byr í Borgarbyggð | 10–14
Madrid. AFP. | Talsmaður Kofi Ann-
ans, framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, sagði í gær að Ann-
an hefði miklar áhyggjur af
örlögum um 500 manna sem lög-
regla í Marokkó er sögð hafa hrak-
ið út í eyðimörk án matar og vatns.
Fólkið hafði reynt að komast til
Melilla og Ceuta, tvíburaborga
sem Spánverjar eiga á Afríku-
strönd, gegnt Gíbraltar.
„Meira en 500 innflytjendur hafa
verið yfirgefnir í eyðimörkinni í
sunnanverðu Marokkó,“ sagði í yf-
irlýsingu sem samtökin Læknar án
landamæra gáfu út í Madrid. Um
er að ræða fólk sem vill fá að flytja
til Spánar og komst inn í umrædd-
ar tvíburaborgir en var rekið það-
an. Nýlega dóu sex innflytjendur
þegar þeir reyndu að klifra yfir öfl-
uga girðingu sem umlykur tvíbura-
borgirnar. Daginn eftir hófu
spænsk stjórnvöld átak gegn ólög-
legum innflytjendum og ráku 73 úr
landi.
Spánverjar hétu í gær að rann-
saka málið en sögðu Marokkómenn
hafa lofað að virða mannréttindi
fólksins og sjá því fyrir nauðþurft-
um.
Hrakið út í
eyðimörk
Amsterdam. AP. | Dómstóll í Hol-
landi bannaði í vikunni konu að
fara í skóla dóttur sinnar eða tala
við kennara skólans vegna þess að
hún hafði kvartað of mikið.
Héraðsdómstóll í Groningen
komst að þeirri niðurstöðu að kon-
an hefði truflað starfsemi skólans
„með linnulausum flaumi spurn-
inga, athugasemda og kvartana“.
Bannið gildir í eitt ár og á þeim
tíma má hún hvorki koma á skóla-
lóðina né hafa samband við kenn-
ara og skólanefndina.
Konan kvartaði meðal annars
yfir námsefni, kennsluaðferðum
og öryggismálum. Dóttir hennar
er sögð vera afburðagreind og
fannst móðurinni að slíkum börn-
um væri ekki sinnt nógu vel.
Á síðasta skólaári sendi konan
skólanum 50 tölvubréf og 20 önnur
bréf, auk þess sem hún fór níu
sinnum í skólann og sendi skóla-
nefndinni 29 bréf. Þá hafði hún
samband við ýmsar opinberar
stofnanir og fjölmiðla.
Bannfærð
fyrir nöldur
♦♦♦