Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Pakistan. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
„ÞETTA hafði auðvitað áhrif á allt
líf hérna og síðan varð ansi hressi-
legur jarðskjálfti á föstudaginn,“
sagði Jón Þór Ólafsson, starfsmað-
ur Enex, við Morgunblaðið en
hann hefur verið í El Salvador á
vegum fyrirtækisins undanfarinn
tæpan mánuð.
Hitabeltisstormurinn Stan hefur
geisað þar síðustu dagana og kost-
að sextíu manns lífið í El Salvador
og hundruð manna í Mexíkó og
Mið-Ameríku allri.
Jón Þór sagði að óveðrið væri
yfirstaðið nú að einhverju leyti.
Það væri að minnsta kosti hlé á
rigningunni í bili.
Síðan hefði jarðskjálftinn riðið
yfir á föstudag þegar þeir hefðu
verið nokkrir saman á fundi í San
Salvador, höfuðborg landsins, og
það hefði allt hrist og skolfið.
Jarðskjálftinn hefði verið 6,2 á
Richter-kvarða og átt upptök sín í
grennd við eldfjall ekki langt í
burtu.
Jón Þór sagði að um sextíu
manns hefðu farist í hamförunum í
landinu. Vegir hefðu lokast vegna
aurskriðna og fallinna trjáa, hús
eyðilagst og veðrið haft mikil áhrif
á allt daglegt líf.
Allt á floti þar því ræsi
eru ekki endurnýjuð
Jón Þór sagði að mikið hefði
verið reist af húsum í landinu, en
ræsi ekki verið endurnýjuð að
sama skapi, þannig að þau tækju
ekki við svona úrkomu eins og
þyrfti. Því færi allt á flot. Lands-
lagið væri hæðótt og því færu göt-
urnar sem lægstar stæðu í kaf.
Jón Þór sagðist vera í þokkalegu
hverfi en áhrifin væru mun meiri
þar sem fátæktin væri mest. Þann-
ig hefðu um 40 þúsund manns orð-
ið að yfirgefa heimili sín vegna
flóðanna og koma hefði þurft fólk-
inu fyrir í skólum og einnig að ein-
hverju leyti í kirkjum.
Jón Þór sagði aðspurður að ekki
hefði mikill vindur fylgt þessari
úrkomu. Það væri eiginlega aldrei
vindur í El Salvador.
Þetta væri hins vegar úrkomu-
mesti tími ársins á þessum slóðum
og fyrstu sex dagana í október í ár
hefði rignt meira en allan október-
mánuð í fyrra. Jörðin væri orðin
gegnsósa og hætt að taka við og
fólk rennblotnaði á því að hlaupa
milli húsa.
Jón Þór vinnur að undirbúningi
jarðvarmavirkjunar í El Salvador
á vegum fyrirtækisins Enex.
Margir hafa dáið í El Salvador vegna hitabeltisstormsins
„Hefur auðvitað áhrif
á allt líf hérna“
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
LANDSFUNDUR Sjálfstæð-
isflokksins hefst á morgun, 13.
október, í Laugardalshöllinni með
setningarræðu Davíðs Oddssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins. Bú-
ist er við um 1.200 fulltrúum á
landsfundinn að þessu sinni, sam-
kvæmt upplýsingum frá skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins.
Dagskrá landsfundarins verður
með hefðbundnu sniði, að því er
segir í fréttatilkynningu frá Sjálf-
stæðisflokknum. Rætt verður um
stjórnmálaályktanir landsfundarins
á föstudag og starfsemi Sjálfstæð-
isflokksins. Ráðherrar flokksins
munu og sitja fyrir svörum. Þá
munu 25 starfshópar fjalla um hina
ýmsu málaflokka. Starfi þeirra lýk-
ur á laugardag þegar ályktanir
verða afgreiddar. Afgreiðsla álykt-
ana og umræður halda áfram á
sunnudag.
Kosning formanns, varafor-
manns og miðstjórnar fer fram á
sunnudag og verður landsfundi slit-
ið síðdegis þann dag með ræðu ný-
kjörins formanns.
Búist við um
1.200 landsfund-
arfulltrúum
OFURÖLVI maður um fimm-
tugt ógnaði fólki með stórum
hnífi í fjölbýlishúsi í Breiðholt-
inu í gærmorgun, en hann bank-
aði upp á hjá fjölskyldu um kl. 6
og ruddist inn. Hjón sem búa í
íbúðinni könnuðust ekki við
manninn og vörnuðu honum inn-
göngu.
Dró hann þá upp hníf og ógn-
aði fólkinu með honum, en hníf-
urinn var með 17,5 cm blaði, að
sögn lögreglunnar. Íbúunum
tókst að koma manninum út án
mikilla átaka og hringja á lög-
reglu. Þegar lögregla kom á
vettvang lá maðurinn á gólfi inni
í stigaganginum. Hann var með
skurð á höfði og var blóðugur og
telur lögregla að hann hafi fallið
og skorið sig á brotinni bjór-
flösku sem fannst við hlið hans,
en ekki er vitað hvort hann féll
þegar honum var komið út úr
íbúðinni eða eftir það.
Maðurinn var fluttur á slysa-
deild þar sem gert var að sárum
hans, en að því loknu var hann
fluttur í fangageymslur.
Réðst inn til
ókunnugra
með hníf
á lofti
KYNNING á nýjum tillögum varð-
andi hljóðvist vegna tvöföldunar
Reykjanesbrautar frá Arnarnesi að
bæjarmörkum Hafnarfjarðar verð-
ur haldin í dag í Flataskóla í
Garðabæ. Jónas Snæbjörnsson,
svæðisstjóri Vegagerðarinnar á
Reykjanesi, segist vonast til að við-
unandi niðurstaða sé fengin í málið
fyrir alla hlutaðeigandi og fram-
kvæmdaleyfi vegna tvöföldunar-
innar verði gefið út í framhaldinu.
Bæjarstjórn Garðabæjar frest-
aði á sínum tíma að gefa út fram-
kvæmdaleyfi vegna tvöföldunar-
innar. Jónas sagði að þeir væru nú
komnir með tillögu varðandi hljóð-
vistina, sem væri á því stigi að þeir
teldu tímabært að kynna hana.
Hún hefði verið unnin í samráði við
íbúana og bæjarstjóri Garðabæjar
hefði komið að málinu síðasta
sprettinn. Þeir teldu að það væri
orðin það góð sátt um málið að það
væri óhætt að kynna það og það
kæmi þeim fremur á óvart ef ekki
yrði hægt að gefa út framkvæmda-
leyfi í framhaldinu. Það þyrfti þá
eitthvað óvænt að koma upp á sem
breytti því.
Hlaðinn grjótveggur
Jónas sagði að samkvæmt tillög-
unni væru hljóðmanirnar brattari
en áður hefði verið áformað og
gætu því verið lægri en fyrri til-
lögur gerðu ráð fyrir. Hlaðinn yrði
brattur grjótveggur að austan-
verðu við veginn og þar sem hann
væri nær umferðinni en áður þyrfti
hann ekki að vera eins hár og fyrri
hljóðmön.
Ráðgert er að tvöfalda Reykja-
nesbrautina frá Fífuhvammsvegi
og að Kaplakrika í Hafnarfirði eða
þann hluta vegarins sem ekki er
þegar búið að tvöfalda. Jónas sagði
að ef framkvæmdaleyfið fengist
stæðu vonir til þess að hægt yrði
að hefjast handa eftir áramótin og
þeir stefndu enn að því að fram-
kvæmdum yrði að mestu lokið
næsta haust, þó tíminn sé orðinn
mjög knappur til þess.
Kynningarfundurinn verður
haldin eins og áður sagði í Flata-
skóla í dag og hefst klukkan 17.30.
Ný tillaga að hljóðvist
vegna tvöföldunar
Reykjanesbrautar
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
TÖFLUM á vef Hagstofu Íslands
um búferlaflutninga árið 2004 hefur
verið breytt. Tæknileg mistök liggja
að baki röngum upplýsingum sem
birtust á vef Hagstofunnar hinn 14.
febrúar 2005. Samkvæmt eldri töl-
um voru skráðar 65.576 breytingar á
lögheimili í þjóðskrá. Í reynd voru
breytingar 66.869. Í 56.699 tilvika (í
stað 55.613) var um að ræða búferla-
flutninga innanlands, 5.350 (í stað
5.199) fluttust til landsins og 4.820 (í
stað 4.764) frá landinu. Breytingar á
tölum um búferlaflutninga koma
fram í allflestum sveitarfélögum
landsins. Þetta kemur fram á vef
Hagstofunnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Búferlaflutn-
ingar leiðréttir
úrufræði til að skoða dýralífið við Tjörnina í
Reykjavík. Auk fuglanna má eins og allir vita
finna þar síli sem eru vinsæl til veiða. Farið var
svo með afraksturinn úr ferðinni aftur upp í
skóla þar sem hann var skoðaður með tilliti til
fræðibókanna.
NOKKRIR kátir krakkar úr Vesturbæjarskóla
fengu að njóta veðurblíðunnar í vikunni þegar
ákveðið var að nýta kennslustund í nátt-
Afrakstur sílaveiða við Tjörnina
Morgunblaðið/Brynjar Gauti