Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 87

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 87
Nýlistasafnið | Snorri Ásmundsson til 19. desember. Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir – Gegga. Málverkasýning sem stendur til áramóta. Safn | Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Krist- inn E. Hrafnsson – Stöðug óvissa. Jón Lax- dal – Tilraun um mann. Út desem- bermánuð. www.safn.is Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – Postcards to Iceland. Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð | Jólasýning Lóu og Hulla er myndlistasýn- ing með jólaþema. Hér eru tveir mynda- söguhöfundar af krúttkynslóðinni að krota á veggi. Sundlaugin í Laugardal | Ólafur Elíasson sýnir olíulandslagsmyndir til jóla. Árni Björn Guðjónsson sýnir í anddyri sundlaug- arinnar fram yfir jól. Yggdrasil | Tolli til 25. jan. Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson til áramóta. Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni Matur og menning í Þjóðmenningarhúsinu eru sýnd málverk eftir Hjört Hjartarson. Hjörtur kallar sýninguna Myndir frá liðnu sumri. Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís- lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós- myndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljós- myndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20. febrúar. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga nema mánudaga í vetur frá kl. 10–17. Vönduð hljóðleiðsögn, margmiðlunarsýning og gönguleiðir. Vel- komin. www.gljufrasteinn.is Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja- safnið – svona var það, Fyrirheitna landið – fyrstu Vesturíslendingarnir; mormónar sem fluttust til Utah, Bókasalur – bók- minjasafn, Píputau, pjötlugangur og dig- gadaríum – aldarminning Lárusar Ingólfs- sonar, og fleira. Veitingastofa, safnbúð. Þjóðmenningarhúsið | í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveitingunni til Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn sett upp sýningu í bókasal Þjóðmenning- arhússins. Sjá má sjálfan Nóbels- verðlaunapeninginn, kjólinn sem Auður Laxness klæddist við afhendingarathöfn- ina, borðbúnað frá Nóbelssafninu í Svíþjóð ofl. Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár- angri fornleifarannsókna sem njóta stuðn- ings Kristnihátíðarsjóðs eru til sýnis í and- dyri Þjóðmenningarhússins. Rannsóknirnar fara fram á Skriðuklaustri, Hólum, Þingvöllum, Keldudal, Reykholti, Gásum, Kirkjubæjarklaustri og Skálholti. Auk þess eru kumlastæði um land allt rannsökuð. Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstár- legar og vandaðar sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og miðla þekkingu á menningararfi Íslend- inga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Bækur Á næstu grösum | Sigríður Jónsdóttir les úr ljóðabók sinni Einnar báru vatn á veit- ingastaðnum Á næstu grösum, Laugavegi 20b, 17. des. kl. 18.30–19.30. Þetta er fyrsta bók skáldkonunnar. Debenhams | Í dag kl. 16 ætlar Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona að lesa upp úr bók- inni Draumaveröld kaupalkans. Maður lifandi | Upplestur úr bókum. Versl- anirnar eru opnar frá kl. 10. Í Hæðasmára á milli kl. 13 og 14. Þar mun Árelía Eydís Guð- mundsdóttir lesa upp úr bók sinni Móti hækkandi sól. Í Borgartúni 24, á milli kl. 14 og 15 mun Birgitta Jónsdóttir Klasen kynna bók sína frá því í fyrra Læknum með höndunum nútíma þrýstimeðferð. Þjóðmenningarhúsið | Einn af öðrum tín- ast höfundarnir í Þjóðmenningarhúsið dag- ana fyrir jól og skjóta áhlýðendum skelk í bringu með hrollvekjandi upplestri úr nýj- um verkum sínum: Í dag kl. 12.15; Hreinn Vilhjálmsson les úr bók sinni Bæjarins verstu. Rauðrófusúpa á veitingastofunni. Allir velkomnir. Dans Broadway | Dansleikur með Á móti sól frá miðnætti. 1000 kr. inn. Skemmtanir Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson sem spilar. Café Aroma | Drengirnir í hljómsveitinni Menn ársins skemmta í kvöld. Aðgangur ókeypis. Gaukur á stöng | Hljómsveitin Bermuda heldur ball. Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og hljómsveit kl. 23. Sjallinn, Akureyri | Sálin hans Jóns míns með tónleika í kvöld. Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér- sveitin leikur, frítt inn til miðnættis. Uppákomur Bókabúð Máls og menningar | Gerður Kristný og Telma Ásdísardóttir kynna og árita bókina Myndin af pabba, kl. 13.30, Brynhildur and the BBQ́s, kl. 14.30, Mug- ison kl. 15 og Hjálmar kl. 16. Lækjartorg | Aygo og Toyota á Íslandi halda hátíð kl. 22–24 á Lækjartorgi þar sem hljómsveitirirnar Brain Police og Dikta skemmta. Aygo hjólhýsið á staðnum og heitt á könnunni og bakkelsi með. Vinstrihreyfingin – grænt framboð | Litlu jólin hjá VG-R verða haldin í hátíðarsal flokksins, Suðurgötu 3, kl. 14–16. Björk Vil- helmsdóttir flytur jólahugvekju og rithöf- undarnir Þráinn Bertelsson, Guðjón Frið- riksson og Guðrún Eva Mínervudóttir lesa úr verkum sínum. Hin árlega smáköku- keppni verður haldin í annað sinn. Fyrirlestrar og fundir Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist og samnefnd bók eru afrakstur 25 ára rannsóknarvinnu Hrafnhildar Schram listfræðings. Sýningin fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru fæddar á síðari hluta 19. aldar. Leiðsögn Hrafnhildar er um sýninguna í dag og á morgun. kl. 15. Fréttir og tilkynningar Hafnarfjörður | Jólaþorpið verður opið kl. 12–18 í dag. Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins 17. desember er 7744. Skógræktarfélag Íslands | Helgina 17. og 18. des. verða skógræktarfélögin með sölu á jólatrjám á eftirftöldum stöðum: Í Höfð- askógi hjá Selinu, lau, kl. 10–18, sun. kl. 10– 16, í Hamrahlíð í Úlfarsfelli kl. 10–16, í Daní- elslundi kl. 11–16, í Kjarnaskógi kl. 10–18, í Eyjólfsstaðaskógi kl. 12–16, í Heiðmörk, lau. kl. 11–15, í Haukafelli lau. kl. 11–16, í anddyri Grunnskólans í Stykkishólmi kl. 11–16. Skógræktarfélag Kópavogs | Jólatrjáa- sala að Fossá í Hvalfirði. Síðasta söluhelgi er 17. og 18. des kl. 11–15. Verð trjánna fer eftir stærð. Nánari upplýsingar veita Sig- ríður, sími 8998718, og Pétur, sími 8693276. Börn Þjóðminjasafn Íslands | Íslensku jólasvein- arnir í Þjóðminjasafninu. Jólasveinarnir koma alla daga 12.–24. desember kl. 11 virka daga (og á aðfangadag) en kl. 14 um helgar. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 87 DAGBÓK Einar Örn Einarsson heldur eins ogmargir aðrir eins konar dagbók ábloggsíðu sinni um það helsta semhann er að gera. Einar er spænsku- mælandi og vann um sex mánaða skeið í Mexíkó- borg. Áður hafði hann verið skiptinemi í Venes- úela. Hann tjáir sig í stuttum pistlum um málefni líðandi stundar en birtir einnig greinar og at- hyglisverða tengla sem hann hefur rekist á. Ný- lega efndi Einar til uppboðs á bloggsíðu sinni á ýmsum eigum sínum, gömlum DVD-diskum, tölvuleikjum, fótboltatreyjum og CD-diskum, þurrkara og rauðvínsflöskum. Allur hagnaðurinn rennur óskiptur til fátækra barna í Mið- Ameríku. „Ég hef mjög lengi verið að sanka að mér DVD-diskum og ýmsu drasli sem maður hefur keypt eins og óður maður,“ sagði Einar Örn. „Þetta gaf manni ekki neitt. Maður horfði á myndina einu sinni, síðan lá þetta bara einhvers staðar niðri í skúffu. Ég hef ferðast mikið um Mið- og Suður-Ameríku og hef séð alla fátæktina og eymdina sem er þar á vissum stöðum. Núna í haust var ég í Mið-Ameríku og ég ákvað að gera eitthvað í málinu og nota netið.“ – Þú býður fólki að bjóða í hlutina sem þú gef- ur. Leggja einhverjir fleiri hluti í þetta? „Nei, ég hef verið einn um það. En það er al- veg mögulegt að það breytist, áðan hafði strákur samband við mig og vildi gefa tölvuspil. Sjálfur hef ég boðið upp eldgömul Nintendo-spil, sumir vilja kannski rifja upp æskuna! Þetta yrði svo miklu meiri vinna ef ég væri með hluti frá öðr- um, það er heilmikil vinna að halda utan um þetta eins og það er. Ég á eftir að koma þessu öllu frá mér og innheimta peninginn.“ – Nú er stundum ríkjandi tortryggni vegna safnana. Hvernig tryggirðu að allt fari rétt fram? „Fólk getur séð hæstu tilboðin á síðunni minni, það fer ekkert á milli mála hver ég er. Þegar ég afhendi peningana mun ég tilkynna hve mikið safnaðist og ég legg náttúrulega heiður minn að veði. Þegar ég fór af stað vissi ég ekki hvað þetta yrði mikið, mér datt ekki í hug að fólk myndi kaupa gamlar Liverpool-treyjur af mér! Það er til mikið af litlum hjálparsamtökum sem vinna í smábæjum í t.d. Gvatemala í Mið- Ameríku við ýmis verkefni, sum styðja fátæka foreldra svo að börnin geti stundað skóla en þurfi ekki að vinna allan daginn. Ef maður gefur þessum minni samtökum eitthvað hefur maður meiri tilfinningu fyrir því hvert peningarnir fara en ef það eru stórar, alþjóðlegar stofnanir. En ég ætla ekki að ákveða hvaða samtök fá þetta fyrr en söfnun er lokið,“ sagði Einar Örn Einarsson. Söfnun | Safnar fé með uppboði á bloggsíðunni handa fátækum börnum í Mið-Ameríku Ákvað að gera eitthvað í málinu  Einar Örn Einarsson er fæddur í Reykjavík 17. ágúst 1977 en alinn upp í Garðabæ. Hann útskrifaðist með hagfræðigráðu frá Northwestern-háskóla í Evanstown í Illinois ár- ið 2002 og býr nú í Reykjavík. Einar vinnur sem markaðsstjóri hjá innflutningsfyrirtækinu Danól en á auk þess ásamt vini sínum veitingastaðinn Serrano í Kringlunni. Einar heldur úti bloggsíðu, http:// www.eoe.is/, og safnar þar fé til stuðnings fá- tækum börnum í Mið-Ameríku. Stendur söfn- unin fram yfir helgi. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venju- lega. Kíktu við, skoðaðu dagskrána, líttu í blöðin og láttu þér líða vel yfir aðventuna t.d. í morgunkaffinu hjá okkur alla virka daga. Nokkrir miðar til á Vínarhljómleikana 6. jan. 2006. Munið Þorláksmessuskötuna! Uppl. 588 9533 Félag eldri borgara, Reykjavík | Að- stoð verður veitt við útfyllingu tekju- áætlunar Tryggingastofnunar ríkisins á skrifstofu Félags eldri borgara, uppl. í síma 588 2111. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16 opin myndlistarsýning Sólveigar Eg- gerz. Kl. 14.15 syngur Gerðuberg- skórinn undir stjórn Kára Friðriks- sonar í göngugötunni í Mjódd. Á mánud. 19. des. er jólahlaðborð í há- deginu og miðvikud. 21. des. er skötuveisla í hádeginu. Fimmtud. 22. des. kl. 14 er jólahelgistund í sam- starfi við Fella- og Hólakirkju. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venju- lega. Kíktu inn, líttu í blöðin, fáðu þér kaffisopa, skoðaðu dagskrána og láttu þér líða vel á aðventunni í Betri stofunni í hjá okkur. Jólatréð okkar er verulega fallegt. Munið skötuna á Þorláksmessu. Sími 568 3132. Kirkjustarf Íslenska Kristskirkjan | Íslenska Kristskirkjan, Fossaleyni 14 verður með „Friðarkvöld á aðventu“ kl. 20– 21. Þar verður ritningarlestur, íhug- un, ljóðalestur, jólasaga og ljúf tónlist við kertaljós. Kaffi og smákökur á eftir. EDDA útgáfa og veitingastað- urinn Apótekið hafa staðið fyr- ir bókabröns á laugardögum í desember. Apótekið hefur boð- ið upp á sérstakan jóladisk og gestir hlýtt á nokkra af helstu rithöfundum þjóðarinnar undir borðum. Þetta hefur mælst af- skaplega vel fyrir og gestir far- ið saddir og sælir út í jólaösina eftir notalega stund á Apótek- inu, segir í kynningu. Nú fer hver að verða síð- astur að njóta kræsinga undir skemmtilegum lestri því í dag er síðasti bókabrönsinn. Að þessu sinni les Þórarinn Eld- járn úr ljóðabók sinni Hættir og mörk og Marta María Jón- asdóttir og Þóra Sigurðardóttir úr skáldsögunni Djöflatertan. Dagskráin hefst klukkan 14.00. Síðasti bóka- brönsinn 70 ára afmæli. Í dag, 17. desem-ber, er sjötug Ásta Sigríður Gísladóttir ljósmóðir, Brunnum 25, Patreksfirði. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Fréttasíminn 904 1100 Meindl Colorado GTX Jólatilboð kr. 14.990.- verð áður kr. 17.990.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.