Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 14
14 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
SNJÓR Í KÍNA
Fyrsti snjór vetrarins féll til jarðar í Peking
á dögunum. Veturinn hefur verið óvenju
hlýr þar eystra og það var ekki fyrr en í
vikunni að menn þurftu að taka fram loð-
húfurnar sínar. Kuldakastið kemur þó ekki
í veg fyrir að laga og reglna sé gætt.
Guantánamo:
Fleiri ásakanir
um pyntingar
WASHINGTON, AP Bandaríska varn-
armálaráðuneytið rannsakar um
þessar mundir nýjar ásakanir um
að fangar í Guantánamo-her-
stöðinni séu pyntaðir og að her-
menn villi á sér heimildir við yfir-
heyrslur.
Bandarísku frelsissamtökin
hafa sýnt tölvupóst frá Alríkislög-
reglunni þar sem fram kemur að
FBI misbjóði að hermenn í
Guantánamo villi á sér heimildir
við yfirheyrsur og þykist vera
alríkislögreglumenn til að nýta
sér tengsl sem FBI hefur myndað
við suma fangana.
Tölvupósturinn gefur líka í
skyn að fangar séu beittir harð-
ræði í yfirheyrslum og að það sé
gert með samþykki Bandaríkja-
forseta, en bandarísk stjórnvöl
hafa ávallt neitað því. Frelsissam-
tökin komust yfir tölvupóstinn í
krafti upplýsingalaga.
Fangabúðirnar í Guantánamo
hafa verið í kastljósinu um skeið
en fyrrverandi fangar þar full-
yrða að þeir hafi verið pyntaðir.
Varnarmálaráðuneytið fullyrðir
að varðhaldið í Guantánamo sé
mannúðlegt og segist munu kom-
ast til botns í málinu. ■
Svava í Sautján:
Falsanir koma
upp öðru hvoru
VERSLUN Svava Johansen, kaup-
maður í Sautján, segist verða tölu-
vert vör við að fölsuð merkjavara
sé flutt inn og seld hér á landi, t.d.
þegar fólk reyni að skipta slíkum
vörum í verslunum NTC. Þetta
komi alltaf upp öðru hvoru og sé
leiðinlegt því um svik séu að
ræða. Sem betur fer sé tekið al-
varlega á þessum innflutningi og í
nágrannalöndunum sé tekið mjög
harkalega á honum.
„Við höfum séð ýmislegt fals-
að, t.d. Diesel-vörur. Eitthvað
hefur verið stöðvað en eitthvað
hefur líka farið inn á markaðinn.
Innflutningur á Stussy-vörum var
á sínum tíma stöðvaður. Svo er
líka mikið um falsaðar töskur frá
Prada og Luis Vuitton,“ segir
Svava.
„Ég þekki vörurnar og sé að
töluvert kemur frá Ameríku. Sum
vara hefur aldrei verið framleidd
hjá Gucci eða Luis Vuitton, samt
er fölsuð vara komin á markað
undir þekktum merkjum. Svo eru
falsararnir líka að búa til ná-
kvæmlega eins vörur og merkja-
varan er,“ segir hún.
Ekki er vitað hvar fölsuð
merkjavara er seld. - ghs
Morð á hjúkrunarkonum:
Tveir hand-
teknir
PARÍS, AP Franska lögreglan handtók
í gær tvo fyrrverandi vistmenn á
geðsjúkrahúsinu í Pau í Suður-
Frakklandi. Þeir eru grunaðir um að
hafa myrt tvær hjúkrunarkonur á
hrottalegan hátt á laugardag. Önnur
konan var afhöfðuð og höfði hennar
stillt upp á sjónvarpstæki.
Alls hafa átta menn verið hand-
teknir vegna málsins, þar af nokkr-
ir fyrrverandi vistmenn en sex
hefur verið sleppt. Jacques Chirac,
forseti Frakklands, hefur fordæmt
glæpinn og segir hann lýsa villi-
mennsku af hálfu gerendanna og
vill að þeir sæti hámarksrefsingu
þegar þeir eru fundnir. - bs
Jólagjöf til þín
Það er sælla að gefa en þiggja, þess vegna höfum við hjá Ömmubakstri ákveðið
að bæta við einni flatköku í pakkana hjá okkur yfir jólin, þannig að þegar þú opnar
flatkökupakka næst, þá færðu fimm flatkökur í staðinn fyrir fjórar. Svo viljum við
óska öllum landsmönnum nær og fjær, gleðilegra jóla og farsælls komandi árs.
Starfsfólk Ömmubaksturs
VIRKJANAFRAMKVÆMDIR „Verulegur
áhugi og eindreginn vilji er meðal
stjórnvalda til að einfalda umsókn-
arferli fyrir virkjanaframkvæmd-
ir,“ segir Helgi Bjarnason, skrif-
stofustjóri orku- og stóriðjumála.
Horft er til Noregs þar sem ein-
ungis er sótt um eitt leyfi. Öllum
upplýsingum er safnað saman af
þeim sem endanlega veita leyfið.
„Stefnan og tilhneigingin hefur
verið sú að reyna að einfalda
leyfisveitingar, stytta ferlið og
koma í betri farveg,“ segir Helgi.
Of margir hafi komið að því að
veita leyfin.
Helgi segir ekki ráðið hvenær
ferlinu verði breytt en málin hafi
oft verið rædd við önnur ráðuneyti
og sveitarfélög sem komi að mál-
um.
Ásgeir Margeirsson, aðstoðar-
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
gagnrýnir að mörg ár geti tekið að
afla þeirra nær tuttugu leyfa sem
þurfi til að hefja virkjanafram-
kvæmdir.
Helgi segir að komið sé inn á
málefnið í frumvarpi um breytingu
á mati á umhverfisáhrifum sem
liggur fyrir Alþingi.
- gag
Umsóknarferli virkjanaframkvæmda:
Vilji til að stytta ferlið
Lánasjóður
landbúnaðarins:
Kjöt í stað
jólakorta
HJÁLPARSTARF Lánasjóður landbún-
aðarins hefur í ár ákveðið að
verja hluta fjármuna sem ætlaður
var til jólaundirbúnings, til kaupa
á matvælum til styrktar hjálpar-
og líknarstarfi Mæðrastyrks-
nefndar og Hjálpræðishersins.
Stjórnarmenn lánasjóðsins,
Hjálmar Árnason þingmaður og
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest-
ur, útdeildu í gær 110 kílóum af
kjöti frá Sláturfélagi Suðurlands,
en sjóðurinn leitaði til félagsins
um samstarf. „Brást félagið hratt
og vel við og lagði sitt af mörkum
til að gera framlagið myndarlegra
en það annars hefði orðið, segir í
tilkynningu.
- óká
Eldur kom upp í hlöðu á Vorsabæjarhóli:
Náðu fljótt tökum
á eldinum
BRUNI Eldur kom upp í hlöðu á
bænum Vorsabæjarhóli í Gaul-
verjabæjarhreppi um klukkan
ellefu í fyrrakvöld. Eldurinn
logaði í heyi í hlöðunni sem er
áföst fjósi. Hvorki mönnum né
skepnum var meint af og gekk
slökkvistarf vel.
Kristján Einarsson, slökkvi-
liðsstjóri hjá Brunavörnum Ár-
nessýslu, segir vind hafa verið
hagstæðan því hann hafi staðið
af fjósinu en fyrsta verk
slökkviliðsins var að reykræsta
fjósið með yfirþrýstingsblásara
til að tryggja öryggi skepnanna
sem þar voru. Líklegt þykir að
eldurinn hafi kviknað út frá
vinnuljósi sem fallið hafði í hey-
ið þótt það hafi ekki verið stað-
fest. Kristján segir mikinn reyk
hafa komið frá heyinu.
Heykvíslar voru notaðar til að
færa heyið til og vatni var
sprautað á logann. Að sögn
Kristjáns tók ekki nema tuttugu
mínútur að ná góðum tökum á
eldinum. Hlaðan og fjósið
skemmdust ekki og tókst að
bjarga stórum hluta af heyinu.
Kristján segir að miklu hafi
munað um að bóndinn sprautaði
vatni á eldinn þar til slökkviliðið
kom á staðinn. - hrs
HLIÐIN AÐ FANGABÚÐUNUM
Fyrrverandi fangar í Guantánamo-búðun-
um fullyrða að þeir hafi verið pyntaðir.
SVAVA JOHANSEN
Svava segist hafa orðið vör við ýmsar falsanir, t.d. á Diesel, Prada og Luis Vuitton. Slíkt sé
kært þegar það komi upp.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N