Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 83

Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 83
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 83 FRÉTTIR                              !" #!" "$  !   %&' ())    "#$% &'() * + #,% , -  ** $  #..+   $                                              !"#$   T                !"   #$=           >               ?% # !!  &!!$   T! '  ! (! U %  ' # # )*+,-+ *./)V0 / -+1$ )*+,-1 -./)V0 2 +11$ ( )* ! *+ / V3 +V +11$ /)V3 +V / 111$ )4+,-+ *.//V0 + 111$ / +,-+ *./+V0 4 +11$ //V3 -V 5 111$ /+V3 -V ) 111$ , - ! %* ' (&    T   4 6 , !!  !(!7!!    !'$ .     Jólaskákmót KB banka ÁRLEGT jólaskákmót KB banka fer fram í dag, laugardaginn 17. desember, í aðalútibúi bankans, Austurstræti 5, og hefst kl. 15. Með- al þátttakenda eru stórmeist- ararnir Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson og Henrik Danielsen. Yngsti keppand- inn er Hjörvar Steinn Grétarsson, 12 ára. Jón Emil Magnússon, útibússtjóri KB banka, setur skákmótið. Ný stjórn Íslensk-ameríska félagsins NÝ stjórn var kosin á aðalfundi Ís- lensk-ameríska félagsins, en hana skipa: Þórður S. Óskarsson formað- ur, Jónatan Þórmundsson, Þórunn Jónsdóttir, Árni G. Sigurðsson og Magnús Bjarnason. Í varastjórn voru kosnir: Sigurjón Ásbjörnsson og Magnús Bergsson. Undanfarin ár hefur megin- starfsemi félagsins falist í umsjón með og veitingu styrkja til náms- manna, listamanna og kennara sem fara til frekara náms í Bandaríkj- unum. Þessir styrkir eru Thors Thors-styrkir til námsmanna sem hyggja á framhaldsnám, Haystack- styrkur til listiðnanáms og styrkur til kennara til að sækja sumarnám- skeið við Luther College í Iowa. Auk þessa hefur félagið haft milli- göngu um starfsþjálfun íslenskra ungmenna í Bandaríkjunum. Styrk- ir félagins verða auglýstir í árs- byrjun 2006, segir í fréttatilkynn- ingu. VR og SFR sam- einast um vinnu- markaðskönnun TVÖ stéttarfélög, Verslunar- mannafélag Reykjavíkur og SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu, munu í byrjun næsta árs standa sameiginlega að könnun á ánægju, starfsskilyrðum og líðan fólks á vinnustað. Alls mun hún ná til um 30 þúsund starfsmanna hjá fyr- irtækjum og stofnunum og verður umfangsmesta könnun á íslenskum vinnumarkaði sem farið hefur fram að því er segir í frétt frá félögun- um. Með könnuninni er leitast við að kortleggja aðbúnað og ánægju fólks á vinnumarkaði. „Kannað er viðhorf til átta lykilatriða, þ.e. trú- verðugleika stjórnenda, launa- kjara, vinnuskilyrða og sveigj- anleika í vinnu, spurt er um möguleika starfsmanna á sjálf- stæðum ákvörðunum í starfi, starfs- andann á vinnustaðnum, ímynd og stolt starfsmanna af fyrirtæki sínu eða stofnun sem og hversu sátt starfsfólk er með álag í vinnunni og þær kröfur sem gerðar eru til þess,“ segir einnig í fréttinni. VR hefur í áratug staðið fyrir könnuninni „Fyrirtæki ársins“ sem náði í fyrstunni eingöngu til fé- lagsmanna en fyrirtæki hafa í auknum mæli boðið öllum starfs- mönnum aðild, óháð stéttarfélagi. Senda á út spurningalista í lok jan- úar og verða niðurstöður birtar í maí. Veitt verður viðurkenningin fyrirtæki ársins 2006 og stofnun ársins 2006. Hjólhýsi og húsbílar í lest LEST hjólhýsa og húsbíla sem færð hafa verið í hátíðarbúning, skreytt slaufum og ljósum, leggur af stað frá Víkurverki, Tangarhöfða 1, og heldur sem leið liggur niður í bæ í dag, laugardaginn 17. desember. Ekið verður eftir Miklubraut og af Rauðarárstíg niður Laugaveg kl. 14. Lestin mun staldra þar við stutta stund en síðan halda áfram um höfuðborgarsvæðið. Jólalög munu hljóma úr húsunum og ekki er útilokað að jólasveinar verði með í ferðinni og hver veit hvað þeir sveinar hafa í pokahorn- inu, segir í fréttatilkynningu. Jólapakkamót Hellis STÆRSTA unglingaskákmót ársins, jólapakkamót Taflfélagsins Hellis, fer fram á morgun, sunnudaginn 18. desember, í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þátt taka um 150–200 krakkar á grunnskólaaldri, bæði stelpur og strákar, og allir sterkustu skák- krakkar landsins. Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, setur mótið og leikur fyrsta leik þess. Skráning fer fram á heimasíðu Hellis, www.hellir.com. HUGUR hf., hugbúnaðarfyrirtæki, veitir árlega fjárstyrk að upphæð 250.000 kr. til góðgerðar- eða líknarmálefnis í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina fyrirtækisins. Í ár var ákveðið að styrkurinn skyldi renna til Gigtar- félags Íslands. Styrkurinn er veittur til eflingar styrktar- og minningarsjóði Þorbjargar Björnsdóttur, sem er í vörslu Gigtarfélagsins, en tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk með gigtarsjúkdóma til náms. Undanfarin ár hafa árlegar styrkveitingar úr sjóðnum numið u.þ.b. 200.000 krónum. Veitt hefur verið úr sjóðn- um 13 sinnum frá árinu 1992. Stuðningur sjóðsins hefur tengst námi í framhaldsskóla, ýmsum hefðbundnum há- skólagreinum, tónlist og myndlist, hérlendis og erlendis, segir í fréttatilkynningu. Myndin var tekin þegar styrkurinn var afhentur í ár- legu jólaboði Hugar hf. Á henni sést Páll Freysteinsson, framkvæmdastjóri Hugar, afhenda Einari S. Ingólfssyni, formanni Gigtarfélags Íslands, viðurkenningarskjal vegna styrksins. Hugur styrkir Gigtarfélagið CARITAS á Íslandi, góðgerð- arsamtök kaþólsku kirkjunnar, efndu til styrktartónleika í þágu fatlaðra barna í Kristskirkju við Landakot sunnudaginn 20. nóv- ember og voru það 12. styrkt- artónleikar Caritas. Að þessu sinni var ágóðinn ætlaður Grein- ingar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Formaður Caitas á Íslandi, Sig- ríður Ingvarsdóttir, afhenti Stef- áni Hreiðarssyni, forstöðumanni Greiningarstöðvar, 650.000 kr. eða allan ágóða tónleikanna. Við það tækifæri tilkynnti Stefán að féð mundi renna í styrktarsjóð Greiningarstöðvar sem stofnaður var til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson sem lést árið 1995, þá tæplega fimm ára gamall. Markmið styrktarsjóðsins er að styrkja fagfólk til framhalds- menntunar og rannsóknarstarfa og hefur starfsfólk Greining- arstöðvar forgang að styrkveit- ingum úr sjóðnum, segir í frétta- tilkynningu. Á myndinni eru Stefán Hreið- arsson frá Greiningarstöð, Sigríð- ur Ingvarsdóttir, Caritas, og Ás- geir Þorsteinsson, formaður styrktarsjóðs Greiningarstöðvar. Morgunblaðið/Ásdís Caritas styrkir Greiningarstöðina Styðja hugmyndir um menntaskóla EFTIRFARANDI ályktun hefur borist frá Samfylkingarfélagi Borgarfjarðar: „Almennur fundur í Samfylking- arfélagi Borgarfjarðar, haldinn í Borgarnesi 7. desember sl., lýsir yfir fullum stuðningi við fram- komnar hugmyndir um stofnun Menntaskóla Borgarfjarðar. Fund- urinn skorar á menntamálaráð- herra að veita skólanum nú þegar starfsleyfi þannig að skólastarf geti hafist haustið 2006. Fund- urinn leggur jafnframt áherslu á að jafnrétti til náms verði tryggt óháð efnahagslegri getu og að skólagjöld íþyngi ekki nemendum umfram það sem er í ríkisreknum skólum.“ HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra hefur skipað starfshóp með fulltrúum stjórnvalda og aðila vinnu- markaðarins til að undirbúa aðgerð- aráætlunina „Einfaldara Ísland“. Meginmarkmið áætlunarinnar, sem kynnt var í stefnuræðu forsætisráð- herra nú í haust, verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks at- vinnulífs. Er starfshópnum ætlað að gera tillögur um hvernig best sé að standa að slíkri einföldun á meðan ábyrgð á því að hrinda áætluninni sjálfri í framkvæmd verður fyrst og fremst verkefni einstakra ráðu- neyta. Formaður starfshópsins er Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsæt- isráðuneytinu. Aðrir í starfshópnum eru Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, Baldur Pétursson, skrifstofu- stjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu, Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, Ingvi Már Pétursson, lög- fræðingur í fjármálaráðuneytinu, Katrín Pétursdóttir, framkvæmda- stjóri Lýsis hf., Kristinn Hugason, stjórnsýslufræðingur í sjávarútvegs- ráðuneytinu, og Sigríður A. Arnar- dóttir, skrifstofustjóri í umhverfis- ráðuneytinu. Starfshópnum er ætlað að skila til- lögum fyrir mitt ár 2006. Starfshópurinn verður ólaunaður. Nefnd skipuð til að skoða einföldun laga og reglna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.