Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 61
Nonni
„Ég er búinn að kaupa allar jólagjafirnar,
gerði það síðasta mánudag. Ég er í
þannig vinnu að það verður brjálað að
gera og ég varð að klára þetta áður en
jólatörnin byrjar.“
Ertu búinn að
kaupa jólagjafirnar?
61LAUGARDAGUR 20. desember 2003
Rauði krossinn:
Úthlutar notuðum
fötum fyrir jólin
Deildir Rauða kross Íslands umallt land hafa varið um níu
milljónum króna til aðstoðar ein-
staklingum í mikilli þörf nú fyrir
jólin. Alls hafa um 20 milljónir
farið í slíka aðstoð á þessu ári.
Til viðbótar er notuðum fatnaði
úthlutað til hundruða manna.
Rauði krossinn hefur að undan-
förnu lagt aukna áherslu á fata-
flokkun og nýtingu fatnaðar, sem
er vandaður og heill, til aðstoðar
þeim sem á þurfa að halda.
Suðurnesjadeild er með fata-
úthlutun á föstudögum milli
klukkan 13 og 16.30. Deildin fékk
250.000 króna styrk frá Verslun-
armannafélagi Suðurnesja og
veitir aðstoð í formi matarmiða.
Yfirleitt njóta um 200 einstakling-
ar aðstoðar Rauða krossins á Suð-
urnesjum fyrir jólin. ■
Jólalegt í Grímsey:
Eyjarskeggjar iðnir
við að hittast
Ljósaskreytingar njóta sínóvíða betur en í Grímsey, þar
sem dagurinn er hvað stystur á
okkar landi um þennan tíma árs.
Þar er auð jörð og hefur varla fest
snjó í allan vetur að sögn Áslaug-
ar Helgu Alfreðsdóttur, húsfreyju
þar á staðnum. Hún kveðst heldur
kjósa snjó á þessum árstíma en
bóndi hennar, Garðar Ólason, sé
henni ekki sammála. Gæftir hafa
verið þokkalegar í desember en
nú eru allir bátar komnir í land og
sjómenn í jólafrí en unnið verður
í saltfiskinum út þessa viku. Í
versluninni Grímskjör er orðið
jólalegt og þar geta eyjarskeggjar
fengið alls kyns varning. All-
nokkrir fara upp á land yfir hátíð-
arnar en aðrir halda notaleg jól í
eyjunni og fá jafnvel til sín aðra
úr fjölskyldunni.
Kvenfélagið Baugur og
Kiwanisklúbburinn Grímur sam-
einuðu krafta sína og efndu til
glæsilegs jólahlaðborðs í sam-
komuhúsinu Múla nýlega. Að sögn
Áslaugar Helgu eru Grímseying-
ar duglegir að hittast. „Hér hafa
verið haldin spilakvöld, handa-
vinnukvöld og bingó, fyrir utan
veislur af öllum mögulegum til-
efnum,“ segir hún. Að sjálfsögðu
verður jólamessa og jólaball í
Grímsey og meira að segja ára-
mótadansleikur. ■
KIRKJAN Í GRÍMSEY
Sr. Magnús Gunnarsson, prestur á Dalvík, sér um helgihaldið.
FÖT FYRIR SKJÓLSTÆÐINGA
Í fataflokkunarstöð Rauða krossins að
Akralind í Kópavogi.