Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 65
Jólasöngvar í Hjallakirkju ÁRLEGIR jólasöngvar verða sunnudaginn 18. des. kl. 11 í Hjallakirkju í Kópavogi. Jólasöngvarnir eru að enskri fyrirmynd með sjö ritning- arlestrum þar sem spáð er fyrir fæðingu frelsarans. Á milli lestra eru sungnir aðventu- og jóla- söngvar bæði í kórsöng og almenn- um söng. Enskir jólasöngvar verða nokkuð áberandi. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista kirkjunnar. Gestakór að þessu sinni er Kór Lindakirkju í Kópavogi undir stjórn Hannesar Baldurssonar. Prestur er séra Sig- fús Kristjánsson. Kórarnir syngja bæði saman og í sitt hvoru lagi sem og með kirkjugestum í al- menna söngnum. Allir eru að sjálfsögðu hjart- anlega velkomnir. Klukkan 13 er síðan jólaball sunnudagaskólans. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa, heldur lifandi steinar, manneskjur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út úr kirkjubyggingum með helgihald og fagnaðarerindið og mæta fólki í dagsins önn. Í til- efni af því bjóðum við til guðsþjón- ustu í Kolaportinu næsta sunnu- dag18.desemberkl. 14. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir flytur hugleið- ingu og þjónar ásamt sr. Bjarna Karlssyni og Ragnheiði Sverr- isdóttur djákna. Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson mun leiða lofgjörðina, en hann mætirkl. 13:30 til að gleðja fólk með söng og spjalli- .Þorvaldur og sonur hans Þorvald- ur Þorvaldsson munu einnig syngja jólalög saman við guðsþjón- ustuna. Þá er hægt að leggja inn fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna í guðsþjónustunni áður en stundin hefst, en í lok stundarinnar verður blessun með olíu. Guðsþjónustan fer fram í kaffi- stofunni Kaffiport í Kolaportinu, þar er hægt að kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott sam- félag við Guð og menn. Það eru allir velkomnir. Miðborgarstarf KFUM/KFUK og þjóðkirkjunnar Æðruleysismessa ÆÐRULEYSISMESSA verður í Dómkirkjunni kl. 20 á sunnudags- kvöldið 18. desember. Æðruleys- ismessur eru tileinkaðar fólki í leit að bata eftir 12. sporum AA- hreyfingarinnar. Sr. Karl V. Matt- híasson predikar og þjónar ásamt sr. Jónu Hrönn Bolladóttur og sr. Hjálmari Jónssyni. HBH flokk- urinn leiðir tónlistina, en það eru bræðurnir Hörður og Birgir Bragasynir ásamt Hjörleifi Vals- syni fiðluleikara. Söngkonan Mar- grét Kristín Blöndal eða Magga Stína mun gleðja söfnuðinn með söng. Einstaklingur segir frá reynslu sinni. Það verður boðið til fyrirbæna í lok guðsþjónustunnar. Dómkirkjan. Helgistund fyrir framan Hegningarhúsið Á ÞORLÁKSMESSUKVÖLD kl. 20 verður helgistund fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Léttsveit Reykjavíkur mun syngja jólasálma en það er orðin fimm ára hefði hjá konunum í kórnum að koma í miðborgina á Þorláks- messukvöld og láta lofsöngva hljóma, stjórnandi kórsins er kjarnakonan Jóhanna V. Þórhalls- dóttir. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir mun lesa jólaguðspjallið og minna þannig vegfarendur á kjarna jólanna. Spöngin 18. des. kl. 12:12 HÁTÍÐ verður á lóð væntanlegrar menningarmiðstöðvar – kirkjusels eftir fjölskylduguðsþjónustu í Grafarvogskirkju og barnaguðs- þjónustu í Borgarholtsskóla. Fulltrúar frá Miðgarði, þjónustu- miðstöð Grafarvogs, lögreglunni, Borgarbókasafni, Hverfisráði Grafarvogs og kirkjunnar munu afmarka lóðina með logandi kyndl- um (ljósinu er lýsir nú á aðventu og jólum). Unglingakórinn syngur undir stjórn Oddnýjar J. Þorsteins- dóttur. Nemar frá Tónlistarskóla Grafarvogs og Tónskóla Hörp- unnar flytja jólalög. Undirritaðar verða viljayfirlýsingar þeirra aðila sem að byggingunni standa.. Boðið verður upp á heitt kakó og smá- kökur. Jólasveinar koma í heim- sókn. Allir velkomnir. Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Grafarvogskirkja, Lögreglan í Reykjavík, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Hverfisráð Grafarvogs. Háteigskirkja 40 ára VIÐ aðventusöngvana á sunnudag- inn kl. 20.00 verður þess minnst að fjörutíu ár eru liðin frá vígslu Há- teigskirkju. Dr. Sigurbjörn Einarsson, bisk- up, sem vígði kirkjuna, flytur hug- vekju. Barnakór kirkjunnar kemur fram, stjórnandi Þóra Marteins- dóttir. Kór Háteigskirkju syngur og almennur söngur verður undir stjórn Douglas A. Brotchie. Þá munu trompetleikararnir Einar St. Jónsson og Guðmundur Haf- steinsson og orgelleikarinn Guðný Einarsdóttir leika með og fegra stundina. Mörgum hefur þótt gott að koma í aðventusöngvana á þessum háannatíma til þess að setjast nið- ur, brjóta upp tímann, og hugleiða hvers vegna erum við að þessu öllu saman og finna ilm jólanna leika um sig um stund. Í tilefni af af- mælinu verður öllum kirkjugestum boðið upp á veitingar á eftir. Kl. 11:00 um morguninn er hin hefðbundna messa, þar sem sér- staklega verður þakkað fyrir kirkjuna, hlutverk hennar í lífi okkar, sem sækjum þangað til að öðlast kraft og þor til að takast á við verkefni hversdagsins og þann vitnisburð, sem hún er í umhverfi sínu og þann styrk sem hún gefur. Fjölskylduguðs- þjónusta í Hallgrímskirkju SÍÐASTA sunnudag fyrir jól er ávallt fjölskylduguðsþjónusta í Hallgrímskirkju. Að þessu sinni syngja tveir kórar kirkjunnar þ.e. Barnakór Austurbæjarskóla og Hallgríms- kirkju og Unglingakór Hallgríms- kirkju undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Þá mun fiðlusveit úr Suzuki-fiðluskólanum Allegro koma í heimsókn og leika nokkur lög undir stjórn Lilju Hjaltadótt- ur. Fermingarbörn tendra á fjórum kertum aðventukransins og að- stoða í guðsþjónustunni. Hörður Áskelsson verður organisti. Magn- ea Sverrisdóttir segir jólasögu, sr. Sigurður Pálsson hefur hugvekju og sr. Jón Dalbú Hróbjartson leið- ir guðsþjónustuna. Tekið verður á móti söfn- unarkössum Hjálparstarfs kirkj- unnar í messunni, sem sendir voru inn á heimili landsmanna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 65 KIRKJUSTARF Ármúla 10 • Sími: 5689950 Jólatilboð Með hverri sæng fylgir 50x70 gæsadúnskoddi frítt með að verðmæti kr. 11.800 Duxiana Royal Gæsadúnssængur 140x200 kr. 34.980 140x220 kr. 39.360 150x210 kr. 39.360 220x220 kr. 58.880 260x220 kr. 68.640 Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni Mjódd • Smáratorgi Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni Mjódd • Smáratorgi Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni Mjódd • Smáratorgi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.