Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 85
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 85
DAGBÓK
Kartöflur eru góðar –
en ekki í skóinn
NÚ þegar börnin okkar bíða jóla er
einn hlutur sem styttir þeim stundir
og gerir þennan tíma skemmtilegan,
skórinn er settur út í glugga.
Þessi siður er skemmtilegur og
trúi ég að flestir hafi gaman af.
Börnin eru spennt að kíkja í skóinn
og sjá hvað þessir góðu og skemmti-
legu karlar færðu þeim. En það er
svo skrítið að sumir jólasveinar
kjósa að niðurlægja börnin með því
að láta kartöflu í skóinn. Þessi litlu
grey sem eru svo spennt að bíða eft-
ir jólunum reyna að vera eins þæg
og þau mögulega geta, en eru trufl-
uð af stressi okkar fullorðna fólks-
ins.
Hverskonar refsing er það að fá
holla og góða kartöflu í skóinn? Er
svo illa komið fyrir foreldrum að þau
ráða ekki við börnin sín nema með
hótunum um kartöflu í skóinn? Við
fullorðna fólkið lítum á þetta sem
skemmtilegan leik, en við megum
ekki gleyma því að börnin líta þetta
öðrum augum – mjög alvarlegum
augum.
Mig langar að biðja fjölmiðlafólk
að hætta þessu tali um „kartöflu í
skóinn“ því sem betur fer eru alls
ekki allir jólasveinar sem gefa þær.
Ég var alin upp við það að jóla-
sveinninn var alltaf góður og gaf
alltaf eitthvað skemmtilegt í skóinn
– það var skemmtilegur tími.
Að lokum. Verum góð við börnin
okkar. Styttum þeim biðina til jóla.
Gerum þau ekki óþarflega stressuð
og kvíðin. Njótum aðventunnar án
hótana.
Lesandi.
Mynd eftir Tryggva
Magnússon
UM 1930 málaði Tryggvi Magn-
ússon mynd sem tengdist þjóðsög-
unni „Sjaldan hef ég flotinu neitað“.
Á henni eiga meðal annars að vera
norðurljós á himni.
Myndin var lengi í einkaeign en
við erfðaskipti seint á 20. öld var hún
seld fyrir milligöngu Gallerís Borg-
ar. Bókhaldsgögn þess fyrirtækis
eru glötuð svo ekki er vitað hver
keypti myndina.
Vegna alþjóðlegrar könnunar á
norðurljósum sem sjaldgæfu mynd-
efni á málverkum eru þeir sem
kunna að vita hvar þessi mynd er
niður komin beðnir að láta vita.
Árni Björnsson,
s. 551 4654, 866 4709,
netfang: arnibj@natmus.is
Svartur Sony
Ericsson-sími týndist
ÉG var á leið úr bænum að morgni
laugardags (3. des.) og týndi síman-
um mínum annaðhvort í leigubílnum
eða fyrir utan heimili mitt í Hól-
unum. Þetta er svartur Sony Er-
icsson, nokkuð af ryki inni á skján-
um. Það eina sem ég veit um
leigubílstjórann er að hann var að
keyra fyrir annan mann. Skilvís
finnandi vinsamlega komi símanum
til óskilamunadeildar lögreglunnar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
1. d4 d5 2. c4 c6 3. e3 Rf6 4. Rf3 Bf5 5.
Db3 Db6 6. Bd2 e6 7. c5 Dc7 8. Rc3
Rbd7 9. Be2 Be7 10. 0–0 0–0 11. Hfc1
Re4 12. Be1 Hfe8 13. Dd1 Bf6 14. Rxe4
dxe4 15. Rd2 e5 16. Rc4 exd4 17. exd4
Bg6 18. Re3 Had8 19. Da4 Db8 20. Hd1
Rf8 21. Bg4 Re6 22. Bxe6 Hxe6 23. Bc3
Bh5 24. Hd2 Bg5 25. d5 Bxe3 26. fxe3
cxd5 27. Hf1 f6 28. Hf5 Bf7 29. Dd4
Hc6 30. Hf4 b6 31. Da4 Hxc5 32. h4
Dc7 33. Dd1 Hxc3 34. bxc3 Dxc3 35.
Hxe4 Hc8 36. He7 Dc5 37. Hxa7
Dxe3+ 38. Kh2 He8 39. Hc2 d4 40.
Hd7 Bg6 41. Hb2 d3 42. Db3+ Kh8 43.
Dxb6 Df4+ 44. g3 Dc1 45. Hf2 Be4 46.
g4 Dh1+ 47. Kg3 Dg1+ 48. Kf4 Dc1+
49. Kg3 Dg1+ 50. Kf4 h6 51. h5 Bc6 52.
Hd8 d2 53. Hxe8+ Bxe8 54. De3
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lýkur á morgun, 18. desem-
ber, í Khanty-Mansiysk í Rússlandi.
Brasíliski stórmeistarinn Giovanni
Vescovi (2.646) hafði svart gegn indó-
nesískum kollega sínum, Utat Adianto
(2.584). 54. … Dxf2+! og hvítur gafst
upp þar sem eftir 55. Dxf2 d1=D verð-
ur hann manni undir. Jólaskákmót KB-
banka fer fram í aðalútibúi bankans í
dag og hefst kl. 15.00. Gera má ráð fyr-
ir að handagangur verði í öskjunni en
tefldar verða hraðskákir og munu
margir af öflugustu skákmönnum þjóð-
arinnar vera á meðal þátttakenda.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
BRIDS. Guðm. Páll Arnarson. Birtist
laugardaginn 17. desember. Skrá:
m12-d17.gpa
Teiknivinna.
Norður
♠762
♥Á975
♦G5
♣G432
Suður
♠KDG3
♥KG
♦ÁK962
♣K5
Setjum okkur í spor suðurs, sem
er gjafari og vekur kerfisbundið á
sterkum tveimur laufum með þeirri
áætlun að sýna næst 20–22 punkta og
jafna skiptingu. Vestur doblar og
upplýsir þannig um lauflit. Síðan
liggur leið NS í þrjú grönd:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 2 lauf *
Dobl Pass Pass 2 grönd
Pass 3 lauf * Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Allir pass
Spilið er frá síðasta kvöldinu í
Kauphallartvímenningi Bridsfélags
Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag og
yfirleitt enduðu sagnir í þremur
gröndum. Þar sem umsjónarmaður
sá til gengu sagnir eins og að ofan er
rakið.
Vestur lá lengi yfir útspilinu, en
lagði loks hjartafjarkann á borðið.
Sagnhafi tók drottningu austurs með
kóng, spilaði spaðakóng og átti þann
slag. Spaðadrottning kom næst, sem
vestur drap eftir nokkra íhugun og
spilaði aftur hjarta (sexunni).
Nú er rétti tíminn til að meta stöð-
una. Hvernig er skiptingin? (Ekki
kíkja strax.)
Norður
♠762
♥Á975
♦G5
♣G432
Vestur Austur
♠Á104 ♠985
♥1064 ♥D832
♦4 ♦D10873
♣ÁD10987 ♣6
Suður
♠KDG3
♥KG
♦ÁK962
♣K5
Margt bendir til þess að vestur sé
stuttur í tígli (hann hefur sýnt lauf í
sögnum, spilað út smáu hjarta og
hikað í spaðanum áður en hann drap
á ásinn). Því er ólíklegt að það skili
árangri að spila litlum tígli á gosann,
eins og sagnhafi gerði í þessari stöðu.
Austur drap, spilaði laufi og vestur
tók þar tvo slagi og kom sér klakk-
laust út á spaða. Og þar með var
geimið tapað.
Ef sagnhafi sér fyrir sér stuttan
tígul í vestur, getur hann unnið spilið
með því að taka fríslagina á spaða,
ÁK í tígli (ef vestur skyldi vera með
tvílit), og spila svo litlu laufi að gosa
blinds. Eigi vestur ÁD í laufi og ekki
meira en tvíspil í tígli verður hann að
gefa blindum á hjartaás og laufgosa.
Matthías G. Þorvaldsson og Magn-
ús E. Magnússon unnu keppnina með
umtalsverðum yfirburðum. Júlíus
Sigurjónsson og Hrólfur Hjaltason
náðu öðru sætinu, en Sverrir Þór-
isson og Björn Friðriksson urðu
þriðju.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Hlutavelta | Þeir Heiðar Örn, Jón Ax-
el og Árni Hao héldu tombólu og söfn-
uðu kr. 4.546 til styrktar Rauða krossi
Íslands, söfnun vegna Pakistans.
Fréttir á SMS
Marimekko flytur um áramót úr
IÐU húsinu að Laugarvegi 7.
30-40%
afsláttur af öllum fatnaði til jóla.
Vönduð jólagjöf á góðu verði.
STÓRÚTSALA V/FLUTNINGA
Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla