Morgunblaðið - 09.10.2005, Side 4
4 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ICELAND Express mun hefja áætl-
unarflug til Alicante á suðurhluta
Spánar næsta vor, nánar tiltekið 17.
maí næstkomandi. Flogið verður
tvisvar í viku að sögn Birgis Jóns-
sonar, forstjóra
félagsins.
Í samtali við
Morgunblaðið
segir hann að
tvær breytingar
hafi orðið á þeim
áætlunum sem fé-
lagið kynnti ný-
lega um fjölgun
áfangastaða á
meginlandi Evr-
ópu. Hætt verður við flug til Ham-
borgar og Bergen en í staðinn verður
tekið upp flug til Alicante. Þar með
verða áfangastaðir félagsins 8 tals-
ins. Auk Alicante verður flogið til
Berlínar, Friedrichshafien, Gauta-
borgar, Stokkhólms og Frankfurt
Hahn en fyrir hefur félagið dagleg
flug til Kaupmannahafnar og Lond-
on. „Það kom í ljós að markaðurinn í
Þýskalandi taldi Hamborg vera á
sama svæði og Berlín þannig að við
ákváðum að hætta við flug til Ham-
borgar og fjölga flugum til Berlínar
og Frankfurt-Hahn. Ennfremur
ákváðum við að taka Bergen út og
fara til Alicante í staðinn,“ segir
Birgir en að hans sögn er nú komin
endanleg mynd á áætlanir félagsins
fyrir sumarið og hefst sala á mið-
vikudag.
Aðspurður segir hann að eingöngu
verði flogið til Alicante yfir sumarið
en félagið mun halda áfram að fljúga
á einhvern af áfangastöðum sínum á
Norðurlöndum og í Þýskalandi
næsta vetur þótt enn hafi ekki verið
tekin ákvörðun um hvaða staðir það
eru. Birgir segir að Iceland Express
sé fyrsta íslenska flugfélagið sem
býður upp á áætlunarflug til
Alicante og aðspurður segir hann að
sömu verðflokkar muni gilda í flug-
inu þangað og til annarra áfanga-
staða, þ.e. ódýrustu sætin verða seld
á 7.995 krónur aðra leið. „Með þessu
erum við að mæta eftirspurn fólks
sem vill fjölga möguleikum sínum
hvað varðar fríið,“ segir Birgir og
bætir við að þetta muni veita þeim
Íslendingum sem eiga hús á Spáni
möguleika á ódýrara flugi þangað
auk þess sem ekki þarf að skipta um
flugvél.
Nýlega festi Iceland Express
kaup á ferðaskrifstofunni Mark-
menn sem hefur meðal annars sér-
hæft sig í sölu ferða á knattspyrnu-
leiki og svokölluðum golfferðum.
Nafni ferðaskrifstofunnar verður
breytt í Express ferðir og segir
Birgir að með þessu aukist mögu-
leikar Iceland Express á því að bjóða
upp á ódýrar pakkaferðir fyrir þá
sem þess óska. Á það við um pakka-
ferðir til Alicante sem og annarra
áfangastaða félagsins.
„Við höfum unnið náið með Mark-
mönnum að undanförnu til þess að
geta boðið upp á pakkaferðir, t.d. á
fótboltaleiki og okkur hefur tekist að
lækka verð á slíkum ferðum til
muna,“ segir Birgir en að hans sögn
hefur Iceland Express nú einkaum-
boð á Íslandi fyrir Chelsea Village
hótelið. Aspurður hvort þetta sé í
takt við það sem önnur lágfargjalda-
flugfélög bjóða upp á segir Birgir að
svo sé ekki en bætir við að fyrirtækið
sé alltaf í leit að nýjum tækifærum.
Það er lengra flug til Alicante en
flestra annarra áfangastaða Iceland
Express og því er Birgir spurður
hvort félagið þurfi að leggja út í fjár-
festingar vegna langfleygari flugvéla
en það hefur yfir að ráða í dag.
„Við erum um þessar mundir að
ganga frá langtímasamningum við
flugfélag sem gerir það að verkum
að við verðum með mun yngri vélar
en til dæmis Icelandair. Þessar vélar
taka 170 sæti en við munum breyta
þeim þannig að í þeim verði 150
sæti,“ segir Birgir.
Rekstri snúið í hagnað
Hann segir að þessir nýju áfanga-
staðir séu til marks um að mikill
sóknarhugur sé í Iceland Express en
að hans sögn hefur rekstri félagsins
verið snúið við og verður hagnaður
af honum á þessu ári.
Iceland Express mun hefja
flug til Spánar næsta sumar
Kaupir ferðaskrifstofuna Markmenn
og áformar sölu á íþróttaferðum
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Birgir Jónsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur hefur sýknað Arngrím Jó-
hannsson af 94 milljóna króna
kröfu norsks eiganda Scand-
inavian Historic Flight (SHF)
sem hélt því fram að komist
hefði á samningur milli þeirra
Arngríms um að hann keypti
helmingshlut í SHF. Héraðs-
dómur taldi hins vegar að
stefnanda hefði ekki tekist að
sanna það.
Í héraðsdómi segir, að aðilar
hafi ekki gert skriflegan samn-
ing. Norðmaðurinn hefði byggt
á því að Arngrímur hefði með
yfirlýsingu í símtali 2. mars ár-
ið 2004 skuldbundið sig til að
kaupa helmingshlut í flugfélag-
inu, sennilega í samræmi við
uppkast að samningi sem lá
fyrir. Þetta kannist Arngrímur
ekki við. Ýmsar aðgerðir Norð-
mannsins í framhaldi af þessu
hefðu bent til að hann hefði
haldið eða viljað að samningur
væri kominn á. Hins vegar væri
ekki að sjá að Arngrímur hefði
aðhafst neitt sem bent gæti til
þess.
Héraðsdómur segir, að um
væri að ræða talsverð viðskipti,
þannig að einhver skrifleg stað-
festing hefði verið allt að því
nauðsynleg og hefði verið rétt
af stefnanda að ganga eftir því
að fá slíka staðfestingu með
tölvupósti eða öðrum hætti.
Jón Finnbjörnsson héraðs-
dómari dæmdi málið. Árni Sig-
urjónsson hrl. flutti málið fyrir
Arngrím og Jóhannes Rúnar
Jóhannsson hrl. fyrir stefn-
anda.
Sýknaður af
94 milljóna
króna kröfu
UMTALSVERÐAR framkvæmdir
hófust við Bláa lónið í vikunni í kjöl-
far þess að undirritaðir voru hönn-
unarsamningar.
Aðeins eru sex ár síðan lónið var
opnað í núverandi mynd. Ráðgert er
að stækka húsnæði heilsulindar-
innar um 3.000 fermetra og tvöfald-
ast það að stærð. Meðal fram-
kvæmda er stækkun og endur-
hönnun á búnings- og baðaðstöðu,
veitingaaðstaða verður bætt og nýr
250 manna veislu- og veitingasalur
tekinn í notkun. Þá verður verslun
heilsulindarinnar stækkuð ásamt
skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu.
Einnig verða framkvæmdir á bað-
lóninu og stækkar það um helming
frá því sem nú er eða í sjö þúsund
fermetra.
Um 350 þúsund gestir heimsóttu
lónið það sem af er ári og búist er við
því að þeim muni fjölga á næstu ár-
um og því ekki vanþörf á slíkri
stækkun en verklok eru áætluð vorið
2007. Kostnaður við framkvæmd-
irnar er talinn nema um 800 millj-
ónum króna.
Húsnæði heilsulindarinnar við Bláa lónið verður ríflega tvöfaldað að stærð og verklok eru áætluð árið 2007.
Byggingar við Bláa lónið
stækka um 3.000 fermetra
Undirritun hönnunarsamninga um framkvæmdir við Bláa lónið. Frá
vinstri: Sigþór Jóhannesson, framkvæmdastjóri Fjarhitunar, Gunnar Ingi
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Rafteikningar, Eðvarð Júlíusson, stjórnar-
formaður Bláa lónsins, Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lóns-
ins, Sigríður Sigþórsdóttir, VA-arkitektum, aðalhönnuður Bláa lónsins, og
Brynjólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurnesja.
HÆSTIRÉTTUR hefur mildað dóm
yfir manni sem sakfelldur var fyrir
tilraun til nauðgunar í september í
fyrra við félagsheimilið í Aratungu. Í
héraði var ákærði dæmdur í tveggja
ára fangelsi en Hæstiréttur stytti
refsinguna í 15 mánuði. Rétturinn
féllst á það með héraðsdómi að árás-
in hefði verið fólskuleg og að ákærði
hefði beitt töluverðu líkamlegu of-
beldi. Hins vegar var við ákvörðun
refsingar litið til þess að brotið var
ekki fullframið og ákærði hefði að
eigin frumkvæði komið til lögreglu
og gefið skýrslu um brot sitt auk
þess sem hann greiddi skaðabætur.
Refsing milduð í Hæstarétti