Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„UPPÁHALDSJÓLASKRAUTIÐ
finnst ekki,“ segja þau hjón að-
spurð hvaða hlutir skipa sérstakan
sess í huga þeirra þegar jólin eru í
nánd. „Það er búið að fylgja okkur
alla daga síðan við hófum búskap á
Íslandi, vinir okkar í Þýskalandi
bjuggu það til og gáfu okkur, lík-
lega 1977. Það hefur sett nokkurn
svip á okkar jól; þegar það er kom-
ið upp í glugga eru jólin komin.
Þetta eru klippimyndir sem eru
límdar á rúðu í stofunni og sýna
myndir úr jólaguðspjallinu. Þær
voru sérstaklega búnar til fyrir
okkur og ekki hægt að kaupa nýj-
ar. Það eru margir hlutir með
minningar sem tengjast jólunum.“
Hörður og Inga Rós bjuggu í
Þýskalandi í sex ár, þau segja að-
ventutímann þar yndislegan.
„Jólaskrautið þar er hengt upp í
byrjun aðventu og jólamarkaðir
setja svip á borgir og bæi. Það var
róleg stemning, mikið af teboðum
og svoleiðis og það er sú stemning
sem við höfum reynt að halda í,“
segir Hörður
Annað jólaskraut sem þeim er
kært er „krippan“. Það er þýskur
jólapýramídi sem segir jólasöguna.
„Það eru sex kerti neðst á pýra-
mídanum og ef maður kveikir á
þeim snýst hann í hringi í kringum
Maríu og Jósef við jötuna. Hann er
keyptur í Þýskalandi, við vorum þá
fátækir stúdentar og eyddum
sparnaðarpeningunum í að kaupa
þennan handsmíðaða pýramída
sem var þá rándýr.“ Á borðinu hjá
þeim stendur lítið jólaþorp úr tré,
það er líka handgert frá Þýska-
landi og segir Inga Rós þau hafa
gaman af ekta þýsku jólaskrauti.
„Áður fyrr settum við jólaskrautið
yfirleitt ekki upp fyrr en á Þor-
láksmessu en við höfum slakað á í
því og erum að setja það smátt og
smátt upp í desember.“
Lifandi ljós á lifandi heimili
Í einum glugganum á heimili
þeirra hangir mikill og fallegur að-
ventukrans. „Það er gömul hefð
heiman frá mér að gera aðventukr-
ans. Við bjuggum þennan til sam-
an; ég, Hörður og Áskell sonur
okkar. Við notum alltaf sömu
gjörðina, sem við vefjum greni ut-
an um og skreytum mismunandi ár
frá ári. Við tökum hann svo niður
þegar jólatréð kemur í stofuna,“
segir Inga Rós.
Það er nóg að gera hjá Herði og
Ingu Rós í desember enda er það
mikill tónleikatími. „Þegar það er
svona mikið að gera hjá okkur vilj-
um við hafa notalega og rólega
stemningu heimavið.“ Þau kveikja
á kertum og segja það vera sálu-
hjálparatriði. „Þegar ég er heima
verð ég að hafa kveikt á kertum,
það er lifandi heimili með lifandi
ljósum,“ segir Inga Rós. Hörður
bætir við að þau séu einfaldlega
bara svona kertafólk. „Við kveikj-
um helst á kertum strax á morgn-
ana með morgunmatnum, það veit-
ir okkur ró og styrk í gegnum
daginn.“
Þrátt fyrir að hafa svona mikið
að gera segjast þau ekki lenda í
jólastressinu. „Við höfum nú dreg-
ið nokkuð í land með suma hluti
sem við gerðum áður,“ segir Hörð-
ur. Inga segir að það hafi verið til
siðs í sinni fjölskyldu að fara
syngjandi með gjafir út um allt.
„Við systurnar fórum saman á að-
fangadag og manni fannst jólin
vera komin þegar við stóðum á
tröppunum hjá fólki, sungum jóla-
lög og afhentum gjöf. Þegar við
Hörður giftumst héldum við áfram
með þetta en svo hefur þessi siður
dottið niður undanfarin ár, því
miður.“
Tvær messur á aðfangadag
Þar sem Hörður er organisti í
Hallgrímskirkju er mikið að gera
hjá honum á aðfangadag enda tvær
messur í kirkjunni þann daginn.
„Á aðfangadag förum við alltaf í
báðar messurnar í Hallgrímskirkju
og höfum gert það síðan Hörður
varð organisti þar. Við erum svo
heppin að börnin hafa alltaf komið
með okkur. Fyrri messan byrjar
klukkan sex, eftir hana förum við
heim og borðum. Seinni messan
hefst klukkan hálftólf og þegar
hún er búin förum við heim og
opnum gjafirnar. Þá er klukkan
kannski orðin eitt um nótt og við
sitjum í stofunni langt frameftir á
jólanótt,“ segja þau hjón.
Spurð út í hvort þau haldi fast í
hefðir um jólin segir Hörður:
„Okkur finnst ekki aðalatriðið að
það megi engu breyta en okkur
finnst heldur ekki neitt aðalatriði
að breyta. Raunin er sú að maður
sækir í að halda í hefðirnar um jól-
in.“
Þau segja jólin alltaf vera til-
hlökkunarefni enda dásamlegur
tími til að eiga með fjölskyldunni.
„Fólk á að njóta jólanna og njóta
þess sem það er búið að vera að
undirbúa.“
Hörður segir þó nokkra eftirsjá í
því að fólk skuli ekki syngja meira
saman í heimahúsum um jólin.
„Söngurinn er skemmtilegur og ýt-
ir undir samheldni. Mér finnst
mikið vanta á heimili þar sem ekki
er hljóðfæri til að hlaupa í þegar
fólk vill syngja saman, en auðvitað
er þetta mjög persónubundið.“
Inga Rós og Hörður voru að
eignast sitt þriðja barnabarn sem
von er á heim frá Hollandi um jól-
in. „Við eigum tvær dætur sem
búa núna báðar í Hollandi og svo
eigum við einn fimmtán ára son.“
Börnin þrjú hafa fetað í fótspor
foreldranna og eru öll í tónlist. Þau
verða ekki öll í kotinu um jólin því
önnur dóttirin verður í Hollandi.
Á aðfangadag borða þau alltaf
hangikjöt, sérstakt sveitalæri frá
ættingjum Harðar í Bárðardal.
„Svo förum við í tvö glæsileg jóla-
boð á jóladag og annan í jólum,“
segja þessi hamingjusömu hjón og
gefa lesendum uppskrift að smá-
kökum sem þau baka oft fyrir jól-
in.
JÓLIN | Halda upp á jólaskraut sem minningar eru bundnar við
Kertaljós til sáluhjálpar
Morgunblaðið/Þorkell
Aðventukransinn hangir úti í glugga og veitir birtu og yl í skammdeginu.
Morgunblaðið/Þorkell
Inga Rós og Hörður í notalegri stemningu með jólapýramídann og þýska jólaþorpið.
Yfir fallegu húsi við sjóinn hvílir mikil ró, þar má
sjá kertaljós í glugga og heyra tónlist óma. Í húsinu
búa hjónin Hörður Áskelsson orgelleikari og Inga
Rós Ingólfsdóttir sellóleikari. Ingveldur Geirs-
dóttir ræddi við þau um jólahátíðina.
Eggjahvítukökur
(Gott er að fjórfalda uppskrift-
ina til að fá ágætan skammt.)
1 eggjahvíta
½ b sykur
½ b kókósmjöl
½ b kornflögur
¼ b smátt brytjað suðusúkku-
laði
½ tsk vanilludropar
Eggjahvítan er þeytt, sykri
blandað í, þeytt áfram um
stund. Öllu blandað varlega
saman með sleikju. Látið með
teskeið á vel smurða og hveiti-
stráða plötu. Bakið við vægan
hita, 130-150°c í 15–20 mínútur.
DAGLEGT LÍF