Morgunblaðið - 12.10.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 43
DAGBÓK
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Matvæladagur MNÍ verður haldinn áGrand hótel í Reykjavík föstudag-inn 14. október. Allt frá árinu 1993hefur Matvæla- og næringarfræða-
félag Íslands, MNÍ, haldið ráðstefnu um miðjan
október þar sem fjallað hefur verið um ýmis
málefni sem snerta matvæli. Reynt hefur verið
að halda daginn á þessum tíma árs til að minna
á Alþjóðafæðudaginn sem er 16. október. Efni
dagsins hefur oft verið málefni sem efst er á
baugi hverju sinni. Að þessu sinni er yfirskrift-
in „Stóreldhús og mötuneyti“, viðfangsefni sem
snertir alla á einn eða annan hátt.
„Stór hluti þjóðarinnar fær sína aðalmáltíð í
mötuneytum. Börnin fá mat í skólum og leik-
skólum og fjölmargir fá mat úr mötuneytum
vinnustaða eða kaupa tilbúinn mat,“ segir Guð-
rún Elísabet Gunnarsdóttir, formaður MNÍ.
Tilgangur félagsins með Matvæladeginum er að
auka umræðu um það efni sem til umfjöllunar
er hverju sinni.
„Á ráðstefnunni að þessu sinni verða tveir er-
lendir fyrirlesarar þær Mary-Ann Sörensen frá
Danmörku og Sara-Mari Jonsson í Svíþjóð sem
báðar hafa mikla reynslu í rekstri stóreldhúsa.
Síðan fáum við spennandi innlegg frá ýmsum
sem koma að rekstri mötuneyta á einn eða ann-
an hátt. Valentína Björnsdóttir hjá Móður nátt-
úru kallar erindi sitt „Gott veganesti“ og Olga
Mörk Valsdóttir hjá Sláturfélagi Suðurlands
kallar erindi sitt „Hollt í hádeginu“. Jórlaug
Heimisdóttir hjá Lýðheilsustöð og Ólafur Sæ-
mundsson næringarfræðingur fjalla um skóla-
matinn og Guðný Jónsdóttir frá Sóltúni segir
okkur hvað gert er fyrir eldri borgara á þessu
sviði. Að lokum heyrum við um heilsuátak í
ÍSAL hjá henni Hildi Atladóttur í erindi sem
hún kallar „Fyrirbyggjandi viðhald“. Dagurinn
verður að þessu sinni því hinn veglegasti og
mikið af áhugaverðu efni sem snertir öryggi og
næringarinnihald matvælanna og líkamlega og
andlega heilsu þjóðarinnar,“ segir Guðrún El-
ísabet.
Á Matvæladaginn verður „Fjöreggið“ einnig
afhent sem Matvæla- og næringarfræðafélagið
veitir fyrir lofsvert framtak á matvælasviði.
Ávallt liggur nokkur spenna í loftinu áður en að
verðlaunaafhendingunni kemur en að sögn Guð-
rúnar er þetta hinn veglegasti verðlaunagripur
sem Samtök iðnaðarins gefa og er hannaður og
framleiddur af Gleri í Bergvík.
Ráðstefnan verður sem fyrr segir föstudag-
inn 14. október á Grand hótel í Reykjavík og
hefst skráning klukkan 12.30 en búist er við að
ráðstefnan standi fram til klukkan 17. Ráð-
stefnan og er öllum opin og aðgangseyrir er
4.000 kr.
Ráðstefna | Fjallað um stóreldhús og mötuneyti á Matvæladeginum 2005 á Grand hótel
Viðfangsefni sem snertir alla
Guðrún Elísabet
Gunnarsdóttir tók við
formennsku í Matvæla-
og næringarfræðafélagi
Íslands, MNÍ, síðast-
liðið vor. Félagið var
stofnað árið 1981 þegar
fyrstu matvælafræð-
ingarnir útskrifuðust
frá Háskóla Íslands og
eru félagsmenn í kring-
um 200 talsins. Guð-
rún er matvælafræð-
ingur frá Háskóla Íslands og vinnur sem
ráðgjafi hjá Rannsóknarþjónustunni Sýni ehf.
Hún er fædd og uppalin á Reykjavíkursvæðinu,
gift og á þrjá syni.
Flugvöllurinn frægi!
ENNÞÁ kljást menn um staðsetn-
ingu nýs flugvallar í Reykjavík. Sýn-
ist hverjum sitt og fáir virðast öðr-
um sammála.
Flugvöllur get-
ur ekki verið
pólitískt fyr-
irbæri, hann
þarf að vera
staðsettur með
hagkvæmni
fyrir flugið
sjálft í huga;
aðflugshætti, vinda og veður al-
mennt. Eitt er það þó, sem mér kem-
ur spánskt fyrir sjónir; af hverju er
þessum aðiljum, sem vilja yfirtaka
Vatnsmýrina, ekki boðið að reisa
sínar byggingar uppi á Miðdals-
heiði? Háskóli mundi örugglega
sóma sér vel í þessu umhverfi, hátt
uppi, mátulega langt frá höfuðborg-
inni og þar sem nemendurnir hefðu
náttúrufriðinn til að leggja stund á
sín fög. Ef þessi staður er svona
ákjósanlegur fyrir flugvöll, þá hlýtur
hann að vera jafngóður fyrir önnur
mannvirki. Ef flytja þarf flugvöllinn,
þá er Álftanesið örugglega betri
kostur, jafnvel þótt flytja þyrfti for-
setann sjálfan um set. Gæti jafnvel
verið fýsilegra að hafa hann nær
bænum. Eins og landsmenn hafa lát-
ið í sér heyra, þá er þetta mál ekki
eingöngu mál höfuðborgarinnar
heldur allrar landsbyggðarinnar.
Björn B. Sveinsson,
Hamarstíg 23, Akureyri.
Verslað með æru og dyggðir
ÉG VERÐ að játa að ég veit ekki
hvað Hannes Hólmsteinn sagði,
enda vissara að hafa það ekki eftir,
ef maður á þá á hættu málssókn í
Bretlandi fyrir vikið. Hannes segist
jú aðeins hafa haft eftir það sem aðr-
ir sögðu.
Ef ummælin hafa átt sér stað á
opinberum vettvangi í Bretlandi og
skaðað þar viðskiptahagsmuni kær-
andans þykir mér ekki óeðlilegt að
hægt sé að sækja málið þar. Að er-
lendur dómstóll rétti í brotum Ís-
lendinga á Íslandi finnst mér frá-
leitt.
Fyrir margt löngu minnir mig að
einhverjir frammámenn hafi lögsótt
blaðamann fyrir að kalla þá hórur.
Af því tilefni setti ég saman eftirfar-
andi kviðling og læt hann fylgja hér
til íhugunar:
(Lag: Grænlandsvísur)
Tungan hefur aldrei verið orðafá
en ekki nema lítið af þeim brúka má.
Af sauryrðum þarf lítið til að særa
æru manns,
síðan drengskapurinn fór á
skattskýrsluna hans.
Nú man ég ekki orðið par
orðið sem að notað var
um meyjarnar í minni byggð
sem mæðrum sínum vöktu hryggð
og þágu fé af þeim sem meiddu
þeirra dyggð.
Þórhallur Hróðmarsson,
Hveramörk 4, Hveragerði.
70 ÁRA afmæli. Í gær, 11. októ-ber, varð sjötug Helga Svandís
Helgadóttir, Ljósalandi 3, Bolung-
arvík.
Hlutavelta | Vinirnir Aníta Sævars-
dóttir, Harpa Haraldsdóttir og Breki
og Brynjar Arndal héldu nýlega tvær
tombólur fyrir utan Nóatún í Hamra-
borg. Þau söfnuðu alls 3.362 kr. sem
þau afhentu Kópavogsdeild Rauða
krossins. Þeim var umhugað um að
peningarnir færu í að aðstoða veik og
bágstödd börn í útlöndum.
Baráttugleði.
Norður
♠DG6
♥Á
♦42
♣G1097532
Frakkinn Jean-Marc Roudinesco
hélt á spilum norðurs og barðist hetju-
lega í sögnum.
Vestur Norður Austur Suður
Mari Roudinesco Perron Stoppa
-- Pass Pass 1 spaði
3 grönd 4 lauf Pass Pass
4 grönd Pass Pass Pass
Spilið er frá Ólympíumótinu í tví-
menningi 1978 og svo vildi til að Roud-
inesco og Stoppa voru að keppa við
samlanda sína, Mari og Perron. Roud-
inesco passaði í byrjun, en ákvað svo að
fórna í fjögur lauf yfir þriggja granda
stökki vesturs, enda þóttist hann vita
að Mari væri með þéttan sjö-spila tígul
og fyrirstöðu í spaða. En Mari lét ekki
slá sig út af laginu og reyndi fjögur
grönd yfir fórninni.
Roudinesco valdi að verjast þar, en
hvar kom hann út? Eða með kunn-
uglegra orðalagi – hvert væri útspil
lesandans?
Norður
♠DG6
♥Á
♦42
♣G1097532
Vestur Austur
♠K9 ♠1073
♥D ♥1098653
♦ÁKD9763 ♦G10
♣ÁD4 ♣K8
Suður
♠Á8542
♥KG742
♦85
♣6
Roudinesco hlammaði niður hjarta-
ásnum og Stoppa fylgdi lit með sjö-
unni, sem Roudinesco túlkaði sem hlið-
arkall og skipti yfir í spaðadrottningu.
Stoppa tók slaginn og þakkaði makker
hjartanlega með KG. Einn niður.
Útspilið er rökrétt. Vestur segist
eiga sjölit í tígli og fyrirstöður í spaða
og laufi, sem þýðir að hann á varla mik-
inn styrk eða lengd í hjartalitnum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Dagskrá:
Fyrir hádegi
Kl. 9.15 Eygló Þorgeirsdóttir; Kynning á Shiatsu.
Kl. 9.30 Lilja Oddsdóttir; Lithimnu og hvítugreining,
að lesa í línur augans.
Kl. 9.45 Vigdís Steinþórsdóttir og Hafdís Garðarsdóttir;
Máttur hugans.
Kl. 10.15 Líney Helgadóttir; Kynning á urtaveigum.
Kl. 10.45 Selma Júlíusdóttir; Hvað er Aromatherapy?
Kl. 11.00 Jón Bragi Bjarnason; Penzím, mild, náttúruleg
og árangursrík aðferð fyrir græðara.
Kl. 11.20 Ríkharður Mar Jósafatsson; Nálastungur og
gagnsemi þeirra.
Kl. 11.35 Sigrún Sól Sólmundsdóttir og Eygló Benediktsdóttir;
Kynning á svæða- og viðbragðsmeðferð.
Eftir hádegi
Kl. 13.00 Ragnheiður Guðnadóttir; Kynning á Höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferðarforminu.
Kl. 13.15 Erla Ólafsdóttir; Höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferð í vatni.
Kl. 13.25 Steinþór Sigurðsson; Saga Medica, íslenskar
lækningarjurtir.
Kl. 13.45 Birna Imsland; Hómópatía, þitt val.
Kl. 14.00 Haraldur Magnússon; Stoðkerfið, skrifstofan og æfingar.
Kl. 14.35 Ingibjörg Sigfúsdóttir; Ábyrgð á eigin heilsu.
Kl. 14.55 Guðbrandur Einarsson; Kynning á heilsunuddi.
Kl. 15.10 Erla Stefánsdóttir; Álfafyrirlestur.
Kl. 15.30 Susanne Nordling; Kynning á NSK og framtíðarhorfur.
Kl. 15.50 Nils Erik Volden; Norrænt rannsóknarverkefni.
Kl. 16.20 Pallborðsumræða um stöðu óhefðbundinna
meðferða á Norðurlöndunum.
Kl. 17.00 Fundarstjóri lokar ráðstefnunni.
Allir velkomnir
Ráðstefna
laugardaginn 22. október 2005
í tengslum við 5 ára afmæli
Bandalags íslenskra græðara
Ráðstefnan er milli kl. 9.00 og 17.00
í Ráðstefnusal Hótel Sögu
miðaverð kr. 1.500.
Ólafur Þór Jónsson; varaformaður BIG setur ráðstefnuna
Fundarstjóri Ragnheiður Guðnadóttir
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
TÓNAHÁTÍÐIN í Þjórsárveri verð-
ur haldin í fimmta sinn dagana 13.–
15. október nk. Hátíðin er orðinn ár-
viss viðburður í tónlistarlífi Sunn-
lendinga og hefur orðið vinsælli með
hverju ári. Hátíðin skipar stóran sess
í gróskumiklu menningarlífi í Vill-
ingaholtshreppi en á fyrri Tónahátíð-
um hafa komið fram fjölmargir kunn-
ir skemmtikraftar.
Eins og undanfarin ár er hátíðin nú
þriggja kvölda tónleikaröð með
landsþekktum listamönnum og fjöl-
breyttri tónlist.
Fimmtudagskvöldið 13. október
verður með léttu klassísku yfirbragði
en þá verða tónleikar með Davíð
Ólafssyni bassa og Stefáni Helga
Stefánssyni tenór. Undirleikari verð-
ur Kurt Kopecki, hljómsveitarstjóri
Íslensku óperunnar. Á söngskrá eru
m.a. ítalskar tarantellur, lög úr söng-
leikjum, Vínarljóð, Elvis, íslensk
sönglög og það besta úr evróvisjón.
Á föstudagskvöldið verða feðginin
Ólafur Beinteinn Ólafsson, harm-
onikkuleikari og tónskáld, og Ingi-
björg Aldís Ólafsdóttir sópran með
tónleika. Þau stjórna einnig söng-
kvöldi, þar sem gestir í sal geta tekið
undir í söngnum.
Hátíðinni lýkur svo laugardags-
kvöldið 15. október með tónleikum
Ragnheiðar Gröndal. Ragnheiður er í
dag ein vinsælasta söngkona landsins
og handhafi íslensku tónlistarverð-
launanna. Með aðstoð hljómsveitar
mun hún flytja lög af fjölbreyttu tagi,
m.a. vísnatónlist, jazz og blús.
Forsala aðgöngumiða er hafin, og
eru miðar seldir í Hljóðhúsinu í
Kjarnanum á Selfossi og hjá umsjón-
armanni Þjórsárvers. Einnig er tekið
á móti pöntunum í síma 862 2345.
Hægt er að kaupa miða á hvert kvöld
og einnig kort sem gildir á allri hátíð-
inni.
Tónahátíðin í Þjórsárveri
Morgunblaðið/Kristinn
Ragnheiður Gröndal heldur lokatónleika Tónlistarhátíðar í félagsheim-
ilinu Þjórsárveri á sunnudagskvöldið.
Nánar um Þjórsárver og Tónahá-
tíðina á heimasíðunni www.thjors-
arver.is.