Morgunblaðið - 12.10.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!" "
!
#
$
%
" " &
"#$% &'($ ' (
"
" )** $
+, )'*'+ $,-'.- .&
&" % ! .
.$ )
* /
/$# 0 1 #+,+ ' )
& ) 0
% 1
$# (. 2/, /+# ' $ .2 /*
( 3445-+,,6
3# $4 14$%/+5#3 ' )
& & "
"
&
( 7 8
40,(* 5/4(/#+/ ' (
" 92 : &
"
3#($,(3 5(#0&'(( ' % %
+,,; .&
&" % % /
/
( &
" ( ;,,
$
2.
/
('
#
#
- !!!
/
6
%
1&
&
0 & &
!" " 7
3;6, - +,,,
!
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● EKKI er ljóst hversu langt ráðgjafar
suður-afríska tryggingafélagsins Old
Mutual voru komnir í áreiðanleika-
könnun sinni á Skandia en henni lauk
mjög snögglega þegar stjórn Skandia
neitaði að mæla með tilboðinu. Fram
að því höfðu ráðgjafar Old Mutual að-
gang að bókum Skandia en um leið
og stjórnin neitaði var þeim lokað.
Ástæðan er sú að yfirtaka er álitin
fjandsamleg ef stjórn félagsins sem á
að taka yfir neitar að mæla með til-
boðinu. Frá þessu er greint á vefmiðli
Dagens Industri.
Verði kaupin að veruleika fá ráðgjaf-
arnir engu að síður um 75 milljónir
punda í sinn hlut en samkvæmt til-
boðsáætlun Old Mutual sem nú hefur
verið birt á vefsíðu félagsins fá ráð-
gjafar 2,4% af heildarandvirði tilboðs-
ins. Langstærstan hluta mun
Deutsche Bank fá.
Áreiðanleika-
könnun lokið
● NORRÆNI fjárfestingarbankinn
hefur lánað pólska raforkufyrirtækinu
BOT Elektrownia Belchatów S.A. 120
milljónir evra, nærri 8 milljarða króna,
til fjármögnunar á nýjum 833 mega-
vatta rafal. Lánið verður einnig notað
til að endurnýja búnað, m.a. til að
draga úr mengun svo að starfsemin
uppfylli skilyrði Evrópusambandsins.
Kostnaður við framkvæmdirnar er um
1,6 milljarðar evra eða um 118 millj-
arðar króna. Lánið er eitt það stærsta
sem Norræni fjárfestingarbankinn
hefur nokkru sinni veitt. BOT Elekt-
rownia Belchatów S.A. er stærsti raf-
orkuframleiðandi Póllands og fram-
leiðir um 20% allrar raforku í landinu.
Lánar pólsku
raforkufyrirtæki
ÁRNI Oddur
Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri
Eyris, hefur tekið
við stjórnarfor-
mennsku í Marel
af Friðriki Jó-
hannssyni. Segir í
frétt frá Marel að
á undanförnum
vikum hafi orðið
umtalsverðar
breytingar á eignarhaldi Marels.
Eignarhlutur Burðaráss hf., sem
hefur verið leiðandi hluthafi, hefur
flust yfir til Landsbanka Íslands hf.
Á sama tíma hefur Eyrir fjárfesting-
arfélag ehf. aukið sinn hlut verulega
og á nú tæplega 30% í félaginu. Í til-
kynningu frá Marel er haft eftir
Árna Oddi Þórðarsyni að Eyrir horfi
til langs tíma og ætli að styðja við
frekari vöxt félagsins.
Þá er haft eftir Friðriki Jóhanns-
syni, fráfarandi stjórnarformanni að
Eyrir sé að mestu í eigu tveggja ein-
staklinga sem eigi mikla hagsmuni í
Marel og við þessar aðstæður sé
mikilvægt að þeir taki frumkvæði í
rekstri félagsins.
Árni Oddur stjórn-
arformaður Marels
Árni Oddur
Þórðarson
SVAFA Grönfeldt hefur tekið við
nýju starfi sem aðstoðarforstjóri
Actavis Group. Ábyrgðarsvið
hennar er að samtvinna stefnu og
innra skipulag samstæðunnar
ásamt því að stýra verkefnum sem
lúta að aukinni skilvirkni í rekstri.
Svafa mun verða staðgengill for-
stjóra og talsmaður hans og mun
áfram verða hluti af framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins.
Hóf störf árið 2004
Meginábyrgðarsvið Svöfu verða
að stýra daglegum rekstri höfuð-
stöðva Actavis, vera talsmaður og
staðgengill forstjóra samstæðunn-
ar innan fyrirtækisins jafnt sem
utan, eftir því
sem þörf krefur
og fylgja eftir
rekstraráætlun-
um deilda og
dótturfélaga.
Hún annast
einnig þróun
skipulags og
ferla, stýrir inn-
leiðingu nýrra
fyrirtækja í samstæðuna og sam-
hæfir vinnu framkvæmdastjórnar
Actavis Group og framkvæmda-
teymis samstæðunnar.
Svafa hóf störf hjá Actavis árið
2004 sem framkvæmdastjóri
stjórnunarsviðs. Hún er doktor í
vinnumarkaðsfræði frá London
School of Economics and Political
Science. Hún er með M.Sc.-gráðu í
starfsmanna- og boðskiptafræði
frá Florida Institute of Techno-
logy og einnig með BA-gráðu í
stjórnmálafræðum og fjölmiðlun
frá Háskóla Íslands.
Svafa starfaði áður í EMEA-
stjórnendateymi Deloitte ráðgjafar
í Evrópu og var einn eigenda og
framkvæmdastjóri ráðgjafar hjá
IMG Deloitte á Íslandi. Svafa er
lektor í rekstrarhagfræði við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands og hefur stýrt stjórnenda-
þjálfun í Bandaríkjunum og Bret-
landi.
Svafa aðstoðarforstjóri Actavis
Svafa Grönfeldt
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í dag. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,4% og er
4.485 stig. Bréf Jarðborana hækk-
uðu um 2,9%, bréf Atorku um 1,8%
og bréf Actavis um 1,7%. Bréf Mar-
els lækkuðu um 1,1%, bréf Lands-
bankans lækkuðu um 0,9% og bréf
FL Group um 0,7%.
Viðskipti í Kauphöllinni námu 8,1
milljarði króna. Mest voru viðskiptin
með íbúðabréf, fyrir 5,8 milljarða
króna, en viðskipti með hlutabréf
námu 1.341 milljón.
Mestu hlutabréfaviðskiptin voru
með bréf Actavis Group hf. fyrir 561
milljón króna.
Jarðboranir
hækka um 2,9%