Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 30
Jólatónlist
Notalegt er að taka saman alla eftirlætis jólatónlistina sína á einn geisla-
disk og spila á Þorláksmessunni á meðan maður skreytir jólatréð. Ágætt
er að blanda saman rólegri og fjörugri tónlist þannig að diskurinn endur-
spegli hvort tveggja hátíðleika jólanna og skemmtilegheit.[
Ætla að kanna listir og liti á Kúbu
Annars árs hönnunarnemar selja varning fyrir ferðasjóð.
Björg Guðmundsdóttir er hönnunarnemi á 2. ári.
Í Bakarabrekkunni við hliðina á
veitingahúsinu Lækjarbrekku
hafa annars árs nemar í hönnun-
ardeild Listaháskólans opnað jóla-
búð. Varningurinn er allur eftir þá
sjálfa og þar kennir ýmissa grasa
enda stunda nemendurnir nám í
fatahönnun, þrívíðri hönnun,
arkítektúr og grafík. Þarna eru
myndir og glös, fatnaður og
plaköt svo eitthvað sé nefnt.
Ágóðinn af sölunni fer í ferðasjóð
því nemendurnir, 43 talsins, ætla í
10 daga menningarferð til Kúbu
um mánaðamótin janúar-febrúar.
En hvað skyldu þeir helst ætla að
læra af Kúbumönnum? Björg
Guðmundsdóttir, sem stendur
vaktina í jólabúðinni, verður fyrir
svörum.
„Við ætlum að vera dugleg að
fara á sýningar og njóta þess sem
Kúba hefur upp á að bjóða í litum
og listum. Þarna hefur fólk ekkert
milli handanna nema það sem er
heimafengið, öfugt við okkur sem
getum farið út í búð og keypt hvað
sem er, hvaðan sem er úr heimin-
um. Það er örugglega hollt fyrir
verðandi hönnuði að átta sig á því
hvað þeir geta gert úr því sem er
í kringum þá og Kúba er ágætur
staður til þess.“
Spurð hvort þau viti eitthvað
um veðráttuna á Kúbu brosir
Björg og segir. „Það er fínt veður
þar á þessum tíma en það verður
ekkert legið á ströndinni,
djammað og djúsað. Þetta er of
dýr ferð til þess.“
Jólabúðin á loftinu yfir ferða-
mannamarkaðinum er opin frá
11.00 til 22.00 til jóla og að sögn
Bjargar hefur salan gengið ágæt-
lega. „Traffíkin eykst alltaf þegar
líður á daginn,“ segir hún bros-
andi og hlakkar til að komast til
Kúbu. ■
Miðbæ Háaleitisbraut 58 - 60 Sími: 553 2300
Skóverslunin - iljaskinn
Inniskór á konur og karla í miklu úrvali!
Góðir skór!
FALLEGAR JÓLAGJAFIR
Sloppar, náttföt, bolir og slæður.
Snyrtivörutilboð o.fl.
GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217
Ítölsk náttföt - amerískir heimagallar.
- íslenskar værðarvoðir og fleira
fallegt í jólapakkan
Diza • Ingólfsstræti 6 • S. 561-4000
Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla
Jólagjafir
]
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Skrautlegar jólakúlur eftir Oddnýju Magneu Arnbjörnsdóttur.
Athyglisverðir stólar úr skjólum.
Fatnaður er meðal þess sem selt er á markaðinum.
Myndverk eftir hönnuði framtíðarinnar.