Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 53
MENNING
HÖFUNDUR byrjar formála sinn
á því að útskýra bókarheitið
Engjafang. Það var heyfang, sem
skilið var eftir við teiginn í hey-
skaparlok. ,,Það átti að tákna
þakkarfórn til almættisins fyrir
heyfeng sumarsins … Þættirnir í
þessari bók eru allir skrifaðir eftir
að komin voru sláttulok og farið
að hausta í ævi höfundanna. Því
ber að lesa þá með það í huga.
Þeir eru – auk þess að vera skrif-
aðir sér til dægrastyttingar –
fangið, sem skilið er eftir á teign-
um, þakklætisvottur til sam-
ferðafólksins á langri leið og til
landsins, sem fóstraði okkur og
geymir ræturnar.“ Þetta var vel
mælt. Og hver er þá höfundurinn?
Magnús heitir hann og er Kol-
beinsson, fæddur árið 1921, lengi
bóndi í Stóra-Ási í Hálsasveit,
stórbýli, kirkjustað og rausn-
argarði. Menn taki eftir að sagt
var höfundar. Það helgast af því,
að aftarlega í bók eru nokkrar frá-
sagnir eftir föður höfundar, Kol-
bein Guðmundsson, járnsmið og
bónda í Stóra-Ási og bændatal
með æviskrám, sem tekið var sam-
an af Þorsteini Þorsteinssyni frá
Húsafelli, sem auk þess hefur að
öðru leyti aðstoðað við útgáfuna.
Þessi bók er löng og efnismikil
og hefur margt að geyma. Fyrri
hlutinn ber heitið Horfin Hálsa-
sveit. Nágrenni æsku minnar.
Farið er á alla bæi sveitarinnar
(að ég held), fimmtán talsins, fyrir
utan Stóra-Ás. Höfundur hefur
þann hátt á að minnast þess er
hann kom fyrst smádrengur á við-
komandi bæ. Hann lýsir aðkomu
að bænum, staðháttum, húsaskip-
an, segir frá ábúendum. Þetta er
yfirleitt breið frásögn og víða
komið við. Að sjálfsögðu eru þess-
ar frásagnir mislangar. Löng er
frásögnin um Húsafell, þann
merka stað, enda frá mörgu að
segja, bæði um stað og fólk. Sam-
skipti Stóra-Ássmanna við Hús-
fellinga munu löngum hafa verið
mikil. Þá kemur að Stóra- Ási og
er það eins og við
mátti búast lang-
lengsta umfjöllunin.
Inn á milli smákafla
um fólk og fram-
kvæmdir, atvinnu-
hætti, land, skepnur,
réttarferðir o.s.frv. er
skotið stuttum þáttum
um nágranna. Er þar
skrifað um á annan
tug manna og kvenna
og er þar margar stór-
góðar persónulýsingar
að finna. Raunar eru
persónulýsingarnar
nokkurt sérkenni
þessarar bókar. Fer
ekki á milli mála
hvaða eiginleika höfundur metur
mikils: að vera dýravinur, barn-
góður, hjálpsamur, greiðvikinn og
örlátur.
Ætli þetta segi ekki nokkuð um
hann sjálfan? Síðan er vikið meira
að persónulegum málefnum höf-
undar, þó að ekki fari mikið fyrir
slíkum hlutum í þessari bók, enda
er hún ekki ævisaga. Alllangur
kafli er um skíðaiðkun og skíða-
ferðir. En höfundur virðist hafa
iðkað þá íþrótt allnokkuð á yngri
árum. Þá koma ferðafrásagnir
bæði á hestum og gangandi. Eru
þeir stórfróðlegir. Ein ferð er
norður á Blönduós um Gríms-
tunguheiði, önnur kringum Lang-
jökul, sú þriðja yfir Heljardals-
heiði. Ein er yfir Siglufjarðarskarð
og sú síðasta yfir Hestsskarð, en
þá stóð höfundur á áttræðu og má
kallast hraustlega gert að fara í
fjallgöngu á þeim aldri. Ekki
skyldi gleyma langri og mikilli bíl-
ferð allar götur austur í Herðu-
breiðarlindir með mörgum
skemmtilegum útúrkrókum.
Eins og fyrr segir eru hér
nokkrar frásagnir skrifaðar af föð-
ur höfundar. Þar segir hann frá
æskuárum. Síðan eru minning-
arþættir frá Arnarvatnsheiði, vetr-
arveiði í vötnum þar, svaðilförum
og ýmsu öðru. Einnig segir hann
frá sögulegum fjárrekstri fyrir Ok
og til Reykjavíkur. Að lokum eru
birt nokkur bréf sem fóru á milli
Kolbeins og vina hans og ná-
granna.
Er þá komið að síðasta þætti
bókar: Bændatali [Stóra-Áss] með
æviskrám eftir Þor-
stein Þorsteinsson.
Bændatalið nær aftur
til ársins 1590. Eru
42 bændur skráðir á
280 árum. Þarna er
drjúg matarhola
handa þeim sem
hnýsnir eru í ætt-
fræðisökum. Við
fljótan lestur sýnist
mér að sama ættfólk
hafi lengstum verið
viðloðandi þessa
miklu jörð (51 hdr.
1922).
Bókinni lýkur með
nafnaskrá.
Þeim sem lesið hef-
ur þessa lýsingu mína getur ekki
dulist að hér er mikið efni saman
komið og víða komið við. Hér hef-
ur greinilega gáfaður maður og
ágætlega pennafær um vélt. Mál-
far hans er sérstaklega hreint og
fallegt og frásögn hans lifandi.
Fyrir þá sem áhuga hafa á fyrri
tíðar fróðleik er þessi vel skrifaða
bók mikið hnossgæti. Það má svo
sem eitthvað finna að ef menn eru
á þeim buxunum (t.a.m. end-
urtekningar, vísað til mynda sem
ekki finnast, skipulag mætti vera
eitthvað betra og örnefnaskrá
hefði ég kosið mér).
En meira er um vert hversu
hlýr andi er yfir allri frásögninni,
birta, heilbrigð lífsgleði og þrótt-
ur. Varla kemur annað fyrir en vel
sé talað um fólk (og þá ekki síður
um dýr).
Nágrenni virðist hafa verið afar
gott og hjálpsemi gagnkvæm.
Þessi bók er hollur og fræðandi
lestur.
Merkisrit úr Hálsasveit
BÆKUR
Þjóðlegur fróðleikur
Magnús Kolbeinsson tók saman, 310
bls. Reykjavík 2005
Engjafang
Magnús
Kolbeinsson
Sigurjón Björnsson
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Á eigin vegum um jólin
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
05
89
12
/2
00
5
Ekkert jafnast á við að aka um frjáls í bíl frá Hertz. Ef þú átt ekki
bílinn sem hentar hverju sinni þá getum við hjá Hertz bætt úr því
fyrir lægra verð en þig grunar. Það er óþarfi að eiga jeppa til að
komast allt sem þú vilt fara. Engar áhyggjur, bara gleðileg jól.
50 50 600 • www.hertz.is
Sölustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Höfn, Egilsstaðir
Jólatilboð
Toyota Corolla
frá 3.571 kr. á dag
Toyota Rav4
frá 4.471 kr. á dag
Toyota Land Cruiser
frá 5.071 kr. á dag
Innifalið: 100 km á dag og CDW (kaskótrygging).
Verð miðast við 7 daga leigu.
Tilboð gildir til 15.01.2006
Sjá nánar á hertz.is