Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 69
MINNINGAR
þó að Dísu fannst, þrátt fyrir ýmis
áföll í lífinu eins og að missa barn eft-
ir langvarandi veikindi, hún hafa lif-
að góðu lífi og var sátt við að fá hvíld-
ina.
Ég vil þakka Þórdísi Þorgríms-
dóttur fyrir allt. Dísa sýndi okkur
fjölskyldunni mikla umhyggju og
sérstaklega börnunum okkar þeim
Þrúði og Arnari Benjamín. Fyrir það
vil ég þakka henni af öllu hjarta.
Far þú í friði.
Kristján.
Elsku amma. Það er mjög skrýtið
að hugsa til þess að við eigum aldrei
eftir að sjá þig aftur. Þú varst alltaf
hjá okkur og kenndir okkur að ganga
vel um. Þó að þú yfirgefir þennan
heim vitum við að þú ert áfram hjá
okkur. Allir sem hittu þig heilluðust
af þér við fyrstu kynni.
Við minnumst þess ekki að hafa
nokkurn tímann séð þig illa til fara.
Þér fannst gaman að vera fín. Þú
varst snyrtilegasta og best klædda
manneskja sem við höfum hitt. Þú
sagðir okkur líka að það skemmtileg-
asta sem þú gerðir væri að vaska
upp, þvo og hengja upp þvott.
Nú þegar við kveðjum þig, elsku
amma, er gott að eiga margar góðar
minningar um þig og við vitum að nú
líður þér vel. Við munum ávallt elska
þig og minnast þín. Hvíldu í friði.
Þín barnabörn
Þrúður og Arnar Benjamín.
Elsku amma, það er gott að þú
fékkst loksins að fara á vit nýrra æv-
intýra eftir erfiða sjúkdómslegu und-
anfarna mánuði.
Á stundu sem þessari verður mér
hugsað til allra góðu minninganna,
eitthvað sem ég gleymi aldrei, jóla-
boðanna í Lindarholtinu, þegar við
hittumst öll yfir rjúkandi kakóbolla
og heimabökuðum kræsingum úr
þínu eldhúsi langt fram eftir kvöldi,
og einnig þegar ég kom við hjá þér
eftir skóla og fékk kókómjólk og eitt-
hvað heimabakað.
Eftir að þú fluttir á dvalarheimilið
í Ólafsvík var líka huggulegt að
koma. Það var alltaf svo fínt hjá þér
og þú varst hrókur alls fagnaðar,
alltaf svo glöð. Gaman var líka að
hitta ykkur skvísurnar á ykkar rösk-
lega göngutúr um bæinn sem farinn
var daglega ef veður leyfði.
Svo datt þér í hug að flytja á höf-
uðborgarsvæðið. Eftir það heimsótt-
um við þig alltaf ef við áttum leið hjá.
Stelpunum þótti alltaf spennandi að
sjá gömlu dúkkuna þína og ljónið,
það var allt svo mikið í röð og reglu
hjá þér, allt svo fínt og flott.
Elsku amma, við sem eftir sitjum
getum hugsað fallega til allra minn-
inganna sem hugga okkur á tímum
sem þessum.
Guð geymi þig.
Lúðvík og fjölskylda.
Elsku amma mín, nú ert þú búin
að fá hvíldina. Ég á eftir að sakna
þín, þú varst mér svo mikið og gerðir
svo mikið fyrir mig alla tíð. Ég hefði
ekki getað hugsað mér betri ömmu.
Þú varst svo skemmtileg og mér
fannst svo gott að vera hjá þér og afa
Benna enda var ég mikið hjá ykkur.
Ég man að alltaf á sunnudögum
heima í Ólafsvík, þegar við krakkarn-
ir fórum í þrjú-bíó, komum við á eftir
til þín og fengum okkur bananatert-
una þína. Svo var gaman þegar við
vorum að fara á skverinn saman.
Mér fannst alltaf gaman að vera með
þér. Þú kenndir mér að búa til hveiti-
kökur, fiskbollur og fleira í sambandi
við mat, hvernig ég ætti að hengja
upp þvott, raða í skápana og vera
með reglu á hlutunum. Þú vildir hafa
allt svo hreint og fínt enda varstu
þekkt fyrir það.
Friðberg og Þorgrími fannst líka
alltaf gaman þegar þú komst til okk-
ar enda varst þú alltaf svo góð við þá
líka.
Ég á þér svo mikið að þakka,
amma mín, ég get endalaust talið
upp en geymi minningu þína vel í
hjarta mínu. Ég elska þig, amma
mín, og ég veit að þú ert komin á góð-
an stað núna. Guð blessi þig og
geymi.
Þín
Laufey.
✝ Helga Sigur-geirsdóttir
fæddist á Húsavík 1.
október 1926. Hún
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
8. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Sigur-
geir Aðalsteinsson,
verslunarmaður á
Húsavík, f. 5. mars.
1898 í Haga í Aðal-
dal, d. 25. mars
1938, og Kristín Að-
alsteinsdóttir hús-
freyja, f. 4. maí 1902, d. 22. desem-
ber 1964, dóttir Aðalsteins
Kristjánssonar kaupmanns á
Húsavík. Systkini Helgu eru:
Kristín, f. 9. ágúst 1928, d. 11.
september 1941; Höskuldur Aðal-
steinn, f. 19. maí 1932, búsettur á
Húsavík; og Guðmundur Aðal-
steinn, f. 13. febrúar 1937, d. 10.
nóv. 1945.
Hinn 26. maí 1951 giftist Helga
Jóni Árnasyni, f. 22. febrúar 1915,
bifreiðarstjóra frá Kvíslarhóli á
Tjörnesi. Foreldrar hans voru
Björg Sigurpálsdóttir, f. 4. janúar
1869, d. 25. október 1944, og Árni
Hemmert Sörensson, f. 1. nóvem-
ber 1861, d. 6. júní 1915, bóndi á
Kvíslarhóli.
Helga og Jón eignuðust fjögur
börn. Þau eru: 1) Sigurgeir, f. 20.
nóvember 1951, kvæntur Guð-
rúnu Sigurlaugu Óskarsdóttur.
Synir þeirra eru Óskar, f. 27. apríl
1977, og Arnar Jón, f. 14. sept-
ember 1978. Óskar er kvæntur
Ragnheiði Þorkelsdóttur og dótt-
ir þeirra er Harpa, f. 3. febrúar
2005. 2) Björg, f. 11. apríl 1953,
gift Pálma Pálmasyni. Börn
þeirra eru: a) Anný Björg, f. 10.
nóvember 1975, gift
Magnúsi Inga Egg-
ertssyni. Þau eiga
tvö börn; Hugrúnu
Lív, f. 27. júní 2001,
og Aron Inga, f. 22.
september 2004. b)
Jóna Björg, f. 8.
ágúst 1978. Sam-
býlismaður hennar
er Kristján Gunnar
Þorvarðarson og
sonur þeirra Arnar
Pálmi, f. 11. júlí
2002. c) Helga
Björg, f. 16. septem-
ber 1981. Sambýlismaður hennar
er Brynjúlfur Sigurðsson og dótt-
ir hans er Emelíana, f. 23. sept-
ember 1999. d) Pálmi Rafn, f. 9.
nóvember 1984. Sambýliskona
hans er Telma Ýr Unnsteinsdótt-
ir. 3) Guðmundur Aðalsteinn, f.
24. nóvember 1954, kvæntur Sig-
ríði Ingvarsdóttur. Synir þeirra
eru Ingvar Kristinn, f. 20. júlí
1988, og Guðni Páll, f. 18. nóvem-
ber 1990. Dóttir Sigríðar er Björg
Þórsdóttir, f. 25. nóvember 1984.
4) Ásdís, f. 1. júlí 1962, gift Sig-
urgeiri Ágústi Stefánssyni. Synir
þeirra eru Stefán Jón, f. 19. maí
1989, Haukur, f. 23. apríl 1992, og
Ásgeir, f. 11. desember 1996.
Að loknu barnaskólanámi á
Húsavík nam Helga við Héraðs-
skólann á Laugum og síðar Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur.
Helga bjó alla tíð á Húsavík þar
sem hún stundaði ýmis störf frá
unga aldri, en auk húsmóður-
starfsins vann hún m.a. um árabil
við símavörslu hjá Pósti og síma
og síðar við fiskverkun.
Útför Helgu verður gerð frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Helga tengdamóðir okkar var
Þingeyingur í húð og hár. Hún fædd-
ist og bjó alla sína ævi á Húsavík. Oft
minntist hún æskuáranna úr Aðal-
steinshúsi, sem síðar fékk nafnið
Pálshús. Það er nefnt eftir þeim Að-
alsteini Kristjánssyni afa Helgu og
Páli bróður hans sem byggðu húsið.
Í húsinu bjuggu þeir bræður með
fjölskyldum sínum, en þeir voru
kvæntir systrunum Þóru og Helgu
Guðnadætrum frá Grænavatni í Mý-
vatnssveit. Mikið og náið samband
var á milli þessa frændfólks og feng-
um við að kynnast þeim systrum
Kristbjörgu og Guðnýju Pálsdætr-
um og Ásdísi Aðalsteinsdóttur móð-
ursystur Helgu. Þær höfðu gaman af
að segja frá Húsavík í gamla daga og
skemmtilegum atvikum úr Aðal-
steinshúsi. Á heimilinu var mikill
gestagangur og oft glatt á hjalla.
Minntist Helga á skólapilt á leið til
Akureyrar sem bankaði upp á og
sagði: „Mér er sagt að ég eigi frænd-
fólk hér.“ Þá var húsaskjól auðfeng-
ið.
Helga var elst fjögurra systkina.
Ellefu ára gömul missti hún föður
sinn sem hún var mjög hænd að.
Hún tók á sig þá miklu ábyrgð að
gæta yngri systkina sinna. Tveimur
árum síðar missti hún Kristínu syst-
ur sína úr berklum og fjórum árum
seinna lést yngsta systkinið, Guð-
mundur Aðalsteinn, úr botnlanga-
bólgu. Þessi mikli missir hafði mikil
og djúp áhrif á Helgu alla hennar
ævi. Mikið og kært samband var alla
tíð með Helgu og Höskuldi bróður
hennar. Þau hafa alltaf búið í ná-
grenni hvort við annað á Húsavík og
mikill samgangur og vinátta verið
með fjölskyldum þeirra.
Helga var mjög vel gefin, glaðvær
og gestrisin. Hún vildi ekki hafa sig í
frammi og alls ekki láta hafa fyrir
sér. Hún naut þess að hafa fólkið sitt
í kringum sig og hafði ánægju af að
sjá hve vel börnunum og fjölskyldum
þeirra farnaðist.
Helga fylgdist vel með. Hún naut
þess að horfa á litbrigði Kinnarfjalla
og spegilsléttan Skjálfandann og-
hafði áhuga á að fylgjast með nátt-
úrufari í sýslunni, s.s. tíðarfari,
berjasprettu, heyskap í sveitum og
hvernig fiskaðist. Gaman var að aka
um nærsveitir með henni því hún var
svo kunnug staðháttum og gat sagt
skemmtilega frá.
Hún var vel að sér í ættfræði og
ótrúlega minnug á fólk. Oft rakti hún
ættir þess sem bar á góma og ósjald-
an dró hún fram „Reykjahlíðarætt-
ina“.
Helga og Jón voru samrýnd hjón
og báru mikla umhyggju og virðingu
hvort fyrir öðru.
Með söknuði kveðjum við Helgu
og þökkum fyrir mikla hlýju og
væntumþykju í okkar garð.
Guð blessi minningu Helgu.
Guðrún Óskarsdóttir,
Sigríður Ingvarsdóttir.
Nú þegar veikinda bölið er bætt
það bjarmar af nýjum degi.
Ástvini hittir sem guð hefur gætt
á göngu á framtíðar vegi.
Þú varst okkur bæði vinur og skjól,
á von okkar minningar skína.
Gefi þér drottinn gleðileg jól,
við geymum minningu þína.
(Guðmundur Halld.)
Hjartans kveðjur.
Þín
ömmubörn.
Elsku amma. Þá er baráttunni
lokið og komið að kveðjustund. Þó
svo að okkur hafi ekki þótt tímabært
að kveðja þig, ylja minningarnar um
þig okkur um hjartarætur. Alltaf
stóð heimili ykkar afa opið okkur
barnabörnunum, og sóttum við mikið
í nærveru ykkar. Enda gáfuð þið
ykkur ávallt tíma til að spjalla eða
taka í spil. Og ekki var nú verra að fá
að gista í Laugarbrekkunni hjá ykk-
ur, en það var mikil tilhlökkun sem
fylgdi þeim uppákomum. Ekki er nú
hægt að skrifa til þín án þess að
minnast á allar heimabökuðu kræs-
ingarnar, sem þú hristir svo auðveld-
lega fram úr erminni.
Elsku amma, takk fyrir allan þann
tíma sem þú gafst okkur, ástúð og
þolinmæði. Fyrir þetta verðum við
ávallt þakklát. Þú stóðst þig eins og
hetja í veikindunum þó svo að þú haf-
ir þurft að bíða lægri hlut að þessu
sinni. Þín er sárt saknað, en við bú-
um að fallegum minningum um þig
sem verða alltaf með okkur.
Elsku afi, þú hefur misst mikið,
ekki bara maka þinn heldur einnig
þinn besta félaga. Elsku Bogga,
Dísa, Geiri, Gummi og aðrir ástvinir.
Guð varðveiti ykkur öll á þessum erf-
iðu tímum.
Barnabörnin á Húsavík.
Elsku systir, mágkona og frænka.
Þá er þinni þrautagöngu lokið. Lengi
héldum við að þú kæmir aftur til
okkar eftir veikindi þín í haust en
þrek þitt var á þrotum.
Okkur er ofarlega í huga hjálp-
semi og sú mikla hlýja sem þú sýndir
okkur. Allan þinn aldur bjóstu á
Húsavík, þínum heimabæ sem þú
kunnir svo vel að meta. Þar kynntist
þú þínum elskulega eiginmanni, Jóni
Árnasyni, og þar óluð þið upp börnin
ykkar fjögur sem öll hafa verið ykk-
ur til sóma og ánægju.
Þér og þinni fjölskyldu ber að
þakka þá miklu umhyggju sem þið
sýnduð Kristínu móður þinni og
ömmu Önnu Helgu sem bjuggu á
heimili ykkar Jóns frá þeim tíma
sem þið hófuð búskap.
Þú hafðir gaman af því að fylgjast
með og taka þátt í þjóðfélagsumræð-
unni og hafðir alltaf þínar skoðanir á
hreinu. Vel varstu að þér í ættfræð-
inni og hafðir mikla ánægju af að
lesa þér til í þeim fræðum og er við
strönduðum varð okkur oft að orði
„Förum til Helgu, hún veit þetta“.
Margar skemmtilegar stundir átt-
um við fjölskyldurnar saman sem
bjuggum svo til á sama blettinum.
Mörg voru afmælisboðin og jólaboð-
in sem allir biðu eftir. Margar voru
ferðirnar sem við fórum með nestið
og nutum náttúrunnar og samver-
unnar. Upp að Botnsvatni, í Skrúð-
garðinn, Aðaldalshraun, Mývatns-
sveit og Ásbyrgi. Ekki má svo
gleyma öllum berjaferðunum.
Er árin færðust yfir fluttuð þið
Jón í minna húsnæði. Alltaf var jafn
snyrtilegt í kringum ykkur. Heim-
ilislegt var að koma til þín þegar þú
varst að baka. Uppskriftirnar fullar
af alúð og nostri og afraksturinn var
ljúffengur, s.s. heimsins bestu klein-
ur og randalína með sveskjusultu
sem allir féllu fyrir.
Vandvirkni var þér í eðli lögð.
Þessa hæfileika hafa börnin ykkar
Jóns öll fengið í vöggugjöf.
Ég lifi í Jesú nafni,
í Jesú nafni ég dey,
þó heilsan og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristi krafti ég segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgr. Pét.)
Alúðar þakkir fyrir samfylgdina.
Höskuldur, Hólmfríður og börn.
HELGA
SIGURGEIRSDÓTTIR
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
NÍELS FRÍMANN SVEINSSON,
Kirkjuteigi 23,
er látinn.
Hjördís Konráðsdóttir,
Svava Níelsdóttir, Árni Árnason,
Jenný Níelsdóttir, Guðni Páll Birgisson,
Hjördís Árnadóttir, Þorsteinn Viðarsson,
Hjalti Freyr Árnason,
Níels Árni Árnason,
Birgitta Svava Pálsdóttir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og
langamma,
BETTÝ MARSELLÍUSDÓTTIR,
Ásbyrgi, Hofsósi,
lést á Landspítalanum í Reykjavík miðvikudaginn
15. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurjón Magnússon.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
HREINN ELÍASSON
listmálari,
Jörundarholti 108,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn
15. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Rut Sigurmonsdóttir
og börn.
Móðurbróðir okkar,
MAGNÚS EGGERT PÁLSSON,
Ásvallagötu 17,
lést miðvikudaginn 23. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þrúður Pálsdóttir,
Gerður Berndsen,
Margrét Berndsen,
Sólveig Berndsen,
Jóhanna Sigríður Berndsen.