Morgunblaðið - 11.10.2005, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
INNFLUTNINGSHRAÐSENDINGAR DHL
ENGIR ERLENDIR GJALDMIÐLAR
SEM ÞARF AÐ UMREIKNA.
OG ÞVÍ ENGIN ÞÖRF Á AÐ
ÚTSKÝRA HVERNIG Á AÐ
UMREIKNA.
Kannaðu málið á dhl.is eða í síma 535 1100.
„ALÞJÓÐA geðheilbrigðisdagurinn
snýr að öllum, því það er engin
heilsa án geðheilbrigði. Dagurinn er
til þess fallinn bæði að viðhalda
þeirri viðhorfsbreytingu í garð geð-
heilbrigðis sem orðið hefur í þjóð-
félaginu á umliðnum árum og einnig
að minna fólk á að huga að geðheil-
brigði sínu. En kjarni málsins snýr
að því að menn geri sér grein fyrir
því að andleg heilsa og líkamleg eru
óaðskiljanlegur hlutur,“ segir
Sveinn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar, sem tók ásamt
Varða, hundi sínum, á móti blaða-
manni og ljósmyndara í tilefni opins
húss samtakanna á alþjóða geðheil-
brigðisdeginum sem var í gær. Að-
spurður um veru hundsins útskýrir
Sveinn að hann hafi þegar hann hóf
störf hjá Geðhjálp á sínum tíma haft
vissar efasemdir um hvort hann
gæti leyft sér að taka hundinn með í
vinnuna, en snarlega skipt um skoð-
un eftir að hafa orðið vitni að því
þegar mikið veikur einstaklingur
sem glímdi m.a. við mikla fé-
lagsfælni vegna veikinda sinna gaf
sig að hundinum af heilum hug. „Við
þetta sannfærðist ég um að það fel-
ist mikil þerapía í því að vera með
skepnuna hér,“ segir Sveinn og
klappar Varða góðlátlega.
Geðrækt fyrir börn
Líkt og fram hefur komið var al-
þjóða geðheilbrigðisdagurinn hald-
inn hátíðlegur hérlendis í tíunda
skiptið í ár. Að sögn Sveins voru há-
tíðahöld í tilefni dagsins með nokkuð
öðru sniði í ár en undanfarin ár þar
sem dagskráin spannaði heila viku.
Aðspurður segist Sveinn býsna
ánægður með aðsóknina að þeim við-
burðum sem boðið hefur verið upp á
sl. viku og nefnir hann í því sam-
hengi sérstaklega Geðhlaupið sem í
kringum tvö hundruð manns tóku
þátt í. Bendir Sveinn á að með bæði
geðhlaupi, geðsundi og geðgöngu
sem í boði var nú um helgina hafi
menn viljað undirstrika tengslin
milli líkamlegrar heilsu og geð-
heilsu.
Aðspurður segist Sveinn ljóst að
ákveðin viðhorfsbreyting hafi orðið í
samfélaginu á umliðnum árum, ekki
síst með tilkomu Geðræktarátaksins
sem einmitt var stofnað til í húsnæði
Geðhjálpar á Túngötu fyrir fimm ár-
um og hýst þar fyrstu árin áður en
það færðist undir Lýðheilsustöð.
„Þetta verkefni olli straumhvörfum í
því að draga úr fordómum, en þetta
er afar mikilvægt forvarnarverkefni.
Því ef forvörnum er ekki sinnt þá
verðum við endalaust í viðgerð-
arvinnu um ókomna framtíð og það
er eitthvað sem við eigum að láta til-
heyra 20. öldinni. Nú erum við kom-
in á 21. öldina og nú viljum við fara
að sjá forvarnir og aðgerðir sem lúta
að því að koma í veg fyrir að fólk
verði veikt,“ segir Sveinn og nefnir í
því samhengi verkefni sem Chris
Bale kynnti á ráðstefnu um geðheil-
brigðismál sem haldin var sl. föstu-
dag.
Um hundrað manns hjá
Geðhjálp á degi hverjum
Aðspurður segir Sveinn að um
hundrað manns leggi leið sína í hús
Geðhjálpar á degi hverjum. Stór
hluti þeirra kemur í húsið til að
sækja námskeið Fjölmenntar sem
hýst eru í húsinu, en á sl. þremur
síðustu önnum hafa um hundrað
manns sótt nám á hverju misseri. Að
sögn Sveins er bæði um að ræða af-
þreyingarnámskeið sem og eining-
arbært nám, sem hefur veitt fólki
kost á að útskrifast bæði úr fram-
haldsskóla sem og jafnvel Háskóla
Íslands.
„Hér er fólk sem var hvorki les-
andi né skrifandi, en fékk þann
stuðning sem til þurfti til að læra
bæði að lesa og skrifa,“ segir Sveinn
og segir mikið hægt að gera í mál-
efnum geðsjúkra.
Andleg heilsa manna og líkamleg
eru óaðskiljanlegir hlutir
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Í tilefni dagsins bauð Ingibjörg Gunnlaugsdóttir ráðskona gestum upp á glæsilegar veitingar. Gera má ráð fyrir
að um hundrað manns leggi daglega leið sína í hús Geðhjálpar, hvort heldur til að borða í hádeginu, lesa blöðin,
spjalla eða sækja námskeið á vegum Fjölmenntar, sem starfrækt er í kjallara hússins.
Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, ásamt hundi sínum
Varða sem er orðinn mikill heimilisvinur hjá Geðhjálp við Túngötuna.
35 ÁRA gamall íslenskur karl-
maður hefur verið ákærður fyrir
kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku
í Bretlandi hinn 31. maí sl. að því
er segir á fréttavef Surreyonline.
Maðurinn var ákærður hinn 9.
september og hefur komið fyrir
dóm vegna málsins. Hann er
frjáls ferða sinn gegn tryggingu
en var gert að tilkynna sig mán-
aðarlega á lögreglustöð í sumar.
Ákærði hefur haldið því fram að
hann hafi ekki vitað að stúlkan
var einungis 15 ára og jafnframt
neitað því að hún hafi ekki gefið
samþykki sitt fyrir samræði. Mál-
inu hefur verið frestað til
fimmtudags.
Ákærður fyrir
kynferðisbrot
gegn stúlku
GEÐHEILBRIGÐISMÁL hafa
verið í brennidepli innan Háskóla Ís-
lands að undanförnu. Hagur þeirra
nemenda sem þjást af geðröskunum
vænkaðist í gær, á alþjóða geðheil-
brigðisdaginn, þegar hagsmuna-
félagið Manía var stofnað en það
mun beita sér fyrir bættri stöðu ein-
staklinga með geðraskanir, stuðla að
almennu geðheilbrigði nemenda og
opna umræður um málefnið.
Á stofnfundi Maníu var Tinna
Mjöll Karlsdóttir skipuð formaður
félagsins, hún segir að fyrsta mark-
mið þess verði að ýta á eftir því að
skólinn móti stefnu í geðheilbrigðis-
málum en Kristín Ingólfsdóttir,
rektor HÍ, lýsti því yfir á fundinum
að í undirbúningi væri vinna að slíkri
stefnu.
Óskað viðræðna
við rektor um stefnuna
Tinna Mjöll mun óska eftir við-
ræðum við rektor og krefja svara um
hvenær stefnan á að vera tilbúin en
hún vill að Manía taki virkan þátt í
mótun hennar. Félagið hafi nú þegar
kynnt sér geðheilbrigðisstefnur í há-
skólum í Evrópu með góðum árangri
og ætti því að geta lagt margt til.
Aðspurð segist hún hafa fengið
sterk viðbrögð frá nemendum skól-
ans sem margir hverjir hafi furðað
sig á hvers vegna slíkt félag hafi ekki
verið stofnað fyrr, mikil nauðsyn sé
en talið er að um tuttugu prósent
allra fái einhvern tíma geðraskanir
um ævina.
Félag fólks með geðraskanir innan HÍ stofnað í gær
Morgunblaðið/Sverrir
Stofnfundur Maníu, félags fólks með geðraskanir innan Háskóla Íslands, var haldinn í gær.
Unnið að bættum hag ein-
staklinga með geðraskanir
Á FUNDI borgarráðs sl. fimmtu-
dag var ákveðið að fela borg-
arstjóra að ganga til viðræðna
við fasteignafélagið Klasa hf.
vegna beiðni félagsins um við-
ræður um ráðstöfunarrétt á
Strætólóðinni við Borgartún.
Fyrir skömmu sendi Klasi
borgarstjóra bréf þar sem félag-
ið, sem er í eigu Íslandsbanka og
Sjóvár, óskar eftir að ganga til
samningaviðræðna við Reykjavík-
urborg um kaup á lóðinni Borg-
artún 41, svonefndri strætólóð,
um skipulag lóðarinnar og flutn-
ing á starfsemi Strætó.
Fram kemur í bréfinu að Ís-
landsbanki þurfi að horfa til
framtíðar fyrir höfuðstöðvar
bankans við Kirkjusand. Bankinn
og félög tengd honum vilji vaxa
og dafna á svæðinu og það henti
afar vel fyrir starfsemi bankans.
Unnið sé að því að flytja aðrar
starfsstöðvar og við það muni
húsnæðisþörfin aukast úr 8.000
fermetrum í 15.000 fm en gert sé
ráð fyrir að húsnæðisþörfin muni
jafnvel þrefaldast á næstu 10 ár-
um.
Klasi gerir ráð fyrir blandaðri
byggð skrifstofubygginga og
íbúða á lóðinni og leggur til að
uppbygging taki ekki lengri tíma
en þrjú ár.
Íslandsbanki
flyst á
Strætólóðina