Morgunblaðið - 11.10.2005, Page 10
UMRÆÐA utan dagskrár um nið-
urstöður kosninga um tillögur að
sameiningum sveitarfélaga sem fram
fóru á laugardaginn, var óvænt tekin
upp á Alþingi í gær. Sólveig Péturs-
dóttir, forseti Alþingis, sagði í upp-
hafi þingfundar að henni hefðu borist
óskir frá fjórum þingmönnum um að
umræður færu fram um málið og þá
hefðu minnst tveir þingmenn til við-
bótar ætlað að biðja um slíka um-
ræðu. Hún hefði því beðið félags-
málaráðherra, Árna Magnússon, að
hefja umræðu um málið.
Lýðræðisleg niðurstaða liggi
fyrir og henni verði unað
Árni sagði að mikið hefði verið
rætt um þörf á að bera mál milliliða-
laust undir þjóðina í auknum mæli og
þessar kosningar hefðu verið í anda
þeirra sjónarmiða. Hann lýsti
ánægju sinni með umræðu sem farið
hefði fram um málefni sveitarfélaga
og sagðist sannfærður um að hún
myndi nýtast til styrkingar á þessu
mikilvæga stjórnsýslustigi.
Árni sagði að þverpólitísk samein-
ingarnefnd hefði sett fram tillögur
eftir víðtækt samráð og hlutverk
ráðuneytisins hefði fyrst og fremst
verið samræming milli aðila. Fullyrti
hann að ráðuneytið og aðrir sem að
verkefninu hefðu komið, hefðu sinnt
skyldum sínum.
Árni sagði að hér væri málum
komið fyrir á lýðræðislegri hátt en í
nágrannalöndum og íbúar hefðu í
raun neitunarvald gagnvart samein-
ingu. Því valdi hefði nú verið beitt og
því yrði að una. Hann sagði að tekju-
stofnaumræðum hefði lokið í mars
með samkomulagi ríkis og sveitarfé-
laga um verulega aukna fjármuni til
sveitarfélaga. Almennar ástæður
þess að íbúar væru andvígir samein-
ingum væru mismunandi skulda-
staða, ótti við hina stóru, ótti við hið
óþekkta, ótti við að vera jaðarbyggð,
samgönguvandamál og fleira.
„Kjarni málsins er að sveitar-
stjórnarmenn óskuðu eftir að ríkis-
valdið kæmi að verkefni um samein-
ingu sveitarfélaga. Við því var að
sjálfsögðu orðið og Alþingi sam-
þykkti það,“ sagði Árni. „Kosning
hefur farið fram og lýðræðisleg nið-
urstaða liggur fyrir. Við unum henni
að sjálfsögðu að stjórnarandstöðu
undanskilinni og það er óskiljanlegt
að lýðræðisleg niðurstaða kosningar
skuli fara svona í taugarnar á lýð-
ræðislega kjörnum fulltrúum fólks-
ins í landinu.“
Úrslitin vonbrigði
Kolbrún Halldórsdóttir sagði und-
irbúningsaðila kosninganna hafa
uppskorið eins og sáð var til. Hún
sagði tekjustofnanefndina hafa rekið
á sker og að varanlegar úrlausnir
vantaði. Hún spurði hvort væntan-
legar væru viðunandi tillögur sem
gerðu sveitarfélögum kleift að standa
straum af kostnaði lögbundinna
verkefna og þjónustu. Þær vantaði
en á sama tíma teldi ríkisstjórnin sig
geta orðið af tugum milljarða króna í
formi skattalækkana.
Einar Már Sigurðarson sagði úr-
slitin vonbrigði og ein ástæða þess að
illa fór væri að tekjuskiptanefndin
hefði verið of lengi að finna lausnir.
Hann spurði síðan hver væru næstu
skref.
Árni M. Mathiesen, fjármálaráð-
herra, sagði umræðuna einkenni-
lega. Niðurstaða lýðræðislegrar at-
kvæðagreiðslu væri að kjósendur
hefðu ekki áhuga á sameiningu og
væru ánægðir með sitt. Þá kæmu
þingmenn og leituðu blóraböggla en
niðurstaðan væri afgerandi og aug-
ljóslega væri hvorki eftirspurn eftir
sameiningum né auknum verkefnum
til sveitarfélaga. Menn yndu sáttir
við sitt og á meðan svo væri yrði stað-
an óbreytt.
Fyrst þurfi að efla
sveitarfélög
Sigurjón Þórðarson sagði samein-
ingarumræðuna á villigötum og að
hún væri aðferð til að forðast að taka
á raunverulegum vanda. Sveitar-
félögin væru ófær um að taka við
auknum verkefnum og nær væri að
ná fram sparnaði í opinberum rekstri
með sameiningum sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu.
Steingrímur J. Sigfússon sagði að
fyrst hefði þurft að sjá sveitarfélög-
um fyrir viðunandi tekjustofnum til
að standa sómasamlega að núverandi
verkefnum. Menn væru leiðir á að
kaupa köttinn í sekknum og ætluðu
nú ekki að láta svelta sig til hlýðni.
Hann lýsti jafnframt undrun sinni á
ummælum ráðherra og sagði íbúa
sveitarfélaga hreint ekki ánægða
með stöðu mála.
Jóhann Ársælsson sagði samstöðu
hafa ríkt á þingi um að stækka og
efla sveitarfélög og tók undir orð
Steingríms um að menn hefðu þurft
að sjá til þess að sveitarfélögin væru
nógu sterk til að taka við verkefnum.
Guðjón Hjörleifsson sagði um-
ræðuna ósanngjarna og að ákvörð-
unarvaldið lægi hjá íbúunum. Hann
sagði hluta af skýringunni vera mis-
jafna fjárhagsstöðu sveitarfélaga en
minnti á að sveitarfélög hefðu haft
frumkvæði að sameiningartilraun-
um.
Guðjón A. Kristjánsson sagði
marga ósátta eftir sameiningar á síð-
asta áratug og að ekki hefði verið séð
nægilega fyrir sveitarfélögum. Þá
hefði Frjálslyndi flokkurinn ekki
fengið sæti í hinni þverpólitísku
nefnd sem Árni talaði um.
Utandagskrárumræða um niðurstöður kosninga um sameinuð sveitarfélög
Félagsmálaráðherra segir
að niðurstöðu verði unað
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði við utandagskrárumræðuna að hérlendis væri málum komið fyrir
á lýðræðislegri hátt en í nágrannalöndunum og að íbúar hefðu hér í raun neitunarvald gagnvart sameiningu.
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„AUGLJÓST er að þessi mikla út-
lánaþensla sem orðið hefur í landinu
hefur verið sjálfstæður spennuvald-
ur og gert það að verkum að við höf-
um verið að sjá einkaneyslu aukast
mjög mikið og langt umfram aukn-
ingu kaupmáttar sem hefur skilað
sér í aukinni skuldasöfnun heimil-
anna. Nú þegar við sjáum það gerast
að vextir eru að hækka á verðtryggð-
um lánum í kjölfar stýrivaxtahækk-
unar Seðlabankans sjá allir að við
búum við þær aðstæður að þörf er á
aðgát í útlánum, sérstaklega hjá
bönkum,“ segir Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra í samtali
við Morgunblaðið.
Hann telur að það þurfi að ná utan
um lánaumfangið sem skapað hafi
mikla spennu í þjóðfélaginu, sérstak-
lega í ljósi þess að húsnæðisverð
muni að öllum líkindum lækka með
hækkandi vöxtum og því varasamt
að hafa of hátt lánshlutfall án há-
marksfjárhæða. Hann vill jafnframt
að menn skoði hvort ekki sé skyn-
samlegt að auka gjaldeyrisforða
þjóðarinnar, meðal annars í ljósi inn-
komu útlendinga á skuldabréfa-
markaðinn og aukinnar skuldasöfn-
unar þjóðarbúsins, jafnvel þó að
ríkissjóður sé að greiða niður sínar
erlendu skuldir.
Jafnframt telur Einar það geta
sett þrýsting á gengið til lækkunar
og kunni raungengið að lækka í kjöl-
farið án þess að það kosti einhverjar
kollsteypur eða ýti undir launaskrið í
landinu. Það sé hins vegar ekki
vandalaust í framkvæmd og gæti
haft í för með sér að útlánageta
bankanna ykist ef ekkert annað væri
að gert. Bendir Einar á að auka
mætti bindiskyldu bankanna en
einnig þyrfti að koma samspil við
minnkandi útlán.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra
Bankar fari var-
lega í útlánum
HALLDÓR Ásgrímsson, forsætisráðherra,
sagði á Alþingi í gær að hann teldi ekki
ástæðu til að auka kröfur um eiginfjár-
hlutföll bankanna í þeim tilgangi að draga
úr útlánum þeirra.
Halldór var að svara fyrirspurn frá
Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylking-
arinnar, sem spurði hvort ekki væri ástæða
til að huga að því að nota reglur um eig-
infjárstöðu bankanna og fjárfestingarsjóða
meira sem hagstjórnartæki með því að
hækka þau viðmið sem gilda og draga úr
möguleikum bankanna til að lána fé. Þannig
yrði dregið úr nauðsyn Seðlabankans til að
hækka stýrivexti.
Halldór sagði að Íslendingar byggju við
frjálsa fjármagnsflutninga. Lýsti hann
þeirri skoðun, að erlend skuldabréfakaup í
íslenskri mynt, sem hefðu styrkt gengi
krónunnar að undanförnu, drægju úr þörf
Seðlabankans á næstunni til að hækka
stýrivexti.
Halldór sagði, að staða bankanna væri al-
mennt mjög góð og eiginfjárstaða þeirra
sterk og því væri ekki mikilvægt að auka
kröfur á þá um eiginfjárhlutfall. Sagði Hall-
dór að útlán væru afar mikil vegna þess að
mikil bjartsýni væri ríkjandi í þjóðfélaginu.
Hins vegar væru merki um hjöðnun spenn-
unnar á fasteignamarkaði, dregið hefði úr
eftirspurn eftir lánum og stærstu eignir
hefðu jafnvel lækkað aðeins í verði upp á
síðkastið.
Ekki ástæða
til að auka kröfur
um eiginfjár-
hlutföll banka
ÁRNI M. Mathiesen, fjármálaráðherra,
sagði i fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki skipt um
skoðun og hefði áfram áhuga á að lækka
virðisaukaskatt á matvælum. Sagði Árni að
flokkurinn ynni með samstarfsflokki sínum
að því og nægur tími væri til þess á kjör-
tímabilinu. Árni sagði hins vegar ekki skyn-
samlegt að fresta þeim tekjuskattsákvörð-
unum, sem hefðu verið teknar, en lækka
matarskattinn á móti.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði að lengi hefði legið
fyrir að víðtæk sátt væri um það á Alþingi og
í þjóðfélaginu að lækka bæri skatta á mat-
vælum. Slík lækkun kæmi láglaunafólki og
meðaltekjufólki mun betur en lækkun á
tekjuskatti. Minnti Ingibjörg Sólrún á að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft það á stefnu-
skrá sinni fyrir síðustu kosningar að lækka
virðisaukaskatt á matvæli. Sagði hún að slík
aðgerð myndi slá á þensluna því ef mat-
arskatturinn yrði lækkaður um helming
myndi vísitala neysluverðs lækka um 0,9%.
Árni sagði um þetta, að slíkt myndi bara
breyta verðbólgumælingunni en ekki þensl-
unni.
Segir unnið að
því að lækka
virðisaukaskatt
á matvælum
FJÓRÐA ráðstefnan um Konur og
lýðræði var haldin í Pétursborg í
síðustu viku. Var það síðasta ráð-
stefnan í röðinni en þær hófust í
Reykjavík árið 1999.
Sigríður Anna Þórðardóttir, um-
hverfisráðherra, flutti ræðu við
setningu ráðstefnunnar, en fyrir
hönd Alþingis sátu hana Sólveig
Pétursdóttir, forseti Alþingis, og
Jónína Bjartmarz, Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Þuríður Backman úr
forsætisnefnd Alþingis. Jafnframt
sótti Rannveig Guðmundsdóttir
ráðstefnuna sem forseti Norð-
urlandaráðs. Sólveig Pétursdóttir,
forseti Alþingis og Jónína Bjart-
marz, alþingismaður, tóku þátt í
pallborðsumræðum, en Íslendingar
höfðu umsjón með tveimur vinnu-
hópum á ráðstefnunni.
áherslu á að mikilvægum áfanga
væri náð með nýlegum Evrópu-
samningi gegn mansali, en hann
tekur sérstaklega á mannréttindum
fórnarlamba mansals, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Jónína Bjartmarz tók þátt í pall-
borðsumræðum um konur og at-
vinnu- og efnahagslíf. Lagði hún
áherslu á mikilvægi framlags
kvenna til hagkerfisins og ræddi
um mikla atvinnuþátttöku þeirra á
Íslandi, þrátt fyrir það að íslenskar
konur eigi flest börn evrópskra
kvenna.
Þátttakendur í ráðstefnunni voru
um sex hundruð talsins frá ellefu
þjóðlöndum. Íslensku þátttakend-
urnir voru 22 talsins, stjórn-
málamenn, embættismenn og
fulltrúar frjálsra félagasamtaka.
Umhverfisráðherra fjallaði meðal
annars um launamun kynjanna og
samþættingu fjölskyldu- og at-
vinnulífs í ræðu sinni og vakti um-
fjöllun um fæðingarorlofið mikla at-
hygli sem og frásögn af fyrir-
ætlunum kvenna á Íslandi í tilefni
af 30 ára afmæli kvennafrídagsins,
að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Ræddi aðgerðir gegn mansali
Sólveig Pétursdóttir tók þátt í
pallborðsumræðum um ofbeldi gegn
konum þar sem hún ræddi um að-
gerðir gegn mansali. Sagði hún frá
ýmsum aðgerðum íslenskra stjórn-
valda til að sporna gegn mansali og
ræddi baráttuna gegn mansali út
frá bæði lagalegum sjónarmiðum og
mannréttindamálum. Hún lagði
Íslenskar konur á ráðstefnu um konur og lýðræði
Kynntu fæðingarorlof
og kvennafrídag
Segir mál afgreidd á lýðræðislegan hátt