Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 32
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri auglýsir
prófkjör
Ákveðið hefur verið að efna til prófkjörs, þann 11. febrúar nk., um val
frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við
sveitarstjórnarkosningar þann 27. maí 2006.
Hér með er auglýst eftir prófkjörsframbjóðendum. Framboð skal bundið við einn
flokksbundinn einstakling. Að hverju framboði skulu standa 20 flokksbundnir
sjálfstæðismenn í sveitarfélaginu Akureyri. Enginn flokksmaður getur staðið að
fleiri framboðum en sex (6).
Framboðsfrestur er til og með kl. 17:00 þann 16. janúar nk.
(póststimpill 16. janúar gildir).
Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og upplýsingum
um frambjóðendur, til formanns kjörnefndar, Önnu Þóru Baldursdóttur,
Eikarlundi 10, 600 Akureyri. Eyðublöð vegna framboðs (stuðningsyfirlýsing og
upplýsingar um frambjóðendur) má nálgast hjá formanni kjörnefndar,
hs. 462 7720, gsm 899 8348 og formanni fulltrúaráðs, Birni Magnússyni,
hs. 462 5886, gsm 861 2886.
Frekari upplýsingar er að finna á vefritinu Íslendingi, www.islendingur.is og
heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is
Um prófkjörið vísast til reglna um prófkjör Sjálfstæðisflokksins, sjá www.xd.is
Nánari upplýsingar gefur formaður kjörnefndar.
F.h. kjörnefndar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri,
Anna Þóra Baldursdóttir formaður.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri Kaupangi v/Mýrarveg, 600 Akureyri
Vestmannaeyjar | Bekkurinn
var þétt setinn á hinum árlegu
jólatónleikum kórs Landakirkju
sem haldnir voru í kirkjunni í
fyrrakvöld. Einsöngvarar voru
þau Geir Jón Þórisson og
Helga Jónsdóttir en einnig
komu fram Sæþór Þorbjarn-
arson og Kristín Halldórs-
dóttir. Á myndinni má sjá Guð-
mund Guðjónsson, organista
Landakirkju, og Geir Jón Þór-
isson söngvara sem betur er
þekktur af starfi sínu sem yf-
irlögregluþjónn í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sungið af innlifun í Landakirkju
Kór
Suðurnes | Akureyri | Landið | Árborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes
Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland
Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir,
austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þótt aðventan sé erilsöm hjá flestum er
hún samt dálítið öðruvísi í sveitinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Rólegra yfirbragð,
ekki þessi tryllingur í umferðinni og læti í
búðunum. Í stað þess að bíða á rauðu ljósi
skerum við út laufabrauð og bökum smá-
kökur og margir útbúa jólagjafirnar og
jólakortin sjálfir. Hekla, prjóna og sauma
og fá út úr því mikla gleði.
Nú spretta upp ný fjós í sveitinni eins og
gorkúlur. Eru þessar nýbyggingar svo
stórar og flottar að ætla mætti að bændur
væru að reisa samkomuhús eða íþrótta-
hallir. Eina sem minnir á gömlu fjósin er
lyktin, hún bregst ekki, og svo auðvitað
kýrnar sjálfar þegar þær eru fluttar inn í
dýrðina. Bóndi hér í sveit, Pétur Guð-
mundsson í Stóru-Hildisey, hefur nýlokið
við að reisa sér fjós sem ku verða stærsta
fjós á landinu. María og Jósep hefðu
sennilega átt auðvelt með að fá gistingu í
þessari glæsilegu byggingu hefði Jesú
fæðst í Landeyjunum árið 2005.
Fjögur ungmenni, allt nemar við Við-
skiptaháskólann á Bifröst, hafa und-
anfarið unnið að rannsókn á hagkvæmni
þess að reisa verslunarmiðstöð á Hvols-
velli. Niðurstöður könnur sem þau gerðu
benda til þess að hagkvæmt geti verið að
reisa slík hús. Nú er bara að vita hvort ein-
hver treystir sér í verkið því víst er að það
myndi styrkja byggðina og atvinnu-
starfsemi myndi tvímælalaust eflast á
svæðinu.
Og svo ein sönn saga í lokin. Í skóla
nokkrum hefur undanfarið verið minnst
200 ára ártíðar danska skáldsins H.C.
Andersens. Á bókasafninu var mikið um
dýrðir og myndir og verkefni um skáldið
prýddu þar veggi. Nemandi í 1. bekk sem
átti leið á safnið virti fyrir sér verkefnin
og sagði svo við bókavörðinn: Ég er nú al-
veg búinn að fá nóg af þessum Andréssen,
er ekki kominn tími til að skipta yfir í
Jesú, hann á jú líka afmæli!
Úr
bæjarlífinu
RANGÁRÞING EYSTRA
EFTIR STEINUNNI ÓSK KOLBEINSDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Impra, nýsköpunarmiðstöð, braut-skráði 46 konur í vikunni af nám-skeiðinu Brautargengi. Braut-
skráningin fór fram á sama tíma á
Akureyri, Sauðárkróki, Ísafirði og á Sel-
fossi í gegnum fjarfundabúnað. Selfoss-
hópurinn er á myndinni.
Fimmtán konur af Suðurlandi sóttu
námskeiðið sem haldið er fyrir konur
sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í
framkvæmd og stunda eigin atvinnu-
rekstur. Auk kvennanna af landsbyggð-
inni sóttu 20 konur af höfuðborgarsvæð-
inu námskeiðið. Mikil fjölbreytni var í
þeim verkefnum sem unnin voru á náms-
tímanum og má sem dæmi nefna ferða-
þjónustu, auglýsingastofu, nám-
skeiðahald og skóla, verslun, ýmsar
netverslanir, matvælaframleiðslu og
verktakafyrirtæki svo eitthvað sé nefnt.
Í fréttatilkynningu segir að glöggt hafi
komið í ljós að konur hafi fullan hug á að
nýta þekkingu sína og reynslu við að
byggja upp atvinnutækifæri fyrir sig og
aðra í sinni heimabyggð og hafa margar
kvennanna hafið rekstur.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Brautargengiskonur útskrifaðar
Félag ljóðaunnendaá Austurlandi gafnýlega út ljóða-
bókina Í hélu haustsins
eftir Helga Seljan. Í til-
efni af útkomu bók-
arinnar kastaði Helgi
fram stöku og er rangt
farið með hana í blaðinu í
gær. Hún er rétt svona:
Þetta er alveg á yztu mörkum
og asskolli verð ég feiminn,
þegar ég andans asnaspörkum
ota framan í heiminn.
Steindór Andersen lýsti
sjálfum sér í hringhendu
á skemmtun sem haldin
var á Næsta bar:
Hylur Steindór hárið vel
hefur reyndar skalla,
með hálfa greind í höfuðskel
sem hýsir leynda galla.
Hálfdán Theódórsson
kvikmyndatökumaður
tróð upp með Steindóri
og fékk engu skárri út-
reið:
Hann er sláni hávaxinn
heimskur kjáni og tregur
heitir Dáni hálfvitinn
heldur bjánalegur.
Af andans
asnaspörkum
pebl@mbl.is
Eyjafjörður | Fjórar kýr á bænum Fells-
hlíð í Eyjafirði hafa borið tveimur kálfum
hver á rétt rúmlega einum mánuði. Kemur
þetta fram á vef Bændasamtakanna.
Elín Stefánsdóttir, bóndi í Fellshlíð, var
glöð í bragði þegar fulltrúi bondi.is ræddi
við hana. Hún sagði að vissulega væri hér
um happdrættisvinning að ræða eins og
staðan væri um þessar mundir hjá kúa-
bændum þar sem bæði vantar nautakjöt og
mjólk. Elín segir þau enga skýringu hafa á
þessari miklu frjósemi nema þá ef vera
skyldi að þau gáfu kúnum fiskimjöl.
Fjórar
kýr með
tvíburakálfa
Sólheimar | Lionsklúbburinn Ægir í
Reykjavík hélt árleg litlu jól á Sólheimum í
Grímsnesi en klúbburinn hefur haldið
þessari hefð hátt í fjóra áratugi.
Var snæddur hátíðarmálsverður með
heimilisfólkinu í boði Sólheima áður en
jólaskemmtun var haldin í íþróttahúsinu.
Sungu Lionsmenn og gestir þeirra, Ragn-
ar Bjarnason og Þorgeir Ástvaldsson, auk
þess sem Ómar Ragnarsson skemmti.
Hljómsveit á vegum Ægismanna spilaði
undir og séra Bernharður Guðmundsson,
rektor Skálholtsskóla, hélt hugvekju.
Ægir hélt
litlu jólin á
Sólheimum
♦♦♦
Hálendið | Landfræðileg miðja Íslands er
við Illviðrahnjúka, rétt norðan við Hofs-
jökul. Landmælingar Íslands hafa reiknað
þetta út í kortahugbúnaði stofnunarinnar.
Fram kemur á vef Landmælinga, lmi.is,
að stundum hafi verið spurst fyrir um
miðju Íslands. Með því að nota strandlínu
IS 50V-gagnagrunnsins sé hægt að láta
kortahugbúnað finna þennan punkt. Hann
er með staðsetninguna 64°59’11.4" N og
18°35’12.0" V, eða 519507m A og 498558m
N í ISN93 Lambert-vörpun. Tekið er fram
að eyjar landsins voru ekki teknar með.
Miðja landsins
er rétt norðan
við Hofsjökul
♦♦♦