Morgunblaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Úrslit sameiningar-kosninganna síð-astliðinn laugar-
dag komu dr. Grétari Þór
Eyþórssyni, prófessor í
stjórnmálafræði við Við-
skiptaháskólann á Bifröst,
að sumu leyti á óvart og að
öðru leyti ekki. Hann hefur
rannsakað sameiningar
sveitarfélaga hér og er-
lendis og skrifaði m.a.
doktorsritgerð sína um
viðhorf kjósenda og sveit-
arstjórnarmanna til sam-
einingar sveitarfélaga.
„Ég var í sjálfu sér ekki
hissa á að einungis ein tillaga var
samþykkt og mögulega ein til tvær
til viðbótar í framhaldinu. Það sem
er óvænt er einkum tvennt: Að
sameining skyldi víða hreinlega
vera kolfelld, sem er athyglisvert,
og mjög lítill stuðningur við sam-
einingu í mörgum sveitarfélögum.
Allt niður í 1% sem ég held að sé
Íslandsmet,“ sagði Grétar. „Annað
athyglisvert er að það er algengt
að stóru kjarnarnir, sem ég hef
skilgreint sem þjónustu- og stjórn-
sýslukjarna í væntanlegu sveitar-
félagi, felli sameininguna nú. Það
gerðist nú í 6 tilvikum af 14 en hef-
ur gerst aðeins einu sinni áður í
sögu sameiningarkosninga. Ég er
þarna t.d. að tala um Akureyri og
Skagafjörð og Vesturbyggð. Þá
virtist andstaðan við sameiningu
einnig vera mikil í þeim sveitar-
félögum sem ekki hefðu gegnt
kjarnahlutverki í sameinuðu sveit-
arfélagi.“
Málstaður andstæðinga
náði í gegn
Háskólinn á Akureyri gerði
könnun á liðnu vori um sameiningu
sveitarfélaga í Eyjafirði, meðan
Grétar var þar við störf. Hún leiddi
í ljós mun meiri stuðning við sam-
einingu þá en kosningin leiddi nú í
ljós. Grétar sagði greinilegt að
málstaður andstæðinga samein-
ingar hafi náð í gegn. „Það er at-
hygli vert að sveitarfélögin sitt
hvorum megin væntanlegra Héð-
insfjarðarganga horfa jákvæðum
augum á sameiningu. Það gæti
verið ávísun á að Siglufjörður og
Ólafsfjörður eigi eftir að sameinast
í framtíðinni í tengslum við opnun
jarðganganna, en það þarf að kjósa
aftur um það.“
Þrátt fyrir að sameiningartillög-
ur fengju ekki brautargengi í kosn-
ingunum 1993 fylgdu margar sam-
einingar í kjölfarið næstu árin á
eftir. Grétar telur næsta víst að
einhver kippur í sameiningarmál-
um fylgi kosningunum nú. „Það
voru þrátt fyrir allt tuttugu sveit-
arfélög sem sögðu já. Það getur vel
gerst að það verði einhverjar sam-
einingar í framhaldinu. Hins vegar
verður ekki framhjá því litið að
sameining er kolfelld mjög víða og
það gefur ástæðu til svartsýni um
að jafnmikil hreyfing verði á þess-
um málum og varð eftir kosning-
arnar 1993.“ En er hægt að benda
á einhver atriði sem geta hafa skipt
sköpum um úrslit sameiningar-
kosninganna nú?
Grétar nefndi að ef til vill hefði
meira þurft að liggja fyrir um fyr-
irhugaðan verkefnaflutning frá ríki
til sveitarfélaga í aðdraganda
kosninganna. Eins hefðu stjórn-
völd þurft að kveða skýrar á um
áhrif breytinga á reglum Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga fyrir sveitar-
félögin. „Það lá fyrir í Eyjafjarð-
arsameiningunni veruleg lækkun á
framlögum Jöfnunarsjóðs og
fékkst engin trygging fyrir því að
það yrði lagað. Sagt að málið yrði
skoðað og að framlögin yrðu
óbreytt í fjögur ár, en engu svarað
almennilega um hvað gerðist að því
loknu. Ég tel að það hafi verið
ákveðin mistök,“ sagði Grétar.
Tilfinningaþátturinn leikur stórt
hlutverk í afstöðu fólks til samein-
ingar, einkum í minni sveitarfélög-
um. Sama gilti í stóru sameining-
arkosningunum 1993. Grétar sagði
að munurinn á úrslitunum 1993 og
nú sé að sameiningartillögur séu
nú að fá mun minni stuðning hlut-
fallslega.
Frumkvæði komi
frá sveitarfélögunum
„Ef sameiningar eiga að vera
frjálsar verður frumkvæðið að
þeim að koma frá sveitarfélögun-
um, fólkinu og fulltrúum þess,“
sagði Grétar og tók undir orð
Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjar-
stjóra um að upptök sameininga
verði að koma frá fólkinu. „Það er
ljóst að það gerist á mun lengri
tíma, en valdhafar og reyndar
sumir þingmenn Samfylkingarinn-
ar sem ég hef heyrt í, eru tilbúnir
að sætta sig við. Þeir vilja endur-
skipuleggja sveitarstjórnarkerfið á
skemmri tíma en þessi aðferðar-
fræði getur skilað. Ætli menn að
halda sig við að stækka sveitar-
félögin og flytja til þeirra aukin
verkefni er ekkert annað en vald-
boð, lagasetning, framundan.“
Eru þá horfur á setningu laga
um sameiningar sveitarfélaga á
næsta eða þarnæsta kjörtímabili
Alþingis?
„Það kæmi mér ekki á óvart að
farið yrði farið í lagasetningu um
sameiningu sveitarfélaga á næstu
fimm árum, eins og mér finnst
tónninn vera í mörgum þingmönn-
um. Ég tala ekki um ef Samfylk-
ingin kemst í ríkisstjórn. Hún er ef
til vill sá stjórnmálaflokkur sem
hefur tjáð sig hvað mest um að
setja lög um sameiningu sveitarfé-
laga. Ég hallast að því að þetta
gæti gerst, innan ekki mjög langs
tíma.“
Fréttaskýring | Sameiningarkosningar
Lög um sam-
einingu líkleg
Eigi að stækka sveitarfélögin blasir við
setning laga um sameiningar þeirra
Dr. Grétar Þór Eyþórsson
Tilgangurinn að efla
sveitarstjórnarstigið
Niðurstöður kosninganna um
sameiningu sveitarfélaga síðast-
liðinn laugardag sýna að meiri-
hluti íbúa í tveimur af þremur
sveitarfélögum, sem kosið var í,
vill óbreytt ástand. Í aðdraganda
kosninganna var boðað að nauð-
synlegt væri að efla sveitarfé-
lagastigið til að það gæti tekið
við fleiri verkefnum frá ríkinu
og sinnt betur þjónustu við
íbúana. Í því skyni þyrftu sveit-
arfélög að stækka og eflast.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
EKKI er enn ljóst hvað undirbún-
ingur og framkvæmd sameiningar-
kosninganna síðastliðinn laugardag
kostaði, að sögn Róberts Ragnars-
sonar, verkefnisstjóra í félagsmála-
ráðuneytinu. Hann sagði vilyrði fyrir
því að sveitarfélög sem tóku þátt í
kosningunni fái samtals allt að 90
milljónum króna úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga til að standa straum af
kynningu og atkvæðagreiðslu vegna
kosningarinnar.
Niðurstöður sameiningarkosning-
anna komu Róbert mikið á óvart.
Hann bendir á að niðurstaðan hafi
ekki verið í samræmi við viðhorfsk-
annanir sem Gallup og Háskólinn á
Akureyri gerðu í fyrravetur og eins
könnun ParX í Vogunum. Róbert
nefndi sérstaklega kosningaúrslitin í
Árborg og á Akureyri. „Þau eru
þvert gegn því sem hefur verið hing-
að til, að stóru sveitarfélögin hafa
samþykkt og þau minni fellt. Nú er
fólk ef til vill farið að hugsa öðruvísi í
stóru sveitarfélögunum en það
gerði.“
Dræm þátttaka var í sameining-
arkosningunum,
með fáeinum und-
antekningum.
Róbert sagði að á
ýmsum stöðum sé
skammur tími lið-
inn frá síðustu
sameiningar-
kosningum, t.d. í
Árborg og á Ak-
ureyri. Hann velti
því fyrir sér hvort
þeim sem styðja sameiningu hafi
ekki þótt taka því að mæta á kjörstað
nú, því þeir hafi þegar lýst stuðningi
sínum við sameiningu.
Áhyggjur af lítilli þátttöku
„Ef ég væri í stjórnmálum og að
velta fyrir mér fjölgun þjóðarat-
kvæðagreiðslna myndi ég hafa mest-
ar áhyggjur af þessari kosningaþátt-
töku,“ sagði Róbert. Hann kvaðst
hafa verið viðbúinn lítilli kosninga-
þátttöku nú, en ekki jafnlítilli og hún
varð í raun. „Yfirleitt er minni þátt-
taka í sameiningarkosningum en í
t.d. sveitarstjórnarkosningum, nema
í minnstu sveitarfélögunum. Þar er
hún oft meiri.“
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, hefur bent á að það
hafi gefist best að sameining sveitar-
félaga eigi sér upptök hjá fólkinu á
viðkomandi svæði. Róbert segir að
það geti vel verið rétt. „Þetta verk-
efni hefur komið þessu rækilega á
dagskrá. Ef til vill taka íbúarnir bolt-
ann núna. Ég vona að það gerist líkt
og eftir kosningarnar 1993.“
Róbert segir að sér komi spánskt
fyrir sjónir umræða um að ekki hafi
verið búið að ganga frá tekjustofna-
og verkefnaskiptingu milli ríkis og
sveitarfélaga og það haft áhrif á úr-
slitin. Hann sat flesta íbúafundina í
aðdraganda sameiningarkosning-
anna.
„Almenningur spurði ekki um
tekjustofna eða verkaskiptingu, að-
eins einstaka sveitarstjórnarmaður.
En fjallskil og alls konar tilfinninga-
mál fengu miklu meira pláss en
tekjustofnaskipting eða verkefna-
flutningur á fundunum,“ sagði Ró-
bert.
Niðurstaðan kom á óvart
Róbert
Ragnarsson
Hofsós | Enn einn nýr og flottur völlur var formlega
tekinn í notkun á Hofsósi um síðastliðna helgi og hafa
þá milli 60 og 70 vellir í frábæru sparkvallaátaki KSÍ
verið gerðir víðsvegar um landið.
Vissulega voru það vonbrigði að frumkvöðull að
þessu sparkvallaátaki, fyrrverandi landsliðsmaður Eyj-
ólfur Sverrisson, átti þess ekki kost að vera viðstaddur,
vegna anna sinna með unglingalandsliðið, og ekki held-
ur neinn úr sveitarstjórn Skagafjarðar.
Það var hinsvegar Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, sem afhenti völlinn og sagðist hann
þess fullviss að þessi völlur ekki síður en aðrir þeir sem
gerðir hafa verið mundi nýtast krökkunum á staðnum
vel til leikja og æfinga og þá væri tilganginum náð.
Hann þakkaði ungmennafélaginu Neista fyrir frábært
samstarf við gerð vallarins og færði félaginu svo og
grunnskólanum boltagjafir frá KSÍ. Harpa Krist-
insdóttir í félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar
flutti einnig ávarp, en síðan voru kallaðir til tveir
krakkar sem klipptu á borða og þar með var völlurinn
formlega opnaður.
Ljóst var að ungir sem hinir eldri kunnu vel að meta
þennan góða völl, sem bæði er vel lýstur, sem nýtist vel
þegar dag fer að stytta, svo og er undir honum hitalögn
sem notuð verður þegar mannvirki á Hofsósi verða loks
hituð með jarðvarma.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Nýr sparkvöllur á Hofsósi