Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ hefur verið áberandi frétta-
efni í alþjóðlegri fjölmiðlun þann
daginn sem þetta er skrifað, að árs-
skýrsla Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna
um stöðu barna í heim-
inum birti á ný válegan
boðskap um neyð
þeirra í fátæku lönd-
unum. Aðalfram-
kvæmdastjóri UNI-
CEF, Ann Veneman,
leggur réttilega á það
áherslu, að allar þjóðir
verði að taka þátt í
átaki um að létta þær
hörmungar. Og það á
vissulega einnig við um
okkur Íslendinga. Það
er ekki rétt, svo sem oft var sagt, að
smæð íslensks þjóðfélags gagnvart
þessum hrikalega vanda geri okkar
framlag svo lítils virði að við megum
teljast undanþegin ábyrgð. Mér sýn-
ist reyndar að undirtektir við UNI-
CEF sýni þann hugsunarhátt að
ekki séum við stikkfrí í alþjóða-
samfélaginu.
Ég er stoltur af því hve UNICEF
hefur verið vel tekið á þeim 2–3 árum
sem landsnefndin okkar hefur starf-
að. Það á einkum við vegna mikillar
þátttöku fólks í heimsforeldrisverk-
efninu okkar og vegna viðbragða fyr-
irtækja um fjáröflun. Við styðjum í
senn almenna starfsemi UNICEF
en þó einkum verkefni í Gíneu Bissá,
Vestur-Afríkuríki í hópi þeirra 6 fá-
tækustu í heimi. Okkur til góðra ráða
í samstarfinu við
starfsstöð UNICEF
þar, er yfirlæknir mið-
stöðvar heilsuverndar
barna í Reykjavík, dr.
Geir Gunnlaugsson, en
hann hefur tvívegis
starfað um árabil í
þessu landi mikillar ör-
birgðar þar sem ung-
barnadauðinn (undir 5
ára) er 203 af 1.000.
Hjá okkur er þessi tala
3 af 1.000. Þetta er hjá
þeim með því hæsta og
hjá okkur það lægsta
sem um getur í heiminum. Mér er
það minnisstætt, þegar við vorum að
senda fyrstu 10.000 dollarana þang-
að, að dr. Geir sagði: Vitið þið að
þessi upphæð breytir nótt í dag fyrir
þá sem hennar njóta? Og eru ekki
650.000 kr. hálfgerð skiptimynt í
fjármálaheimi okkar Íslendinga?
Fyrirtækin Baugur Group, FL
Group og Fons ákváðu að leggja
hvort um sig 15 millj. kr. árlega í
þrjú ár til þess forgangsverkefnis
UNICEF sem er menntun stúlkna í
Gínea Bissá. Þá efndu fyrirtækin til
fjáröflunarkvöldverðar þar sem fólk
tók áskorun velgjörðarsendiherrans
Sir Rogers Moore betur en nokkur
hefði getað vonað og lagði til 90 millj.
kr. með gleði og góðum hug. Því fé
verður einkum varið til að bæta úr
sérstökum næringarskorti vegna
joðskorts í fæðunni.
Mér þykir fyrir því að þetta söfn-
unarátak hafi verið í umræðu til að
véfengja tilganginn eða sproksetja
gefendur. Það er allsendis óverðugt.
En hitt skil ég jafnvel og næsti mað-
ur að við séum forviða á því hvað
þjóðfélagsþegnar og íslensk fyr-
irtæki geta áorkað í mann-
úðarmálum og þróunaraðstoð. Við
erum á réttri braut og höldum
ótrauð áfram.
UNICEF og Ísland
Einar Benediktsson fjallar
um Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna og söfnunarátak
samtakanna
’Síðasta söfnunarátakUNICEF Ísland hefur
vakið umtal og sumpart
mjög ósanngjarna
gagnrýni.‘
Einar Benediktsson
Höfundur er stjórnarformaður
íslensku landsnefndarinnar fyrir
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna –
UNICEF.
AÐ UNDANFÖRNU hafa fjöl-
margir aðilar bent á þá staðreynd að
netaveiðar í ám eru
tímaskekkja. Ýmis rök
hafa verið nefnd til
sögunnar og hefur þar
vegið einna þyngst,
skýrsla Atvinnuþróun-
arfélags Suðurlands,
um efnahagslegan
ávinning stangveiði og
netaveiði. Skýrslan
tekur af öll tvímæli um
framtíð netaveiðinnar,
enda hlutlaus opinber
stofnun sem gerir
vandaða úttekt á mál-
inu. Niðurstaða skýrsl-
unnar er á þá vegu að með afnámi
netaveiða á vatnasvæði Ölfusár &
Hvítár, má tífalda arðsemi af lax-
veiðum. Skýrslan sýnir og undir-
strikar að netaveiðin deyfir allan
hvata til markaðssóknar og rækt-
unarátaks á svæðinu. M.ö.o. hamlar
netaveiðin allri framþróun í ferða-
þjónustu tengdri stangveiði á einu
allra glæsilegasta og víðfeðmasta
vatnasvæði Evrópu. Í þessu ljósi vil
ég nefna að um helmingur allra
tekna bænda í Borgarfirði kemur til
vegna stangveiðinnar!
Um eignarréttinn
Nýverið varpaði ég fram nýju
sjónarhorni á umræðuna sem ég
birti hér opinberlega fyrsta sinni. Ég
tel að með lagasetningu þar sem
netaveiðar í íslensku straumvatni
verði bannaðar, sé ekki verið að
ganga á eignarréttinn. Hér er ein-
ungis um veiðarfærastýringu að
ræða. Í gegnum tíðina hafa ýmis
veiðarfæri verið bönnuð í íslenskum
ám eða eins og segir í núgildandi lög-
um um lax og silungsveiði. „Eigi má
veiða fisk með krók eða sting eða í
háf.“ Í raun hefur nýting vatna og
straumvatna verið háð veið-
arfærastýringu um langt skeið.
T.a.m. hefur lengd og staða neta-
lagna tekið breytingum í gegnum
tíðina. Ef bændum og landeigendum
verður ekki heimilað að stunda neta-
veiðar, er þó áfram lagalegur réttur
þeirra að stunda stangveiði í sama
straumvatni og selja laxinn hæst-
bjóðanda, rétt eins og hefur verið
gert í gegnum árin með netaveiddan
lax. Einnig myndast sá spennandi
möguleiki fyrir netabændur að nýta
veiðiréttinn til útleigu en eins og áð-
ur sagði ákváðu bænd-
ur í Borgarfirði að feta
þá leið með góðum ár-
angri. Ég hef leitað
mér álits lögfróðra
manna og telja þeir
þessa nálgun gjörbylta
málinu. Máli mínu til
rökstuðnings vil ég
nefna að fjölmörg veið-
arfæri eru ekki heimil
til notkunar í hafinu í
kringum okkur. Þurfa
því sjómenn og útgerð-
armenn að gangast við
margflókinni og sí-
breytilegri veiðarfærastýringu í
störfum sínum.
Ofveiði
Í 27. grein laga um lax- og silungs-
veiði segir eftirfarandi:
„Nú þykja ákvæði þessara laga
um friðun og veiðitæki eigi veita
fiskstofni vatns nægilega vernd
gegn ofveiði, og er veiðimálastjóra
rétt með samþykki veiðimálanefndar
að fækka föstum veiðivélum í því
vatni.“ Greinina má túlka á þá vegu
að veiðimálastjóri og veiðimálanefnd
búi yfir því valdi að fækka föstum
veiðivélum í vatni s.s. netalögnum.
Ég spyr því hvernig stendur á því að
netaveiðar eru heimilar í Ölfusá og
Hvítá yfir þann tíma sem stærstu
laxagöngurnar ganga upp árnar?
Liggur það ekki í augum uppi að
fjöldi netalagna, sem ná hver um sig
yfir 2⁄3 af breidd árinnar (leyfilegt
skv. núgildandi lögum), geta stuðlað
að hættulegri ofveiði? Lesandanum
til frekari upplýsingar skal þess get-
ið að laxinn gengur iðulega upp árn-
ar nálægt bakka, sérstaklega þegar
um straumhart jökulvatn er að
ræða. Netin geta teygt sig út í ána
frá báðum bökkum. Ég vil sjá nýja
setningu í lagabálkinn sem orðast
svo „Eigi má veiða fisk með krók,
sting, háf, lagnetum eða króknet-
um.“ Eina leyfilega veiðarfærið í ís-
lensku straumvatni er veiðistöng
skv. skilgreiningu á veiðistöng. Svo
getum við heimilað undantekningar
fyrir önnur veiðarfæri vegna vís-
indarannsókna eða aðsteðjandi
hættu sjúkdóma o.s.frv.
Vinnum með bændum
Í því moldvirði sem skapast vegna
umræðunnar um neta- og stangveiði
má aldrei gleyma að bændur hafa
byggt sín bú kynslóð eftir kynslóð.
Þeir hafa notið straumvatnsins og
nýtt það eftir mætti í gegnum ár-
hundruð. Fyrir þær sakir skil ég vel
að erfitt geti verið að kveðja gamlar
hefðir. Því má spyrja hvort heimila
eigi netaveiðar eina ákveðna helgi
yfir sumartímann? Með slíkri und-
anþágu er hefðin virt og sagan fær
sín notið. Hugsanlega gætu bændur
haldið slíka helgi með hátíðarbrag
þar sem ferðaþjónustan gæti unnið
náið með bændum og helgin yrði
bæði aðdráttarafl ferðamanna sem
og árlegt tilhlökkunarefni bænda og
annarra. Ég hvet bændur til að láta
af þessum hefðum og líta til fram-
tíðar. Ég hvet bændur til að sætta
sig við breytta tíma og opna á tæki-
færi sem laxinn getur skilað til hér-
aða og samborgara. Í dag er stang-
veiði gífurlega vinsælt áhugamál
meðal þjóðarinnar. Frá því sem áður
var, hafa áhugamál almennings í
amstri og hraða nútímans, sífellt
meira gildi.
Gengur upptaka neta
ekki á eignarréttinn?
Gunnar Örn Örlygsson
fjallar um um efnahagslegan
ávinning stangveiði og
tímaskekkju netaveiði
’Stangveiðin skilar ídag milljörðum króna
inn í íslenskt samfélag
og tel ég orðið löngu
tímabært fyrir alla
hagsmunaaðila, stjórn-
málamenn sem aðra, að
virða stangveiðina, með
því að leyfa henni að
vaxa og dafna í breyttu
umhverfi til framtíðar.
Netaveiðin er tíma-
skekkja.‘Gunnar Örn Örlygsson
Höfundur er alþingismaður í
þingflokki sjálfstæðismanna.
AÐ MORGNI 10. desember
samþykktu 157 aðildarríki Kyoto-
bókunarinnar að hefja samninga-
viðræður um verulegan samdrátt í
losun iðnríkja sem aðild eiga að
bókuninni og skal samningum lok-
ið í tíma til að næsta skuldbinding-
artímabil bókunarinnar geti hafist
um leið og því fyrsta lýkur árið
2012.
Ríki á borð Kína,
Indland, Suður-Afríku,
Argentínu, Brasilíu og
Mexíkó lýstu vilja sín-
um til aðgerða innan
marka Kyoto-
bókunarinnar þó þau
hafni losunarmörkum
fyrir gróðurhúsa-
lofttegundir eftir 2012.
Þess í stað munu þessi
ríki taka á sig skuld-
bindingar um að hlut-
fallsleg aukning í út-
streymi
gróðurhúsaloftteg-
unda verði minni en
aukning í hagvexti
þeirra. Einnig var
samþykkt í Montreal
5 ára áætlun um að-
stoð við fátæk ríki við
að aðlagast breyttu
loftslagi.
Niðurstaðan í
Montreal er mikill sigur fyrir um-
hverfisverndarhreyfinguna og hún
eflir til muna alþjóðlegt samstarf á
vettvangi Kyoto-bókunarinnar.
Samþykktar voru reglur um fram-
kvæmd bókunarinnar, áætlun um
samningaviðræður um mun meiri
samdrátt í útstreymi gróðurhúsa-
lofttegunda eftir 2012 og ríki sem
ekki eiga aðild að Kyoto-sáttmál-
anum – einnig Bandaríkin – sam-
þykktu að taka þátt í viðræðum á
vettvangi Loftslagssamnings Sam-
einuðu þjóðanna. Það styrkir mjög
Kyoto-bókunina, að alþjóða-
samfélagið lét Bandaríkjastjórn
ekki aftra sér frá að hefja samn-
ingaviðræður líkt og þau eru
skuldbundin til samkvæmt 3.
grein, 9. tölulið Kyoto-bókunar-
innar.
Samþykkt Montreal-umboðsins
er einnig afar mikilvæg fyrir þró-
un markaðar fyrir losunarheim-
ildir og fjárfestingar í þróun-
arríkjum í hreinni tækni sem síðan
má nýta til frádráttar los-
unarheimildum iðnríkja. Ítrekað
var bent á að þróun slíks mark-
aðar væri háð framtíð Kyoto-
bókunarinnar.
Bush einangraður
Stjórn Bush forseta er einöngr-
uð í ósveigjanlegri afstöðu sinni og
mistókst enn einu sinni að eyði-
leggja Kyoto-ferlið. Í Bandaríkj-
unum hafa nærri 200 borgir, 9
fylki og fjölmörg fyrirtæki sett sér
markmið um samdrátt í útstreymi
gróðurhúsalofttegunda. Bandalag
þróunarríkja Evrópusambandsins,
Japan og Kanada styrktist á með-
an Bandaríkin einöngruðu sig með
því að neita að tala við sendi-
nefndir annarra ríkja og ganga af
fundi aðfaranótt 9. desember. Nor-
egur og Ísland studdu málflutning
Evrópusambandsins, Evrópu, Jap-
an, Kanada og fjölmargra þróun-
arríkja sem tóku þá afstöðu að
halda yrði áfram án Bandaríkja-
stjórnar. Vaxandi hreyfing innan
Bandaríkjanna myndi að lokum
draga Bandaríkin að samninga-
borðinu.
Stjórn Bush forseta er gersam-
lega andvíg hvers kyns umræðum
um samdrátt í útstreymi gróð-
urhúsalofttegunda. Á
hinn bóginn var ein-
angrun Bandaríkj-
anna slík að banda-
ríska
samninganefndin
neyddist að lokum til
að skrifa upp á sam-
þykkt um viðræður á
vettvangi Loftslags-
samningsins, þess
sem Kyoto-bókunin
er gerð við.
Ríkisstjórn Kanada
lagði mjög mikla
vinnu og metnað í
undirbúning loftslags-
þingsins í Montreal og
forseti þingsins,
Stephane Dion, um-
hverfisráðherra Kan-
ada, á mikið hrós skil-
ið fyrir frammistöðu
sína.
Hættulegar lofts-
lagsbreytingar
Æ fleiri rannsóknir gefa til
kynna að snúa verði við þróuninni
næstu 10–15 ár; að raunverulegur
samdráttur í útstreymi gróð-
urhúsalofttegunda hefjist fyrir
2020; halda verði meðaltalshækkun
hitastigs jarðar innan við 2°C til
að koma megi í veg fyrir hættu-
legar breytingar á loftslagi jarðar.
Í þessu sambandi er vert að
minna á orð Halldórs Þorgeirs-
sonar, sem vinnur hjá skrifstofu
loftslagssamnings Sameinuðu þjóð-
anna í Bonn, en hann sagði í við-
tali við BBC4 hinn 18. nóvember
sl: „Ljóst er að vegna mikillar los-
unar koltvísýrings út í andrúms-
loftið er innistæða fyrir frekari
hitnun andrúmsloftsins og það er
ákaflega mikilvægt að gripið verði
til aðgerða strax til að draga úr
hættu á alvarlegum afleiðingum.“
Orð Halldórs Þorgeirssonar
endurómuðu í ávörpum nær allra
ráðherra á þinginu. Ekki einu
sinni Bush-stjórnin reynir lengur
að véfengja þann vanda sem við er
að etja. Eftir stendur að rík-
isstjórnir heims eiga enn eftir að
samþykkja róttækar aðgerðir til
að draga úr útstreymi gróðurhúsa-
lofttegunda.
Framlag íslensku sendinefnd-
arinnar í Montreal gefur tilefni til
að ætla að Ísland muni ekki láta
sitt eftir liggja. Ríkidæmi okkar
og tækniþekking veitir okkur
tækifæri til að taka forustu sé
pólitískur vilji til þess innan
stjórnarráðsins og meðal fyr-
irtækja. Meðal almennings er vax-
andi skilningur og stuðningur við
nauðsynlegar aðgerðir.
Niðurstaða
loftslagsþings-
ins í Montreal
Árni Finnsson segir frá nið-
urstöðum loftslagsþings
Árni Finnsson
’Meðal almenn-ings er vaxandi
skilningur og
stuðningur við
nauðsynlegar
aðgerðir.‘
Höfundur er formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands.
Fréttir í tölvupósti