Tíminn - 21.12.1972, Side 67
JOLABLAÐ 1972
TÍMINN
67
Hvítir þróunarpostular þvinga Nýju Guineu:
FRÁ STEINÖLD TIL
STEINSTEYPUALDAR
Næst (ii-ænlandi cr Nvja Ouinea stærsta eyja jarðar. Vestari hluti
lieniiar lýtur ludónesiu, eu eystri lilutiun Ástralíu. ibúarnir eru nálægt
þreni niilljónum.
Nýja Guinea er ef til vill eitt
rikasta land jarðarinnar frá nátt-
úrunnar hendi og jafnfranit i tölu
þeirra vanþróuðustu. ibúarnir
þar eru á steinaldarstigi. En hviti
niaðurinn vill leiða þá inn i heim
siðnienningarinnar og það skal
gerast l'ljótt. En hvi ekki að leyfa
þcim innfæddu sjálfum að ráða
framtið sinni?
Guinea var einu sinni óþekkt
land öðrum en mannætum og
paradisarfuglum sem þar höfðust
við. Nú er létt verk að telja bæði
mannæturnar og paradisarfugl-
ana. I staðinn er komið dynamit,
vélskóflur og steypuvélar, sem
hviti maðurinn notar til þess,sem
hann kallar þróunarhjálp i eyj-
unni. En mistökin liggja i þvi, að
þetta á að gerast i einu vetfangi.
Leiðina frá steinöld til nútima —
þjóðfélags er Papúunum ætlað að
stiga i einu skrefi.
Við getum þegar greint afleið-
ingarnar, óróa og örvæntingu
meðal hinna innfæddu. Hið hæg-
fara uppbyggingarstarf, sem
fram á miðan siðasta áratug ein-
kenndi stjórn Ástraliu á eyjunni,
hefur breytzt i eitthvað,sem likist
æði. Astandið minnir á Belgisku
Kongo um það leyti.sem hún fékk
sjálfstæði. Hættan á,að harmleik-
urinn þar endurtaki sig i Guineu
er yfirvofandi.
Of snemmt
í febrúar s.l. gengu Papúarnir
til þingkosninga i þriðja sinn sið-
an 1964. Nokkrir stórir flokkar;
PANGU, sem er verkamanna-
flokkur, og UNITED PARTY,
flokkur plantekrueigenda, buðu
fram og að auki litill flokkur og
nokkrir óháðir frambjóðendur.
PANGU bar sigur úr býtum i
kosningunum, en gat aðeins
myndað stjórn með aðstoð óháðra
og nú litur út fyrir, að hinum
ihaldssinnaða flokki plantekru-
eigenda sé að takast að skapa
óeiningu innan stjórnarinnar
vegna sjálfstæðismálsins.
Stjórnin hefur ákveðið.að landið
skuli fá sjálfstæði innan tólf mán-
aða, en sterk andstaða er gegn
þvi,sem kallað er „ótimabært
sjálfstæði". Papua — Nýja
Guinea, eins og hið nýja riki mun
heita, hefur enn ekki á að skipa
umtalsverðum fjölda menntaðs
fólks og landið er mjög háð Ástra-
liu efnahagslega.
Rétt er að nefna i þessu sam-
hengi þá samvinnu, sem hófst
fyrir alvöru á sjötta áratugnum.
F"vrir hennar tilstilli hafa margir
papúar hlotið menntun og þannig
orðið færir um að sinna stjórnar-
störfum a.m.k. heima fyrir. Þessi
þjóðlega samvinna hefur vaxið
með árunum og nær nú til flestra
greina atvinnulifsins einkum þó
landsnytja.
Eitt af þvi,sem nú er hvað ákaf-
ast unnið að i sambandi við upp-
byggingu efnahags landsins, er
ræktun Pyrethrum jurtarinnar.
Pyrethrum , sem tilheyrir
Chrysantemum ættinni, hefur
gjörbreytt lifsháttum hjá þeim
Papúum, sem búa i 1800-2500 m
hæð, þar sem slik héruð eru ekki
sérlega vel fallin til ræktunar
annarra landbúnaðarvara.
Pyrethrum jurtin er nefnilega
mjög eftirsótt sótthreinsunar-
meðal, sem heimurinn hefur
miklu meiri þörf fyrir en kaffi og
hrágúm, sem markaðurinn er
þegar mettaður af.
En hið stóra vandamál er enn
til staðar. i landinu eru aðeins
nokkrir tugir innfæddra með
háskó'lamenntun. Sundrungin
meðal hinna innfæddu er ógn-
vekjandi. Hálf önnur milljón
manna talar sjö hundruö
tungumál.sem skiptast i yf.ir 2000
mállýzkur. Og hygmyndaheimur
steinaldarinnar er hvarvetna
rikjandi. Eitt litið atvik, sem
hendir i einu þorpinu, óvænt
dauðsfall eða bara það.að svin
hverfur, getur orðið kveikja að
striði milli ættflokka. Það getur
jafnvel leitt til áralangs ófriðar-
ástands. Þannig þarf aðeins litinn
neista til að tendra ófriðarbálið.
Raunar eru nú i dag slikir
árekstrar á ferðinni, svo að hin
nýja Papúa-Nýja Guinea virðist
standa á heldur ótraustum
grunni.
sem þorri ibúanna veit nánast
ekkert um það haf, sem umlykur
landið, hvað þá um það, sem
handan þess er. 90% eyjar-
skeggja eru sér þannig algerlega
óvitandi um umheiminn.og heyri
þetta fólk einhvern tima i hinni
opinberu útvarpsstöð,sem sendir
út á 40 tungumálum,þá yrðu þeir
engu nær þótt þar væri talað um
Nixon og Kosygin, VietNam eða
BanglaDesh. Fyrir meirihluta
hinna innfæddu er Amerika ein-
hvers staðar i næsta héraði eða
allt eins vel handan mánans.
Aukinni skólagöngu og auknu
samneyti við hina hvitu fylgja
vitaskuld meiri upplýsingar um
umheiminn, en það er sjaldgæft,
að hinir eldri Papúar trúi þvi,sem
skólafólkið segir þeim, ef það er
gegn þeirra eigin sannfæringu.
Þrýstingur utan frá
1 höfuðstaðnum, Port Moresby,
sitja nú hvitu mennirnir og vinna
að skýrslum og áætlunum.sem
miða að þvi að koma á einingu i
hinu nýja riki. Reynt er að skapa
þjóðernistilfinningu og samheldni
meðal Papúanna. Áróðursspjöld
eru prentuð á mörgum málum
með áletrunum eins og ,,Við erum
öll meðlimir einnar stórrar ætt-
ar”, o.þ.u.l. Meiningarlaus orð,
sem á engan hátt megna að brjóta
niður viðteknar hefðir Papúanna.
Þessi einingarviðleitni kemur
þannig utan frá. Hún veldur hin-
um innfæddu aðeins leiðindum.
Baráttan kemur ekki ,,að neðan”
frá fólkinu.sem á að tileinka sér
innihald hennar.
Hviti maðurinn.sem fyrir tiu
árum kallaðist vinur eða ,,andi
frá mánanunrTog var talinn guða-
ættar, er nú grýttur og skorinn i
stykki.
Fyrir tiu árum gátu hvitir
starfsmenn stjórnarinnar farið
einsamlir i rannsóknarleiðangra
vitt og breitt um landið, gátu
verið vissir um að mæta vinsemd
hvarvetna. Ég fór sjálfur i slikan
leiðangur i byrjun siðasta
áratugs, óvopnaður. Nú getur
enginn hvitur maður hætt á slikt.
Hvers sök er það?
„Uppbyggingarstarfsemin”
hefur farið inn á rangar brautir,
ekki hvað sizt vegna þess, að
henni hefur átt að hraða fram úr
öllu hófi. Þar bera Sameinuðu
þjóðirnar stóra sök. Þær hafa alla
tið siöan i lok sjötta áratugsins
rekið Ástraliustjórn til umfangs-
mikillar þróunarstarfsemi, um-
fangsmeiri en samanlögð aðstoð
Sviþjóðar við þróunarlöndin,
kristniboð og efnahagsaðstoð
með talin.
Nýja Guinea er land Papúanna
sjálfra.og þeir einir hafa rétt til
að ákveða framtið sina á sama
hátt og aðrar þjóðir. Hvaða rétt
hefur utanaðkomandi fólk til að
rifa 2,5 milljónir manna upp úr
steinaldarveru sinni og þvinga
upp á þá framandi menningu? Og
þetta á allt að gerast á 1/3 úr
mannsaldri. Ef við tökum dæfhi
af Afriku þá gerðist það á þrem
öldum.sem nú á að berja i gegn i
Guineu.
Fyrirmyndarhegðun
Ekki einu sinni það landsvæði,
sem eyjarskeggjar sjálfir eiga,
má selja öðrum en stjórninni.
Þetta er raunar skynsamleg ráð-
stöfun,sem vafalaust hefur forðað
frá mörgum árekstrum. En jafn-
vel á þessu sviði hefur hallað und-
an fæti. Hér hefur stjórnin ekki
heldur þekkt sinn vitjunartima.
Ástralska stjórnin og þróunar-
hjálpan á eyjunni hefur vakið upp
meðal Papúanna kröfur og eftir-
væntingu og þurrkað út hina
l'ornu undirgefni. En samt er
haldiðfast við n.k. „fyrirmyndar-
hegðun”, sem er viðlika forkast-
anleg og hin patrialska innræting,
sem hinir hvitu nýlenduherrar i
Afriku ástunduðu.
I Papúa-Nýju Guineu ræður
stjórnin sjálf markaðsverðinu,
kaupir vörurnar og dreifir þeim
með álitlegum hagnaði. Borgar-
búarnir fá aðeins mjög litinn
hluta kökunnar i sinn hlut. Nú er
þetta kerfi orðið uppspretta mik-
illar óánægju. Völd eru nú æ oft-
ar með i spilinu. Þess ber hér að
geta, að eignarhlutföll eru mjög
ólik innan hinna ýmsu ættahópa.
Núverandi markaðskerfi gæti þvi
verið hið eina ráð til aðkomasthjá
óeirðum. En i stað þess er það nú
kveikja að óerðum.
Á árinu 1969 greip stjórnin til
þess ráðs að beita valdi til að
tryggja.að lögin um markaðssölu
væru haldin. Ein ættin á eyjunni
hafði þá hafið mótmælaaðgerðii;
vegna þess að stjórnin bauð allt of
lágt verð fyrir landsvæði,sem er
auðugt af kopar. Námufélagið
Conzinc Riotinto hafði fengið
augastað á svæðinu.
Fyrirtækið var reiðubúið til að
tvöfalda verðið, en það var
stjórnarinnar að semja fyrir hönd
eyjarskeggja. Með vopnaskaki og
táragassprengjum voru þeir
hraktir af sinu eigin landi. Bylgja
uppþota skall siðan yfir nærliggj-
andi svæði.
Vaxtarverkir
Listann yfir vandamálin, sem
við er að striða, mætti lengja að
mun, vandamálin, sem varpa
skugga á framtiðina.
Stærstu bæirnir hal'a fengið
vaxtarverk. Þegar ég kom hið
fyrsta sinni til höfuðstaðarins.
Port Moresby,voru ibúarnir tiu
þúsund. Nú eru þeir um sextiu
þúsund.
Þetta er mjög likt þvi sem
undanfarið hefur verið að gerast i
rómönsku Ameriku. Fóik flykkist
til bæjanna frá öllum landshorn-
um til að leita að atvinnu og
peningum, svo að það geti öðlazt
hlutdeild i lifsgæðum hvita
mannsins. En flestir falla i gryfju
atvinnuleysis og yfirþyrmandi
aðlögunarvandkvæða i hinu nýja
umhverfi. Siðast en ekki sizl þeir,
sem fá vinnu, komast fljótlega að
þvi,að launin eru ekki i samræmi
við það, sem vænzt var, og
peningarnir hrökkva ekki til mik-
ils. Afleiðingin verður óánægja,
uppþot, handtökur og réttarhöld.
Óánægja snýst svo oftast upp i
hatur i garð hvita mannsins.og
þegar ég i vor heimsótti Port
Moresby,gat ég ekki gengið einn
um göturnar að kvöldi til án þess
að stofna mér i hættu.
Lögregluaögeröir
Þannig snerist þessi óánægja
og óvissa upp i óeirðir við Airport
Hotel i Mount Hagen eitt febrúar-
kvöld á þessu ári. Ég var þá ný-
kominn frá landsvæði þvi, sem
Huria ættflokkurinn byggir.
Um tuttugu Huriar höföu
drukkið út launin sin á bar hótels-
ins og hófu mótmælaaðgerðir á
sinn hátt. Fljótlega höfðu þeir
umkringt hótelið og striðsöskur
þeirra eiga ekki eftir að mást mér
úr minni.
Þessir Huriar höfðu komið
tveim vikum áður til Mount Hag-
en i atvinnuleit. Þeir fundu sig
brátt hlunnfarna, fengu ekki þau
laun, sem þeim hafði verið lofað,
þau hrukku ekki fyrir meiru en
vini. Þeir höföu hins vegar komið
i leit að allsnægtum i heimi hvita
mannsins.Búnir höfuðskrauti
sinu, fjöðrum páfugla og
paradisarfugla, gengu þeir út úr
DC 3 vélinni, sem flutti þá á
áfangastað. Sumir höfðu boga og
örvar.
Þetta febrúarkvöld voru her og
lögregla kvödd á vettvang. Allir
báru stálhjálma og höfðu skildi i
höndum. Ljóskastarar skáru
náttmyrkrið, og ég heyrði skot-
hvelli. Þegar allt var dottið i
dúrialogn á ný.gekk ög út og sá
hópi innfæddra staflaö upp á
vörubilspall. Siðan var þeim ekið
burt.
Asteitingarsteinar
Ástralia hefur gert mikið fyrir
þetta land.og það er þess vegna
hállu átakanlegra, að allt er að
fara úrskeiðis.
Ásteitingarsteinarnir i Papua-
Nýju Guineu eru margir og hroll-
vekjandi. Við höfum andstæðurn-
ar milli hins nýja og gamla, yfir
þúsund óskilgreinanlegar mál-
lýzkur. Oft á tiðum er um að ræða
eins konar táknmál sem gildir að-
eins fyrir afmörkuð svæði og af-
markaða hópa.
Við rekumst lika á eitt vanda-
mál meðal æskufólks, eituráhrif
menntunarinnar, þar sem aðeins
l'áir útvaldir la vinnu við sitt hæfi,
að ekki sé minnzt á framhalds-
menntun af einhverju tagi.
Þrátt fyrir að „þróunin” hafi
gengið með ofsahraða siðasta
áratuginn, lifir þó ennþá
meirihluti ibúanna i hugmynda-
heimi ættarsamfélagsins. Allt ber
þetta að sama brunni. Varla er
unnt annað en bera ugg i brjósti
um framtið Nýju Guineu.
Þýttog endursagt. JGK.
Vandaðar vélar
borga
sig
Hin góðkunna € J
HEUmRHEL bezt
hefur 6 lindahjól, hæði snýr og rakar.