Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 43
!!
!
#$
„AÐ VERA góður í hnefatafli var
jafnmikilvægt og að vera góður
glímukappi, samkvæmt lýsingu
Jarls Rögnvaldar Kala á því hvað
göfugur víkingur þarf til að bera.
Víkingarnir forfeður okkar spiluðu
margskonar borðspil sem okkur
finnst full ástæða til að vekja aftur
til lífsins. Hnefatafl er alveg ótrú-
lega skemmtilegt og reynir á útsjón-
arsemi og klókindi. Þetta er alls ekki
flókið en eftir því sem fólk spilar oft-
ar, þeim mun færara verður það. Við
spiluðum hnefatafl í allan fyrravetur
til að kynnast því sem best,“ segja
þau grafísku hönnuðirnir Ari Svav-
arsson og Ágústa Malmquist sem
hönnuðu og gáfu út hnefatafl nýlega.
„Við vorum búin að ganga með þá
hugmynd í maganum í mörg ár að
gefa út hnefatafl og fyrir tveimur ár-
um fórum við svo af stað með rann-
sóknarvinnu, lásum okkur til og
grúskuðum í gömlum handritum og
nú er þetta loks fullskapað.“
Íslenskt á að vera íslenskt
Þau Ari og Ágústa hafa unnið
lengi við auglýsingar og gera það
enn, meðfram nýju fyrirtæki sínu.
„Okkur langaði til að gera eitthvað
nýtt svo við ákváðum að stofna okk-
ar eigið fyrirtæki, sem heitir Lyng
og er hug- og handverkstæði. Við
ætlum að einbeita okkur að gjafa-
vörum bæði fyrir Íslendinga og
ferðamenn sem hingað koma, og við
ætlum okkur líka að framleiða
minjagripi fyrir ferðalanga. Við leit-
um fyrst og fremst í menningararf-
inn að hugmyndum. Við ætlum að
nálgast hlutina á nýjan hátt og við
leggjum áherslu á að allt sem við
gerum sé unnið hér heima á Íslandi.
Við viljum að ferðamenn sem versla
hjá okkur fái rammíslenska vöru, en
séu ekki að kaupa íslenska minja-
gripi sem eru kannski búnir til í
Kína.“ Auk hnefataflsins hafa þau
hannað og framleitt rúnaspil og líka
spárúnir í poka en hvort tveggja er
byggt á germönsku rúnunum 24.
Handunnar rúnir
Gerð spáspilanna og rúnanna
krafðist rannsóknarvinnu, ekki síður
en hnefataflsgerðin og þar komust
þau hjónin að ýmsu. „Í Germaniu
sem var skrifuð af rómverska sagna-
ritaranum Takitus, er líst hvernig
forfeður okkar Germanir voru sífellt
að spá í framtíðina. Þá skáru þeir
rúnirnar í aldintré og köstuðu þeim
svo á hvítan klút, þar sem dregin var
rún. Þess vegna höfðum við þessar
rúnir úr tré og höfðum léreftspok-
ann utan um þær hvítan, en hann má
nýta sem dúk.“
Rúnirnar handunnu þau hverja
fyrir sig en litlu víkingana í hnefa-
taflinu steyptu þau sjálf og lögðu sig
fram um að ná fram áferð sem líktist
annars vegar tré og hinsvegar beini.
Þau segja þetta aðeins vera byrj-
unina á því sem koma skal frá Lyng.
„Við erum með ótal hugmyndir á
borðinu og erum þegar farin af stað
með að vinna sumar þeirra.“
JÓL | Hnefatafl og fleira fornt
Við erum hálfgerðir
spilabrjálæðingar
Morgunblaðið/Golli
Ari og Ágústa við
hnefataflið góða.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Á heimasíðunni www.lyng.is er hægt að sjá í hvaða
verslunum hnefataflið, rúnaspilin og rúnirnar fást.
DAGLEGT LÍF
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Fallega Jólaskeiðin
frá Ernu
kr. 6.900