Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Hafnarstræti 19 Sími 551 1122 Góðar jólagjafir Rennd peysa með hettu 12.190 kr. Teppi 20% afsláttur 4.536 kr. Rúnaspil 2.650 kr. Salt og pipar 2.650 kr. Ísmolar 2.980 kr. NÝLEGA sögðu fjölmiðlar frétt- ir af umfangsmiklum fram- kvæmdum sem væru fyrirhugaðar í miðbæ Akureyrar. Þær eru í grundvall- aratriðum byggðar á verðlaunatillögum sem keyptar voru eft- ir verðlauna- samkeppni þar sem margar athyglisverð- ar hugmyndir bárust og voru afhentar bæj- arfélaginu að gjöf frá einkaaðilum á liðnu sumri. Verði þær hugmyndir sem kynntar hafa verið að veruleika er um al- gerlega nýjan og glæsilegan miðbæ að ræða. Miðbæ með blandaðri byggð; bú- setu, þjónustu og menningarstarfsemi. Þarna er um stóra og mikla framkvæmd að ræða sem hlýtur að þurfa að vinna á nokkuð löngum tíma. Tímalengdir frá ára- tug allt upp í öld hafa verið nefnd- ar í mín eyru. Trúlega mun tíma- lengdin liggja einhvers staðar þar á milli og vonandi nær áratugnum en öldinni. Framkvæmdahraðinn mun þó að öllum líkindum haldast í hendur við aðra uppbyggingu á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu. En hvað er það sem þarf að gera? Í fyrsta lagi þarf að sameina sveitarfélögin á svæðinu. Í ljósi nýafstaðinna sameiningarkosninga mun það taka einhvern tíma og einnig er líklegt að ekki takist að sameina allt Eyjafjarðarsvæðið í eina heild, a.m.k. ekki með frjálsri aðferð. Sameining þess í tvö eða jafnvel þrjú sveitarfélög gæti orðið kostur og veruleg umbreyting frá því sem nú er. Öflugt sveitarfélag hefur mun meira rými til þess að styðja við atvinnulífsbyltingu með ýmsu móti en sundruð sveit- arstjórnarmenning þar sem hvert smábyggðarsamfélag horfir á sínar eigin tær og túngarð. Þessu til vitnis er m.a. uppbyggingin á Austurlandi sem ekkert hefði orðið af hefðu sveitarfélögin á svæðinu ekki verið sameinuð í aðdragand- anum. Fyrir nokkrum dögum horfði ég á húsmuni og tæki tölvufyrirtækis í nágrenni mínu flutt í gáma. Tæki og tól framsækins sprotafyrirtækis sem náð hefur árangri á alþjóð- legum markaði. Mér er tjáð að fyr- irtækið sé að flytja starfsemi sína úr landi vegna þess að for- ráðamönnum þess bjóðist mun betra starfsumhverfi annars stað- ar. Ég hef ekki kannað til hlítar í hverju það felst, hugsanlega í skattaívilnunum og tilboðum um hagstæðari starfsaðstöðu á ein- hverjum sviðum. Þetta hlýtur að leiða hugann að því hvaða tækifæri við eigum gagnvart fyrirtækjum í þessari stöðu. Að frátöldum sæ- strengsvandræðum, þar sem skurðgröfur og skoskar hagamýs fást við að aftengja Ísland frá um- heiminum með nánast reglubundn- um hætti, og okri á gagnaflutn- ingum til og frá landinu geta fyrirtæki sem vinna að framleiðslu rafræns efnis, hvort sem um tölvu- leiki eða annað er að ræða, verið nánast hvar sem er í heiminum þar sem þeim bjóðast samkeppn- ishæf starfsskilyrði. Af hverju geta sveitarfélög með sín atvinnuþróun- arfélög úti um land ekki reynt að laða starfsemi af þeim toga til sín? Trúlega fyrst og fremst vegna þess að þau eru fá- menn og veikburða. Litlu sveitarfélögin út um landið, sem ekki njóta launaskriðs og hækkandi fast- eignaverðs, eru mörg hver erfiðar rekstr- areiningar sem eiga fullt í fangi með að sinna lögboðnum skyldum af þeim tekjum sem sam- félagið skapar þeim eftir lögbundnum tekjustofnum. Stofnun Háskólans á Akureyri er ein öfl- ugasta byggðaaðgerð sem unnin hefur verið hér á landi frá upp- hafi. Starfsemi hans hefur haft mikla þýð- ingu og þá ekki aðeins fyrir Ak- ureyri og Eyjafjarðarsvæðið held- ur um allt land þangað sem starfsemi hans teygir anga sína. Engu að síður kom krafa um veru- legan niðurskurð á rekstr- arfjármunum skólans fram á haustdögum. Stjórnvöld stóðu fyrir þessum niðurskurði á öflugasta ný- sköpunarsviði á landsbyggðinni á sama tíma og gríðarleg þensla er á öllum sviðum á höfuðborgarsvæð- inu en kyrrstaða og afturför víða utan þess. Í stað þess að skera starfsemi Háskólans á Akureyri niður með þessum hætti ættu stjórnvöld að sjá til þess að efla hann enn frá því sem nú er og við- halda hinni öflugu byggðaaðgerð með þeim hætti. Enn er nóg af umhverfisvænum orkuforða í landinu og því óhætt að hraða þeim stóriðjufram- kvæmdum sem er hægt að vinna að án þess að teyma atvinnulífið um of í einn farveg. Ein þeirra framkvæmda er bygging stóriðju á Norðurlandi. Í því efni eiga Ey- firðingar ekki að gefa neitt eftir. Jaðarsjónarmið eiga ekki að ráða mannvirkjagerð og uppbyggingu af þeim toga. Það er staðreynd að miðbyggðirnar eru best fallnar til þess að varðveita og efla byggð. Áhrif öflugra byggðakjarna dreif- ast út til jaðranna eins og greini- lega hefur komið fram umhverfis höfuðborgarsvæðið að undanförnu. Byggðamál hafa lengi einkennst langt um of af einhvers konar jað- arhugsun og árangurinn orðið eftir því. Bygging öflugs byggðakjarna með margbreytilegu atvinnu-, mennta- og menningarlífi á bökk- um Eyjafjarðar ásamt opnun fjarðarins um jarðgöng til austurs og vesturs sem færa myndi Skag- firðingum og Þingeyingum góða hlutdeild í þeirri uppbyggingu er það eina sem forðað getur und- anhaldi og tryggt áframhaldandi öfluga byggð og mannlíf á Norður- landi til lengri tíma. Slíkur kjarni gæti einnig tryggt að miðbæj- arsvæðið á Akureyri verði ekki byggingarsvæði um mannsaldur eða meira, eigi að uppfylla metn- aðarfullar hugmyndir og tillögur um endurbyggingu þess. Öflugur byggðakjarni Þórður Ingimarsson fjallar um þróun Akureyrar Þórður Ingimarsson ’Í fyrsta lagiþarf að sameina sveitarfélögin á svæðinu. ‘ Höfundur er blaðamaður. ÉG STEND í stappi við próf- arkalesara þessa dagana, eins og oft áður. Ég vil fá að skrifa Jörð en ekki jörð þegar ég skrifa um reikistjörn- una Jörð. Prófarkales- arar strika rækilega yfir J-ið og setja j í staðinn. Ég veit að þeir gera þetta af stakri samviskusemi því að það er alveg sama í hvaða orðabók er litið, alls staðar er jörð skrifuð með litlum staf, líka þegar orðið er not- að sem heiti á hnett- inum sem fóstrar okk- ur. Rök Það tjáir ekki að deila við dóm- arann, prófarkalesarar fara bara eft- ir reglum. En ætli væri hægt að fá reglunum breytt? Þau rök sem sett hafa verið fram fyrir því að skrifa heiti reikistjörnunnar Jarðar með litlum staf eru helst þessi: 1. Það er hefðbundin íslenska að skrifa jörð þótt verið sé að fjalla um hnöttinn í heild sinni, rétt eins og ver- ið sé að skrifa um jörð í merkingunni jarðvegur eða bújörð. 2. Óþarft er að skrifa nafn Jarðar með stórum staf því að það er jafnan haft með ákveðnum greini, jörðin. Þetta sé því ekki eiginlegt sérnafn, ekki sé hefð fyrir því að sérnöfn séu með ákveðnum greini. 3. Þeir sem skrifa Jörð eru að enskuskjóta íslenskuna. Mótrök Ofannefnd rök eru harla léttvæg. 1. Hefðbundinni íslensku hefur oft verið breytt. Skemmst er að minnast setunnar (z) sem var kippt út úr skrifaðri íslensku með einu penna- striki enda getur kröftugur mennta- málaráðherra breytt íslenskri staf- setningu með auglýsingu. 2. Fjölmörg sérnöfn eru notuð með ákveðnum greini. Geng- ið er um Laugaveginn og ekið eftir Hring- brautinni og engum dettur í hug að nota lág- staf í nöfnum þessara gatna, þótt með við- skeyttum greini séu, enda heita þær þessum nöfnum. 3. Að skrifa Jörð þeg- ar átt er við hnöttinn eru alls ekki ensk áhrif, þótt enskir noti stóran staf í sinni útgáfu þessa orðs, heldur segir mál- tilfinning og rökhugsun að um sé að ræða sérnafn, að hnötturinn heiti Jörð. Er ekki Jörðin ákveðinn staður í veröldinni? Sandkorn í óravídd him- ingeimsins. Hvernig á kennari sem er að kenna börnum nöfn reikistjarn- anna að útskýra eftirfarandi rithátt: Merkúríus, Venus, jörð, Mars, Júpí- ter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus og Plútó? Krakkarnir spyrja auðvitað af hverju nafn Jarðar sé eina nafn reiki- stjörnu sem ekki er skrifað með stórum staf. Hverju á kennari að svara? Ef hnötturinn heitir ekki Jörð, hvað heitir hann þá? Sérnöfn með stórum staf Samkvæmt orðabók Eddu er sér- nafn „nafn á tilteknum einstaklingi (eða eintaki) e-ar tegundar“. Ekki er hægt að segja annað en að Jörðin sé tiltekið og mjög sérstakt eintak him- inhnattar. Þrátt fyrir mikla og kostn- aðarsama leit í áratugi hafa geimvís- indamenn ekki fundið nokkurn sambærilegan stað í veröldinni. Jörð- in er einstök, svo að þó ekki væri ann- að en til að sýna henni virðingu sem slíkri væri eðlilegt að skrifa nafn hennar með stórum staf. Í auglýsingu um íslenska stafsetn- ingu (nr. 132/1974 og 261/1977) segir í 5. gr. að bein sérnöfn skuli rituð með stórum staf. Til sérnafna eru t.d. talin „eiginheiti dýra og dauðra hluta“ (a- liður), örnefni, s.s. staðaheiti (b- liður), og samnöfn sem eru notuð sem örnefni (c-liður). Ekki er annað að sjá en að heiti Jarðar geti fallið undir sérhvern þessara liða, að Jörð sé eig- inheiti ákveðins himinhnattar, að Jörðin sé ákveðinn staður í him- ingeimnum og sé því örnefni og skrif- ist með stórum staf, jafnvel þótt orðið sé einnig samnafn. Áskorun til menntamálaráðherra Nú er bara eftir að skora á menntamálaráðherra að taka af skar- ið. Hún þarf ekki annað en að taka til sín Auglýsingu um íslenska stafsetn- ingu og bæta tveimur orðum inn í hana t.d. í b-lið 5. gr. þar sem talin eru upp örnefni sem skrifa á með stórum staf. Þá hljóðaði greinin svo: b. Örnefni, t.d. landaheiti, staða- heiti, bæjanöfn, nöfn gatna, nöfn landshluta, heimsálfa og him- inhnatta, goðfræðileg staðaheiti, t.d. Ísland; Esja; Reykjavík; Hóll; Ein- imelur; Jökuldalur; Vestfirðir; Evr- ópa; Jörð; Nóatún. Hnötturinn Jörð Sigrún Helgadóttir skorar á menntamálaráðherra ’ Ef hnötturinn heitirekki Jörð, hvað heitir hann þá?‘ Sigrún Helgadóttir Höfundur er kennari, náttúrufræð- ingur og námsefnishöfundur. Fréttir í tölvupósti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.