Morgunblaðið - 11.10.2005, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DÓMUR HÆSTARÉTTAR
þessu, bakað Baugi hf. tjón eða valdið hættu á
slíku tjóni, enda í engu getið hver afdrif skuld-
bindingarinnar hafi orðið.
Að virtu öllu framangreindu verður málinu
vísað frá héraðsdómi að því er varðar 5. til 7. lið
ákæru.
V.
Í III. kafla ákæru er varnaraðilanum Jóni
Ásgeiri gefinn að sök „fjárdráttur og/eða um-
boðssvik“, eins og nánar greinir í 8. og 9. lið
hennar, en þeir eru svohljóðandi:
„8. Með því að hafa hinn 8. október 1998 látið
millifæra af bankareikningi, númer 1151 26
000156, í eigu Baugs-Aðfanga ehf., dótturfélags
Baugs hf., kr. 200.000.000,00 inn á bankareikn-
ing í eigu SPRON, númer 1151 26 009999, þar
sem ákærði fékk útgefna bankaávísun sömu
fjárhæðar, á nafn Helgu Gísladóttur. Ákærði
afhenti eða lét afhenda Eiríki Sigurðssyni,
sambýlismanni Helgu, eiganda alls hlutafjár í
Vöruveltunni hf., bankaávísun þessa til greiðslu
samkvæmt kaupsamningi dagsettum hinn 7.
október 1998, þar sem Helga Gísladóttir seldi
ákærða fyrir hönd ótilgreindra kaupenda allt
hlutafé í hlutafélaginu Vöruveltunni og var
ávísunin innleyst hinn 9. október 1998 og and-
virði hennar lagt inn á bankareikning Helgu
númer 0327 26 001708.
9. Með því að hafa hinn 15. júní 2001 látið
Baug hf. greiða kr. 95.000.000,00 inn á banka-
reikning Kaupþings á Íslandi, nr. 1100 26
454080, þaðan sem fjárhæðinni var ráðstafað,
ásamt láni frá Kaupthing Bank Luxembourg,
að fjárhæð kr. 30.000.000,00, til félagsins Cardi
Holding, dótturfélags Gaums Holding, sem
bæði voru skráð í Lúxemborg, sem hlutafjár-
framlag í félagið FBA-Holding. Það félag var í
eigu Fjárfestingafélagsins Gaums ehf. og
þriggja annarra aðila. Færsla vegna greiðsl-
unnar í bókhaldi Baugs hf. var með fylgiskjali,
sem var útskrift tölvupósts með greiðslufyr-
irmælum ákærða til þáverandi fjármálastjóra
Baugs hf., með handskrifuðum athugasemdum
um númer bankareiknings sem greiðslan var
færð inn á og svohljóðandi skýringum: „eign-
færa ráðgjöf v/A Holding. Viðskiptafæra á
Baug Holding. Vantar reikning“.“
Háttsemi varnaraðilans Jóns Ásgeirs sam-
kvæmt 8. lið ákærunnar er talin varða við 247.
gr. almennra hegningarlaga, en samkvæmt 9.
lið aðallega við sama ákvæði og til vara við 249.
gr. sömu laga.
Samkvæmt framangreindum 8. lið ákæru er
varnaraðilinn Jón Ásgeir sakaður um fjárdrátt
með því að hafa í október 1998 fengið fé af
bankareikningi í eigu Baugs-Aðfanga ehf. til að
inna af hendi til nafngreinds manns hluta af
kaupverði hlutafjár í Vöruveltunni hf. Þess er í
engu getið í ákærunni hvort varnaraðilann hafi
skort heimild þeirra, sem bærir voru til að
skuldbinda fyrrnefnda félagið, til þessarar ráð-
stöfunar eða hvort eða hvernig þessi útborgun
af bankareikningnum hafi verið færð í bókhaldi
þess. Er lýsingu á háttsemi varnaraðilans því
verulega áfátt í þessum lið. Þá er þar heldur
ekki samræmi milli þeirrar lýsingar og þess
brotaheitis og refsiákvæðis, sem háttsemin er
heimfærð undir.
Í 9. lið ákæru er lýst hvernig varnaraðilinn
Jón Ásgeir er talinn hafa í júní 2001 látið Baug
hf. greiða tiltekna fjárhæð, sem ekki er tiltekið
hvernig tekin var, til erlends félags með heitinu
Cardi Holding. Segir þar að félag þetta sé dótt-
urfélag Gaums Holding, en um eignarhald að
þeim eða tengsl þeirra við varnaraðila er einsk-
is frekar getið. Fram kemur í lýsingu þessa
verknaðar að greiðslan hafi verið færð í bók-
haldi Baugs hf. samkvæmt skriflegum fyr-
irmælum varnaraðilans um að hana ætti að
„viðskiptafæra á Baug Holding“. Því er hvorki
haldið fram að þessi færsla hafi verið efnislega
röng né að varnaraðila hafi brostið heimild til
að standa á þennan hátt að ráðstöfunum af
hálfu Baugs hf. Þá er hvergi í lýsingu verkn-
aðar í þessum lið ákæru vikið að efnisatriðum,
sem varðað gætu við 249. gr. almennra hegn-
ingarlaga. Skortir því á sama hátt og áður var
getið samræmi milli þeirrar lýsingar á háttsemi
varnaraðilans í þessum ákærulið og þess brota-
heitis og refsiákvæða, sem ákæruvaldið heim-
færir hana til.
Vegna þess, sem að framan greinir, verður
málinu vísað frá héraðsdómi að því er varðar 8.
og 9. lið ákærunnar.
VI.
Í IV. kafla ákæru er varnaraðilunum Jóni
Ásgeiri, Tryggva og Kristínu gefinn að sök
„fjárdráttur og/eða umboðssvik og brot gegn
lögum um hlutafélög“ í tilvikum, sem lýst er á
eftirfarandi hátt í 10. til 23. lið hennar:
„10. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 23. ágúst 1999 látið millifæra af
bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720,
kr. 100.000.000,00 til Íslandsbanka hf., vegna
innheimtu bankans á hlutafjárloforðum, sem
greiðslu Fjárfestingafélagsins Gaums ehf.,
þegar einkahlutafélagið eignaðist 10.000.000
hluti í hlutafjárútboði í Baugi hf. í apríl 1999. Í
bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til Íslands-
banka hf., í þágu einkahlutafélagsins, færð á
viðskiptamannareikning þess hjá Baugi hf.,
sem krafa, þannig að eftir bókun millifærsl-
unnar stóð viðskiptamannareikningurinn í kr.
182.782.689,00. Krafa hlutafélagsins á einka-
hlutafélagið var síðar lækkuð með eftirtöldum
greiðslum einkahlutafélagsins NRP til Baugs
hf.; kr. 15.000.000,00 hinn 28. október 1999, kr.
15.000.000,00 hinn 2. nóvember 1999 og kr.
60.000.000,00 hinn 28. júní 2000, þegar einka-
hlutafélagið NRP eignaðist umrædd hlutabréf
Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., en jafnframt
var krafa á viðskiptamannareikningi einka-
hlutafélagsins hjá Baugi hf. færð niður um kr.
10.000.000,00 hinn 31. desember 1999.
11. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa um
mitt ár 1999 án greiðslu eða skuldaviðurkenn-
inga afhent eða látið afhenda Fjárfestinga-
félaginu Gaumi ehf. 10.695.295 hluti Baugs hf. í
Flugleiðum hf., sem einkahlutafélagið seldi
hinn 27. ágúst 1999 fyrir kr. 49.360.124,00.
Framangreind ráðstöfun bréfanna var fyrst
færð í bókhaldi Baugs hf. með lokafærslum frá
endurskoðanda í árslok 1999 að fjárhæð kr.
44.800.000,00. Færslan var miðuð við 31. des-
ember 1999 og þá færð sem krafa á viðskipta-
mannareikning Fjárfestingafélagsins Gaums
ehf., sem eftir bókunina stóð í kr.
143.068.986,00, en skuld einkahlutafélagsins
var gerð upp með víxli útgefnum hinn 20. maí
2002 sem greiddur var 5. september sama ár.
12. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 11. október 1999 látið millifæra kr.
4.500.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr.
1150 26 00077, á bankareikning Fjárfestinga-
félagsins Gaums ehf., nr. 0527 26 001099, vegna
kaupa einkahlutafélagsins á hluta fasteign-
arinnar að Viðarhöfða 6, í Reykjavík. Í bókhaldi
Baugs hf. var greiðslan til einkahlutafélagsins
færð sem viðskiptakrafa á viðskiptamanna-
reikning einkahlutafélagsins hjá Baugi hf., sem
eftir bókun millifærslunnar stóð í kr.
187.665.005,00, en skuld einkahlutafélagsins
var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok
11. töluliðs ákæru. Ákærðu Kristínu fram-
kvæmdastjóra einkahlutafélagsins gat ekki
dulist að millifærsla fjárhæðarinnar sem gerð
var án skuldaviðurkenningar, samnings eða
trygginga var ólögmæt og andstæð hags-
munum Baugs hf.
13. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 3. desember 1999 látið millifæra
kr. 8.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf.,
nr. 0527 26 000720, til SPRON sem greiðslu
Fjárfestingafélagsins Gaums ehf. fyrir helm-
ingshluta hlutafjár í eigu SPRON í Viðskipta-
trausti ehf. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan
færð sem krafa á viðskiptamannareikning
einkahlutafélagsins í samræmi við útgefinn
reikning, en eftir bókun færslunnar stóð við-
skiptamannareikningurinn í kr. 168.031.286,00,
en skuld einkahlutafélagsins var gerð upp með
kaupum Baugs hf. á öllu hlutafé í Viðskipta-
trausti ehf., sem fært var til lækkunar á við-
skiptamannareikningi einkahlutafélagsins hinn
30. júní 2000 fyrir kr. 16.000.000,00.
14. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 14. desember 1999 látið millifæra
kr. 35.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf.,
nr. 0527 26 000720, á bankareikning Fjárfest-
ingafélagsins Gaums ehf., nr. 0527 26 001099,
vegna kaupa einkahlutafélagsins á 186.500
hlutum í Debenhams PLC í Bretlandi. Í bók-
haldi Baugs hf. var greiðslan til einkahluta-
félagsins færð sem viðskiptakrafa á viðskipta-
mannareikning einkahlutafélagsins, sem eftir
bókun millifærslunnar stóð í kr. 201.001.430,00
en framangreind skuld einkahlutafélagsins, kr.
35.000.000,00, var gerð upp með greiðslu hinn
22. desember 1999 til hlutafélagsins.
15. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa kröfu á
viðskiptamannareikning Fjárfestingafélagsins
Gaums ehf. hjá Baugi hf. að fjárhæð kr.
50.529.987,00 vegna kaupa einkahlutafélagsins
á hlutabréfum í Baugi hf. í hlutafjárútboði í fé-
laginu í desember árið 2000 þegar einkahluta-
félagið eignaðist bréfin. Ákærðu Kristínu sem
framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins gat
ekki dulist að lánveitingin, sem var án skulda-
viðurkenningar, trygginga og samnings um
endurgreiðslu og lánakjör, var ólögmæt og
andstæð hagsmunum Baugs hf. Í bókhaldi
Baugs hf. var krafan færð á viðskipta-
mannareikning einkahlutafélagsins. Eftir bók-
un kröfunnar stóð viðskiptamannareikning-
urinn í kr. 145.871.863,00 en skuld
einkahlutafélagsins var síðar gerð upp með
víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs
ákæru.
16. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa kröfu á
viðskiptamannareikning ákærðu Kristínar í
bókhaldi Baugs hf. að fjárhæð kr. 3.786.727,00
vegna kaupa ákærðu Kristínar á hlutabréfum í
Baugi hf. í hlutafjárútboði í félaginu í desember
2000 þegar ákærða eignaðist hlutabréfin.
Ákærðu Kristínu gat ekki dulist að lánveit-
ingin, sem var án skuldaviðurkenningar, trygg-
inga og samnings um endurgreiðslu og lána-
kjör, var ólögmæt. Arðgreiðsla af
hlutabréfunum fyrir árið 2001, kr. 397.894,00,
var færð til lækkunar á skuldinni hinn 5. júlí
2001 en skuld ákærðu var gerð upp með víxl-
inum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru.
17. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa hinn
18. maí 2001 látið millifæra kr. 100.000.000,00 af
bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720,
inn á bankareikning nr. 0527 26 001099 í eigu
Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., sem ákærðu
Kristínu, sem var framkvæmdastjóri einka-
hlutafélagsins, gat ekki dulist að var ólögmætt
og andstætt hagsmunum Baugs hf., enda lán-
veitingin án þess að einkahlutafélagið legði
fram skuldaviðurkenningu, tryggingu eða
samning um endurgreiðslu eða lánakjör, fyrir
fénu, sem ráðstafað var samdægurs af banka-
reikningi einkahlutafélagsins til Nordic Res-
taurant Group AB, sem hlutafjárframlag
einkahlutafélagsins í því félagi. Í bókhaldi
Baugs hf. var millifærslan til einkahlutafélags-
ins færð sem krafa á viðskiptamannareikning
einkahlutafélagsins, sem eftir bókun millifærsl-
unnar stóð í kr. 262.836.989,00 en skuld einka-
hlutafélagsins var síðar gerð upp með víxlinum
sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru.
18. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 16. maí 2000 misnotað aðstöðu sína
þegar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygginga
eða ábyrgða, kr. 64.500.000,00, fyrir hönd
Baugs hf. til einkahlutafélagsins Fjárfars, [kt.],
sem ákærði Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna
kaupa einkahlutafélagsins á hlutabréfum í
Baugi hf., að nafnverði kr. 5.000.000,00. Skuld
Fjárfars ehf. við Baug hf., var gerð upp eftir
húsleit lögreglu hjá Baugi hf., hinn 28. ágúst
2002.
19. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 30. júní 2000 misnotað aðstöðu
sína þegar þeir lánuðu, án lánasamnings,
trygginga eða ábyrgða, kr. 50.000.000,00 fyrir
hönd Baugs hf., til einkahlutafélagsins Fjár-
fars, sem ákærði Jón Ásgeir stjórnaði og rak,
vegna kaupa einkahlutafélagsins á 5% hluta í
Baugi.net ehf., [kt.], af Baugi hf. að nafnverði
kr. 2.500.000,00. Viðskipti félaganna með hluta-
bréf í Baugi.net ehf. gengu til baka hinn 21.
febrúar 2002.
20. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því
að hafa hinn 13. febrúar 2001 misnotað aðstöðu
sína þegar þeir lánuðu, án lánasamnings,
trygginga eða ábyrgða, kr. 85.758.591,00 fyrir
hönd Baugs hf. til einkahlutafélagsins Fjárfars,
sem Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna kaupa
einkahlutafélagsins á hlutabréfum í Baugi hf., í
tengslum við hlutafjáraukningu þess, að nafn-
verði kr. 7.392.982,00. Skuld Fjárfars ehf. við
Baug hf., var gerð upp eftir húsleit lögreglu hjá
Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002.
21. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta
Baug hf., greiða á tímabilinu frá 5. október 1998
til 2. maí 2002, samkvæmt reikningum, kostnað
sem ákærði hafði stofnað til með úttektum á
Visa og Mastercard greiðslukortum í reikning
Baugs hf. vegna persónulegra úttekta ákærða
óviðkomandi Baugi hf., samtals að fjárhæð kr.
12.553.358,60 svo sem hér á eftir greinir. Voru
greiðslurnar í bókhaldi Baugs hf. færðar til
eignar á viðskiptamannareikningi ákærða hjá
Baugi hf. Skuld ákærða samkvæmt viðskipta-
mannareikningnum var gerð upp með víxlinum
sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru ...“. Við
þennan lið ákærunnar eru úttektirnar, sem þar
um ræðir, taldar upp í einstökum atriðum með
því að tilgreina dagsetningu greiðslu, dagsetn-
ingu færslu, skýringu, sem ætla verður að hafi
komið fram á reikningum fyrir úttektunum,
fjárhæð þeirra og óútskýrð tilvísun til skjala
með tilteknum auðkennum. Úttektirnar eru
sundurliðaðar milli ára, þannig að 5 tilvik eru
talin upp frá árinu 1998, 8 frá 1999, 17 frá 2000,
129 frá 2001 og 70 frá 2002.
„22. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta
Baug hf., greiða sér, á tímabilinu frá 2. júní
1999 til 12. júní 2002, í alls átta skipti, samtals
kr. 9.536.452,00 úr sjóðum Baugs hf., í fimm
skipti með millifærslum af bankareikningum
hlutafélagsins nr. 1150 26 77 og 0527 26 720, inn
á eigin bankareikning ákærða, í eitt skipti með
millifærslu inn á bankareikning nafngreinds
manns og í tvö skipti látið afhenda sér reiðufé.
Voru greiðslurnar í bókhaldi Baugs hf. færðar
til eignar á viðskiptamannareikningi ákærða
hjá Baugi hf., svo sem hér á eftir greinir. Skuld
ákærða samkvæmt viðskiptamannareikn-
ingnum var gerð upp með víxlinum sem nefnd-
ur er í lok 11. töluliðs ákæru ...“. Greiðslurnar,
sem hér um ræðir, eru síðan taldar upp í átta
liðum og tilgreind dagsetning þeirra, svokölluð
„skýring í bókhaldi Baugs“ og fjárhæð.
„23. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta
Baug hf. greiða, á tímabilinu frá 26. janúar 1999
til 16. júlí 2002, samtals kr. 5.551.474,91, sam-
kvæmt eftirgreindum reikningum, sem voru
vegna kostnaðar sem ákærði hafði stofnað til
og voru einkakostnaður ákærða, óviðkomandi
Baugi hf. Greiðslurnar voru færðar til eignar á
viðskiptamannareikningi ákærða hjá Baugi hf.
Skuld ákærða samkvæmt viðskiptamanna-
reikningnum var gerð upp með víxlinum sem
nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru ...“. Við
þennan lið ákærunnar eru greiðslurnar, sem
hann varðar, taldar upp með því að tiltaka dag-
setningu hverrar færslu, skýringar í bókhaldi
Baugs hf., sem svo eru nefndar, og fjárhæð.
Þessar greiðslur eru sundurliðaðar eftir árum
og 3 þeirra sagðar vera frá 1999, 9 frá 2000, 7
frá 2001 og 10 frá 2002.
Um heimfærslu til refsiákvæða á þeirri hátt-
semi, sem um ræðir í framangreindum liðum
ákærunnar, segir eftirfarandi í lok IV. kafla
hennar: „Brot ákærða Jóns Ásgeirs samkvæmt
10. til og með 23. töluliðs ákæru teljast varða
við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,
1940, til vara við 249. gr. sömu laga og jafn-
framt teljast brot samkvæmt töluliðum 10, 15,
16, 18 og 20 varða við 2. mgr. 104. gr., og brot
samkvæmt töluliðum 11, 12, 13, 14, 17, 19, 21,
22 og 23 varða við 1. mgr. 104. gr., sbr. 2. tl. 153.
gr., laga um hlutafélög nr. 2, 1995. Brot ákærða
Tryggva samkvæmt 10., 12., 13. til og með 16.
og 18. til og með 20. töluliðs ákæru teljast varða
við 247. gr., sbr. 22. gr., almennra hegning-
arlaga nr. 19, 1940, til vara við 249. gr. sbr. 22.
gr., sömu laga og jafnframt teljast brot sam-
kvæmt töluliðum 10, 15, 16, 18 og 20 varða við 2.
mgr. 104. gr., og brot samkvæmt töluliðum 12,
13, 14 og 19 varða við 1. mgr. 104. gr., sbr. 2. tl.
153. gr., laga um hlutafélög nr. 2, 1995. Brot
ákærðu Kristínar samkvæmt 12., 15. til og með
17. töluliðs ákæru teljast varða við 254. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19, 1940.“
Eins og að framan greinir er varnaraðilunum
Jóni Ásgeiri og Tryggva í 10. lið ákæru gefið að
sök að hafa í ágúst 1999 látið millifæra tiltekna
fjárhæð af bankareikningi Baugs hf. til að
greiða nánar tilgreinda skuldbindingu Fjár-
festingafélagsins Gaums ehf., en fjárhæð þessi
hafi í bókhaldi Baugs hf. verið færð á viðskipta-
mannareikning einkahlutafélagsins. Eins og
orðalagi er háttað í þessum lið ákærunnar verð-
ur ekki annað ráðið en að varnaraðilunum sé
hér gefið að sök að hafa í sameiningu staðið að
þessum verknaði, án þess að nánar sé þó skýrt
hvernig það hafi verið gert. Af heimfærslu ætl-
aðra brota til refsiákvæða virðist á hinn bóginn
sem varnaraðilanum Tryggva sé hér gefin að
sök hlutdeild í broti hins varnaraðilans, en í
engu er þó heldur vikið að því í hverju hún hafi
verið fólgin. Þá er verknaðinum, sem hér um
ræðir, lýst á þann hátt að ætla verður að gengið
sé út frá því að Baugur hf. hafi látið af hendi fé
að láni til Fjárfestingafélagsins Gaums ehf.,
enda fjárhæðin færð á viðskiptamannareikning
síðarnefnda félagsins hjá því fyrrnefnda. Ekki
er leitast við að skýra frekar í ákærunni hvern-
ig slík háttsemi varði við 247. gr. almennra
hegningarlaga. Þá felst engin efnisleg lýsing í
þessum ákærulið á þeim sökum, sem varnarað-
ilarnir Jón Ásgeir og Tryggvi eru bornir til
vara, um umboðssvik þess fyrrnefnda og hlut-
deild þess síðarnefnda í slíku broti.
Í 11. lið ákæru er varnaraðilanum Jóni Ás-
geiri gefið að sök að hafa á miðju ári 1999 án
greiðslu eða skuldaviðurkenningar „afhent eða
látið afhenda“ Fjárfestingafélaginu Gaumi ehf.
nánar tiltekna hluti Baugs hf. í Flugleiðum hf.,
sem einkahlutafélagið hafi selt í ágúst á því ári.
Ráðstöfun hlutanna hafi verið bókfærð hjá
Baugi hf. í lok ársins og tiltekin fjárhæð, sem
lægri hafi verið en söluverð hlutanna í ágúst,
verið færð sem skuld einkahlutafélagsins á við-
skiptamannareikningi þess hjá Baugi hf. Sak-
argiftir samkvæmt þessum ákærulið beinast að
varnaraðilanum Jóni Ásgeiri einum og er ætlað
brot hans aðallega talið varða við 247. gr. al-
mennra hegningarlaga, en til vara við 249. gr.
þeirra. Framangreind lýsing á því hvernig um-
ræddur hlutur í Flugleiðum hf. fór úr höndum
Baugs hf. til Fjárfestingafélagsins Gaums ehf.
felur ekki í sér ein út af fyrir sig lýsingu á hátt-
semi, sem 247. gr. almennra hegningarlaga tek-
ur til. Þá er háttsemi varnaraðilans samkvæmt
þessum lið ákærunnar í engu lýst á þann hátt
að hún gæti fallið undir efnislýsingu 249. gr.
sömu laga.
Í 12. lið ákærunnar eru varnaraðilarnir Jón
Ásgeir og Tryggvi sakaðir um að hafa í október
1999 látið millifæra tiltekna fjárhæð af banka-
reikningi Baugs hf. á bankareikning Fjárfest-
ingafélagsins Gaums ehf., sem síðarnefnda fé-
lagið hafi síðan notað á nánar tilgreindan hátt.
Hafi fjárhæðin verið færð í bókhaldi Baugs hf.
sem krafa á viðskiptamannareikningi einka-
hlutafélagsins, en varnaraðilanum Kristínu
sem framkvæmdastjóra þess félags hafi ekki
getað dulist að millifærsla fjárins, sem hafi ver-
ið gerð án skuldaviðurkenningar, samnings eða
trygginga, hafi verið ólögmæt og andstæð
hagsmunum Baugs hf. Um þennan lið ákæru
eiga við sömu atriðin og áður var getið í um-
fjöllun um 10. lið hennar að því er varðar verkn-
aðinn, sem varnaraðilarnir Jón Ásgeir og
Tryggvi eru hér bornir sökum um. Fram-
angreind háttsemi varnaraðilans Kristínar er í
þessum lið ákæru talin varða við 254. gr. al-
mennra hegningarlaga, þótt ekki sé vikið að
hilmingu í upphafsorðum IV. kafla hennar. Í
því lagaákvæði er fjallað um þá háttsemi að
maður haldi, án þess að verknaður hans varði
við 244., 245. eða 247.-252. gr. almennra hegn-
ingarlaga, ólöglega fyrir eigandanum hlut eða
öðru verðmæti, sem aflað hefur verið á þann
hátt, sem í þeim greinum segir, tekur þátt í
ávinningnum af slíku broti, aðstoðar annan
mann til þess að halda slíkum ávinningi eða
stuðlar að því á annan hátt að halda við ólögleg-
um afleiðingum brotsins. Verknaðinum, sem
þessi varnaraðili er hér sökuð um, er ekki lýst á