Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 34

Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 34
34 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI LANDIÐ Kópasker | „Þetta kom á óvart. Það voru átta tilnefndir, allt stórlaxar hér,“ segir Anna Lára Jónsdóttir en hún og systir hennar, Bryndís Alda, fengu afhent hvatningarverðlaun Öxafjarðarhrepps sem veitt voru í fyrsta skipti á menningarhátíð sveit- arfélagsins á dögunum. Þær systur sjá um félagsstarf meðal eldri borg- ara, í Mörk á Kópaskeri. Markaðs- og menningardagur hefur verið haldinn á Kópaskeri í nokkur ár. Menningarnefnd sveitar- félagsins ákvað að veita hvatning- arverðlaun í fyrsta skipti og auglýsti eftir tilnefningum. Átta voru til- nefndir og voru Anna Lára og Bryn- dís Alda valdar úr. Ástæðan fyrir valinu er frammistaða þeirra í starfi. Þær þykja annast vel eldri borg- arana sem þangað koma og aðsókn- in er meiri en á flestum stöðum sam- bærilegum. Eldri borgarar á Kópaskeri koma nær daglega í Mörk en þar er heitur matur í hádeginu og miðdagskaffi, handavinna og ýmislegt gert til dægrastyttingar. Á miðvikudögum og föstudögum er meira um að vera og þá koma fleiri, meðal annars eldri borgarar úr sveitinni, sjúkra- þjálfari annast leikfimi og farið í íþróttir í íþróttahúsinu. „Við búum í litlu þorpi og fólkið sem býr hér á Kópaskeri á yfirleitt auðvelt með að komast hingað. Viss kjarni kemur daglega. Fólkið í sveit- inni á lengra að sækja en margir þaðan koma tvo daga í viku en þá er meira um að vera,“ segir Anna Lára. Þótt forstöðukonurnar séu dug- legar að skipuleggja eitt og annað kemur fólk líka til að hitta annað fólk, eða eins og Anna Lára orðar það: Maður er manns gaman. Starfið í Mörk er á vegum dval- arheimilisins Hvamms á Húsavík sem Öxafjarðarhreppur á aðild að. Systurnar hafa unnið í félagsstarfi eldri borgara í fimm ár. Anna Lára er í fullu starfi en Alda í hlutastarfi. Þegar mætingin er sem best er heldur þröngt um starfið í Mörk og systurnar hafa því lengi talað fyrir því að húsplássið verði aukið. Anna Lára segir að nú hafi verið ákveðið að byggja nýtt hús yfir starfsemina og fagnar hún því. Vonast hún til þess að byrjað verði á fram- kvæmdum með vorinu. Systur fengu hvatningarverðlaun fyrir starf með eldri borgurum Viss kjarni kemur daglega Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir Hvatning Anna Lára og Bryndís Alda Jónsdætur tóku við hvatning- arverðlaunum Öxarfjarðarhrepps. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Bolungarvík | Franski listamál- arinn Alains Jeans Garrabé fær inn- blástur til sköpunar í Bolungarvík þar sem hann vinnur að list sinni. Í því sambandi ræðir hann bæði um stórbrotna náttúru og kynngimagn- að fólk. Hann hefur nú opnað mál- verkasýningu í veitingastaðnum í kjallaranum í Einarshúsinu við Hafnargötu í Bolungarvík. Á sýningunni eru 13 olíumálverk sem öll eru til sölu. Fjölmenni var við opnun sýningarinnar þar sem gestir nutu listarinnar, veitinga og hlýddu á harmonikkusnillinginn unga, Helgu Kristbjörgu Guð- mundsdóttur, leika frönsk og ís- lensk lög. Alains lagði stund á listnám í heimalandi sínu, fyrst Toulouse í Suður-Frakklandi og síðar í háskóla í París með listir sem sérgrein. Að loknu námi starfaði hann við kennslu bæði í Frakklandi og í Þýskalandi. Frá árinu 1992 hefur hann helgað sig málaralistinni. Var að leita að mínum stíl Sumarið 1995 kom Alains fyrst til Íslands og hreifst strax af hinum tæru litum íslenskrar náttúru. Fimm árum síðar settist hann að í Bolungarvík og hefur komið þar upp vinnustofu. Aðspurður hvers vegna myndlistarmaður tekur sig upp frá Frakklandi til að vinna að listsköpun sinni í fámennu sjáv- arþorpi á Íslandi sagði Alains að hann hefði strax hrifist af landi og þjóð. Eftir fyrstu heimsókn sína til landsins lagði hann sig fram um að kynnast landi og þjóð. Hann segist til dæmis hafa lesið Heimsljós og fleiri ritverk Halldórs Laxness og svo hafi kvikmyndin Börn náttúr- unnar haft mikil áhrif á hann, ekki síst sú mikilfenglega náttúra sem þar ber fyrir augu. „Ég var að leita að mínum stíl í listinni og eftir vetursetu á Ísafirði árið 2000 komst ég að því að þetta væri það umhverfi sem veitti mér þann innblástur sem mér er nauð- synlegur til að vinna og þróa þann stíl sem ég vildi nota í listtúlkun minni. Það er mikilvægt hverjum listamanni að vera listsköpun sinni trúr og ná að dvelja í því umhverfi sem gefur honum mesta möguleika á að rækta hana,“ segir Alains og bætir við: „Hér fæ ég innblásur til listsköp- unar minnar, bæði úr umhverfinu og ekki síður úr kynnum mínum af mannlífinu. Fólkið hér um slóðir sem margt hvert á ættir að rekja til Hornstranda er ekki síður kynngi- magnað og kraftmikið en sú náttúra sem það hefur alist upp í.“ Sýning Alains í Kjallaranum stendur til áramóta og er opið alla daga frá kl 15 til 18 og um helgar, á meðan veitingarstaðurinn er opinn. Franskur listmálari hefur sest að í Bolungarvík „Hér fæ ég innblástur til listsköpunar“ Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Opnun Alains Jeans Garrabé fékk Helgu Kristbjörgu Guðmundsdóttur til að leika við opnun málverkasýningar sinnar í kjallara Einarshúss. Eftir Gunnar Hallsson „NÚ ER verið að ýta úr vör merki- legri nýjung í vísindastarfi okkar Ís- lendinga,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á opn- unarhátíð í Háskólanum á Akureyri í gær í tilefni tímamótaviðburða í uppbyggingu og þróun asískra fræða. Í upphafi næsta árs hefst kennsla í kínversku og kínverskum fræðum við Símenntunardeild Háskólans á Akureyri og þá var einnig formlega stofnað Asíuver Íslands, ASÍS, vett- vangur fyrir rannsóknir og fræðslu á sviði asískra fræða á Íslandi, en að því standa Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands, en gert er ráð fyrir að aðrar íslenskar menntastofnanir hafi hug á að gerast aðilar að verinu. Það mun beita sér fyrir að samhæfa og efla sérþekkingu fræðimanna á Íslandi um þjóðir, málefni og að- stæður Asíu, m.a. með ráðstefnu- haldi, útgáfu og að byggja upp sam- skipti aðildarstofnana við erlendar og þar með asískar stofnanir. Kennsla í kínversku hefst nú eftir áramót og verður fyrst um sinn boð- ið upp á þrjú námskeið, kínversku fyrir byrjendur, kínverska nútíma- menningu og viðskipti í Kína, en í nánustu framtíð mun framboð nám- skeiða aukast. Markmiðið er að bjóða upp á sameiginlegt B.A. nám í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri í Austur-Asíufræðum, en slíkt verkefni á sér ekki fordæmi í samstarfi skólanna. Boðið verður upp á námið sem fjarnám sem verð- ur aðgengilegt sem víðast um landið. Forseti Íslands gat þess að ferð sem hann ásamt föruneyti, m.a. fulltrúum háskólanna í landinu, hefðu farið í til Kína í maí síðast- liðnum hefði verið árangursrík. Ein- lægur vilji væri til þess að meðal þjóðanna beggja að taka upp aukið samstarf á ýmsum sviðum. Hann sagði Íslendinga margt hafa að sækja til Kína, ekki bara viðskipti heldur t.d. líka samstarf við fræði- og vísindamenn, en æ fleiri ungir Kínverjar sæktu sér háskóla- menntun, bylting hefði orðið á hvað það varðar. „Kínverjar hafa líka margt að færa okkur,“ sagði Ólafur Ragnar. Auk hans fluttu ávörp eða erindi á hátíðinni Wang Xinshi, sendiherra Kína á Íslandi, Ólafur Egilsson, sendiherra Íslands í Kína árin 1998– 2002, Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, Kristín Ing- ólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Mikael M. Karlsson, deildarforseti félagsvísinda- og lagadeildar Há- skólans á Akureyri, og Ragnar Bald- ursson, sérfræðingur um kínverska heimspeki og menningu. Þá und- irrituðu Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri, og fulltrúar frá Avion og Íslandsbanka, stuðningsyfirlýsingu við nám í kínversku og kínverskum fræðum. Kristín Ingólfsdóttir, rekt- or Háskóla Íslands, og Þorsteinn Gunnarsson undirrituðu samstarfs- samninga um Asíuver Íslands og um sameiginlegt nám háskólanna í Austur-Asíufræðum. Asíuver stofnað við HA og unnt að hefja nám í kínversku Merkileg nýjung í vísindastarfi okkar Morgunblaðið/Kristján Samningar Skrifað var undir samninga um kennslu í kínversku og kín- verskum fræðum og formlega stofnsetningu Asíuvers Íslands. Ísstyttur | Þrír matreiðslumenn ætla að skera út ísstyttur á Ráðhús- torgi í dag, laugardag, kl. 15.00. Þeir voru að undirbúa sig í gær í húsnæði Brims og halda svo vinnu sinni áfram í dag og ætla svo að lýsa verkin upp. GERT er ráð fyrir umtalsverðri þétt- ingu byggðar í tillögu að aðalskipulagi Akureyrar 2005–2018, sem bæjaryf- irvöld hafa sent Skipulagsstofnun. Stefnt er að því að nýta óbyggð svæði innan núverandi byggðar undir íbúðabyggð eftir því sem kostur er, segir m.a. í greinargerð. Fyrst og fremst er litið til ónotaðra svæða og svæða sem hætt eru að þjóna upp- haflegu hlutverki sínu á viðeigandi hátt eða þarfnast endurnýjunar. Ráð- gert er að byggja 500–600 íbúðir og þar af um 300 íbúðir á miðbæjarsvæð- inu, m.a. á Akureyrarvellinum. Bent er á að með nýtingu slíkra svæða til íbúðabyggðar verði þjón- ustukerfi bæjarins betur nýtt. Enn- fremur má nýta uppbyggingu þess- ara reita til þess að bæta skörðótta og víða gisna bæjarmynd, auka gæði um- hvefisins, bæði hvað snertir bæjar- mynd og veðurfar. Í tillögunni er gert ráð fyrir 5–6 einbýlishúsalóðum við Miðholt, fjölbýlishúsi með bíla- geymslum í kjallara við Skarðshlíð, sérbýlishúsum á Melgerðisás austan Þórssvæðis og þá er gert ráð fyrir 5 íbúðum í sérbýlishúsum við Drangs- hlíð ofan Glerárskóla. Einnig er gert ráð fyrir nýrri íbúðabyggð við Krossanesbraut, sér- býlishúsum við Vestursíðu, 4–5 ein- býlishúsum til viðbótar við Kletta- borg og í Lundarhverfi er gert ráð fyrir stækkun íbúðarhverfis að götu- stæði Miðhúsabrautar. Þá er gert ráð fyrir svæði fyrir námsmannaíbúðir við Hlíðarbraut og á háskólasvæðinu. Þétting byggðar í tillögu að aðalskipulagi Ráðgert að byggja 500– 600 íbúðir NÍU gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar á Akureyri. For- valið mun fara fram laugardag- inn 28. janúar 2006 milli klukkan 10 og 18, í húsnæði VG á Ak- ureyri, Hafnarstræti 98. Þau níu sem gefa kost á sér eru: 1. sæti: Baldvin H. Sigurðsson 1. sæti: Valgerður H. Bjarnadótt- ir 1.–3. sæti: Dýrleif Skjóldal Ingi- marsdóttir 2. sæti: Wolfgang Frosti Sahr 2.–3. sæti: Jón Erlendsson 3.–4. sæti: Baldvin Esra Ein- arsson 4.–6. sæti: Kristín Sigfúsdóttir 5.–6. sæti: Jóhannes Árnason 6. sæti: Lilja Guðmundsdóttir Kosningarétt í forvalinu hafa allir skráðir félagsmenn í VG, 16 ára og eldri með lögheimili í Ak- ureyrarkaupstað. Hægt er að skrá sig í félagið fram til lokunar kjörstaðar. Til að tryggja jafna stöðu kynjanna á listanum munu fulltrúar af gagnstæðu kyni skipta tvö efstu sætin sem og hver tvö sæti þar á eftir. Í forval- inu verða valdir sex efstu fram- bjóðendur á lista flokksins fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Níu í forvali VG ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.