Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 45
nóbelsverðlaunaskáldsins Pablo
Neruda og kom sú bók út núna
fyrir jólin. „Ég kenni suður-
amerískar bókmenntir og menn-
ingu í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og ætlaði ég að gera
fræðsluefni fyrir nemendur mína í
ferðinni og var því með kvik-
myndatökuvél meðferðis. Ég ætlaði
að búa til efni sem endurspeglaði
þennan heimshluta og vekja þau til
umhugsunar en mér fannst ég ekki
ná því í gegnum kvikmyndatöku-
vélina. Þegar ég sá að myndin
myndi ekki nægja til að segja frá
öllum harminum sem liggur undir í
Suður-Ameríku ákvað ég að koma
honum áleiðis í gegnum ljóðin hans
Pablo,“ segir Guðrún en með bók-
inni fylgir tíu mínútna dvd-diskur
með efni úr ferðalaginu. Ljóðin í
bókinni eru bæði á spænsku og ís-
lensku, formálann skrifar Isabel
Allende og teikningar eftir Re-
bekku Rán Samper og Antonio
Hervás Amezcua fylgja ljóðunum.
Það sem stendur upp úr ferðinni
hjá Guðrúnu er gönguferðin, kom-
an til Machu Picchu og skoðunar-
ferð um borgina Iquitos við Ama-
sonfljótið. „Ég hef aldrei lent í
öðru eins, þetta er borg sem er
inni í svörtustu Ameríku, það er
ekki hægt að keyra þangað, bara
sigla eða fljúga. Þú ert þarna á
kókaínleiðinni og sérð því mikið af
grunsamlegu fólki og mikilli fá-
tækt. Fólk hefur byggt húsin sín
út í ána, hún flæðir oft inn í landið
og þegar það gerist þá lyftast hús-
in, þau eru kölluð húsin fljótandi
og það er mikil farsóttarhætta
þarna. Þetta var allt mjög óhugn-
anlegt og við vorum fegnar að
komast þaðan í burtu.“
Eftir þetta ferðalag er komin
mikil ævintýraþrá í Guðrúnu og
hún er þegar búin að bóka ferð
næsta sumar til Norður-Spánar,
þar sem hún ætlar að hjóla Jak-
obsveginn.
Efst í rústum Machu Picchu, bak
við þær eru fjöllin Gamli tindur og
Nýi tindur. Frá vinstri eru Anna,
Guðrún og Dagný.
inn
ótinu
ingveldur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 45
FERÐAMENN frá Noregi, Dan-
mörku og Svíþjóð eru sammála um
að Kaupmannahöfn sé svalasti
áfangastaður þessara landa sam-
kvæmt könnun sem danska ferða-
skrifstofan Rejsefeber gerði ásamt
systurfélögum í Svíþjóð og Noregi.
Greint er frá þessu í Politiken.
Könnunin fór fram á netinu og
allir sem heimsóttu vefi fyrirtækj-
anna voru spurðir hvaða höfuðborg
í Skandinavíu væri þeim mest að
skapi. Kaupmannahöfn varð oftast
fyrir valinu, og ekki bara hjá Dön-
um því 55% Svía og 44% Norð-
manna kusu hana einnig.
Stokkhólmur fékk 35% atkvæða
en Osló þykir ekki eins svöl, þ.e. að-
eins 22% Norðmanna kusu sína
höfuðborg. 6% Dana völdu Osló og
8% Svía. Alls tóku 4.622 þátt í
könnuninni. Morgunblaðið/Golli
Kaupmannahöfn
svalasti staðurinn
KÖNNUN
Full búð
af frábærum jólagjöfum
Húfur, trefill
og vettlingar
1.990 kr.
1.200 kr./stk.
Barnapeysa
með hettu
3.950 kr.
2.900 kr.
Kjölur dömu,
Wind Pro
8.990 kr.
5.900 kr.
Kjölur dömu
7.990 kr.
5.500 kr.
Askja light
11.990 kr.
7.900 kr.
Faxafeni 12, opið föstudag 10-20, laugardag 10-20, sunnudag 11-17
Tindur
Technical
15.990 kr.
9.900 kr.
DAGLEGT LÍF