Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 38
Sveppi verður látinn
fljúga í hlutverki
Kalla á þakinu í leik-
stjórn Óskars Jónas-
sonar. Viðræður
standa yfir við
Borgarleikhúsið um
uppfærslu verksins
eftir páska.
Óskar Jónas-
son leikstjóri
vinnur nú að
undirbúningi
að uppfærslu á
Kalla á þakinu
í samvinnu við
Árna Þór Vig-
fússon. Sveppi
mun fara með
hlutverk Kalla
og Ragnhildur
Steinunn Jóns-
dóttir, fyrrverandi ungfrú Ísland, leikur
annað aðalhlutverk í sýningunni.
Óskar og Árni Þór eru í viðræðum
við Borgarleikhúsið um uppfærslu á
sýningunni. Að sögn Guðjóns Peder-
sen, leikhússtjóra Borgarleikhússins,
hefur ekki verið gengið frá samningum
en sýningin yrði sett á svið eftir páska.
Að sögn Árna er leikgerðin sænsk
og unnin eftir samnefndri bók Astrid
Lindgren sem kynslóðir Íslendinga
hafa lesið sér til skemmtunar. Davíð
Þór Jónsson þýddi og staðfærði leik-
gerðina.
Óskar mun leikstýra verkinu og
Árni Þór verður framleiðandi sýning-
arinnar. Árni Þór var framleiðandi
söngleiksins Fame sem sýndur var í
sumar en þar fóru Sveppi og Ragn-
hildur einnig með hlutverk.
Eins og aðdáendur Kalla á þakinu
muna úr bókunum er eitt helsta sér-
kenni Kalla það að hann getur flogið.
Spennandi er að sjá hvernig leikstjór-
inn mun leysa það verkefni að láta
Sveppa fljúga á sviðinu. Sveppi er hins
vegar ekki óvanur því að takast á loft,
því eins og margir eflaust muna var
honum kastað í dvergakastskeppni
sem fram fór síðasta sumar. Það á eftir
að koma í ljós hvort reynsla hans af
flugi muni nýtast honum í hlutverki
Kalla á þakinu.
Ensk hefð með íslensku ívafi
Á Englandi er gríðarlega rík hefð fyrir því að fara á völlinn á hinum svokall-
aða Boxing day, eða öðrum degi jóla. Angi þessarar menningar hefur teygt
sig víða og meðal annars náð að festa rætur sínar hér á landi. Sportbarinn
Ölver býður fótboltafíklum í veislu á annan í jólum og hefjast herlegheitin
klukkan ellefu um morgunin, þegar Íslendingaliðin Reading og Watford mæt-
ast í ensku fyrstu deildinni. Stanslaus dagskrá af gæðaleikjum er síðan langt
fram eftir degi, sem lýkur á leik WBA og Liverpool klukkan sex. Að sögn þeir-
ra hjá Ölveri verður jólagjöfin í ár fólgin í því að ekkert hátíðarálag verður
lagt á hamborgaratilboðið víðfræga. Fótboltafíklarnir geta því sloppið undan
einhverjum hluta jólahaldsins með enska boltann sem afsökun.
F2 4 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Morgunmatur Drykkjarjógurt er
hollur morgunmatur sem hægt er
að afgreiða snögglega nú þegar
enginn hefur tíma til neins.
Leikhús Öxin og jörðin er sýning
þar sem einhverjir hausar fá að
fjúka. Svo sannarlega alvöru fjöl-
skyldudrama.
Geisladiskurinn Sálmar með Ellen
Kristjánsdóttur, frábær hátíðardiskur
fyrir þá sem eru orðnir hundleiðir á
poppjólalögunum.
Kvöldhressing Heitt kakó með
þeyttum rjóma og piparkökum er
kvöldhressing sem allir á heimilinu
geta fengið sér.
Afþreying Singstar-
leikurinn er tilvalin
skemmtun yfir jólin,
þú þarft ekki að vera
frábær söngvari til
þess að vinna.
Sjónvarp
Nói Albínói í Ríkissjónvarpinu á ann-
an í jólum. Frábær íslensk kvikmynd
sem ætti að gleðja augu og eyru.
Kvöldgangan Að ganga í kringum
Tjörnina í Reykjavík er bæði róman-
tísk og heilsusamleg hugmynd.
Síðdegiskaffi Kaffi og með því á
Súffistanum í bókaversluninni Mál
og menning í reyklausu umhverfi
Íþróttir Enski boltinn fer ekki eins
og aðrir í frí yfir jólin. Hvað er betra
en að liggja á meltunni og horfa á
fótbolta á Skjá einum?
Myndbandið Þegar allt er lokað, og
þú ert orðinn of gamall fyrir barnaefn-
ið, þá ertu orðinn
nógu gamall til þess
að horfa á allt Tar-
antino-safnið. Algjör
skyldueign fyrir kvik-
myndafíkla.
velurF2
F2 er vikurit
sem fylgir
Fréttablaðinu
á fimmtu-
dögum.
Útgefandi
Frétt hf.
Ritstjórn
Jón Kaldal
Höfundar efnis í þessu hefti Borghildur
Gunnarsdóttir, Freyr Gígja Gunnarsson,
Kristján Hjálmarsson, Margrét Hugrún
Gústavsdóttir, Marta María Jónasdóttir
og Sigríður Dögg Auðunsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 550 5000
Netfang: f2@frettabladid.is
Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta-
blaðsins, Jón Laufdal, Einar Logi Vignis-
son, Ólafur Brynjólfsson.
Forsíðan Eva María, Eva Bergþóra
og Sirrý, sjá viðtal bls. 10
Ljósmynd Stefán Karlsson
Þetta og
margt fleira
06 Pólsk kjörbúð í Hafnarfirði.
08 Göturnar í lífi Tinnu
Gunnlaugsdóttur leikkonu.
10 Viðtal:
Konur verða að
standa saman
Sigríður D. Auðunsdóttir skrásetti
samræður sjónvarpskvennanna
Evu Bergþóru, Sirrýar og Evu Maríu.
14 Úttekt
Aðgát höfð
í nærveru sálar
Jólin eru tími fjölskyldunnar, gleði
og friðar en líka söknuðar og
sorgar þeirra. Freyr Gígja
Gunnarsson ræðir við fimm
sálusorgara um starf þeirra.
16 Jóhanna kristjánsdóttir segir frá
matargerðarlist Arabíu.
18 3 dagar: Þorláksmessufjör
og jólamessur.
Út að borða á aðfangadag ■ Pólsk kjörbúð í Hafnarfirði
Göturnar í lífi Tinnu Gunnlaugsdóttur ■ Arabískur matur ■ Jólamessurnar
F27. TBL. 1. ÁRG. 22. 12. 2004
Sálusorgarar
um jólin
Stöndum
saman stelpur
Eva María, Sirrý og Eva Bergþóra
Hvernig væri að fara með eigin-konuna og börnin í óvissuferð áaðfangadagskvöld. Vertu kom-
inn út í bíl fimm mínútur fyrir sex svo
þið náið messunni í útvarpinu. Eftir
messuna er tilvalið að snæða hátíða-
kvöldverð á Hótel Sögu eða á Nordica
Hótel. Veitingastaðurinn Vox á Nor-
dica Hótel er opinn alla daga ársins,
þar á meðal yfir hátíðarnar. Boðið er
upp á sérstakan jólamatseðil sem stát-
ar af síld, bjór og snafs, kaldreyktum
laxi sem borinn er fram volgur með
sítrónukrydduðum humarhala, sellerí-
rótarmauki, stökku brauði og silunga-
hrognum. Í aðalrétt er salvíukrydduð
kalkúnabringa í parmaskinkuhjúp með
sætum kartöflum, kremuðum kastan-
íuhnetum, steiktum villisveppum og
marsalasósu eða villigæsabringur með
steiktum eplum, pistasíum og rauðkáli.
Framreitt með tímian, krydduðum
rjóma og bláberjasósu. Í eftirrétt er
súkkulaðifrauð og jólaglöggshlaup
með rúsínum, möndlum, appelsínum,
piparkökucrumble og rjómaostsfroðu.
Í fyrra var í fyrsta skipti opið á Nordica
yfir hátíðarnar. Þá snæddi aðeins einn
Íslendingur á staðnum. Hann var þó
ekki aleinn því staðurinn var þéttskip-
aður útlendingum, mest af Bretum og
Bandaríkjamönnum. Nordica er þó
ekki eini staðurinn sem hefur opið því
boðið er upp á jólahlaðborð á Hótel
Sögu og þar verður opið til tíu um
kvöldið. Eftir matinn er málið að fara
heim og taka upp pakkana og hafa það
kósí fram eftir kvöldi í faðmi fjölskyld-
unnar. Þetta er líka góð
leið til að kenna ung-
viðinu biðlund og þol-
inmæði og sýna þeim
að aðfangadagur er svo
miklu meira en bara
endalausar gjafir. Fyrir
þá sem ekki eiga upp-
þvottavél er þetta alveg
kjörið. Það er ekkert
eins ósjarmerandi
eins og að standa
yfir vaskinum hálft
aðfangadagskvöld
og sofna um
kvöldið með rús-
ínuputta og upp-
þvottalögslykt í
vitunum.
Sveppi sem Kalli á þakinu
Jólamaturinn á Nordica og Hótel Sögu
Stemmningin á Ölveri er engri lík
Sveppi Eins og aðdáendur Kalla á þakinu muna úr bókunum er eitt helsta sérkenni Kalla það að hann getur flogið. Áhorfendur
sýningarinnar mega því búast við því að fá að sjá Sveppa takast á loft.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Óskar Jónason leikstjóri