Tíminn - 21.12.1972, Side 38

Tíminn - 21.12.1972, Side 38
38 TÍMINN JoLABLAÐ 1972 regluþjónum i staupinu á sjálfri lögreglustöðinni? Nei, það getur þú bölvað þéruppá. Þetta verður met hjá okkur, og þetta getur komið sér vel seinna i lifinu. Friðþjófur féllst á þessa uppástungu, og ég stakk flöskunni i vasann. Nokkrum minútum seinna gengum við inn i þau salarkynni, sem nokkrum sinnum áður höfðu hýst okkur sem þrjóta og þorpara, sem ákærðir voru fyrir að raska næturfriði heiðarlegra borgara og brjóta i bág við lögreglusam- þykktir bæjarins. Lögregluþjónarnir gláptu á okkur galopnum augum. Ég ræskti mig. Svo tók ég til máls og hélt dálitinn ræðustúf um helgi og tilgang jóiahátiðarinnar. Kg sagði,að á slikum degi ættum við að gleyma allri misklið og óánægju. Að visu væri það satt, að stúdentarnir væru ekki um- vafðir neinni gloriu i augum rétt- visinnar, vegna, fáeinna smá- vægilegra óhappaatvika, og stundum — þvi miður — væri þetta álit gagnkvæmt. Kn nú væri það heilög skylda kristinna manna og láta allar erjur falla niður, og sá væri göfugastur, sem l'yrst rétti höndina eða öllu hcldur flöskuna — fram til sátta. Við hefðum hugsað mikið um það, hvaða tilfinningar hlytuað bærast i brjósti þeirra lögregluþjóna^sem neyddust til þess að vera á verði hina heilögu jólanótt, þegar enginn gerir mús mein i bænum og það getur talizt algerlega óþarft að halda vörð á stöðinni, þvi að andi kærleikans og friðar- ins svifur yfir engjunum, alveg eins og stjárnan yfir fjárhúsinu l'yrir nærri tvö þúsund árum siðan. Nú skyldum við tæma bikar kærleikans, friðarins og sáttanna af hinu ágæta Ulanders- púnsi, og lát það vera innsigli þess friðar, sem báðir striðs- aðilar hefðu svo lengi þráð. Þetta snerti ekki aðeins okkur eina: við kæmum i nafni allra stúdentanna, alls Háskólans, allt frá rektorað dyraverði, Við kæm- um i raun og veru i nafni alls þess hluta af sænsku þjóðarinnar, sem i l'ramtiðinni ætti að gegna öllum hinum mikilsverðu embættum, allt frá forsætisráðherranum niður i ------ja. hvað á ég að segja? — i einu orði: Skál og þökk fyrir allt, sem liðið er. Guð geíi, að við eigum eftir að lil'a margar jólanætur sem þessa. Ég rétti flöskuna að yfirlög- regluþjóninum - og sjá — hann greip hana. En þarna var aðeins eitt glas, það sem stóð á borði lögreglufulltrúans, og það þorði enginn maður að snerta. Hpnn gat komið á hverri stundu i eftir- litsferð. Svo drukkum við bara fjóriraf sama stútnum, og engill jólanna lagði blessum sina yfir alla athöfnina. Þetta var dásam- legt. Okkur var innanbrjósts eins og trúboðum, sem hefur orðið verulega vel ágengt i heiðnu landi. Kn klirrrrrrrrrrr. Siminn. Lög- regluþjónn þaut af simanum. - Afsakið herrar minir, en það er simað, að það liggi fullur maður á götunni hjá járnbrautar- stöðinni. Við verðum að sækja hann. — Já, ég veit hver það er, sagði égdrjúgur. - Það er hann Yxlöv gamli. Það er engin þörf á að bæði yíirvöidin fari að sækja hann. Annar er meira en nóg, ég fer með Við getum svo sopið dreggjarnar á eftir. Dauðans vandræði að verða að skilja svona fljótt. Mér er það enn þann dag i dag óskiljanlegt. að þessi jóla- stemming skyldi gripa lögreglu- þjónana svo föstum tökum, að þeir féllust á þessa uppástungi. Kriðþjófur sat kyrr, en ég hljóp út með lögregluþjóninum. Það var nistings kuldi, og við hlupum niður eftir Vaksalgötunni og inn i garð járnbrautarstöðvarinnar. Eftir nokkra snúninga fundum við manninn. Jú auðvitað var þaö Yxlöv gamli. Heimferðin til lögreglustöðvar- innar var ekki sérlega tignarleg. Við bárum gamla manninn á gullstóli, og hann hengdi höfuðið sofandi og skar hrúta i sifellu. Þó komumst við leiðar okkar, án þess að nokkrir nátthrafnar heftu för okkar. Ég trúði lögreglu- þjóninum fyrir syndum minum, sem sé þvi, að sá gamli hefði fengiö sprúttið hjá okkur — Ojá, ojæja, það er nú reyndar ekki svo alvarlegt svona á sjálfa jólanóttina, sagði hann — Við getum skolið honum inn og látið hann sofa þetta úr sér, og svo getur hann rambað heim á morgun. - Heldurðu að hann sleppi svo við sektir? Já, það verður þá varla meira en svona fimmkall, en annars þarl' það liklega ekki að verða neitt. Við getum látið hann sleppa. Þið félagar hafið nú verið svo höfðinglegir og skemmtilegir i kvöld, að maður gæti nú, svona vegna ykkar---------já, það kem- ur held ég enginn eftirlitsmaður á stöðina i kvöld. Það er allt svo rólegt á svona kvöldum. Við setlum nú Yxlöv gamla i steininn. Hann svaf eins og dauð- ur poki, sem bundið er rammlega fyrir opið á með spotta. Svo settumst við allir aftur að drykkju, en það var harla litið eftir, þvi að Kriðþjófur hafði skálað ósleitilega við sinn lög- regluþjón, meðan við voru úti. En við fengum að heyra margar og skemmtilegar sögur um nætur- lifið i Uppsölum. Við skáluðum og drukkum dús. Við reyndum jafn- vel að syngja svolitið, en þá datt einhverjum i hug, að það ætti ekki vel við að syngja i varðstofunni. En Kriðþjófur skeytti þvi engu og söng sem áður og losaði sig við alla þá fyndni, sem lá honum á hjarta. Ég hefði gaman af að vita, hvort lögregluþjónar á verði hefðu nokkurn tima lifað skemmtilegri jólanótt. Og þegar við fórum frá þeim, eftir að hafa sogið siðasta dropann úr flöskunni, þrýstum við innilega hendur hinna fyrri fjandmanna okkar, og óskuðum þess, að þeir yrðu brátt leystir af verði, svo að þeir gætu helgað sig heimilislifi sinu. konum og börnum. Þetta er eina jólanóttin, sem ég hel' lifað utan heimilis mins. Hamingjan var mér hliðholl i það sinn sem ætið endranær, og ég óska öllum þeim, sem lesa þessa æskuminningu — þ.e.a.s. til enda — hinnar sömu hamingju. — Sjáðu pabbi, hvað ég gerði á barnaheimilinu. Ég ætlaað gefa möminu það i jólagjöf. « JÓL Krap, og konur og menn ganga eftir hvissandi strætum eins og fólk á leið i strið, ganga búð úr búð og biðja um eitthvað fallegt. Þreyttur sezt ég á bekk, vonlaus um gleðileg jól, og stari i augu fólksins, haldin kristilegu æði, vonlaus um gleðileg jól. Unz litil stúlka kom til min, og tók i hönd mina og leiddi mig að litlum glugga á niðurgrafinni ibúð, benti og spurði: Finnst þér kertið mitt ekki fint? Kjartan Jónasson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.