Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR sæ 3 Me tsö lul ist i M bl.6. 12 . - 12 . 12. Skáldv er k 2. p ren 3. p ren tun koEKKI MISSA AF ÞRIÐJA TÁKNINU! „Snjöll“ – „Fersk rödd“ – „Frábær frumraun“ „Æsispennandi og óvenjuleg“ — Brot úr umsögnum um Þriðja táknið— STÓRTÍÐINDI í útrás íslenskra bókmennta. 17 tungumál - yfir 100 lönd ALLMARGIR hafa lagt Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur lið á yfir- standandi ári í tilefni af 75 ára af- mæli Vigdísar Finnbogadóttur í apr- íl og að í ágúst voru liðin 25 ár frá því að hún tók við embætti forseta fyrst kvenna í heiminum. 15. desember sl. afhenti Helga Thors f.h. KB banka stofnuninni styrk að upphæð þrjár milljónir króna, en Helga á sæti í stjórn styrktarsjóðs stofnunarinnar. Styrknum á að verja til að und- irbúa framtíðarætlunarverk stofn- unarinnar um að koma á fót alþjóð- legri miðstöð tungumála með gagnabanka með stafrænum upplýs- ingum um tungumál og menningu. Sú starfsemi yrði liður í því að stór- efla tungumálarannsóknir og stuðla að varðveislu tungumála í heiminum sem mörg eru í bráðri útrýmingar- hættu. Tilgangurinn með miðstöð- inni er einnig að efla og stórbæta að- stöðu til tungumálakennslu. Hinn 22. nóvember sl. færðu hjón- in Sigríður Th. Erlendsdóttir og Hjalti Geir Kristjánsson Styrktar- sjóði Stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur 500.000 krónur að gjöf. Í bréfi sem fylgdi gjöfinni stendur m.a.: „Að baki gjöfinni eru einkum þær ástæð- ur að okkur fannst afar vel til fundið að efna til Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur og höfum fylgst með störfum stofnunarinnar frá upphafi. Enn fremur finnst okkur tungumála- kunnátta svo mikilvæg fyrir okkur Íslendinga að við viljum leggja af mörkum til að auka þekkingu okkar á erlendum tungumálum, og gildir þá einu hvort um er að ræða rann- sóknir, bókmenntir, útgáfustörf eða notagildi tungumála í atvinnulífinu.“ Vigdís Finnbogadóttir, formaður stjórnar Styrktarsjóðs stofnunar- innar, segir að styrkir á borð við þessa hafi mjög mikla þýðingu og sýni að fólk ber traust til hennar. „Stofnunin er með miklar áætlanir á prjónunum að gera okkur gildandi bæði hér heima og í öðrum löndum,“ segir Vigdís. „Hér heima sem stofn- un til að vekja athygli á því hversu mikilvægt er að læra tungumál. Tungumálin eru lykillinn að heimin- um, eins og ég hef áður sagt. Styrkir sem þessir færa okkur nær mark- miðinu.“ Styrkar stoðir Styrktarsjóður Stofnunar Vigdís- ar Finnbogadóttur var stofnsettur 22. janúar 2003 og eru Háskóli Ís- lands og Kaupþing banki hf. frum- stofnendur sjóðsins. Markmið hans er að renna styrkum stoðum undir starfsemi stofnunarinnar og stuðla að vexti hennar og viðgangi. Sjóð- urinn mun veita fjárframlög og ann- an stuðning við rannsóknir á erlend- um tungumálum og einnig styrkja útgáfu ritverka á fræðasviðum stofn- unarinnar og þróun kennslugagna í erlendum tungumálum. Þeir sem leggja sjóðnum lið fram til 15. apríl 2006 munu teljast til stofnenda hans skv. skipulagsskrá. Sjá nánar um sjóðinn og starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur á heimasíðu hennar: www.vigdis.hi- .is. Margir hafa stutt Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur Morgunblaðið/Árni Sæberg Helga Thors frá KB banka afhendir Vigdísi Finn- bogadóttur styrk bankans til Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Helga á sæti í stjórn Styrkt- arsjóðsins og Vigdís er formaður hennar. Ljósmynd/Eggert Þór Bernharðsson Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, ásamt hjón- unum Sigríði Th. Erlendsdóttur og Hjalta Geir Krist- jánssyni sem gáfu Styrktarsjóði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur 500 þúsund krónur á dögunum. RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært 18 ára pilt fyrir til- raun til manndráps á Menningarnótt með því að stinga annan pilt tvívegis í bakið með hnífi. Atvikið átti sér stað í miðbænum og voru áverkar fórnarlambsins lífshættu- legir og fylgdi sárunum mikil blæðing. Ákæran var þing- fest í héraðsdómi á fimmtudag og bar ákærði fyrir sig sjálfsvörn. Hann er einnig sakaður um aðra hnífaárás sömu nótt á jafnaldra sinn og telur ríkissaksóknari þann verknað vera sérstaklega hættulega líkamsárás. Fórn- arlambið var stungið einu sinni í bakið rétt fyrir neðan herðablað. Ákærði bar fyrir sig gáleysi í það skiptið. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa rotað 16 ára pilt með skóflu þann 1. febrúar við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Þá er pilturinn einnig ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa ítrekað haft kynmök við stúlku sem þá var 12 og 13 ára og að hafa átt myndir af stúlkunni og þeim sam- an, sem sýndu hana á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Hann játaði þessi atriði en neitaði að hafa dreift myndunum eins og hann er einnig ákærður fyrir. Krafist er refsingar yfir ákærða og nema skaðabóta- kröfur fórnarlambanna tæpum 4 milljónum króna. Þar af er bótakrafa stúlkunnar 1 milljón kr. og piltsins sem stunginn var tvisvar 2,5 milljónir kr. Ákærður fyrir manndráps- tilraun og kynferðisbrot FJÓRIR lögreglumenn sem komu fyrstir á vettvang Viðeyjarslyssins 9. september þegar skemmtibáturinn Harpa fórst við Skarfasker, fengu björgunarviðurkenningu Lögreglufélags Reykjavíkur í gær. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var fenginn til að afhenda viðurkenn- inguna á 70 ára afmæli Lögreglufélags Reykjavíkur. Lögreglumenn- irnir fjórir fóru út á gúmbjörgunarbát lögreglunnar og fundu þrjá skipbrotsmenn við erfiðar aðstæður í myrkri, kulda og talsverðum öldugangi. Á afmæli Lögreglufélags Reykjavíkur voru einnig heiðruð afmæl- isbörn innan lögreglunnar og þeir lögreglumenn sem lokið hafa störf- um. Morgunblaðið/Júlíus Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ásamt lögregluþjónunum sem heiðraðir voru við björgunarfrek. F.v. Eiríkur Stefán Einarsson, Friðrik Brynjarsson, Arnór Eyþórsson og Bogi Sigvaldason. Viðurkenning fyrir björgun í Viðeyjarslysi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær tvo menn á þrítugs- aldri af ákæru fyrir tilraun til smygls á rúmlega 136 grömmum af amfetamíni hingað til lands frá Dan- mörku. Annar mannanna var hins vegar dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir vopnalagabrot og hylmingu í óskyldu máli. Í dómi segir að annar ákærðu sagðist hafa keypt amfetamínið í Danmörku, búið það til flutnings og komið því fyrir í geymsluhólfi á járn- brautarstöðinni í Kaupmannahöfn fimmtudaginn 9. september. Sagðist hann hafa keypt það fyrir með- ákærða og afhent honum lykil að geymsluhólfinu. Sá maður sagðist hins vegar hafa farið til Kaup- mannahafnar að beiðni hins sak- borningsins í því skyni að sækja tösku í farangurshólfið á braut- arstöðinni. Hann hafi ekki vitað hvað ætti að vera í töskunni þótt hann grunaði að það gætu verið fíkniefni. Hann hafi hins vegar ekki vitað hvað gera ætti við töskuna í framhaldinu því að einu fyrirmæli hans hafi verið að hringja í hinn manninn þegar hann væri kominn á hótel með töskuna. Sá sem átti að sækja töskuna greip hins vegar í tómt því lögreglan í Kaupmannahöfn hafði komist á snoðir um málið og fjarlægt töskuna. Þegar Íslendingurinn sá að skáp- urinn var tómur spurðist hann fyrir um hólfið í afgreiðslu brautarstöðv- arinnar og var handtekinn skömmu síðar. Í dómi segir að báðir ákærðu hafi mótmælt því eindregið að hafa haft einhverja vitneskju um flutning am- fetamínsins til Íslands. Að mati dómsins taldist framburður þeirra ekki fela í sér neina sönnun þar um. Þótti sök þeirra ekki sönnuð og voru þeir því sýknaðir. Ásgeir Magnússon héraðsdómari dæmdi málið. Verj- endur voru Sveinn Andri Sveinsson hrl. og Brynjar Níelsson hrl. Sækj- andi var Daði Kristjánsson, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. Sýknaðir af ákæru fyrir smygl EIN fjölmennasta Íslendingaguðs- þjónusta á Brelandseyjum í manna minnum var haldin í Sænsku kirkj- unni í Lundúnum 11. desember sl, þ.e. þriðja sunnudag í aðventu. Hátt á fjórða hundrað manns sótti mess- una. Það var séra Sigurður Arn- arson sem flutti aðventuhugleið- ingu og fór með bæn og bless- unarorð. Barnastarf kirkjunnar hefur eflst til muna á skömmum tíma og til marks um það tóku um fjörutíu börn þátt í helgileik sem fluttur var við þetta tækifæri. Und- ir lok messunnar voru sungnir jóla- sálmar og leiddi íslenski kirkjukór- inn í Lundúnum sönginn undir stjórn Margrétar Sigurðardóttur. Að lokinni helgistundinni var haldið jólaball Íslendingafélagsins í safnaðarsal kirkjunnar. Veislu- borðin voru hlaðin heimabökuðum kræsingum sem fóru vel með kaffinu. Kórinn söng og var dansað í kringum jólatréð að íslenskum sið. Fljótlega birtust jólasveinar og ekki þótti spilla fyrir að þeir töluðu íslensku og gáfu börnunum íslenskt góðgæti. Safnaðarnefndin stóð í fyrsta sinn fyrir sölu á bókum frá Skálholtsútgáfunni og seldist helm- ingurinn af lagernum upp á nokkr- um mínútum en bækur á vegum út- gáfunnar munu í framtíðinni verða seldar eftir messur. Fjölmenn Íslendinga- messa í Lundúnum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.