Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 82
82 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LAGT er til að komið verði á fót al-
þjóðlegri rannsóknarstofnun á sviði
jarðkerfisfræða, með sérstakri
áherslu á loftslagsbreytingar og af-
leiðingar þeirra, í skýrslu starfs-
hóps sem gerði úttekt á fýsileika
þess að stofna slíka stofnun hér á
landi. Hópurinn segir Ísafjörð
heppilegan stað fyrir slíka stofnun.
Jarðkerfisfræði leitast við að
tengja mismunandi vísindagreinar;
eins og jarðfræði, haffræði, lofts-
lagsfræði og líffræði; með það að
markmiði að skilja betur tengsl
hinna ýmsu þátta jarðríkisins og
skilja heildarsamhengið. Leggur
starfshópurinn til að helstu
áherslur slíkrar stofnunar gætu
snúið að rannsóknum á loftslags-
breytingum, orsökum og afleiðing-
um þeirra. Til að mynda mætti ein-
beita sér að myndun djúpsjávar í
norðurhöfum, flæði ferskvatns í ám
og myndun hafíss.
„Við vitum að ef loftlagsbreyt-
ingar eru komnar í gang, eins og
við höldum, þá eru sennilega engar
vísindarannsóknir mikilvægari fyrir
Íslendinga heldur en rannsóknir á
loftlagsbreytingum og afleiðingum
þeirra. Af þeim sökum höfum við
áhuga á að setja á fót stofnun sem
er helguð slíkum rannsóknum. Það
er okkur í hag að fylgjast betur
með loftlagsbreytingum og taka
virkan þátt í rannsóknum á þeim,“
segir dr. Haraldur Sigurðsson, pró-
fessor við Graduate School of Ocea-
nography sem er stofnun við Há-
skólann á Rhode Island í
Bandaríkjunum, en Haraldur er
einn skýrsluhöfunda.
Djúpsjávarmyndun
N-A af landinu
Skýrsla starfshópsins var kynnt á
Ísafirði á mánudag. Þar er bent á
að staðsetning Ísafjarðar sé að
mörgu leyti heppileg fyrir stofnun
af þessu tagi, m.a. vegna þess að
djúpsjávarmyndun fer fram í hafinu
norðvestan við landið, í nágrenni
Ísafjarðar. „Þannig má segja að það
sé stutt á miðin, þ.e. vísindamiðin,“
segir Haraldur og bendir á að einn-
ig sé flæði djúpsjávar um Græn-
landssund mikilvægt rannsóknar-
efni. Staðsetning Ísafjarðar geri
þannig sýnatöku og rannsóknir á
þessum fyrirbærum aðgengilegri.
„Mikill áhugi er meðal heima-
manna á hugmyndum um stofnun
alþjóðlegrar rannsóknarstofnunar á
sviði jarðkerfisfræða og við endur-
skoðun á skipulagi í neðsta hluta
Ísafjarðarkaupstaðar gera bæjaryf-
irvöld ráð fyrir svæði fyrir háskóla
með tilheyrandi þjónustu og íbúða-
svæði. Þar er gert ráð fyrir að
rannsóknarstofnunin geti verið til
húsa í framtíðinni sem hluti af
þekkingarþorpi,“ segir í skýrslunni.
Rekstur slíkrar stofnunar myndi
kosta um 100–120 milljónir króna á
ári, miðað við að þar starfi átta vís-
indamenn, nemendur og einn
rekstraraðili, og er gert ráð fyrir
því að fjármögnun geti að mestu
orðið í gegnum rannsóknarstyrki,
þó byggja þurfi starfsemina upp áð-
ur en það verði að veruleika. Und-
irbúnings- og stofnkostnaður gæti
numið um 30–40 milljónum króna,
og er reiknað með að hann verði
greiddur af opinberum aðilum eða
sjóðum.
„Við erum ennþá á undirbúnings-
stigi, en viðbrögð bæði yfirvalda og
stjórnenda á Ísafirði hafa verið
mjög góð, þó enn hafi ekki verið
tekin nein formleg ákvörðun um
framhaldið. Við höfum hins vegar
lagt til að þessi stofnun verði fram-
lag Íslands til Pólarársins sem
stendur yfir 2007-2008,“ segir Har-
aldur og útskýrir að Pólarárið feli í
sér samvinnu allra þjóða sem eiga
land að pólnum, bæði norður- og
suðurpólnum, á sviði vísindarann-
sókna sem og könnun á svæðunum
tveimur.
Samráð við aðrar
vísindastofnanir
Stofnunin yrði hrein viðbót við
rannsóknarsamfélag landsins, og
yrðu meginmarkmið hennar að
þjóna bæði íslenskum heildarhags-
munum og alþjóðlegum rannsókn-
armarkmiðum til lengri tíma. Stofn-
unin myndi hafa náið samráð við
erlenda háskóla og vísindastofnanir,
innlendar sem erlendar, sem koma
að loftslagsrannsóknum.
Lagt til að rannsóknarstofnun á sviði loftslagsbreytinga verði komið á fót
Heppilegt að staðsetja
slíka stofnun á Ísafirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var viðstaddur kynninguna en starfshópurinn var styrktur af ráðuneytinu.
TENGLAR
..............................................
Sjá nánar á www.mbl.is/itarefni
ÍSLANDSKYNNING var nýlega haldin í Mílanó,
fyrir ferðaskrifstofufólk og blaðamenn og fór
fram í þekktri, gamalli villu meðan í Mílanóborg
kyngdi niður snjó.
Viðstaddur var Guðni Bragason frá nýopnuðu
sendiráði Íslands í Róm og ávarpaði hann gesti
og lýsti helstu atriðum í samskiptum landanna
og áherslum í landkynningu á erlendri grund.
Að kynningunni stóð ferðaheildsalinn Island
Tours með þátttöku ýmissa ferðaþjónustuaðila á
Íslandi. Guðrún Sigurðardóttir, framkvæmda-
stjóri Island Tours kynnti landið í máli og mynd-
um og einnig talaði Helgi Már Björgvinsson,
stöðvarstjóri Icelandair í Suður-Evrópu, um
mikilvægi þessa markaðar.
Gestir fengu líka að hlýða á íslenska tónlist
tengd jólunum og Hanna Friðriksdóttir sópr-
ansöngkona sagði ýmsar sögur þeim tengdar.
Aðalnúmerið var þó frumflutningur á nýrri Ave
Mariu, sem Egill Gunnarsson, sem nemur tón-
smíðar í Mílanó, samdi.
Að lokum var boðið upp á kvöldverð þar sem
íslenskur matur var í aðalhlutverki, allt frá
reyktum og gröfnum laxi og endaði með 10 teg-
undum af smákökum sem ítölsku gestirnir
kunnu vel að meta.
Á myndinni er Hanna Friðriksdóttir að flytja
nýju Ave Mariu og til hliðar standa Guðrún Sig-
urðardóttir frá Island Tours og Helgi Már Björg-
vinsson frá Icelandair.
Íslandskynning í Mílanó
Hellvar í
Suðsuðvestri
OPNUN verður í dag kl. 17 í sýning-
arrýminu Suðsuðvestur í Keflavík.
Að þessu sinni ætlar hljómsveitin
Hellvar að gera sig heimakomna
þar. Hellvar er lítil hugmynd sem óx
og óx og er nú orðin að veruleika.
Upphaflega varð Hellvar til þegar
Heiða og Elvar rugluðu saman reyt-
um sínum og komu fram á Innipúk-
anum 2003, þá í Iðnó, en nafnið var
þá skrifað á plaggöt með einu elli,
Helvar, og sú prentvilla hefur fylgt
hljómsveitinni síðan.
Þau hafa nú lagt í það verkefni að
halda svokallaða „opna vinnustofu“,
en þau ætla að fylla sýningarrýmið
SSV af græjum og semja þar
splunkunýtt efni, eins og andinn ber
þeim í brjóst á þessum nýja og fram-
andi stað. Eina reglan sem þau
ganga inn með er að ekkert má nota
af hugmyndum sem nú þegar eru
fæddar en ekki er búið að vinna úr.
Verkið verður því innsetning um
leið og um gerð hljómdisks verður
að ræða, og ekkert er vitað um út-
komuna, (sjálfan diskinn) fyrr en
ferlinu, (sem er sýningin sjálf), lýk-
ur. Sýningin hefur fengið heitið
Hellvar – ekki Helvar. Hún verður
opin allar helgar að deginum til, og
2 virk kvöld í viku, en síðasti dagur
sýningarinnar er föstudagurinn 6.
janúar þegar Hellvar heldur loka-
partí og býður fólki að kaupa verkið
á geisladiski. Myndlistarkonan
Sunna Guðmundsdóttir ætlar að
setja upp eigin verk á meðan á sýn-
ingu stendur. Suðsuðvestur er á
Hafnargötu 22 í Keflavík.
Markáætlunin
náði yfirlýstum
markmiðum
NÝLEGA lauk menntamálaráðu-
neytið úttekt á markáætlun um
upplýsingatækni og umhverfismál.
Verkefni markáætlunarinnar voru
styrkt af Rannsóknarráði Íslands
árið 1999 og lauk flestum nú í ár.
Markáætlunin hafði til ráðstöfunar
580 milljónir króna og voru sam-
þykktir styrkir til 95 verkefna.
Árangur og ávinningur verkefn-
anna var skoðaður af þriggja
manna nefnd sem mennta-
málaráðherra skipaði síðastliðið
vor. Markmið úttektarinnar beind-
ist að viðfangsefnum og fram-
kvæmd markáætlunarinnar. Helsta
niðurstaðan er sú að markáætlunin
náði yfirlýstum markmiðum um að
efla þekkingargrunn. Hún stuðlaði
að auknu samstarfi vísindamanna
innanlands og aukinni þátttöku í al-
þjóðlegu samstarfi.
Nefndin telur markáætlanir eiga
rétt á sér í rannsóknum á Íslandi.
Henni þykir æskilegt að hafa bæði
opna rannsóknarsjóði sem styrkja
rannsóknir á öllum sviðum og
markáætlanir með skýr pólitísk
markmið.
Nefndin setti fram fjórtán ábend-
ingar til stjórnvalda sem lúta að út-
hlutun, framkvæmd og eftirfylgni
markáætlunar þar sem meðal ann-
ars er lagt til að veita færri og
stærri styrki og auka áherslu á al-
þjóðlegt samstarf.
Útskriftar-
nemar sýna
MYNDLISTARSÝNING útskrift-
arnema myndlistardeildar Listahá-
skóla Íslands verður opnuð í dag kl.
17.00 í Gallerí Gyllinhæð (nem-
endagallerí LHÍ), Laugavegi 23.
Þátttakendur í sýningunni eru:
Ingibjörg Birgisdóttir, Arna Gunn-
arsdóttir, Kjartan Sigtryggsson,
Gunnar Helgi Guðjónsson, Júlía
Embla Katrínardóttir, Soffía Jó-
hannsdóttir, Berglind Jóna Hlyns-
dóttir, Klara Þórhallsdóttir, Áslaug
Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jeann-
ette Castioni og Bjarki Bragason.
Þema sýningarinnar er jólin og
vinna þátttakendurnir með hug-
takið á mismunandi hátt. sýningin
verður opin á eftirfarandi tímum í
des, 18.: 14–18 21.: 14–18 22.: 14–18
23.: 14–22 29. og 30.: 14–18.
Hvers vegna hlýnar hraðar norðarlega?
FRAM kemur í skýrslu um fýsileika rannsóknarstofnunar í jarðkerf-
isfræðum að margar rannsóknir bendi til þess að hlýnandi loftslag og
bráðnun íss geti leitt til breytinga á hafstraumum, hækkandi yfirborðs
heimshafana og dregið úr seltu sjávar. Skýrsluhöfundar segja nokkur at-
riði verða til þess að það hlýni hraðar við norðurskaut en á suðlægari
breiddargráðum:
Þegar heimskautasnjór og ís bráðnar koma dökk þurrlendi og haffletir í
ljós. Þeir draga í sig meira af orku sólar, sem eykur hlýnun.
Hærra hlutfall aukaorku sem myndast við yfirborðið af völdum þétt-
ingar gróðurhúsalofttegunda fer beint í að hita andrúmsloftið. Í hita-
beltinu fer hærra hlutfall í uppgufun.
Það lag andrúmsloftsins sem þarf að hitna til að valda hlýnun yfirborðs-
lofts er mun þynnra við norðurskaut en í hitabeltinu sem leiðir til meiri
hlýnunar við norðurskaut.
Hafið losar meira af þeim sólarhita sem það dregur í sig á sumrin aftur
út í andrúmsloftið á veturna eftir því sem hafís bráðnar, sem leiðir til
hærri lofthita.
Þar sem hiti færist til norðurskauts með andrúmsloftinu og hafinu getur
breyting á flæði hafstrauma aukið hlýnun við norðurskaut.