Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 52
Miðvikudagur...
...ágætt er að kúpla sig út úr
jólastressinu og sjá tónlistarhópinn
Adapter flytja tónlistargjörninginn 1
mínúta á sýningunni Ný íslensk
myndlist í Listasafni Íslands. Gjörn-
ingurinn hefst klukkan tvö.
...fyrir þá sem þyrstir í fleiri tóna má
benda á að tónleikarnir Jólakötturinn
2004 verða haldnir í Austurbæ í kvöld.
Hljómsveitirnar Ókind, Lada Sport,
Ísidór og Benny Crespo’s Gang
koma fram. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 21.
Fimmtudagur...
...tilvalið er að byrja jólin á tónleik-
um með hljómsveitinni Ullarhattar
sem kemur fram á Hverfisbarnum og
flytur vel valin jólalög í bland við létt
popp. Sveitina skipa margir af fremstu
tónlistarmönnum landsins; þeir Stefán
Hilmarsson, Eyjólfur Kristjánsson,
Jón Ólafsson, Friðrik Sturluson og
Jóhann Klingenberg.
...friðargangan er
orðin órjúfanlegur
hluti af á Þorláks-
messu. Gengið er frá
Hlemmi og sem leið
liggur niður Laugaveg.
Hamrah l íðakór inn
leiðir gönguna niður á
Ingólfstorg en þar mun Eva Líf Einars-
dóttir flytja stutta ræðu. Gangan hefst
frá Hlemmi klukkan sex.
...þeir sem eiga
leið um Norður-
land eða búa fyrir
norðan geta skellt
sér í friðargöngu á
Akureyri. Gengið
verður frá Menntaskólanum við Eyrar-
landsveg og niður á Ráðhústorg. Embla
Eir Oddsdóttir flytur ávarp og kór Ak-
ureyrarkirkju syngur. Gangan hefst
klukkan 20.
Föstudagur...
...aftansöngur er ómissandi á að-
fangadag. Í Hallgrímskirkju verður aft-
ansöngur klukkan 18.00. Þar mun sr.
Sigurður Pálsson prédika og þjóna
fyrir altari. Mótettukór Hallgríms-
kirkju, Drengjakór Reykjavíkur í
Hallgrímskirkju og Unglingakór
Hallgrímskirkju syngja undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar og Harðar
Áskelssonar sem jafnframt verður
organisti. Frá klukkan 17.00 verður
flutt jólatónlist í kirkjunni. Flytjendur
eru Hljómskálakvintettinn og Hörð-
ur Áskelsson.
Miðnæturguðsþjónusta verður á
jólanótt og hefst klukkan 23.30. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur undir stjórn Harðar
Áskelssonar kantors. Hörður Áskelsson
leikur jólatónlist á Klaisorgel kirkjunn-
ar í hálfa klukkustund á undan guðs-
þjónustunni.
...í Dóm-
kirkjunni hefst
a f t a n s ö n g u r
klukkan 18.00.
Að þessu sinni
prédikar sr.
Jakob Ágúst
Hjálmarsson
og sr. Hjálmar
Jónsson þjónar
fyrir altari.
D ó m k ó r i n n
syngur og Marteinn H Friðriksson
leikur á orgelið. Ásgeir Steingríms-
son og Sveinn Birgisson leika á
trompet. Miðnæturmessa hefst klukkan
23.30 og þá mun herra Karl Sigur-
björnsson biskup prédika við náttsöng.
Sr. Hjálmar þjónar fyrir altari. Hamra-
hlíðarkórinn syngur undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur. Organisti er
Guðný Einarsdóttir.
...í Krists-
kirkju er miðnæt-
urmessa á jóla-
nótt. Þar mun
biskupinn Jó-
hannes Gijsen
prédika og þjóna
fyrir altari. Organisti er Úlrik Ólason
en kór Kristskirkju mun syngja meðan
á messu stendur.
22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
BÍÓ
Teikni-
myndin
The
Incredi-
bles
verður
frumsýnd
annan í
jólum.
Myndin
fjallar um
ofur-
hetjufjölskyldu sem er hætt í ofur-
hetjubransanum og farin að safna
spiki. Dullarfullir aðilar lokka fjöl-
skylduföðurinn aftur í súpergallann
með óvæntum afleiðingum. The
Incredibles er sjöunda mynd hins
stórkostlega fyrirtækis Pixar og
kemur á eftir hinni vel heppnuðu
Finding Nemo.
Leikraddir: Craig T. Nelson,
Holly Hunter, Samuel L.
Jackson, Wallace Shawn og
Jason Lee eru meðal þeirra sem ljá
ofurhetjunum raddir sínar en
myndin verður bæði sýnd með ís-
lensku og ensku tali.
Orðspor: Búast má við að The
Incredibles sé enn einn smellurinn
frá Pixar. Fyrirtækið hefur gert
bestu teiknimyndir síðustu ára og
má þar meðal annars nefna Toy
Story, Monsters Inc. og Finding
Nemo.
...Í takt við
tímann,
sjálfstætt
framhald af
Stuðmanna-
myndinni
Með allt á
hreinu,
verður ein-
nig frumsýnd á annan í jólum. Í
myndinni er þráðurinn tekinn upp
þar sem skilið var við Stinna Stuð,
Hörpu Sjöfn, Dúdda og félaga
þeirra fyrir 21 ári. Í myndinni eru
Stuðmenn orðnir heldur lélegt
band en hljómsveitarstjórinn
Frímann heldur samt í vonina og er
með stór plön í gangi.
Leikstjóri: Ágúst Guðmunds-
son.
Orðspor: Gríðarlegar væntingar
eru gerðar til myndarinnar enda er
Með allt á hreinu langvinsælasta
mynd íslensku kvikmyndasögunnar.
Stuðmenn eru þó óhræddir við
væntingarnar og sagan segir að
nýja myndin gefi þeir gömlu ekkert
eftir.
Undanfarin tuttugu og fimm ár hefur
Samstarfshópur friðarhreyfinga staðið
fyrir friðargöngu í miðri jólaösinni á
Þorláksmessu. Auður Karitas Ásgeirs-
dóttir, einn skipuleggjanda göngunnar,
segir að hún sé orðin fastur liður í jóla-
haldinu. „Það eru margir sem komu í
þessa göngu sem börn með foreldrum
sínum, og taka nú börnin sín með sér
þannig að jólin eru fyrst komin þegar
þeir hafa tekið þátt í friðargöngunni.“
Auður segir að ákveðin kynslóða-
skipti hafi átt sér stað í göngunni en ef til
vill sé unga kynslóðin í dag of heimakær.
„Það er margt ungt fólk sem er rosalega
pólitískt á kaffihúsunum en er ekki jafn
duglegt að sýna hug sinn í verki. Það
hefur oft verið þörf en nú er nauðsyn,“
segir Auður og bendir á stríðið í Írak og
ástandið í Palestínu og Súdan í því sam-
hengi. „Gangan tekur þó ekki málstað
eins eða neins, eða er að mótmæla einu
sérstöku stríði. Hún er einfaldlega að
mótmæla því ofbeldi sem stríð er.“
Gangan hefst á Hlemmi klukkan
sex en byrjað verður að selja kyndla
skömmu fyrir gönguna. „Hún fer niður
Laugaveginn og niður á Ingólfstorg.
Þar mun Eva Líf Einarsdóttir, nem-
andi í verkefnastjórnun á sviði mann-
réttinda og menningarmála, flytja
stutta ræðu og Hamrahlíðarkórinn
syngur nokkur jólalög. Einnig verða
friðargöngur frá Menntaskóla
Akureyrar klukkan átta og frá Ísa-
fjarðarkirkju klukkan sex.”
Friður beittasta vopnið
Auður Karitas
Einn skipuleggjanda friðargöngunnar á Þorláksmessu. Hún segir að oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
3 dagar...