Morgunblaðið - 11.10.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 41
DAGBÓK
maður ætlar að nálgast það. Svo að
lokum hvað DV varðar. Æ, dapurt
hvað þetta áður ágæta blað virðist
hafa ánægju af því að reyna að
leggja fólk í einelti og brjóta niður,
stundum án þess að hafa kynnt sér
málið vel. Og ef blaðamennskan er
orðin svona þá segi ég bara, hvar
endum við?
Og þar á bæ kemur helgarblaðið
til mín á mánudegi í póstinum og
mánudagsblaðið á þriðjudegi.
Sennilega svona fáir lesendur á
þessu svæði. En mæli semsagt með
því fyrir auglýsendur að nota
Morgunblaðið.
Með kveðju og þökk.
Lesandi á Selfossi.
Eyjar í Karíbahafinu
FYRIR nokkrum dögum birtust í
DV nokkrar myndir af eyjum í
Karíbahafi. Ekki fylgdu neinar
skýringar, né lýsingar á þeim,
enda þarf meira til. Það vill svo til,
að ég var við störf í Karíbahafi um
nokkurra ára skeið og þekkti því
þessar eyjar allar, og margar fleiri.
Þær eru allar mjög ólíkar og ekki
hægt að lýsa þeim í stuttu máli.
Ég dvaldi misjafnlega lengi á
þessum eyjum, bæði við störf og
sem ferðamaður. Ég heillaðist af
þeim mörgum, öðrum ekki.
Jamaíka er ákaflega falleg eyja og
mikil ferðamannaparadís, hvergi er
þó meiri glæpatíðni en þar t.d.
Kingston (down town), og ættu
engir að hætta sér þangað. Aðrar
eru alveg lausar við ofbeldi og
glæpi, t.d. Antigua St Lucia o.fl.
Menningarheimur þessara eyja er
æði misjafn, enda tilheyrðu þær
mismunandi löndum, (Holland,
England, Danmörk, Frakkland
o.s.frv.) Erfitt er að gera upp á
milli mismunandi eyja nema hafa
dvalið þar einhvern tíma. Hvergi
er fátækt meiri en á Haítí, sem er
v. hluti af Dóminíska lýðveldinu
sem er yndisleg eyja. Antigua,
Martinique, Guateloupe og St.
Lucia eru þær eyjar sem ég heill-
aðist mest af, að mörgum öðrum
ólöstuðum.
Alltaf er þó gaman að koma til
Kúbu, hvernig sem á því stendur.
Santiago de Cuba, Guantanamo,
Manzanillo, á suðurströnd Kúbu
eru ekki síðri en á norðurströnd-
inni. Kúbverjar eru ákaflega þægi-
leg þjóð, en mjög þvinguð af
einræðisherra Fidel Castro.
Svanur Jóhannsson.
Dagblöðin á Selfossi
ÁN efa erfitt að alhæfa, en ég hef
verið áskrifandi Morgunblaðsins
undanfarið og kann því mjög vel að
það er alltaf komið inn um lúguna
hjá mér þegar ég fer á fætur um
klukkan sjö á morgnana. Manni
finnst maður kannski ekki geta
gert kröfur um útburð hvað
Fréttablaðið varðar, þar sem mað-
ur borgar ekki fyrir blaðið, en þó
hef ég verið að velta fyrir mér að
fyrir auglýsendur hlýtur það að
vera leitt að fólk er án efa í mörg-
um tilfellum farið í vinnuna þegar
það berst inn um lúguna.
A.m.k. er það þannig í mínu til-
felli, ég bý á Selfossi og hér kemur
blaðið bara einhvern tíma morguns
þegar ég oftast er farin í vinnuna.
Um helgar kemur einfaldlega ekk-
ert blað! Ég hef ekki nokkurra
hagsmuna að gæta fyrir Morg-
unblaðið en kann því vel hvað þeir
sem það bera út standa í stykkinu.
Vona að þeir sem bera ábyrgð á
útburði Fréttablaðsins fari að taka
sig á.
Að lokum vil ég einnig hrósa
Blaðinu fyrir hvað það er ágætt
lesefni en þeir mættu þó vera sýni-
legri og oft er blaðið búið þegar
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Haldið verður málþing um fjarnám ogfjarkennslu í Fjölbrautaskóla Suð-urnesja dagana 14. til 15. október.Fyrir málþinginu stendur 3F – Félag
um upplýsingatækni og -menntun en Sólveig
Friðriksdóttir er formaður félagsins. „Fjarnám
og fjarkennsla er vaxandi þáttur í menntakerfinu
allt frá grunnskóla og upp í háskóla og ærin
ástæða til að varpa ljósi á stöðu og þróun á þessu
sviði hér á landi og erlendis,“ segir Sólveig.
Innlendir og erlendir fyrirlesarar
Málþingið fer þannig fram að fyrri daginn,
föstudag, verða fluttir þrír fyrirlestrar. Þar taka
til máls tveir erlendir fyrirlesarar og einn ís-
lenskur: „Ian Semey fjallar um opin hugbúnað
(open-source) í fjarkennslu, kennsluaðferðir og
um tæknina sjálfa,“ segir Sólveig. „Elsebeth
Korsgaard Sorensen flytur sinn fyrirlestur í
gegnum fjarfundabúnað en hún mun fjalla um
fjarmenntun í lýðræðislegu og hnattrænu sam-
hengi og leggja sérstaka áherslu á netsamskipti
og samvinnu í uppbyggingu þekkingar. Loks
mun Sólveig Jakobsdóttir, dósent í fjar-
kennslufræðum við KHÍ, fjalla um þróun
kennsluaðferða og tæknilausna í fjarnámi hér á
landi og erlendis.“
Seinni dag málþingsins verða haldnar mál-
stofur með styttri erindum og umræðum. „M.a.
verður fjallað um netsamskipti, sem eru víða
mjög vannýttur möguleiki hér á landi í fjar-
kennslu. Einnig verður fjallað um þróun á raf-
rænu námsefni, s.s. örkennslu, hreyfimyndir og
aðgengi, notkun opins hugbúnaðar, fjarkennslu á
mismunandi skólastigum og stefnumótun. Þá
verður einnig fjallað um launamál fjarkennara og
haldið umræðuþing um vandamál sem kunna að
brenna á fólki. Málþinginu lýkur svo með erindi
Patriciu L. Rogers um breyttar áherslur og við-
mið í menntun með tilkomu Netsins.“
Fagfélag um upplýsingatækni í menntun
3F er vettvangur þeirra sem starfa að upplýs-
ingatækni í menntun. Í félaginu eru kennarar á
öllum skólastigum, frá leikskóla upp í háskóla, og
kerfisstjórar einnig. Félagið er fyrst og fremst
fagfélag og var stofnað í lok 9. áratugarins og hét
þá Félag forritara fræðslukerfisins en þaðan er
komið heiti félagsins í dag, 3F. Með tilkomu nýrr-
ar Aðalnámskrár 1999 varð félagið síðan fagfélag
í upplýsingatækni og menntun. Félagið heldur
úti heimasíðu á slóðinni htttp://www.ismennt.is/
not/3f en dagskrá málþingsins má finna á ráð-
stefnuvefnum http://ut.vefurinn.net. Nauðsyn-
legt er að skrá þátttöku í málþinginu fyrirfram
og er hægt að gera það gegnum ráðstefnuvefinn.
Málþing | 3F heldur þing um fjarnám og fjarkennslu í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Fjarnám og fjarkennsla
Sólveig Friðriksdóttir
fæddist í Reykjavík
1949. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Verzl-
unarskóla Íslands 1969
og kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands
1971. Sólveig leggur
stund á BA-nám í ís-
lensku við HÍ og M.Ed-
nám við framhaldsdeild
KHÍ. Sólveig kenndi í
grunnskóla en hóf störf við Verslunarskóla Ís-
lands 1985 þar sem hún kennir upplýsinga-
tækni og tölvunotkun. Sólveig hefur setið í
vinnuhóp um endurskoðun Aðalnámskrár í UT.
Hún er gift Guðmundi Kr. Hjartarsyni og eiga
þau þrjú uppkomin börn.
1. c4 e5 2. g3 Rc6 3. Bg2 f5 4. Rc3 Rf6
5. e3 d5 6. cxd5 Rb4 7. d3 Rbxd5 8.
Rxd5 Rxd5 9. Re2 Bb4+ 10. Bd2
Bxd2+ 11. Dxd2 0–0 12. 0–0 c6 13. e4
Rf6 14. Had1 De8 15. Db4 fxe4 16. dxe4
b6 17. Rc1 c5 18. Dd2 Be6 19. Dc3 Dh5
20. f4 Bh3 21. f5 Bxg2 22. Kxg2 Had8
23. Df3 Df7 24. De2 Db7 25. Kf3 h5 26.
h3 Rh7 27. Kg2 Rf6 28. Kf3 Hfe8 29. g4
Rh7 30. De3 De7 31. Kg3 hxg4 32. hxg4
Dg5 33. Df3 Rf6 34. Hh1 c4 35. Re2 b5
36. Rc3 Hd4 37. Hhe1 Hed8 38. Rd5
Eins og margir aðrir íslenskir skák-
menn hefur Róbert Harðarson (2.361)
öðru hvoru farið í skákvíking til
A-Evrópu síðastliðin ár. Fyrir skömmu
varð hann hlutskarpastur á lokuðu
skákmóti í Kesckemét í Ungverjalandi
og náði áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli. Í þessari stöðu hafði hann
svart gegn eina stigalausa keppanda
mótsins, David Bennett. 38. … H8xd5!
39. exd5 Hxg4+ 40. Kf2 Hf4 og hvítur
gafst upp enda drottningin að falla í
valin. Lokastaða mótsins varð þessi:
1.–2. Róbert Harðarson (2.361) og At-
tila Jakab (2.451) 7 vinninga af 9 mögu-
legum. 3. Zoltan Sarosi (2.336) 5½ v.
4.–6. Tibor Farkas (2349), Igor Kragelj
(2.230) og Zsofia Domany (2.101) 5 v. 7.
Tamas Vasvari (2.203) 4 v. 8. David
Bennett 2½ v. 9.-10. Richard Keresztes
(2232) og Matyas Donko (2040) 2 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
Mikið endurnýjað og afar sjarmerandi járnklætt einbýlihús á þremur hæðum,
kjallari, hæð og ris, alls um 106 fm. Húsið skiptist í aðalhæð og ris, ásamt auka-
íbúð í kjallara með sérinngangi. Á aðalhæð er sofa og borðstofa, ásamt eldhúsi
og lítið herbergi. Í risi er tv-hol, baðherbergi með baðkari ásamt svefnherbergi.
Ris mikið undir súð. Sólpallur með skjólveggjum og heitum potti. Rafmagn og
skolplagnir yfirfarnar. Húsið er vel staðsett innst í götu. Sérlega góðir möguleik-
ar á stækkun hússins. Teikningar til af stækkun hússins. Verð 29,9 millj.
Verið velkomin í dag frá kl. 17.00-18.00.
Hákon sölumaður verður á staðnum báða dagana frá kl. 17.00-18.00.
OPIÐ HÚS Í DAG OG Á MORGUN
NÝLENDUGATA 5 - EINBÝLISHÚS - LAUST FLJÓTLEGA
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
verkstæði hans á Stokkseyri sem
mun fara í Grindavíkurkirkju.
Hefur Björgvin þar með smíðað
öll orgelin í kirkjunum við suður-
ströndina; Stokkseyrar-, Eyrar-
bakka-, Þorlákshafnar- og
Grindavíkurkirkju. Aðeins orgelið
í Strandarkirkju er ekki verk
hans en það orgel smíðaði meist-
ari hans í Þýskalandi.
Páll Ísólfsson var fyrsti formað-
ur Organistafélagsins og einn
besti organisti í Evrópu á sinni
tíð og undirritunin með þessu
tengd minningu hans. Að loknum
tónleikunum verður svo Orgel-
verkstæði Björgvins, sem nú er
fullbúið, til sýnis.
112 ár eru á
morgun liðin frá
fæðingu tón-
skáldsins Páls Ís-
ólfssonar á
Stokkseyri. Um
árabil hefur
minning Páls
verið heiðruð
með sam-
komuhaldi á fæð-
ingardegi hans.
Að þessu sinni
verða hátíð-
artónleikar í
Menningarsal
lista- og menningarverstöðv-
arinnar Hólmarastar á Stokkseyri
kl. 21. Þar koma fram söngkonan
Hlín Pétursdóttir frá Stokkseyri
og píanóleikari verður Hrefna
Eggertsdóttir. Flytja þær sönglög
Páls Ísólfssonar og fleiri tón-
skálda sem og aríur. Þetta eru
fyrstu tónleikar Hlínar Péturs-
dóttur á Stokkseyri eftir að hún
kom heim frá Þýskalandi. Enginn
aðgangseyrir er og eru tónleik-
arnir í boði Tónminjaseturs Ís-
lands.
Á hátíðarsamkomunni mun
Björgvin Tómasson, orgelsmiður
á Stokkseyri, undirrita samning
um smíði fyrsta orgelsins í Orgel-
Tónleikar í minningu Páls Ísólfssonar
Hlín Pétursdóttir Páll Ísólfsson
RANNÍS stendur í kvöld kl. 20 að
þriðja Vísindakaffinu, þar sem vís-
indin verða rædd á mannamáli, í
kaffihúsinu Cultura í Alþjóðahús-
inu. Tilgangur vísindakaffisins er
að færa vísindin nær almenningi.
Þar fá vísindamenn annars vegar
tækifæri á að kynna rannsóknir sín-
ar og markmið fyrir hinum al-
menna borgara og hins vegar að
gefa almenningi tækifæri á að
hlusta á vísinda- og rannsóknar-
menn ræða störf sín á mannamáli.
„Fátt er rammara en forneskjan“
verður umræðuefnið í kvöld. Þar
munu þeir dr. Orri Vésteinsson,
fornleifafræðingur og Kjartan
Ragnarsson, leikstjóri sitja fyrir
svörum. Orri starfar hjá Fornleifa-
stofnun Íslands og hefur komið að
mörgum fornleifarannsóknum á Ís-
landi undanfarin ár. Kjartan er
leikstjóri og einn af stofnendum og
frumkvöðlum að Landnámssetri í
Borgarnesi. Kaffistjóri, nú sem
fyrr, verður Davíð Þór Jónsson,
þýðandi.
Fjallað um forneskjuna
www.visindi2005.is
Tígultvisturinn.
Norður
♠K65
♥K1087 S/NS
♦106543
♣6
Vestur Austur
♠872 ♠--
♥962 ♥DG43
♦-- ♦ÁKDG987
♣D1087532 ♣K4
Suður
♠ÁDG10943
♥Á5
♦2
♣ÁG9
Í bók sinni „Sigrar og ófarir við brids-
borðið“ kveðst franski höfundurinn José
Le Dentu hafa áreiðanlegar heimildir
fyrir því að spilið að ofan hafi komið upp
í rúbertubrids á Ítalíu 1987. Það er
ástæðulaust að efast um það og við skul-
um lifa okkur inn í atburðarásina:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 lauf *
5 lauf ! Dobl Pass 5 spaðar
Pass 6 spaðar 7 lauf 7 spaðar
Pass Pass Pass
Suður vekur á sterku laufi og vestur
stekkur hindrandi í fimm lauf á drottn-
inguna sjöundu. Það er mikið á spilin
lagt, en svo er að sjá sem hindrunin hafi
heppnast vel, því NS láta ýta sér í sjö
spaða. Sem er ekki álitlegur samningur
þegar horft er á tvær hendur (tómar í
tígli).
Vestur á hins vegar engan tígul til að
spila út og kom út í laufi.
Sagnhafi var ekki vongóður, en gerði
sitt besta. Hann trompaði lauf í öðrum
slag, fór heim á spaða og stakk aftur
lauf. Spilaði svo hjarta á ásinn og öllum
trompunum. Í tveggja spila endastöðu
átti blindur K10 í hjarta, en heima var
sagnhafi með hjartahund og tígultvist.
Austur hafði enn engu hent, en hann
hélt á tígulás og DG í hjarta. Hann valdi
á endanum að kasta tígulásnum og suð-
ur hafði fylgst nógu vel með til að vita að
tígultvisturinn var frír!
Eftir á að hyggja hefði vestur getað
réttlætt hindrun sína með því að trompa
út – það sker á samgang sagnhafa, svo
hann nær ekki að stinga lauf tvisvar og
byggja líka upp þvingun.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
FERTUGASTA Skálda-
spírukvöldið verður haldið að
vanda í Iðu, Lækjargötu, kl. 20
jarðhæð. Í þetta sinn er kvöldið
helgað Þorsteini Eggertssyni,
skáldi og lagatextahöfundi.
Þorsteinn á
Skáldaspírukvöldi