Morgunblaðið - 12.10.2005, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.jul iusvi f i l l . i s
K o s n i n g a s k r i f s t o f a V e g m ú l a 2 s í m i : 5 3 3 1 2 2 0
BEIÐ HNEKKI
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir að trúverðugleiki
embættisins hafi beðið hnekki vegna
þess að Hæstiréttur vísaði 32 af 40
ákæruliðum í Baugsmálinu frá dómi
vegna verulegra ágalla á ákærunni.
Það geti tekið langan tíma að vinna
upp þann álitshnekki sem embættið
hefði orðið fyrir en hann bendir jafn-
framt á að málið hafi ekki enn fengið
efnislega niðurstöðu fyrir dóm-
stólum.
Óttast sjúkdóma
Fyrstu flutningabílarnir með mat-
væli komu til Muzaffarabad, héraðs-
höfuðborgar í pakistönskum hluta
Kasmír, í gær en borgin hrundi að
heita má öll til grunna í jarðskjálft-
anum síðastliðinn laugardag. Kom
til ryskinga er hungrað fólkið barð-
ist um bitann en þúsundir manna
hafa flúið borgina gangandi í von um
að komast þangað sem þeir geta
fengið aðstoð.
Talið er að milljónir manna hafi
misst heimili sitt og hafast enn flest-
ir við úti undir berum himni. Sækir á
fólkið hungur, þorsti og kuldi og ótt-
ast er að skæðir sjúkdómar geti
komið upp á meðal þess. Opin-
berlega er fjöldi látinna nú um
35.000 en margir búast við að end-
anleg tala verði miklu hærri.
Skýringa þörf
Dómur Hæstaréttar í Baugsmál-
inu er mikill áfellisdómur yfir
ákæruvaldinu og vekur upp ýmsar
spurningar að mati Halldórs Ás-
grímssonar forsætisráðherra. Á
fundi með blaðamönnum fagnaði
hann því að ríkissaksóknari hefði
tekið við 32 ákæruliðum af 40 af rík-
islögreglustjóra, en sagði skýringa
þörf á framgöngu ákæruvaldsins.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 30/33
Viðskipti 16/17 Minningar 34/39
Erlent 18/19 Brids 39
Minn staður 20 Myndasögur 42
Akureyri 21 Dagbók 42/45
Höfuðborgin 22 Víkverji 42
Suðurnes 22 Staður og stund 44
Landið 23 Leikhús 46
Daglegt líf 24/25 Bíó 50/53
Menning 26/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
Viðhorf 30 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
TÍU flóttamenn frá Kólumbíu komu
til landsins í gær og eru nú í
Reykjavík og munu fljótt hefja að-
lögun að íslensku samfélagi.
Í hópnum eru þrjár konur og
börn á aldrinum 1 til 14 ára.
Flóttafólkið flúði heimaland sitt
vegna borgarastyrjaldar til Ekva-
dor en að mati Flóttamannastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna var fólkið
ekki talið öruggt þar. Því var biðlað
til íslenskra stjórnvalda um að veita
fólkinu landvist að sögn Atla Viðars
Eggertssonar hjá Rauða krossi Ís-
lands. Konurnar í hópnum hafa ver-
ið skilgreindar sem „konur í hættu“.
Nú tekur við 12 mánaða aðlögun
fólksins að íslensku samfélagi. Í því
ferli aðstoðar starfsfólk velferð-
arsviðs Reykjavíkurborgar og
Rauði krossinn. Fólkinu er útvegað
húsnæði og innbú auk þess sem ís-
lenskir stuðningsaðilar heimsækja
fólkið reglulega til að aðstoða það í
aðlöguninni. Þetta felur í sér að
fólkinu er leiðbeint með siði og venj-
ur í íslensku samfélagi og því sýnt
skólar, þjónustustofnanir, verslanir
o.s.frv. Að sögn Atla Viðars hefur
þetta móttökufyrirkomulag gagnast
mjög vel og vakið athygli á Norð-
urlöndum.
Fullorðna fólkið í hópnum mun
hefja íslenskunám og þau börn sem
eru á skólaaldri byrja í skóla.
Á þessu ári hefur 31 flóttamaður
fengið landvist hér á landi. Þar af
eru 24 frá Kólumbíu og 7 frá Kos-
ovo.
Tekið á móti tíu flótta-
mönnum frá Kólumbíu
Ljósmynd/Víkurfréttir
Jaime og Hordan frá Kólumbíu komu brosandi til landsins í gær. Nú munu
þeir hvíla sig eftir langt ferðalag en byrja í íslenskum skóla bráðlega.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær karl og konu frá Sri
Lanka í 45 daga fangelsi fyrir að
framvísa fölsuðu vegabréfi þegar
þau komu til landsins 7. október sl.
Drengur á unglingsaldri sem ferð-
aðist með þeim var einnig með fals-
að vegabréf en sökum aldurs var
hann ekki ákærður.
Samkvæmt upplýsingum frá
embætti sýslumannsins á Keflavík-
urflugvelli var látið líta út fyrir að
um væri að ræða hjón með barn á
ferðalagi en fram kom í málinu að
fólkið væri ekki skylt og hefði í
raun ekki hist fyrr en skömmu fyrir
ferðina frá París til Íslands.
Talið er að konan hafi dvalið að
mestu leyti í Frakklandi, maðurinn
í Þýskalandi og Frakklandi en
drengurinn á Ítalíu. Fölsunin fór
þannig fram að skipt var um mynd-
ir í vegabréfunum.
Fólkið var með fleiri skilríki, þar
á meðal ökuskírteini sem voru föls-
uð með sama hætti og í vegabréfi
„móðurinnar“ var nafn drengsins.
Þau viðurkenndu brot sín hjá lög-
reglu.
Þegar fólkið hefur afplánað dóm-
inn má gera ráð fyrir að því verði
vísað úr landi. Drengurinn er í um-
sjón barnaverndaryfirvalda og verið
er að afla upplýsinga um foreldra
hans.
Gunnar Aðalsteinsson kvað upp
dóminn. Eyjólfur Kristjánsson,
fulltrúi sýslumanns, sótti málið og
Sveinn Andri Sveinsson hrl. var til
varnar.
Dæmd fyrir fölsuð vegabréf
„Fjölskyldan“ hittist
í fyrsta skipti í París
ÁKVEÐIÐ var á ríkisstjórnar-
fundi í gær að tillögu utanrík-
isráðherra að veita framlag til
mannúðar- og neyðaraðstoðar í
Pakistan vegna jarðskjálftanna
að upphæð 300.000 Bandaríkja-
dala eða jafnvirði 18,5 milljóna
íslenskra króna.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra, segir að upphæðinni
verði skipt á milli verkefna
Rauða krossins, Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNI-
CEF) og Matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna (WFP).
Ríkisstjórnin hafi samþykkt
þetta í morgun og hjálparstofn-
anirnar muni fá fjármunina í
hendur eins skjótt og auðið er.
Fjöldi hjálparsamtaka legg-
ur nú fólki á hamfarasvæðun-
um lið með öflun hjálpargagna
s.s. lyfja sem bráðvantar víða.
Þegar hefur safnast um ein og
hálf milljón króna í söfnun
Rauða kross Íslands.
18,5 millj-
ónir til
Pakistan
GUÐNI Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, var viðstaddur mikla
hestahátíð í Finnlandi um síðastliðna
helgi þar sem íslenski hesturinn var
sérstaklega kynntur á heimsmeist-
aramóti stökkhesta. Tilgangurinn
með kynningunni var frekari mark-
aðssetning hestsins en heimsmeist-
aramótið er sýnt í yfir fjörutíu lönd-
um. Að sögn Guðna vakti íslenski
hesturinn verðskuldaða athygli eins
og hvarvetna þar sem hann er kynnt-
ur en Finnunum fannst hann sér-
staklega vel til þess fallinn að vera
fjölskylduhestur.
Guðni átti jafnframt fund með for-
ystumönnum finnska reiðsambands-
ins sem höfðu mikinn áhuga á frekari
samskiptum við íslenska seljendur
hestsins og viðskiptum í kjölfarið.
„Þeir gera sér grein fyrir því að það
eru 20 þúsund íslenskir hestar í Dan-
mörku, 30 þúsund í Svíþjóð og á milli
60 og 70 þúsund í Þýskalandi og því
er Finnland eins og ónuminn akur,“
segir Guðni en um tvö þúsund ís-
lenskir hestar eru skráðir í Finn-
landi. Hann telur tækifærið gott fyr-
ir íslenska búgarða og sölumenn
hestsins og býst við að fljótlega verði
skipuð sendinefnd sem komi hingað
til lands til að kynna sér hestinn bet-
ur og komast í viðskiptasambönd.
Á heimsmeistaramótinu sinnti
Guðni frekari erindum því hann af-
henti ásamt Jóni Baldvini Hanni-
balssyni, sendiherra í Finnlandi,
ungri og efnilegri finnskri stúlku,
sem að sögn Guðna kann vel til verka
á íslenska hestinum, námstyrk frá
Icelandair sem felur í sér þriggja
mánaða námsdvöl á Íslandi. Hún
mun kynna sér aðstæður og vinnu-
brögð á íslenskum hestabúgörðum
en að auki fá að kynnast landi og
þjóð.
Íslenski hesturinn vakti mikla athygli á sýningu í Finnlandi um liðna helgi
Miklir möguleikar fyrir
sölumenn íslenska hestsins
Ljósmynd/Ásdís Haraldsdóttir