Tíminn - 21.12.1972, Qupperneq 63
JOLABLAÐ 1972
TÍMINN
63
einstakir hlutar teknir með vissu
flugtima millibili og skoðaðir og
endurnýjaðir. Aukning flugtima
milli skoðana á hinum ýmsu
hlutum i flugv. og hreyflum er
einungis gerð i fyllsta öryggi og i
samræmi við Loftferðaeftirlit
rikisins og framleiðenda.
ICrling Aspelund — Ilótclrekstur Loftleiða
það miðuð. Þau eru þægileg, en án
óhófs, með góðum rúmum og öðr-
um húsgögnum, og steypibööum
(minni herbergin) eða baðkerum
(stærri herbergin)
Við erum með ráðstefnusal i
enda hússins. Hann er með
hallandi gólfi og 100 föstum
sætum. Þar er mjög góður tækja-
búnaður t.d. fullkomin túlkunar-
tæki, þannig að unnt er að túlka á
fjögur mismunandi tungumál i
einu, sýningarvélar fyrir kvik-
myndir, skuggamyndir og
glærur. Auk ráðstefna er salurinn
einnig hentugur til smærri leik-
sýninga og konserta. Við hliðina á
honum er annar fundarsalur, sem
skipta má i þrennt og nota ýmist
sem heild eða þrjár minni eining-
ar. Þessi salur getur tekið 200
manns.
Næst kemur veitingabúðin,sem
tekur 120 manns i sæti. Hún er
opin frá klukkan fimm á
morgnana til átta á kvöldin. Hún
er opnuð svona snemma vegna
þeirra farþega, sem eru að fara
úr landi með morgunvélunum.
1 kjallaranum eru skólastofur
Loftleiða. Smærri fundarsalir,
eru i húsinu t.d. svokallað stj,-
herbergi, sem er mjög hentugt
fyrir stjórnir félaga og fyrir-
tækja, til að koma saman og
Hótelrekstur Loftleiða
Hótelstjóri: ERLING ASPELUND
Starfsmannaf jöldi: 145—185
Aöstaða
Loftleiðir hafa komið sér
upp skemmu i Luxemborg til við-
gerða og skoðana Erhúnum 1600
fermetrar og stendur á Findel-
flugvelli. Hin nýja skemma er i
tengslum við skemmur, sem
félagið reisti fyrir nokkrum
árum vegna eldhúss og viðgerða-
og verkfræðideildar. Hins vegar
hafa Loftleiðir ekkert flugskýli i
Luxemborg, en vonir standa til,
að það verði í framtfðinni. Flug-
skýlisaðstaða er fyrir hendi i New
York og Keflavik, þegar á þarf að
halda.
Loks má geta þess, að deildinni
er skipt i eftirtaldar undirdeildir:
Eftirlitsdeild, verkfræðideild,
innkaupadeild, birgðahald, flug-
vélavarahluta, viðgerðadeild
flugvéla, verkstæðisdeild,
áætlunardeild, skoðanadeild á
millilendingarstöðum og við-
gerðadeild bila og áhalda.
Starfsmannafjöldinn var i
október 1972 á helztu stöðvum,
þ.e. New York, Keflavik, Luxem-
borg, Miami og Reykjavik, alls
134 og skiptast þannig eftir sömu
röð: 24-25-78-5-2. Almennt má
segja, að starfsmannaf jöldi
deildarinnar sé 100 manns á
vetrum og 150 á sumrin.
— Hótelið var opnað 1. mai árið
1966. Voru þá i þvi 108 herbergi.
Næsta stórbreyting á þvi var 1.
mai árið 1971, en þá var það
stækkað vel um helming. Bættust
við 110 herbergi, nýjir fundarsal-
ir, skólastofur, og veitingabúð.
Reksturinn hefur gengið sæmi-
lega frá upphafi. Það tekur hótel
yfirleitt þrjú til fimm ár að koma
sér á strik, og er það að sjálfsögðu
misjafnt, eftir þvi hvar þau eru
staðsett. Það tekur hótel á út-
kjálkum eins og hér á landi lengri
tima, þar sem umferðin er árs-
tiðabundin, mikil á sumrin, en
næstum engin stóran hluta ársins.
i stórborgum erlendis, þar sem
umferðin er allstöðug, gegnir allt
öðru máli.
Það gengur þvi fremur treglega
að láta þetta hótel bera sig, og er
það fyrst i ár, sem hægt er að
segja, að ástandið sé viðunandi,
þótt það sé raunar ekki alltof gott.
Til dæmis má nefna, að vegna
dvalargesta verður að halda uppi
veitingarekstri, en út af fyrir
sig skilar hann engum arði.
Iíeildir hótelsins eru
margar og þjónustan
innan þess er bæði góð
og í jölbreytt
— Hótelið starfar i ýmsum
deildum, og hótelið sjálft er deild
innan Loftleiða h.f. og er rekið
sem sjálfstæð eining, en þó i nán-
um tengslum við aðalskrifstofu
félagsins. 1 stuttu máli er yfirlitið
yfir hóteldeildina þannig, að ég
vinn samkvæmt fyrirmælum
stjórnarinnar og hef samvinnu
við ýmsar deildir félagsins, svo
sem Söludeildina, Farskrárdeild-
ina og Kynningadeildina, vegna
sölu, bókunar og kynningar. Þá
þarf ég að hafa samband við
Starfsmannahald vegna ráðninga
starfsfólks, Innkaupadeild, vegna
allra stærri kaupa, og skrifstof-
una vegna bókhalds og uppgjörs.
Hótelið sjálft skiptist i Gisti-
deild, en til hennar teljast her-
bergin og allt sem þeim tilheyrir,
sundlaugin og okkar eigið þvotta-
hús. Innan Vfeitingadeildar eru
þessar séreiningar: veitinga- og
fundarsalir, brauðgerð, tveir bar-
ir, vörulager, aðaleldhús, og
veitingabúð.
— Við erum með flugstöð i and-
dyri hótelsins, þar sem Loftleiðir
og brezka flugfélagið BEA hafa
aðstöðu. Pan Am var einnig með
afgreiðslu þarna, en þeir hættu að
fljúga til lslands i haust. Þá er
Rammagerðin með minjagripa-
verzlun hér i hótelbyggingunni.
Hér eru ennfremur rakarastofa,
hárgreiðslustofa, snyrtistofa fyr-
ir konur, og svo eru ferðaskrif-
ilalldór Guðmundsson — Viðgerða- og Verkfræðideild.
stofurnar i Reykjavik með
sameiginlegt fyrirtæki hérna,
sem heitir Kynnisferðir, en það
sér um kynnisferðir um borgina,
að Gullfossi, Þingvöllum, Geysi
og i Hveragerði og fleiri ferðir um
allt land. Mestur hluti þátttak-
anda i þessum ferðum eru frá
okkur.
Nýtingin áriö lí)72 tölu-
vert betri en 1971 —
Þetta stel'nir allt i rétta
att
— Nýting hótelsins það sem af
er árinu 1972 er allt frá 20% i
janúar og fer siðan stighækkandi
fram i júli, sem er toppmán-
uðurinn með 95% nýtingu. t ágúst
er nýtingin ögn minni, en i októ-
ber er hún 58%. Samsvarandi
hlutfall hefur enn ekki verið
reiknað út fyrir nóvember, en að
likindum verður það um 45%.
Útkoma þessi er nokkuð svipuð
þvi, sem við höfðum reiknað með.
Janúar var með nokkuð lægri
nýtingu en við höfðum áætlað,
febrúar svipaður, marz og mai
öllu lægri, og siðan eru april, júni,
júli, ágúst, október og nóvember
meðbetri nýtingu. Geta má þess,
að herbergjanýting hótelsins árið
1972 er töluvert betri en árið 1971,
enda þótt að herbergin hafi verið
helmingi færri fjóra mánuði árs-
ins 1971 (þ.e. fram til stækkunar-
innar 1. mai) Mismunurinn á
gestafjöida þessara tveggja ára
er þvi allmiklu meiri en saman-
burður á nýtingu gefur til kynna.
— Framtiðaráætlanir um
stækkun hótelsins eru engar, þvi
er fljótsvarað. Hér er engin að-
staða fyrir hendi til frekari
stækkunar. Við getum ekki byggt
ofaná. Það er með þessa bygg-
ingu eins og aörar i borginni, að
flugvöllurinn takmarkar hæð
þeirra. Þaö land, sem Loftleiðir
leigja hér af Reykjavikurborg er
fullnýtt, svo að ekki er heldur um
að ræða lengingu eöa viðbyggingu
hótelsins, enda yrðu gangarnir þá
of langir.
Aðastaðan til hvers
konar ráðstefnuhalds er
mjög góö
— 1 hótelinu eru 217 herbergi.
Af þeim eru 200 af svonefndri
,,standap.’ -gerð, tveggja manna,
en svo eru 17 herbergi af stærri
gerð. Þau eru að visu lika tveggja
manna, en það er meira borið i
þau.
Herbergin eru yfirleitt miðuð
við þá aðstöðu, sem hér er.
Gestirnir dvelja yfirleitt fremur
stuttan tima og eru herbergin við
ræða sin mál, og Leifsbúð og
Snorrabúð.
Veitingasalirnir eru tveir,
Blómasalurinn og Vikinga-
salurinn. Þá eru og tveir barir,
Vinlandsbar og Vikingabar. Þetta
er það helzta um aðstöðuna innan
hótelsins, en þó má bæta við, að á
hverri gistihæð er sjón-
varpsherbergi, eða aðstaða til að
horfa á sjónvarp. Einnig geta
gestir fengið leigð sjónvarpstæki
á herbergi sin.
Mikil áherzla lögð á að
la erlenda skemmti-
krafta
Fjóra daga vikunnar, þ.e. á
fimmtudögum, föstudögum
laugardögum og sunnudögum
eru dansleikir i sam-
komusal hótelsins. Reynum við
að fá erlenda skemmtikrafta til
að koma fram við þessi tækifæri
og þá oft heimsþekkta og vinsæla.
Þetta tekst yfirleitt, en þó koma
timabii, þar sem ekki er hægt að
fá neina, sem fengur er i. Erum
við einu aðilarnir hér á landi, sem
eitthvað verulega vinnum að
þessum málum.
Aðsóknin en mjög mikil á föstu-
dögum og laugárdogum, en litil
aðra daga. Það er eins með þessa
starfsemi og veitingareksturinn,
aö hún er ekkert gróðafyrirtæki.
Við verðum að bjóða gestum upp
á þessa aðstöðu, en höfum ekki
hagnað af. Margt kemur til, sem
gerir þessa og lika starfsemi svo
óarðbæra. Hráefnið er t.d. geysi-
dýrt, svo og vinnuaflið, þar sem
starfsemi þessi fer að mestu
fram á kvöldin eða seinni part
dags. Og þótt mönnum finnist ef
til vill verðlagið anzi hátt, þá er
það ekki nægilega hátt tilaðskila
arði.
— Eins og áður hefur komið
fram var nýting hótelsins i sumar
mjög góð, og má raunar segja, að
júni, júli og ágúst, hafi verið topp-
mánuðir, hvað nýtingu snertir,
En á mánuðunum á eftir og undan
dettur þetta niður. Þá má geta
þess, að i sumar þurftum við að
visa frá fjölda manns vegna ónógs
húsrýmis, og minnir mig, að það
hafi verið samtals um 1500
manns og 5.000 gistinætur, sem
við urðum að útvega þessu fólki,
annað hvort á öðrum hótelum i
borginni eða á einkaheimilum.
Hvað snertir tölur um gisti-
nætur, þá voru þær alls 56,729 allt
árið 1971, en voru 59.516 fyrstu tiu
mánuði þessa árs, þannig að út-
koman verður töluvert betri þetta
ár, 1972. Gistibeiðnir fyrir næsta
ár eru margar og fleiri en i fyrra,
en þó litið i vetur, nánast ekkert