Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 42
22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR Tinna Gunnlaugsdóttir, verðandi Þjóðleikhússtjóri, bar út Vísi í sínu hverfi, og kynntist sérþörfum sumra viðskiptavina sinna mjög vel. Leifsgata Ég fæddist á Leifsgötunni en man lítið eftir þeirri götu, hún var hluti af hinum stóra heimi sem maður hætti sér ekki út í. Ég man meira sérstaklega eftir bak- garðinum, en fyrir aftan húsið okkar var róla og þar lékum við okkur systurnar. Á lóðarmörkunum þar sem okkar garð- ur mætti næsta bakgarði voru tré og runnar og síðan steingirðing, myrkt svæði og dularfullt. Þarna týndi ég upp- áhaldsdúkkunni minni þegar ég var að leika með hana inni í runnaþykkninu og láta hana labba uppi á steinveggn- um. Ég missti hana yfir í næsta garð og þar með hvarf hún að eilífu inn í myrk- ur hins óþekkta. Á mörkum Dunhaga og Hjarð- arhaga Við fluttum í Vesturbæinn í háhýsi á gatnamótum Dunhaga og Hjarðarhaga þegar ég var þriggja til fjögurra ára gömul. í því hverfi ægði öllu saman, gömlum bröggum frá stríðsárunum í bland við minni hús og kofa og síðan allar nýbyggingarnar. Leiksvæði var stórt og fjölbreytt og náði frá Gríms- staðaholtinu og alveg niður í fjöruna við Ægisíðuna, þar sem gæsirnar og endurnar bjuggu og grásleppukarlarnir gerðu að aflanum á vorin. Á horni Fálkagötu og Tómasarhaga var mjólkurbúðin, þangað fór maður með mjólkurbrúsa fjölskyldunnar og svo var mælt í hann með málum úr stórum mjólkurbrúsa. Skyrið var í tré- tunnu og því slett á smjörpappír á vigt- inni og pakkað í kúpta böggla. Í bak- húsi við Fálkagötuna var fiskbúðin. Ég man eftir því að hafa verið send þangað eftir ýsu í soðið og að hafa komið með hana heim hangandi á vírspotta. Fljót- lega opnaði svo Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis, KRON, verslun á Dun- haganum. Stóra og nútímalega kjörbúð eftir þeirra tíma mælikvarða. Þar feng- ust allar nýlenduvörur, eins og það var kallað, þar var kjötborð með stórri vél- sög þar sem kindalærin voru söguð samkvæmt óskum viðskiptavinanna á staðnum, meðan þeir biðu. Mjólk og brauð var selt í sérverslun í sömu bygg- ingu, eða samstæðu, og þar var einnig fiskbúð og verslunin Perlon, sem seldi ýmsa smávöru. Í Perlon var gert við sokkabuxur, fallnar lykkjur prjónaðar upp aftur og þangað vorum við sendar með nælonsokka mæðra okkar. Þar var líka hægt að kaupa teygju í teygjutvist- ið, sem var mikið stundað, gott ef það var ekki hægt að fá húlla- hopp hringi þar líka. Í fisk- búðinni réð Dóri ríkjum, maður Jósefínu spákonu á Holtinu. Hann seldi manni ekki fisk á vírkrók, hann pakkaði honum inn í dag- blaðapappír. Hrognin og lifrina setti hann í sérstaka plastpoka. Dunhaginn og Hjarðarhaginn voru malargötur og þar var hægt að stika parís með spýtu, eða vaða í drullupoll- um þegar rigndi og búa til vegi og stífl- ur. Á kvöldin var farið í „yfir“ eða „brennó“ á róluvellinum. Á veturna þegar það var snjór, var Tómasarhaganum stundum lokað fyrir allri bílaumferð og honum breytt í sleðabrekku. Þá var mikið fjór í brekkunni frá gatnamótum Fálkagötu og Tómasarhaga og niður að gatna- mótum Tómasarhaga og Dunhaga. Við áttum bæði magasleða systkinin og skíðasleða, sem einn ók og annar sat framan á. Skíðasleðarnir voru forláta gripir sem eru því miður löngu hættir að sjást á götum borgarinnar. Ég bar út Vísi í hverfinu á tímabili, kynntist þá bakhúsum og skúmaskot- um, en einnig sérþörfum ýmissa ná- granna minna. Eldra fólkið í gömlu húsunum var sumt ekki með bréfalúgu, þá vildi það fá blaðið á húninn eða inn um eldhúsgluggann. Sumir vildu jafn- vel senda mann í mjólkurbúiðna, þegar þannig stóð á. Jósefína á Holtinu beið stundum eftir mér með innkaupanetið. Ég reyndi yfirleitt að lauma blaðinu varlega inn um bréfalúguna hjá henni, en það dugði ekki alltaf og þá svipti hún umsvifalaust upp hurðinni og rétti mér eldhúsbudduna og innkaupanetið. Svo kom fyrir að hún var upptekin við að spá, þá var kannski opið inn til hennar og forstofan full af skvísum að túpera sig meðan þær biðu eftir því að láta Jósefínu spá fyrir sér. Dunhagi, kjallari og miðhæð Fyrstu sambýlisár okkar Egils bjuggum við í kjallar- anum á háhýsinu á Dunhaganum, síðan fluttum við upp á miðhæðina og þaðan á Grettisgötuna. Það má því segja að ég hafi tekið nokkur tilhlaup að því að flyt- ja úr götu bernskuminninganna. Grettisgata Grettisgatan er löngu orðin mín gata, hér er ég búin að búa í aldarfjórðung og festa rætur í yfir 100 ára gömlu timbur- húsi nálægt hjarta borgarinnar og vil hvergi annarsstaðar vera. Göturnar í lífi Tinnu Gunnlaugsdóttur Leifsgata Dunhagi Hjarðarhagi Grettisgata Blaðburðarstelpan í hverfinu Hjátrú og hnífar Það eru ekki allar jólagjafir sem er einfalt að gefa. Þeir sem ætla til dæmis að gefa eldhúshníf eða veiðihníf í jólagjöf verða að hafa í huga að þeir eru að bjóða gamalli hjátrú birginn. Að sögn Valgarðs Ragnarssonar, verslunarstjóra Veiðibúðar- innar við lækinn í Hafnarfirði, er ekki mikið um að veiðihnífar séu gefnir í jólagjöf. „Það er í raun bannað að gefa hnífa, því samkvæmt hjátrúnni fylgir gefnum hníf ógæfa. Þeir sem ætla að gefa hníf, verða þá að muna að rukka krónu fyrir hann.“ Að sögn Símonar Jóns Jóhannssonar þjóðfræðings er hér um aldagamla hjátrú að ræða sem tengist öllum oddhvössum hlutum. „Það getur verið að þetta sé komið til vegna þess, að sá sem gefur hnífinn er ábyrgur fyrir því að sá sem fær hnífinn slasi sig ekki á honum. Þegar sá sem fékk hnífinn að gjöf, er búinn að borga eitthvað fyrir hann, þá er hann búinn að aflétta þeirri ábyrgð.“ Sú skýring hefur einnig verið lífseig að það verði að borga krónu fyrir hnífinn til þess að koma í veg fyrir að kutinn skeri á vináttuböndin. Þungur hnífur „ Það er ekki vandalaust að gefa hníf.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.