Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 81
FRÉTTIR
RUSLAN Ponomariov (2.704) var
á átjánda ári þegar hann varð
heimsmeistari FIDE í skák árið
2001. Þessi ungi Úkraínumaður átti
í kjölfarið að tefla einvígi við Kasp-
arov í því augnamiði að sameina
skákheiminn um einn viðurkenndan
heimsmeistaratitil. Ekkert varð af
einvíginu og Ruslan missti að lokum
titil sinn án þess að tefla um hann.
Eins og sagan hefur sýnt getur
skákpólitík farið illa með margan
skákmanninn og því er lofsvert að
Ruslan hefur einbeitt sér aftur al-
farið að skák og teflir nú til úrslita
um sigurinn í heimsbikarkeppni
FIDE gegn hinum 23 ára Levon Ar-
onjan (2.724) frá Armeníu. Fyrsta
skák þeirra félaga fór jafntefli og
spennandi verður að fylgjast með
hvor mun bera sigur úr býtum. Þó
að framganga þeirra beggja hafi
vakið athygli jafnast hún ekki á við
það fjölmiðlakastljós sem beinst hef-
ur að hinum 15 ára Magnus Carlsen
(2.570).
Þetta norska undrabarn er engu
líkt. Hann teflir hratt, vel og ná-
kvæmt. Þekking hans á byrjunum
er yfirgripsmikil og reiknigetan er
mikil. Hann lét það ekki á sig fá þó
að hann hafi beðið lægri hlut fyrir
rússneska stórmeistaranum Evgeny
Bareev (2.675) í 16 manna úrslitum.
Enn var að miklu að keppa þar sem
tíu efstu sæti mótsins gáfu keppn-
isrétt í áskorendakeppni heims-
meistaramóts FIDE. Magnus hóf
keppni skákmannanna átta sem
dottið höfðu úr leik í 16 manna úr-
slitum með því að leggja franska
stórmeistarann Joel Lautier (2.679)
að velli, 1½-½. Í næstu umferð gegn
rússneska stórmeistaranum Vladim-
ir Malakhov (2.670) stóðu leikar
jafnir 1-1 eftir tvær kappskákir.
Rússinn stýrði hvítu mönnunum í
fyrri atskákinni og vann hana
örugglega. Magnus varð því að
vinna næstu skák til að eygja von
um sætið góða í áskorendakeppn-
inni.
Hvítt: Magnus Carlsen
Svart: Vladimir Malakhov
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3
a6 5. e3 g6 6. Be2 Bg7 7. 0–0 0–0 8.
Db3 dxc4
9. Bxc4 b5 10. Be2 Rbd7 11. e4
Rb6 12. Bf4 Be6 13. Dc2 Bc4 14.
Hfd1 Hc8
Sjá stöðumynd 1.
Miðborðspeð hvíts standa traust-
um fótum og erfitt er fyrir svartan
að brjóta peðastöðuna upp með c6-
c5 eða e7-e5. Hvítur teflir framhald-
ið af mikilli skynsemi og í samræmi
við kenningar rússneska skákskól-
ans um stöðubaráttu.
15. Hac1 Bxe2 16. Dxe2 Dd7 17.
h3! Db7 18. Bg5 Hfe8?
Hér var nauðsynlegt að leika
18. … c5 þar eð eftir næsta leik
hvíts getur svartur sig lítið hrært.
19. e5! Rfd5 20. Re4 Rd7 21. Dd2
Db8 22. Bh6 Bh8 23. h4! Rf8 24.
Rc5 Da7 25. h5 Rc7 26. hxg6 hxg6
Hvítur hefur teflt eins og herfor-
ingi og næsti leikur hans sýnir
hversu mikinn skilning hann hefur á
stöðunni.
Sjá stöðumynd 2.
27. Bxf8!
Snjöll uppskipti sem liðka fyrir
sókn hvíts og tekur besta varnar-
manninn frá svörtum.
27. … Hxf8 28. Dh6 Bg7 29. Dh4
f6 30. Dg4! Kh7 31. Rh4 g5 32.
Dh5+ Kg8 33. Rf5 Re8
Það er afar lærdómsríkt hvernig
hvítur skapaði hverja veiluna á fæt-
ur annarri í stöðu svarts. Hvítur
getur valið nú á milli margra leikja
til að gera út um skákina en eins og
oft áður velur Carlsen þann besta.
Sjá stöðumynd 3.
34. Dg6! og svartur gafst upp þar
sem eftir 34. … fxe5 35. De6+ fellur
svarti hrókurinn.
Undrabarnið lét kné fylgja kviði
og lagði rússneska stórmeistarann
að velli í hraðskákeinvígi. Með þeim
sigri tryggði Carlsen sér rétt til að
tefla um níunda sætið á mótinu gegn
bandaríska stórmeistaranum Gata
Kamsky og í fyrri kappskák þeirra
þurfti Rússinn fyrrverandi að lúta í
lægra haldi. Óháð því hvernig ein-
vígi þeirra lýkur þá hefur undra-
barnið unnið sér rétt til að taka þátt
í fyrrnefndri áskorendakeppni.
Norskir fjölmiðlar hafa bent á að
með þessu sé Carlsen yngsti skák-
maður sögunnar til að tryggja sér
þátttökurétt í áskorendakeppninni í
skák. Carlsen varð 15 ára á meðan
heimsbikarkeppninni stóð en Fisc-
her var nokkrum mánuðum eldri
þegar hann tryggði sér slíkan þátt-
tökurétt árið 1958. Þetta er þó ekki
að öllu leyti hæft til samanburðar
þar sem fyrirkomulag heimsmeist-
arakeppninnar í skák hefur verið
mjög á reiki undanfarin ár og alls-
endis óvíst að af fyrirhugaðri áskor-
endakeppni verði. Eigi að síður er
árangur Carlsens stórkostlegur og
samsvarar hann 2736 stigum.
Héðinn lenti í 8.–10.
sæti í Búdapest
Alþjóðlegi meistarinn Héðinn
Steingrímsson (2435) gerði níu jafn-
tefli í tíu skákum á alþjóðlegu móti
sem lauk nýverið í Búdapest í Ung-
verjalandi. Eins og fjöldi jafntefl-
anna gefur til kynna tefldi Héðinn
vandað og traust sem er skynsam-
legt í ljósi þess að hann hefur teflt á
fáum kappskákmótum undanfarin
ár. Sigurvegari mótsins, ungverski
alþjóðlegi meistarinn Viktor Erdos
(2.522) náði áfanga að stórmeistara-
titli á mótinu. Nánari upplýsingar
um mótið er að finna á heimasíðu
þess, www.firstsaturday.hu.
Carlsen slær
rækilega í gegn
SKÁK
Khanty-Mansyisk í Rússlandi
HEIMSBIKARMÓT FIDE
26. nóvember–18. desember 2005.
Carlsen lagði Malakhov að velli og tryggði sér þátttökurétt
í næstu áskorendakeppni HM.
Aronjan og Ponomariov tefla til úrslita í heimsbik-
arkeppninni.
Stöðumynd 1.
Stöðumynd 2.
Stöðumynd 3.
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Auka ber viðskiptafrelsi
í sölu landbúnaðarvara
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist
frá SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu
vegna skýrslu Samkeppniseftirlits um verð-
lag á matvælum:
„Niðurstöður sem fram koma í nýrri nor-
rænni skýrslu Samkeppniseftirlitsins stað-
festa að meginástæða þess að verð á mat-
vælum er verulega hærra hér á landi en að
meðaltali í Evrópu eru ríkjandi innflutnings-
hömlur á búvörur og verndarstefna í ís-
lenskum landbúnaði. Þarna er staðfest að
málflutningur SVÞ á undanförnum árum um
þessi mál er réttur, en samtökin hafa ítrek-
að krafist breytinga á þessu kerfi og hvatt
stjórnvöld til að feta sig í ákveðnum skref-
um út úr verndartollum, innflutningskvótum
og framleiðslustyrkjum, – hinir síðasttöldu
eru þeir hæstu í veröldinni.
Mikilvægt er að innlendar búvörur fái að
spreyta sig í samkeppni við innfluttar vörur
og framleiðsluhættir hér á landi að mótast í
takt við reynslu sem yrði til við frelsi í við-
skiptum með þessar vörur. Reynslan af af-
námi innflutningstolla af grænmeti sýndi
ótvírætt að þetta skilaði sér fljótt og vel til
neytenda og innlend framleiðsla hefur ekki
borið hnekki vegna þess.
Samkeppnisstofnun ályktaði í febrúar
2002 að leggja bæri niður miðstýringu á
heildsöluverði mjólkurafurða, sk. sexmanna-
nefnd, sem væri andstæð hagsmunum neyt-
enda og anda samkeppnislaga. Þar með tók
stofnunin þá og aftur síðar undir málflutn-
ing SVÞ um sama efni. Þessar ályktanir
samkeppnisyfirvalda og áskoranir SVÞ hef-
ur landbúnaðarráðuneytið hundsað til þessa
dags. Nú staðfestir skýrsla Samkeppniseft-
irlitsins málflutning forvera síns, Sam-
keppnisstofnunar. Í sama streng taka hags-
munasamtök atvinnulífs og launþega og nú
hefur myndast öflugur samhljómur í þjóð-
félaginu um að nú verði að taka á málum og
breyta kerfinu.
SVÞ hafna því að fákeppni á matvöru-
markaði sé ástæða fyrir hærra verði mat-
væla hér en í öðrum löndum. Ekki verður
ekki séð af niðurstöðum skýrslunnar að
herða þurfi eftirlit með samþjöppun á mat-
vörumarkaði, eins og Samkeppniseftirlitið
boðar, því aðstæður á þeim markaði eru
ekki frábrugðnar því sem gerist í saman-
burðarlöndunum og raunar er samþjöppunin
minni hér en víða í Skandinavíu.
Í skýrslunni kemur fram að samkeppni á
matvörumarkaði hafi verið sambærileg hér
og á hinum Norðurlöndunum þegar könn-
unin var gerð, árið 2004. Í byrjun árs 2005
hófst verðstríð á matvörumarkaði á Íslandi
sem hefur staðið meira og minna allt árið og
sýnt svo ekki verður um villst að mjög hörð
samkeppni er á þessum markaði. Þarna
virðist sem sjónum sé beint í ranga átt.
Ef til vill eru viðbrögð Samkeppniseft-
irlitsins á þennan veg vegna þess að úrræði
eftirlitsins ná ekki til stjórnvalda sem
standa vörð um verndarstefnu innlendra
landbúnaðarvara. Samkeppnislög mega sín
lítils í samanburði við verndarreglur land-
búnaðarvara, en nú kallar þjóðin á kerf-
isbreytingu og vonandi sinnir löggjafinn, Al-
þingi, því kalli.
Vísast mun verðlag ætíð verða hærra hér
en í núverandi ESB-löndum vegna áhrifa
legu landsins og lítils markaðar, en tuga
prósenta lækkun má sækja með afnámi
verndarstefnunnar sem leggur helsi á alla
neytendur og er jafnframt sem drómi fyrir
þá aðila í landbúnaði sem framleiða góða
vöru á hagkvæman hátt og geta að fullu
mætt samkeppni við innflutning. Skýrsla
Samkeppniseftirlitsins og hinna norrænu
samkeppnisstofnanna gefur sterkar vísbend-
ingar um að auka beri viðskiptafrelsi með
landbúnaðarvörur. Það yrði síst til að draga
úr eftirspurn eftir íslenskum landbúnaðar-
vörum.
SVÞ hvetja til þess að stjórnvöld taki
höndum saman við hagsmunaaðila atvinnu-
lífs og neytenda við að lækka verð á mat-
vælum hér á landi.“
FRJÁLSÍÞRÓTTAKONAN Ásdís Hjálms-
dóttir var annað árið í röð valin íþróttamað-
ur Ármanns í hófi í tilefni af 117 ára afmæli
félagsins. Júdómaðurinn Birgir Páll Óm-
arsson var valinn efnilegastur, en hann varð
á árinu meðal annars Íslands- og Norður-
landameistari unglinga. Meðal afreka Ásdís-
ar á árinu var Íslandsmet kvenna í spjótkasti
og þá varð hún tvöfaldur Smáþjóðaleika-
meistari og margfaldur Íslandsmeistari.
Aðrir íþróttamenn sem tilnefndir voru eru
Bryndís Gunnlaugsdóttir, körfubolti, Mar-
grét Bjarnadóttir, júdó; Auður Anna Jóns-
dóttir, taekwondo; Steinn Sigurðsson, skíði;
Gísli Kristjánsson, lyftingar; Anton Heiðar
Þórólfsson, fimleikar; Berglind Hlín Að-
alsteinsdóttir, sund; Stefán Pétur Gunn-
arsson, glíma.
Ásdís Hjálmsdóttir, íþróttamaður Ármanns annað árið í röð, og Snorri Þorvaldsson formaður.
Íþróttamaður
Ármanns valinn