Fréttablaðið - 22.12.2004, Qupperneq 2
2 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Félagsdómur:
Dómur mun falla í Sólbaksmálinu
KJARAMÁL Félagsdómur hafnaði í
gær kröfu Brims um að máli
Vélstjórafélags Íslands gegn út-
gerðinni vegna kjarasamnings
sjómanna á Sólbaki yrði vísað
frá dómi.
Forsvarsmenn Brims sögðu
samninginn ekki á vegum fyrir-
tækisins, heldur sérstaks út-
gerðarfélags í eigu Brims. Vél-
stjórafélagið vill að samningur-
inn verði ógildur með dómi þar
sem hann sé málamyndagjörn-
ingur.
Kjarasamningar við sjómenn
á Sólbaki voru gerðir án þátt-
töku stéttarfélaga og töldu for-
svarsmenn þeirra að samning-
arnir væru nauðasamningar og
ógn við almennan samningsrétt.
Taldi Vélstjórafélagið að samn-
ingarnir væru gerðir til að
freista þess að semja um lakari
kjör en kveður á um í kjara-
samningum sjómanna og út-
vegsmanna.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélagsins, segist ánægður
með niðurstöðuna. „Okkar mál-
staður virðist réttur og félags-
dómur vill að efnislegur dómur
falli.“
Félagsdómur mun taka mál
Vélstjórafélagsins til meðferðar
snemma á komandi ári.
- ghg
Niðurskurður gerir
forvarnir erfiðari
Niðurskurðurinn hjá SÁÁ gerir allt forvarnarstarf mun erfiðara, að sögn forstöðumanns Fræðslumið-
stöðvar forvarna. Hann segir að kallað verði eftir svörum frá stjórnvöldum um hvort markmið heil-
brigðisáætlunar Alþingis til 2010 séu gleymd.
HEILBRIGÐISMÁL Niðurskurður sá,
sem við blasir í starfi SÁÁ eftir að
fjárlög lágu fyrir gerir allt for-
varnastarf í áfengis- og fíkniefna-
málum mun erfiðara en ella, að
sögn Árna Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar
í fíknivörnum.
Að sögn Þórarins Tyrfingsson-
ar, yfirlæknis á Vogi, liggur fyrir
að fækka verður innlögnum um
300 á næsta ári. Ekki verður hægt
að bæta við fleiri ópíumfíklum í
viðhaldsmeðferð, bráðaþjónustu
verður að leggja af og hætt að taka
inn ungmenni undir 16 ára aldri.
Árni sagði að þótt málið sneri
að meðferðum þá hefði það áhrif á
forvarnir.
„Hann er tvíþættur. Annars
vegar hvað varðar börn og ung-
menni, en þar eru sameiginlegir
miklir hagsmunir í forvörnum og
meðferðinni. Þessi hópur þarf að
eiga sem greiðasta leið í meðferð,
því að hvert ár sem tapast þannig
að ungmenni haldi áfram í neyslu
er dýrmætt. Þar er um að tefla
þroska, nám og fleira sem fer for-
görðum í því ferli. Því lengur sem
þau eru í þessu ástandi, þeim mun
erfiðara verður að koma þeim á
réttan kjöl. Þetta er því mjög mið-
ur í því ljósi.“
Árni sagði að hinn þátturinn
sem sneri að forvörnum væri
fíkniefnamarkaðurinn úti í sam-
félaginu. Eftir því sem hann væri
minni, færri neytendur, minni
eftirspurn og þar af leiðandi
minna um efni, þeim mun auðveld-
ara ættu þeir um vik sem ynnu að
forvörnum.
„Þessi mikli innflutningur bein-
ist fyrst og fremst að stórneytend-
unum. Fíkniefni verða einnig fáan-
leg víðar og meiri líkur eru á að
ungmenni komist í snertingu við
efnin, á skemmtistöðum, í partí-
haldi og öðru viðlíka.“
Árni sagði að allt sem takmark-
aði aðgengi ungmenna að ráðgjöf
og meðferð og „runa af frumvörp-
um“ um að auðvelda aðgengi að
áfengi væri ekki í samræmi við
heilbrigðisáætlun sem Alþingi
hefði sett til ársins 2010. Fræðslu-
miðstöðin myndi kalla eftir svör-
um um hvort stjórnvöld væru búin
að gleyma þeim markmiðum sem
þau hefðu sett í áætluninni í heil-
brigðis- og forvarnamálum.
jss@frettabladid.is
Írak:
Flugskeyti
hæfir matsal
BAGDAD, AP 22 létust og rúmlega 50
særðust í sprengjuárás á banda-
ríska herstöð í borginni Mosul í
norðurhluta Íraks í gær. Samtökin
Ansar al-Sunnah hafa lýst yfir
ábyrgð á árásinni.
Talið er að flugskeyti hafi hæft
matsal í herstöðinni með fyrr-
greindum afleiðingum. Ekki var
vitað hversu margir hinna föllnu
og særðu eru bandarískir eða
íraskir en stöðin er notuð af bæði
bandaríska hernum og öryggis-
sveitum bráðabirgðastjórnar
Íraks.
Í fyrra dóu 17 bandarískir her-
menn eftir að tvær þyrlur af gerð-
inni Black Hawk rákust saman í
skothríð og hafa ekki fleiri fallið í
einni árás. ■
„Það ætla ég nú að vona ekki.“
Smári Geirsson er varaformaður bæjarráðs Fjarða-
byggðar. Það kom honum mjög á óvart þegar í
ljós kom að forstjóri væntanlegs álvers í Reyðar-
firði hygðist búa á Egilsstöðum. Alcoa hafði tjáð
bæjaryfirvöldum í Fjarðabyggð að stjórnendur ál-
versins myndu hafa lögheimili í sveitarfélaginu.
SPURNING DAGSINS
Smári, verður þetta fjarstýrt álver?
FORSTÖÐUMAÐURINN
Árni Einarsson segir að niðurskurðurinn á
Vogi komi niður á forvörnum.
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráð-
herra kveðst vilja hafa sam-
skipti ráðuneytisins og SÁÁ í
formi samninga og vísar til
þjónustusamnings sem er í gildi
nú. Hann segir að vilji menn
endurskoða þann samning þá
þurfi þeir að sækja formlega um
það samkvæmt ákvæðum hans.
Engin slík umsókn hafi borist
frá SÁÁ.
„Þó að menn taki upp viðræð-
ur um þann samning sem í gildi
er, þá er ekki víst að menn séu
með fjármuni í höndunum,“
segir hann og bendir á að til
SÁÁ renni nú um 500 milljónir
króna á ári. Þá fái samtökin til
viðbótar 7,7 milljónir króna á
næsta ári til að koma til móts við
lyfjakostnað til viðhaldsmeð-
ferðar ópíumfíkla.
Spurður hvort þessi þróun
væri samkvæmt markmiðum
heilbrigðisáætlunar Alþingis til
ársins 2010 þar sem kveðið væri
á um aukið aðgengi að meðferð-
arúrræðum fíkla og áfengis-
sjúkra og jafnframt því mark-
miði að dregið verði úr neyslu
áfengis og vímuefna sagði ráð-
herra afleitt ef skera þyrfti
niður þjónustuna. Hins vegar
væru fleiri stofnanir sem veittu
slíka þjónustu og mætti benda á
ummæli forstöðumanns Barna-
verndarstofu, sem teldi sína
stofnanir geta bætt við sig þjón-
ustu.
jss@frettabladid.is
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Jón Kristjánsson segir að vilji menn
endurskoða þann gildandi þjónustu-
samning þá þurfi þeir að sækja formlega
um það samkvæmt ákvæðum hans.
Heilbrigðisráðherra um niðurskurð SÁÁ:
Vill samskipti í formi samninga
YFIRLÆKNIRINN
Þórarinn Tyrfingsson segir að meðal annars þurfi að bæta bráðaþjónustu.
Ísafjörður:
Ófaglærðir
skrá sig veika
KJARAMÁL Tæplega 40 ófaglærðir
starfsmenn á fjórum af sex leik-
skólum hjá Ísafjarðarbæ skráðu
sig veika og mættu ekki til
vinnu í gær til að mótmæla
seinagangi í greiðslum í fram-
haldi af starfsmati hjá sveitar-
félögunum. Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri á Ísafirði, segir
að um ólöglega aðgerð sé að
ræða.
Málið átti að vera frágengið
fyrir 1. desember en ekki er
búið að greiða eftir því nema hjá
örfáum sveitarfélögum. Ísa-
fjarðarbær hefur frest til 31.
mars til að ganga endanlega frá
greiðslum.
„Starfsfólkið er skiljanlega
þreytt á því hve hægt þetta hef-
ur gengið,“ segir Halldór. „Ef
fólk er veikt þá er það veikt en
það liggur fyrir að þetta eru
samantekin ráð.“ - ghs
Á HAFNARBAKKANUM
Fulltrúar sjómanna reyndu að stöðva löndun úr Sólbaki þar sem þeir töldu kjarasamning
sjómanna um borð ólöglegan.