Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ný kennslumynd í hestamennsku eftir Eyjólf Ísólfsson tamningameistara er komin. Þessi mynd er sjálfstætt framhald af fyrri mynd Eyjólfs. Markviss kennsla um tamningu og þjálfun sem nýtist öllu hestafólki. Eyjólfur kynnir myndina í Ástund laugardag og sunnudag milli kl. 15:00 og 17:00. Allir velkomnir Háaleitisbraut 68, s. 568 4240 astund@astund.is www.astund.is Jólagjöf hestamannsins SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ kynnti á miðvikudaginn skýrslu samkeppnisyfirvalda á Norð- urlöndum um matvælaverð og sam- keppni á matvörumarkaði. Þennan sama dag skrifa Hall- dór Benjamín Þor- grímsson hagfræð- ingur og Tryggvi Þór Herbertsson hagfræ- ðiprófessor grein í Morgunblaðið sem ber yfirskriftina „Yfirgef- um G10“. Spyrja má hvort þessi tímasetn- ing sé tilviljun. Í mál- flutningi beggja þess- ara aðila er eitt og annað að finna sem kallar á að fleiri sjón- armiðum og stað- reyndum séu gerð skil. Byrja má á einni lítilli leiðréttingu á grein Tryggva og Halldórs en G 10 ríkin eru ekki lengur tíu talsins. Búlgaría er stokkin fyrir borð og skipar sér nú í flokk með ESB sem væntanlegur kandídat á aðild að bandalaginu. En niðurstaða þeirra – og fleiri – er sú að Íslendingum væri betur borgið með því að gefa inn- flutning á búvörum frjálsan. Þarna er þó t.d. hvergi minnst á það að hlutfall útgjalda til matvælakaupa samkvæmt vísitölu neysluverðs er lægra á Íslandi en í flestum löndum Mið- og Suður-Evrópu. ESB leggur tolla á innfluttar búvörur Áðurnefnd G10 ríki flytja inn um 13% af heildarinnflutningi landbún- aðarvara í heiminum. Þetta er langt umfram það sem ætla mætti í hlutfalli af íbúa- fjölda þeirra. Flestar matvörur eru auk þess fluttar til Íslands án tolla og/eða magntak- markana. Nánar til- tekið eru 373 vöru- flokkar af þeim 1604 í tollskrá sem teljast landbúnaðarvörur án heimilda til að leggja á tolla (eða 23% af öllum landbúnaðarvörum). Fyrir aðra 232 vöru- flokka í viðbót eru heimildirnar 1–19% (14,5% af öllum landbúnaðarvörum). Í þessum flokk- um er m.a. að finna þær vörur sem skipta fátækari þjóðir helst máli í heimsviðskiptum s.s. sykur, korn- vörur og hveiti, og eru verulegur hluti af útgjöldum íslenskra neyt- enda þegar að matvöruinnkaupum kemur. Það er heldur ekki svo að ESB leggi ekki á tolla eða beiti ekki magntakmörkunum á innflutning til að vernda landbúnað í aðildarlönd- unum. Nærtækt dæmi um það eru tollkvótar fyrir íslenskt lambakjöt. Ef við flytjum til ESB meira magn en þau 1.350 tonn sem þar hefur ver- ið samið um, ber það fulla tolla. Tollar hjá ESB hafa áhrif á verðlag Rifja má upp áhrif ESB-aðildar Eistlands á sykurverð. Sykurpólitík ESB er umdeild og eitthvert heit- asta málið í landbúnaðinum ytra. Þegar Eistland varð aðili að ESB tvöfaldaðist verð á sykri. Það er því villandi að láta liggja að því, eins og Samkeppniseftirilitið gerir (og sjá má m.a. í viðtali við forstjóra þess í Blaðinu 15. desember) að Ísland og Noregur leggi innflutningshömlur á búvörur sem hin Norðurlöndin búi ekki við. Vissulega er vöruflæði þar á meðal á búvörum frjálst innan ESB en sambandið leggur líka á ytri tolla á fjölmarga vöruflokka og notar tollkvóta til að takmarka markaðs- aðgang. Þetta á líka við um Banda- ríkin en útflutningur á íslensku skyri til Bandaríkjanna byggist t.d. á markaðsaðgangi í gegnum tollkvóta. Kaupmáttur launa er mismunandi eftir löndum Villandi er líka að tala um hátt verðlag án þess að tengja það öðrum hagstærðum s.s. launum og kaup- mætti. Það virðist t.d. stundum gleymast í umræðum um mat- vælaverð hér á landi og samanburð við ESB, að þjóðartekjur á mann eru Matvælaverð og alþjóðavið- skipti með búvörur Erna Bjarnadóttir skrifar um matvælaverð Erna Bjarnadóttir SAMKVÆMT nýrri könnun norrænna samkeppniseftirlita er verð á matvörum á Ís- landi 42% hærra en í löndum ESB, vöruval minna og samþjöppun á matvörumarkaði meiri. Það að matvæli á Ís- landi séu 42% dýrari en í löndum ESB er ekki ný frétt. Menn hafa lengi vitað það, a.m.k. þeir sem ferðast til annarra landa eða fylgjast með könn- unum um mat- vælamarkaðinn. Það sem kemur þó sífellt á óvart – og er í raun fréttin – er að stjórn- völd skuli ekki gera neitt til þess að minnka þetta bil. Sam- tök ferðaþjónust- unnar, sem tala m.a. fyrir hönd veitinga- húsa, hafa margoft bent á þennan mismun og kallað eftir úrbót- um en rekstrarumhverfi íslenskra veitingahúsa er eitt hið alversta sem þekkist á byggðu bóli þar sem skatt- ar á áfengi slá hér líka heimsmet. Ís- lensk ferðaþjónusta er í harðri sam- keppni á alþjóðamarkaði og skiptir þá miklu að matarverð sé sam- keppnishæft. Þetta háa matarverð er í dag alvarleg samkeppnis- hindrun. Það er deginum ljósara að það er fullkomlega á ábyrgð stjórnvalda að matvæli á Íslandi eru svo dýr. Það væri hægt að skýra örlítið hærra verð með smáum markaði en nor- ræna skýrslan segir okkur að meg- inástæða þessa mikla mismunar sé aðgangshindranir á búvörum, sem er ákvörðun stjórnvalda, og þar á eftir samþjöppun á matvörumark- aði, og mér þótti viðskiptaráðherra ekki sýna upplýsingum um það mál í umræðum á þingi ný- lega mikinn áhuga. Árið 2002 ályktaði Alþingi að fela ríkis- stjórninni að kanna matvælaverð á Íslandi í samanburði við helstu nágrannalönd og kanna jafnframt hugsanlegar ástæður mismununar. Forsætisráðuneytið fól þá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að annast rannsóknina og var skýrsla lögð fram sumarið 2004. Þar var skýrt frá því að mat- arverð á Íslandi hefði árið 2001 verið 50% hærra en að meðaltali í ESB-löndunum. Fram kom í þeirri skýrslu að sá stuðningur sem ís- lenskur landbúnaður nýtur hefði á und- anförnum árum verið metinn til 12–13 millj- arða. Eitthvað er því bogið við allt þetta kerfi. Þessari fyrri skýrslu um matvælaverð var fálega tekið og hún lítið rædd. Það var helst á mönnum að skilja að það væri ekk- ert að marka þessa skýrslu því hún mældi verð sem væri þriggja ára gamalt. Gott og vel. Nú er komin ný skýrsla sem menn geta ekki stungið undir stól og minnir okkur óþyrmi- lega á þetta sjálfskapaða ástand sem íslenskir neytendur búa við. Samtök ferðaþjónustunnar skora á stjórnvöld að bretta upp ermar og vinna að því að íslenskir neytendur, þ.m.t. veitingahús, geti keypt mat- væli á svipuðu verði og gerist hjá öðrum þjóðum. Dýrar matvörur – ábyrgð stjórnvalda Erna Hauksdóttir skrifar um matvælaverð á Íslandi Erna Hauksdóttir ’Það sem kem-ur þó sífellt á óvart – og er í raun fréttin – er að stjórnvöld skuli ekki gera neitt til þess að minnka þetta bil.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. DÆMI um misskilning eða mis- túlkun á tölum er þegar ráðamenn sýna töflur úr Norrænu tölfræðihandbókinni, NOSOSCO sem nú er nýkomin út fyrir árið 2003 á ensku: „Social Protection in the Nordic countries 2003“. Íslenski hlutinn er unninn af Hagstofu og heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu. Þannig er tafla nr. 7.5 í bókinni oft sýnd um tekjur einbúa og sam- búðarfólks sem við töku lífeyris 2003 hefur aldrei haft atvinnu- tekjur. Fyrir einstaklinga á Ís- landi sem búa einir eru þetta raunar aðeins 314 eða 1,2% ellilíf- eyrisþega sem þetta fengu, þó það komi ekki fram í Norrænu töl- fræðibókinni, því þeir fá óskertar bætur almannatrygginga (sjá stað- tölur TR bls. 36 neðanmálsgrein). Aðrir fá minna, því bætur byrja strax að skerðast á Íslandi um 45% frá fyrstu krónu sem lífeyr- isþegi fær í lífeyri eða tekjur. Þetta er alls ekki svo um hin Norðurlöndin. Við lítum hér á greiðslur til ellilífeyrisþega í Dan- mörku og Svíþjóð til samanburðar, en þar fá flestir og stundum allir ellilífeyrisþegar þessar bætur. Í samanburðinum í ofangreindri tölfræðihandbók, lítur svo út, að fyrir þá sem búa einir, hafi Íslend- ingarnir fjórðu hæstu bæturnar eftir tekjuskatta miðað við kaup- máttarjafnvægi í evrum (PPP í evrum - þ.e. kaupmáttur krón- unnar í öðru landi). Ísland er á eftir Dönum, Svíum og Norð- mönnum í röðinni, en fyrir ofan Færeyjar og Finna. Þetta segir nokkra sögu um kerfið t.d. í Dan- mörku og Svíþjóð en er fjarri lagi að gefa lýsandi mynd af ástandinu á Íslandi fyrir bótaþega (sjá töflu). Þannig eru bornar saman bætur fyrir örlítinn hóp á Íslandi (1,2% þeirra) við stóran hluta ellilífeyr- isþega á hinum Norðurlöndunum – svo það lítur þannig út að hér sé ástandið bara ágætt – þó það sé alls ekki svo. Ísland Lögð hefur verið sérstök áhersla á að hækka bætur fyrir þessa örfáu ellilífeyrisþega 67 ára og eldri, sem engar aðrar tekjur hafa á Íslandi sérstaklega með samkomulagi eldri borgara og full- trúa ríkisstjórnar frá nóvember 2002. Þetta hefur þó ekki tekist betur en svo að kaupmáttur ráð- stöfunartekna þessa litla hóps hef- ur hækkað um 22,6% frá lágtekju- uárinu 1995 samkvæmt tölum frá heilbrigðis- og tryggingarráðu- neyti (en hækkað mun minna frá árinu1988), á sama tíma og kaup- máttur ráðstöfunartekna heim- ilanna hefur aukist um 60%, ef marka má nýlegar yfirlýsingar forsætisráðherra. Kaupmáttur ráðstöfunartekna þeirra ellilífeyr- isþega sem einhvern lífeyrissjóð hafa eða atvinnutekjur hefur hækkað mun minna en þessara 314 aðila og raunar lækkað fyrir stóra hópa frá árinu 1988. En hvað með aðra ellilífeyr- isþega en þessa 314 einstaklinga (1%)? Þeir eru ekki með í þessum norræna samanburði. Lítum á annað dæmi: Skerðingar og skattar hér á landi valda því að fyrir hverjar 10.000 kr sem aflað er heldur elli- lífeyrisþeginn aðeins eftir frá um 3.300 kr (33%) og allt niður í um 1.500 kr (15%). Því er lítill sem enginn hvati til að vinna í þannig kerfi og jafnlítið verður úr tekjum frá lífeyrissjóðum. Villandi norrænn saman- burður á ellilífeyri Ólafur Ólafsson, Pétur Guð- mundsson og Einar Árnason fjalla um samanburð á ellilíf- eyri á Norðurlöndunum Einar Árnason Ólafur ÓlafssonPétur Guðmundsson Tafla 7.5 (fyrri hluti töflu). NOSOSCO2005. Tölur fyrir árið 2003 Tekjur einbúa við töku lífeyris sem aldrei hefur haft atvinnutekjur við töku ellilífeyris, 2003. Danmörk Færeyjar Finnland Ísland 1) Noregur Svíþjóð Einbúar DKK DKK EUR ISK NOK SEK Grunnlífeyrir 4.517 4.169 493 20.630 4.738 7.017/6.852 2) Uppbót 4.547 3.126 – 76.521 3.759 - Húsnæðis uppbót 1.544 – 272 – – 4.423 Samtals fyrir skatt 10.608 7.295 765 97.151 8.497 10.440 Eftir skatt 8.243 6.923 765 86.071 8.497 8.788 E. skatt í PPP í evru 828 696 632 758 770 806 1) Á Íslandi fá menn uppbót sem nemur ISK 17.667 fyrir einbúa. 2) Lágmarksgrunnlífeyrir gr. til fólks fætt fyrir 1937 / eða árið 1938 og síðar. Fáðu úrslitin send í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.