Morgunblaðið - 11.10.2005, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Málþing um Hekluskóga
Samráðsnefnd um Hekluskóga boðar til málþings, sem haldið
verður miðvikudaginn 12. okt. n.k. í fundarsal Íslenskrar
erfðagreiningar, Sturlugötu 8, Reykjavík, kl. 14:00-17:00.
Hugmyndir um Hekluskóga ganga út á að samþætta endurheimt
náttúruskóga og varnir gegn áhrifum gjóskugosa. Megintilgangur
Hekluskóga er að verja landið fyrir áföllum vegna öskufalls með
því að endurheimta náttúrulegan birkiskóg og kjarrlendi á
stórum, samfelldum svæðum.
Dagskrá:
14:00 Setning málþings: Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra
14:10 Svipmyndir frá Hekluskógasvæðinu
14:20 Hekluváin: Áhrif gjósku frá Heklu.
Árni Hjartarson, jarðfræðingur
14:35 Af skóg- og jarðvegseyðingu í grennd við Heklu.
Sveinn Sigurjónsson, bóndi
14:50 Hekluskógar, frá hugmynd að veruleika.
Ása L. Aradóttir og Hreinn Óskarsson,
fulltrúar samráðsnefndar
15:20 Fyrirspurnir og umræður
15:40 Kaffiveitingar
16:00 Pallborðsumræður um gildi Hekluskóga:
Frá sjónarhóli landeigenda. Sigríður Heiðmundsdóttir, bóndi
Frá sjónarhóli sveitarstjórnarmanna. Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson, sveitarstjóri í Rangárþingi ytra
Í samhengi við alþjóðleg umhverfismál. Hugi Ólafssn,
skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu
Viðhorf fulltrúa stjórnmálaflokkanna
17:00 Málþingi slitið: Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra
Fundarstjórar: Drífa Hjartardóttir og
Þórunn Sveinbjarnardóttir,alþingismenn
Málþingið er öllum opið.
Að samráðsnefnd um Hekluskóga standa landeigendur á
Hekluskógasvæðinu, Landgræðsla ríkisins, Landgræðslusjóður,
Skógræktarfélag Árnesinga, Skógræktarfélag Rangæinga,
Skógrækt ríkisins og Suðurlandsskógar.
TRYGGVI Þórhallsson, lögfræðing-
ur Háskóla Íslands, tók á sínum tíma
undir álit dómsmálaráðuneytisins
um varnarþing í máli Jón Ólafssonar
á hendur Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni prófessor. Tryggvi taldi
ólíklegt að málið fengi efnislega með-
ferð í Bretlandi en ef svo færi ætti að
vera möguleiki á endurupptöku
málsins.
Þetta var skoðun Tryggva þegar
Hannes spurði hann um lögsögu
breska dómstólsins í málinu. Að sögn
Tryggva sendi Hannes honum fyr-
irspurn í tölvupósti 13. september
2004. Tryggvi sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa svarað Hannesi
viku síðar þar sem hann hefði reifað
skoðun sína á því hvernig stefnu á
hendur Hannesi gæti hugsanlega
reitt af í Bretlandi.
Þessa skoðun hefði Tryggvi látið í
ljós sem lögfræðingur HÍ, en ekki
sem lögmaður Hannesar og auk þess
tekið fram í svari sínu til Hannesar
að hann væri ekki sérfróður um Lug-
ano-samninginn eða breska réttar-
skipan. Lugano-samningurinn fjallar
um alþjóðlegan einkamálarétt.
Benti til skorts á forsendum
„Það sem ég kynnti mér almennt
benti þó til að það skorti forsendur
fyrir því að enskur dómari tæki málið
til efnislegrar meðferðar þannig að
frávísunarástæða væri fyrir hendi í
málinu,“ sagði Tryggvi í samtali við
Morgunblaðið.
Tryggvi sagðist hafa nefnt þann
varnagla við Hannes að birting um-
mæla á Netinu nyti sérstöðu af ein-
hverju tagi en hins vegar hefði hann
ekki rekist á neitt haldbært sem
segði af eða á um það. „Hins vegar
taldi ég alveg ljóst að slík sjónarmið
væru ekki hluti af því hvernig Lug-
ano-samningurinn væri framkvæmd-
ur hér á landi.“
Aðspurður hvernig hann meti svör
sín nú, þegar málið hefur verið dæmt
í Bretlandi, Jóni í vil, sagðist Tryggvi
ekki hafa séð dóminn sjálfan og því
gæti hann ekki tjáð sig um það. „Ég
fékk spurningu og svaraði henni með
ákveðnum fyrirvörum. Það hvort
menn telja svör mín „ráðgjöf“ eða
„álit“ verður hver og einn að dæma
um fyrir sig.“
Heimasíða Hannesar var hýst á
heimasíðu HÍ en á síðu Hannesar
birtust hin kærðu ummæli um Jón
Ólafsson og var hún tekin niður
nokkrum mánuðum eftir birtingu
ummælanna. Tryggvi sagðist ekki
vita hver hefði tekið niður síðu Hann-
esar.
Varðandi ábyrgð HÍ á efni heima-
síðna innan stofnunarinnar benti
Tryggvi á að sú almenna regla gilti
að birti menn ummæli sín undir nafni
beri viðkomandi sjálfir ábyrgð á efni
sinna síðna
„Prófessorar og aðrir háskóla-
kennarar hafa auðvitað ákveðið frelsi
í sínum störfum og það er enginn
sem ritskoðar efni heimasíðna
þeirra. Lögum samkvæmt bera þeir
sjálfir ábyrgð á efni sínu. Við lítum
ekki svo á að það gildi sömu ákvæði
um heimasíðu háskólans og t.d. um
prentmiðla. Vefritstjóri háskólans
ber því ekki sams konar ábyrgð og
ritstjóri prentmiðils,“ sagði Tryggvi.
Lögfræðingur Háskóla Íslands um
meiðyrðamál Jóns Ólafssonar
Taldi ólíklegt að
málið fengi efnis-
meðferð í Bretlandi
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FYRSTA heftið af tímariti með
dómareifunum Mannréttinda-
dómstóls Evrópu kom út í gær. Það
nær yfir dóma fyrstu sex mánuði
ársins 2005 og er stefnt að því að
gefa út tvö rit árlega. Mannrétt-
indastofnun Háskóla Íslands stend-
ur að útgáfunni með stuðningi
dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra ýtti fyrsta heftinu úr vör og
sagði útgáfuna tímabæra enda
hefðu niðurstöður Mannréttinda-
dómstóls Evrópu áhrif hér á landi
eins og annars staðar. Málið snerti
marga og 20. október myndi t.d.
ráðuneytið í samvinnu við Lög-
mannafélag Íslands og Háskólann í
Reykjavík halda málþing um dóm-
stólavæðinguna. Hann sagði ekki
hægt að tala um efnið af einhverri
alvöru án þess að hafa tímarit eins
og þetta nýja tímarit í höndunum.
Það væri nauðsynlegur þáttur í ís-
lenskum lögfræðistörfum og lög-
fræðilegum úrlausnarefnum auk
þess sem það væri hluti af al-
þjóðavæðingunni.
Fræðsla um mannréttindi
Björg Thorarensen, prófessor í
lagadeild Háskóla Íslands og for-
stöðumaður Mannréttindastofnunar
HÍ, er ritstjóri tímaritsins, en rit-
nefnd skipa dr. Oddný Mjöll Arn-
ardóttir, héraðsdómslögmaður, og
Skúli Magnússon, héraðsdómari.
Laganemarnir Helgi Þór Þor-
steinsson og Hervör Pálsdóttir
koma einnig að verki fyrsta heft-
isins. Björg Thorarensen segir að
eitt helsta markmið Mannréttinda-
stofnunar HÍ sé að breiða út þekk-
ingu og fræðslu um mannréttindi og
mannréttindasáttmála. Með útgáfu
tímarits með dómareifunum Mann-
réttindadómstólsins skapist mögu-
leiki til þess að fylgjast með hvað sé
að gerast hjá Mannréttindadómstól
Evrópu hverju sinni.
Mannréttindadómstóllinn fær um
50 þúsund kærur árlega og kveður
upp um 700 til 800 dóma á ári.
Stefnt er að taka um 80 til 100
þeirra fyrir í tímaritinu. Björg
Thorarensen segir að við val á dóm-
um sé stuðst við flokkun dóma hjá
dómstólnum eftir mikilvægi þeirra
og valdir séu dómar sem taldir eru
hafa sérstakt gildi fyrir túlkun
Mannréttindasáttmálans. Eins sé
reynt að taka fyrir dóma sem
kveðnir séu upp á Norðurlöndunum
og til standi að birta í heild ákvarð-
anir og dóma sem tengjast íslensk-
um málum, en þeir eru samtals um
10 til þessa.
Samið hefur verið við Tímarit
lögfræðinga um dreifingu til áskrif-
enda. Dómsmálaráðuneytið annast
dreifingu til stofnana innan lög-
gæslu- og dómstólakerfisins en ann-
ars annast Háskólaútgáfan dreif-
inguna. Ennfremur er stefnt að því
að birta tímaritið á vefsíðu Mann-
réttindastofnunar HÍ, mhi.hi.is.
Útgáfa á dómareifunum Mannréttindadómstóls Evrópu
Nauðsynlegur þáttur í
íslenskum lögfræðistörfum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Björg Thorarensen, prófessor og
forstöðumaður Mannréttindastofnunar HÍ, með fyrsta heftið.
VINIR einkabílsins héldu stofnfund
sinn í Reykjavík á sunnudag, en
markmið samtakanna er að tryggja
greiðari umferð einkabíla um borg-
ina. Formaður samtakanna var kos-
inn Eggert Páll Ólason lögfræð-
ingur.
Eggert Páll segir kominn tíma til
að borgaryfirvöld geri einkabílnum
jafn hátt undir höfði og almenn-
ingssamgöngum. „Stofnun samtak-
anna er því mikilvægt skref í átt að
greiðari umferð um götur borg-
arinnar,“ segir Eggert Páll. „Öku-
menn eiga betra skilið en að sitja
fastir í umferðarhnútum oft á dag.“
Aðspurður um leiðir til að liðka
fyrir umferð einkabílsins segir
Eggert Páll mikilvægt að nýta
stofnbrautir betur og skipuleggja
ný hverfi betur. „Þegar Norð-
lingaholtið var skipulagt virðist
eins og það hafi ekki verið gert ráð
fyrir því að fólk keyrði fram og til
baka úr hverfunum,“ segir Eggert
Páll. „Umræðan virðist vera á þeim
götum að almenningsvagnar leysi
allan vanda, en staðan er einfald-
lega sú að almenningur velur að
ferðast um á einkabílum og því er
nauðsynlegt að taka tillit til þess
við skipulag á umferðarmann-
virkjum og nýjum hverfum. Það er
ljóst að sú þróun sem hefur orðið á
bílaeign landsmanna verður ekki
tekin aftur á örfáum árum. Hug-
myndir um að snúa þeirri þróun við
munu taka langan tíma. Á meðan
finnst mér að borgaryfirvöld ættu
að hlúa að borgurum sínum frekar
en að reyna að knýja fólk til að nota
aðra samgöngumáta sem eru yf-
irvöldum þóknanlegir.“
Eggert Páll segir lausnina á
mengunarvanda þeim sem fylgir
einkabílum m.a. þá að minnka álög-
ur á bíla sem eru umhverfisvænir,
s.s. blendingsbíla, en ekki með því
að gera umhverfi ökumanna óþol-
andi, enda séu umferðartafir meng-
andi í sjálfu sér eins og auglýsingar
um bíla í lausagangi sýni vel.
Vinir einkabílsins
vilja greiðari umferð
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eggert Páll Ólason, formaður Vina einkabílsins, ræðir við fundargesti á
Hótel Sögu. Segir hann margt mega gera til að bæta hag ökumanna.
SAMKVÆMT upplýsingum frá lög-
manni Jóns Ólafssonar var dóm-
urinn yfir Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni kveðinn upp í London
í júlí.
Hinn 24. ágúst gefur dómstóll í
London út yfirlýsingu um að skil-
yrði fyrir kröfum Jóns Ólafssonar
séu uppfyllt og að Hannes hafi ver-
ið dæmdur til að greiða Jóni
65.000 pund fyrir meiðyrði auk um
25.000 punda í kostnað, samtals
um 9,3 milljónir króna. Upphæðin
ber 8% árlega vexti. Þá kemur
fram að lögbann hafi verið sett á
að dómþoli, þ.e. Hannes Hólm-
steinn, birti aftur hin ærumeiðandi
ummæli eða verði til þess að þau
séu birt.
Bæturnar námu
65 þús. pundum
OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu í gær
verð á eldsneyti frá 50 aurum og
upp í um eina krónu. Algengt
verð í sjálfsafgreiðslu á 95 okt-
ana bensíni víða var um 113
krónur fyrir lítrann og lítrinn af
gasolíu var um einni og hálfri
krónu ódýrari.
Eldsneyti lækkar
hægt og sígandi
STÖÐUG og hávær hjálparköll,
líkt og verið væri að murka lífið
úr manni, bárust frá íbúð einni í
Árbænum í fyrrinótt. Nágrann-
arnir brugðust hárrétt við og
hringdu í lögregluna í Reykjavík
sem kom þegar á vettvang og
barði dyra. Þegar íbúi hennar
kom til dyra stuttu síðar kom í
ljós að hann hafði verið með mar-
tröð og hljóðað upp úr svefni sak-
ir skelfingar, að sögn lögreglu.
Maðurinn þakkaði síðan lögreglu
kærlega fyrir að hafa vakið sig.
Þetta mun vera í annað sinn á
tveimur mánuðum sem lögreglan
er kölluð til vegna martraða
mannsins.
Kallað á lögreglu
vegna martraða