Morgunblaðið - 11.10.2005, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
SUÐURNES
SLIPPURINN Akureyri ehf. hefur
gert samning við skiptastjóra þrota-
bús Slippstöðvarinnar um leigu á
húsnæði, vélum og tækjum og yfir-
tekið leigusamning Slippstöðvarinn-
ar á upptökumannvirkjum á athafna-
svæðinu, sem eru í eigu
Hafnasamlags Norðurlands. Um 45
fyrrum starfsmenn Slippstöðvarinn-
ar hafa verið ráðnir til starfa hjá hin-
um nýja rekstraraðila og hefja þeir
störf strax í dag. Þetta er tæplega
helmingur þeirra starfsmanna sem
misstu vinnuna við gjaldþrot Slipp-
stöðvarinnar fyrir rúmri viku. Það
eru tveir fyrrum verkefnisstjórar
Slippstöðvarinnar sem eru í forsvari
hins nýja félags, þeir Anton Benja-
mínsson, sem verður framkvæmda-
stjóri, og Sigtryggur Guðlaugs, sem
verður áfram verkefnisstjóri, en að
baki þeim standa nokkrir einstak-
lingar og fyrirtæki. Þeir félagar
vildu ekki upplýsa að svo stöddu
hversu mikið stofnhlutafé hins nýja
félags er eða hverjir eru með þeim,
þar sem hlutafjársöfnun standi enn
yfir.
Anton sagði að haldið yrði áfram
með þau verkefni sem voru í gangi,
sem eru um 10 talsins, bæði stór og
smá. „Verkefnastaðan er sæmileg
miðað við aðstæður en það er ljóst að
við þurfum að fara strax í að sækja
fleiri verkefni, svo hægt verði að
fjölga starfsmönnum frekar.“
Þetta vikustopp hefur þýtt að
við höfum misst góða menn
Anton sagði að ekki hefði mátt líða
lengri tími að starfsemin kæmist í
gang aftur. „Þetta stopp í eina viku
hefur orðið til þess að við höfum
misst góða menn frá okkur. Það er
vissulega eftirsjá í þeim en við hinir
verðum bara að bretta upp ermar.
Ef það hefði dregist lengur að koma
starfseminni í gang hefði þetta félag
ekki verið endurreist nema í mý-
flugumynd. Það var því að hrökkva
eða stökkva,“ sagði Anton.
Hákon Hákonarson, formaður Fé-
lags málmiðnaðarmanna, sagðist
fagna því sérstaklega að starfsemin
skuli vera að hefjast á ný en harmaði
það jafnframt hversu mjög það hefur
dregist. „Það er alveg ljóst að ein-
hverjir starfsmenn hafa þegar horfið
til annarra starfa og það er slæmt
fyrir slippstöðina. En betra er seint
en aldrei og ég vonast til að þetta fari
nú í gang með þessum mönnum og
að það takist að ráða alla þá aftur
sem þar vilja starfa,“ sagði Hákon.
Eins og fram hefur komið stóðu
yfir viðræður við félag í eigu KEA,
Sjöfn eignarhaldsfélag og Sand-
blástur og málmhúðun, um aðkomu
að endurreisn Slippstöðvarinnar.
Anton sagði að eftir að upp úr við-
ræðum við þá aðila slitnaði um há-
degi sl. laugardag, hefði verið leitað
til þeirra. Frá þeim tíma hefði verið
lítið um svefn hjá þeim félögum og
púlsinn verið á hraða spretthlaup-
ara. Fleiri aðilar höfðu sýnt því
áhuga að koma að rekstrinum.
Anton og Sigtryggur eru bjart-
sýnir á framhaldið en sögðust gera
sér grein fyrir því að þeir ættu erfitt
verk fyrir höndum.
„En við ætlum að láta þetta ganga
hjá okkur.“ Anton sagði að starfsemi
sem þessi væri nauðsynleg í bænum
– ekki aðeins fyrir Slippinn, heldur
einnig fyrir önnur þjónustufyrirtæki
í bænum.
Slippurinn Akureyri ehf. tekinn til starfa
Mátti ekki dragast lengur
að hefja starfsemi á ný
Morgunblaðið/Kristján
Bjartsýnir Anton Benjamínsson og Sigtryggur Guðlaugs.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
á síðasta fundi sínum að beina þeim
tilmælum til stjórnar Sorpeyðingar
Eyjafjarðar bs. að hafin verði mark-
viss og öflug kynning á undirbúningi,
uppbyggingu og fyrirkomulagi förg-
unar sorps á Eyjafjarðarsvæðinu,
sem við taki þegar starfsleyfi urðun-
arstaðarins á Glerárdal rennur út á
miðju ári 2009. Þá leggur bæjarráð
áherslu á að jafnframt verði efnt til
enn frekari kynningar á tillögum
þeim sem fram koma í drögum að
Svæðisáætlun um meðhöndlun úr-
gangs í Eyjafirði, sem allar sveitar-
stjórnir á svæðinu hafa haft til um-
fjöllunar að undanförnu.
Bæjarráð telur að með þessu móti
sé komið til móts við þær óskir sem
fram hafa komið í þeim tilgangi að
stuðla að sátt í málinu. Þá er bæjarráð
þeirrar skoðunar að óskað verði eftir
tímabundinni framlengingu starfs-
leyfis fyrir urðunarstaðinn á Glerár-
dal reynist það nauðsynlegt undir lok
gildistíma núverandi leyfis enda sé þá
framtíðarlausn í sjónmáli.
Í bókun bæjarráðs kemur enn-
fremur fram að í aðdraganda kosn-
inga um sameiningu sveitarfélaga í
Eyjafirði hafi framtíðarfyrirkomulag
sorpförgunar á svæðinu borið tölu-
vert á góma svo og hugsanleg stað-
setning framtíðar förgunarsvæðis.
Var þess m.a. óskað að bæjaryfirvöld
á Akureyri gæfu skuldbindandi yfir-
lýsingu um áframhaldandi sorpurðun
á Glerárdal næsta áratuginn.
Fyrirkomulag sorp-
förgunar verði kynnt
KIRKJUGESTUM í Glerárkirkju
gefst tækifæri til að kynnast því
hvernig listamenn annarra þjóða
sýna Krist og hvernig þeir mynd-
gera frásagnir guðspjallanna af at-
burðum í lífi hans, en sýningin
Kristur um víða veröld var opnuð í
kirkjunni á sunnudag, 9. október.
„Eflaust geymum við öll í huga
okkar ákveðna mynd af Kristi.
Kannski er það ein af biblíumynd-
unum frá því í sunnudagaskólanum,
altaristaflan í kirkjunni okkar eða
einhver enn önnur sem greypst hef-
ur í hugann. Þetta á við um flest
þau sem kynnst hafa kristinni trú,
hvar sem er í heiminum,“ segir í
frétt frá kirkjunni. Mynd fólks úr
öðrum heimshlutum er þó ekki
endilega sú sama og okkar og getur
jafnvel verið mjög ólík.
Sýningin sem mun standa í tvær
vikur verður formlega opnuð að
lokinni messu á sunnudag. Við það
tækifæri mun Pétur Björgvin Þor-
steinsson djákni flytja stutt erindi,
flutt verður tónlist og boðið upp á
molasopa.
Kristur um víða veröld
Afsögn hverfisnefndar | Á
fundi stjórnsýslunefndar nýlega
var tekið fyrir erindi frá hverf-
isnefnd Oddeyrar þar sem nefndin
segir af sér. Stjórnsýslunefnd
samþykkti að taka erindisbréf
hverfisnefnda til endurskoðunar.
Jafnframt samþykkti nefndin að
boða hverfisnefnd Oddeyrar til
viðræðna á næsta fund stjórn-
sýslunefndar.
Barnamenningarhátíð | Á fundi
menningarmálanefndar var tekið fyr-
ir erindi frá Örnu Valsdóttur, þar sem
hún hvetur nefndina til þess að skoða
möguleikann á veglegri Barnamenn-
ingarhátíð í tengslum við Listasumar
2006. Nefndin samþykkti að fela
menningarfulltrúa að ræða við skóla-
nefnd um samvinnu nefndanna við
þetta verkefni og vinna að nánari út-
færslu í samvinnu við bréfritara.
Reykjanesbær | Sex metra langt
hræ af hrefnutarfi rak að landi í
Reykjanesbæ í gærmorgun og
vakti það nokkurn forvitnibland-
inn óhug hjá vegfarendum á Æg-
isgötu í Reykjanesbæ þegar þeir
rákust á hræið lónandi í fjöruborð-
inu neðan við gömlu sundhöllina.
Fréttavefur Víkurfrétta segir frá
þessu, en samkvæmt frétt VF bar
megn lýsislykt þess vitni að dýrið
hafi flotið alllengi dautt í sjónum
áður en það rak að landi. Mikill
öldugangur var við sjávarsíðuna í
gær og erfitt að nálgast dýrið, sem
var nær óskaddað og í heilu lagi.
Bergur Sigurðsson, starfsmaður
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja,
sagði í samtali við Víkurfréttir að
beðið yrði eftir því að sjógang-
urinn minnkaði en þá myndu menn
frá Hafrannsóknastofnun ákveða
hvort tekin yrðu lífssýni úr dýrinu.
Að því loknu kæmi það í hlut Nátt-
úrufræðistofnunar að taka ákvörð-
un um það hvort og hvernig
hræinu yrði fargað.Viðmælendur
Víkurfrétta segja að slíkur atburð-
ur sé fátíður á þessu svæði sem
vakti þó mikla athygli ferðamanna
sem áttu þar leið um. Vegna mik-
ils sjógangs lögðu hvalaskoð-
unarskip ekki í ferðir frá Reykja-
nesi í gær og létu ferðamennirnir
sér því nægja að skoða hrefnuna
þó svo að þeir hafi eflaust búist
við því að sjá líflegra dýr í hvala-
skoðun.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Illa lyktandi hrefnu-
hræ í fjöruborðinu
Suðurnes | Sveitarstjórnarmenn í
Garði og Sandgerði eru ánægðir með
niðurstöður kosninga um sameiningu
sveitarfélaga á Reykjanesi.
Reynir Sveinsson, formaður nefnd-
ar um sameiningu sveitarfélaganna
þriggja og bæjarfulltrúi í Sandgerði,
segir niðurstöðuna afar ánægjulega,
enda hafi Sandgerðisbúar viljað halda
sínu sjálfstæði. „Það sem kom mér á
óvart í þessu er hvað það var góð þátt-
taka hjá okkur í Sandgerði og hvað af-
staðan var eindregin,“ segir Reynir
og bætir við að hér sé lýðræðið í hnot-
skurn á ferð. „Ég býst ekki við að það
verði reynt að setja lög til að sameina
sveitarfélögin, því þá væri verið að
traðka á lýðræðinu. Ég var líka mjög
ánægður með niðurstöðuna í Garði,
en þar bjuggumst við ekki við svona
eindreginni afstöðu. Þó fannst mér á
kjörsókn í Reykjanesbæ að sjá að
áhugi þeirra fyrir sameiningu væri
ekki mikill, fyrst þeir mættu ekki á
kjörstað.“
Reynir segir samvinnu milli sveit-
arfélaganna mjög góða eins og hún er,
en vel megi vera að hún verði endur-
skoðuð og reynt að bæta hana enn
frekar.
Vilja áframhaldandi sjálfstæði
Sigurður Jónsson, bæjarstjóri í
Garði, tekur undir orð Reynis og seg-
ir niðurstöðuna betri en hefði mátt
búast við. „Þessi niðurstaða sýnir
okkur það að Garðsbúar telja sínum
hag betur borgið með því að vera
sjálfstætt sveitarfélag áfram, heldur
en að vera hverfi í Reykjanesbæ,“
segir Sigurður. „Þetta sýnir okkur
líka það að við höfum haldið þannig á
málum að fólk er ánægt og telur hag
sínum betur borgið ef það getur valið
sína eigin fulltrúa. Það má líka segja
að þessi niðurstaða hafi eiginlega leg-
ið í loftinu, því sameiningartillögurnar
voru illa undirbúnar af hendi hins op-
inbera. Í Garði var mjög hart að okk-
ur sótt að við yrðum hluti af Reykja-
nesbæ, en sem betur fer höfnuðu
kjósendur þeim sjónarmiðum.“
Ánægja með niður-
stöður kosningar
Keflavík | Farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 18%
í september miðað við sama tíma í
fyrra, úr tæpum 140 þúsund far-
þegum árið 2004 í tæpa 165 þús-
und farþega nú. Þetta segir á vef
flugstöðvarinnar, www.airport.is.
Farþegum til og frá Íslandi
fjölgar um 19% milli ára og far-
þegum sem millilenda hér á landi
á leið yfir Norður-Atlantshafið
fjölgaði um tæp 15%. Alls hefur
farþegum um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar fjölgað um 11% það sem
af er árinu miðað við sama tíma
árið 2004, eða úr rúmlega 1.307
þúsund farþegum í rétt tæplega
1.451 þúsund farþega.
Farþegum um
Leifsstöð fjölgar ört
Grindavík | Bæjarráð Grinda-
víkur samþykkti á síðasta
fundi sínum tillögu S- og D-
lista um lækkun fasteigna-
gjalda frá og með næstu ára-
mótum. Kom tillagan fram í
kjölfar tillögu minnihluta B-
lista um niðurgreiðslu skóla-
máltíða í Grunnskólanum í
þeim tilgangi að auka nýtingu
á skólamáltíðum sem í boði
eru. Sögðu fulltrúar Fram-
sóknarflokks í bæjarráði fáa
nýta sér skólamáltíðarnar sök-
um þess að kostnaðurinn sé of
mikill og fleiri foreldrar
myndu bjóða börnum sínum
upp á heitan mat í skólanum
ef maturinn kostaði minna. Í
bókun framsóknarmanna kom
fram að lækkun á fasteigna-
gjöldum nái ekki til fólks sem
býr í leiguhúsnæði og hefur að
jafnaði lökust kjörin. Meiri-
hluti Samfylkingar og sjálf-
stæðismanna taldi það þjóna
fleiri bæjarbúum að lækka
fasteignagjöldin heldur en að
niðurgreiða skólamat fyrir fá-
mennan hóp foreldra.
Fasteigna-
gjöld lækki
í Grindavík
Morgunblaðið/RAX