Morgunblaðið - 12.10.2005, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 12.10.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 37 MINNINGAR Það var í janúar 1967 að sex starf- andi tryggingastærðfræðingar stofn- uðu félag til að stuðla að framgangi fræðigreinar sinnar hér á landi. Er- lendur var einn þeirra. Hann tók alla tíð virkan þátt í starfi félagsins og var tvisvar formaður þess, síðast árin 1996–1999, en átti oftar sæti í stjórn. Hann annaðist samskipti við systur- félög og erlenda samstarfsaðila um 10 ára skeið. Erlendur tók þátt í starfi tryggingastærðfræðinga á erlendum vettvangi og eignaðist þar góða vini. Hann starfaði að málefnum vátrygg- inga alla tíð og veitti Vátryggingaeft- irlitinu forstöðu frá stofnun þess 1974 allt þar til það rann inn í Fjármálaeft- irlitið við stofnun þess árið 1999. Er- lendur hafði mikinn metnað fyrir hönd stofnunarinnar og fræðigreinar sinnar. Hann stundaði starf sitt af ástríðu og vann bæði af kappi og forsjá. Ég kynntist Erlendi þegar hann réð mig til Vátryggingaeftirlits- ins þegar ég kom heim frá námi 1987. Þar áttum við gott og náið samstarf í átta ánægjuleg ár. Erlendur átti fleiri áhugamál en þau sem tengdust starfi hans og menntun. Hann lék ágætlega á píanó, hlustaði mikið á tónlist og sótti tónleika. Hann var einnig áhuga- samur um stjórnmál og félagsmál al- mennt, einkum mannréttindamál. Tryggingastærðfræðingar kveðja nú góðan félagsmann og vin. Fyrir þeirra hönd votta ég fjölskyldu Er- lendar innilega samúð okkar. Ragnar Þ. Ragnarsson. Það eru orðin allmörg ár frá þeim degi sem Erlendur Lárusson gerði sér ferð á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International og bauð fram krafta sína. Á sinn hægláta og hóg- væra hátt sagðist hann hafa nokkuð rýmri tíma en oft áður og vildi gjarn- an verða að liði í starfsemi deildarinn- ar. Það leið ekki á löngu þar til hann var orðinn öflugur þátttakandi í starf- inu. Auk þess að vera virkur í hóp- astarfi voru honum falin ýmis trún- aðarstörf fyrir deildina og sat hann um árabil í stjórn hennar. Fag- mennska og mikil nákvæmni ein- kenndu Erlend Lárusson í öllum hans störfum. Honum var málstaður Am- nesty International mikils virði en fyrir kom að honum þótti samtökin ekki nógu afgerandi í afstöðu sinni. Skoðanir hans voru oft róttækar og á stundum hefði hann viljað ganga mun lengra í ýmsum málum en umboð Amnesty International heimilaði. Hann setti ætíð skoðanir sínar fram á skýran og rökfastan hátt og naut hann mikillar virðingar innan deild- arinnar. Ýmsar nýjar samþykktir sem samtökin hafa gert hefðu fallið honum vel í geð. Hann bjó yfir góðri kímnigáfu sem gat á köflum verið ansi beitt og með auknum kynnum við hann lærðist að meta skarpar og ígrundaðar athugasemdir hans. Eins og oft vill verða með félaga í Amnesty International eru það margskonar hæfileikar fólks, líka þeir sem ekki eru augljósastir, sem geta nýst í starf- inu. Þannig var um tónlistaráhuga Erlendar, hann bjó yfir miklum tón- listarhæfileikum og var sjálfur ágæt- ur píanóleikari. Við undirbúning ár- legra tónleika deildarinnar á alþjóðlegum mannréttindadegi var ætíð gott að geta leitað til hans þegar kom að verkefnavali og vali á flytj- endum. Gott vald hans á íslensku og þekking á öðrum tungumálum leiddi til þess að hann tók að sér ýmis þýð- ingaverkefni og var færni hans á þeim vettvangi einstök. Eitt af þeim fjöl- mörgu verkefnum sem hann vann fyrir deildina mun um ókomin ár nýt- ast ungu fólki hér á landi. Hér um ræðir vandaða þýðingu hans á hand- bók fyrir kennara sem ber heitið ,,Fyrstu skrefin“. Hann þýddi bókina úr ensku af mikilli kostgæfni og það framlag hans er ómetanlegt. Bókin er nú þegar notuð af kennurum víða um land til að kynna mannréttindi fyrir börnum og unglingum. Erlendur lagði ætíð áherslu á að þekking á mannréttindum væri ein af forsend- um þess að verja fólk fyrir brotum á slíkum réttindum. Fráfall Erlendar er mikill missir og verður hans minnst fyrir óbilandi þrautseigju í baráttunni fyrir auknum mannrétt- indum. Um leið og honum er þakkað gott og einstakt samstarf og góð kynni þessi ár er það með söknuði sem við kveðjum Erlend nú að leið- arlokum. Eftirlifandi eiginkonu og öðrum aðstandendum eru sendar dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Íslandsdeildar Am- nesty International Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, Kristín J. Kristjánsdóttir. Stórt skarð var höggvið í raðir fá- menns hóps íslenzkra trygginga- stærðfræðinga við fráfall Erlendar Lárussonar. Hann var einn stofnenda félags okkar 1968 og gegndi tvívegis stöðu formanns í alls 6 ár auk ýmissa annarra trúnaðarstarfa fyrir félagið. Starfsvettvangur Erlendar var á sviði vátryggingarmála; í fyrstu sem starfsmaður vátryggingafélaga en á árinu 1973 tók hann að sér það verk- efni að undirbúa stofnun Vátrygg- ingaeftirlitins. Hann varð síðan for- stöðumaður þess allt til þess að eftirlitið var lagt niður við stofnun Fjármálaeftirlitsins árið 1999 sem tók þá við verkefnum þess. Ég tel að það hafi verið mikið happ að fá Erlend til þessa starfs en við það nutu ýmsir eiginleikar hans sín vel. Erlendur var mjög nákvæmur maður og samvisku- samur, skipulagður í störfum, ósér- hlífinn og ákaflega vinnusamur. Hann lagði mikla áherzlu á fagmennsku í öllum störfum eftirlitsins og þá ekki sízt að því er varðaði hans eigið fag, tryggingastærðfræðina. Það lætur að líkum að forsvars- menn vátryggingafélaganna voru ekki alltaf sammála einstökum að- gerðum eftirlitsins, sérstaklega á fyrstu árunum, en ég er sannfærður um að Erlendur hafi notið trausts flestra ef ekki allra forsvarsmanna fé- laganna þegar fram liðu stundir enda þótt ágreiningur væri á stundum um leiðir eða áherzlur. Forsvarsmenn fé- laganna höfðu á sínum tíma átt frum- kvæði að því að þrýsta á um lagasetn- ingu um eftirlit með vátryggingarstarfseminni enda eng- um ljósara en þeim hversu mikilvægt það er að vátryggingafélög séu fjár- hagslega traustar stofnanir sem geti staðið við skuldbindingar sínar. Þetta var hið sameiginlega markmið þess- ara aðila. Erlendur hafði þó nokkur samskipti í starfi sínu við marga starfsmenn vátryggingafélaganna og einnig kenndi hann við Trygginga- skóla Sambands íslenskra trygginga- félaga. Hann aflaði sér virðingar þessa fólks vegna þekkingar sinnar og hjálpsemi við leiðsögn ef eftir var leitað. Erlendur átti mikið og gott samstarf við systurstofnanir eftirlits- ins erlendis, sérstaklega á Norður- löndunum, og naut trausts og virð- ingar kollega sinna þar. Samskiptin við Erlend utan starfs- vettvangsins voru okkur hjónunum mjög ánægjuleg. Hann var alvörugef- inn maður en á góðri samverustund var hann léttur í lund og viðræður við hann um hin ýmislegustu málefni voru áhugaverðar og skemmtilegar. Æðruleysi hans í glímunni við sjúk- dóm þann er dró hann til dauða var aðdáunarverð en sama æðruleysi sýndi hann er sjón hans dapraðist fyr- ir nokkrum árum. Við Kristín erum þakklát fyrir kynnin af Erlendi Lár- ussyni og við vottum eiginkonu hans svo og sonum hans og bróður og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð. Bjarni Þórðarson. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, KARVEL ÖGMUNDSSON fyrrv. útgerðarmaður, Bjargi, Ytri-Njarðvík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, föstudaginn 30. september. Kveðjuathöfn verður haldin í Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 14. októ- ber og hefst hún kl. 14.00. Útförin fer fram frá Ingjaldshólskirkju, Hellissandi, laugardaginn 15. októ- ber kl. 14.00. Sætaferð verður til Hellissands frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 9.00 á laugardagsmorgun. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélagið Lands- björg. María Karvelsdóttir, Guðlaug Svanfríður Karvelsdóttir, Þórunn Karvelsdóttir, Ögmundur Karvelsson, Sigurlína Björgvinsdóttir, Sólveig Karvelsdóttir, Sigurður Pálsson, Eggert Karvelsson, Sædís Hlöðversdóttir og fjölskyldur. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEIRMUNDUR SIGURÐSSON, Austurströnd 8, Seltjarnarnesi, lést fimmtudaginn 6. október. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudag- inn 14. október klukkan 13.00. Fanney Ófeigsdóttir, Ófeigur Geirmundsson, Anna Margrét Ögmundsdóttir, Baldur Geirmundsson, Anne B. Hansen, Birna Geirmundsdóttir, Ólafur Þ. Bjarnason, Sigurður Geirmundsson, Hrafnhildur Helgadóttir, Sverrir Geirmundsson, Arndís Sveina Jósefsdóttir, Geirmundur Geirmundsson, Jóna Stefánsdóttir, Haukur Geirmundsson, Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Austurbrún 6, Reykjavík. lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 8. október. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 14. október kl. 11:00. Anna Guðrún Davíðsdóttir, Linda María Davíðsdóttir, Randy Anderson, Lísa Björk Davíðsdóttir, Giuseppe Franco og barnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNBJÖRN JÓNSSON, Hraunvangi 7, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu- daginn 13. október kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á MND- félagið, sími 565 5727. Kristín Gróa Gunnbjörnsdóttir, Ingimar Kristjánsson, Sigfús Brynjar Gunnbjörnsson, Anna Björk Brandsdóttir, Jón Valdimar Gunnbjörnsson, Ragna Jóna Helgadóttir, Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir, Rósinkar Snævar Ólafsson, Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir, Heimir Lárus Hjartarson, Guðjón Heiðar Gunnbjörnsson, Elínborg Sigvaldadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, JÓN REYNIR ÞÓRARINSSON, Bárugötu 19, Reykjavík, andaðist á Landspítala við Hringbraut laugar- daginn 1. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur þakka öllum sem auðsýndu samúð og vinarhug við andlát hans og útför. Unnur Jónsdóttir og fjölskylda. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR GÍSLASON vélstjóri, til heimilis á dvalarheimilinu Grund, lést á Landspítalanum sunnudaginn 9. október. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju mánu- daginn 17. október klukkan 13.00. Hermann Gunnarsson, Sigrún Gunnarsdóttir Nielsen, Jeppe Nielsen, Ragnar Gunnarsson, Ásgerður Karlsdóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR PÁLMADÓTTIR, Patreksfirði, lengst búsett í Fjarðarstræti 38 Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 14. október kl. 14.00. Höskuldur Guðmundsson, Margrét Guðmundsdóttir, Einar Róbert Árnason, Oddur Guðmundsson, Kolbrún Pálsdóttir, Steinunn Jakobína Guðmundsdóttir, Gunnar Valur Jónsson, Anna Guðmundsdóttir, Benedikt Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DYLJÁ GRÓA STEFÁNSDÓTTIR, Patreksfirði, áður Kleppsvegi 140, Reykjavík, lést á heimili dóttur sinnar mánudaginn 10. október. Útförin verður auglýst síðar. Eyjólfur Karlsson, Steinunn Sveinsdóttir, Sigríður Karlsdóttir, Erlendur Kristjánsson, Stefán Karlsson, Karl Ólafur Karlsson, Ólöf Guðný Geirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.