Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 80
Rokkið fer í Jólaköttinn
22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Sjaldnast hefur það þótt eftir-
sóknarvert að fara í jólaköttinn,
en nú í ár bregður svo við að fjöldi
ungs fólks er staðráðið í að fara
beina leið í Jólaköttinn 2004, og
það strax í kvöld.
Jólakötturinn 2004 er nefnilega
heiti á tónleikum sem fjórar ung-
ar og sprækar rokksveitir standa
fyrir í Austurbæ í kvöld. Hljóm-
sveitirnar eru Ókind, Lada Sport,
Ísidór og Benny Crespo’s Gang.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
ráðumst í svona tónleikahald
sjálfir,“ segir Steingrímur, söngv-
ari og hljómborðsleikari Ókindar.
„Við höfum oft spilað á vegum
borgarinnar og víðar, en okkur
fannst skemmtilegra að drífa í
þessu sjálfir frekar en að sitja
bara og bíða. Hugmyndin er að
brjóta upp þetta tónleikahald
fyrir jólin og koma með svolítið
öðruvísi jólatónleika.“
Ókind varð í öðru sæti Músík-
tilrauna árið 2002 og sendi árið
eftir frá sér geisladiskinn
Heimsendir 18. Lada Sport
hreppti líka annað sætið í Músík-
tilraunum nú í ár, og Benny
Crespo’s Gang lenti í úrslitum á
Battle of the Bands fyrir skömmu.
Steingrímur á ekki von á því að
mikið verði flutt af jólalögum á
þessum tónleikum. Þar mun rokk-
ið ráða ríkjum.
„Ætli við verðum samt ekki að
taka Jólaköttinn,“ segir hann og
vísar þar í lag Ingibjargar Þor-
bergs sem Björk Guðmundsdóttir
flutti um árið.
Ókind tekur þetta lag svo gust-
ar af á jólaplötunni Stúfur, sem
kom á markað fyrir fáeinum vik-
um. Ekki er ólíklegt að Ísidór
flytji einnig á þessum tónleikum
lagið Jóla, jólasveinn, sem er á
sömu safnplötu.
Tónleikarnir í Austurbæ hefj-
ast klukkan 21.00 og aðgangseyrir
er 800 krónur. ■
■ TÓNLEIKAR
■ MYNDLISTARSÝNING
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara-
sögum Böðvars Guðmundssonar
Aðalæfing fi 6/1 kl 20 - UPPSELT
Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/1 kl 20 - gul kort - UPPSELT
Su 9/1 kl 20 - aukasýning - UPPSELT
Lau 15/1 kl 20 - rauð kort
Su 16/1 kl 20 - græn kort
Fö 21/1 kl 20 - blá kort
Lau 22/1 kl 20
Lau 29/1 kl 20
Su 30/1 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Fö 14/1 kl 20
Su 23/1 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 2/1 kl 14
Su 9/1 kl 14
Su 16/1 kl 14
Su 23/1 kl 14
Su 30/1 kl 14
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudagag og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Mi 29/12 kl 20 - UPPSELT
Su 2/1 kl 20
Fö 7/1 kl 20
Fö 14/1 kl 20
Su 16/1 kl 20
AUSA eftir Lee Hall og
STÓLARNIR eftir Ionesco
Í samstarfi við LA
Frumsýning fi 30/12 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/1 kl 20
Su 9/1 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Mi 29/12 kl 20
Fö 14/1 kl 20
Fi 20/1 kl 20
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ
- GILDIR ENDALAUST
Gjafakort fyrir einn kr. 2.700
- gjafkort fyrir tvo kr. 5.400
Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr.
2.000, fyrir tvo kr. 4.000
VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM
ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
- pantið í síma 568 8000 eða á
midasala@borgarleikhus.is
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
sun. 26. des kl. 14 SÍÐASTA SÝNING
Tosca – Frumsýning 11. febrúar kl. 20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13. febrúar kl. 19.00
3. sýning 18. febrúar kl. 20.00. – FÁAR SÝNINGAR
Miðasala á netinu: www.opera.is
AUKASÝNING
mið. 29.12 kl. 20 Örfá sæti
LOKASÝNING
fim. 30.12 kl. 20 Uppselt
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan er opin frá 14-18,
lokað á sunnudögum
■ ■ TÓNLEIKAR
14.00 Tónlistarhópurinn Adapter
flytur tónlistargjörninginn 1 mín-
úta á sýningunni Ný Íslensk
Myndlist í Listasafni Íslands.
21.00 Hljómsveitirnar Ókind, Lada
Sport, Ísidór og Benny Crespo's
Gang halda tónleika í Austurbæ
undir yfirskriftinni Jólakötturinn
2004.
■ ■ JÓLIN
22.00 Jólavaka verður í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði. Fram koma
söngnemarnir Björk Níelsdóttir
og Helena Marta Stefánsdóttir,
gítarleikarinn Andri Eyjólfsson
sem jafnframt er undirleikari
ásamt píanóleikaranum Sigurði
Marteinssyni. Ennfremur syngur
Unglingakór Víðistaðakirkju, Kór
Öldutúnsskóla og Karlakórinn
Þrestir. Séra Bragi J. Ingibergs-
son flytur hugvekju. sendandi:
Geir A. Guðsteinsson, blaðamaður
Galtalind 1, 201 Kópavogur. vs.
898-5933, hs. 564-5933 skrifst.
Borgartúni 33, 105 Reykjavík.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
19 20 21 22 23 24 25
Miðvikudagur
DESEMBER
HLJÓMSVEITIN ÓKIND Fjórar ungar og sprækar rokksveitir efna til tónleika í Austurbæ í kvöld undir heitinu Jólakötturinn 2004.
„Þetta er kannski hálfgerð kaffi-
húsasýning,“ segir Sigurrós Stef-
ánsdóttir myndlistarmaður um
sýningu sína í heilsugæslustöð-
inni Hvammi, sem er rétt við
Smáralind í Kópavogi.
„Þetta eru allt olíumálverk,
flest uppstillingar með kaffi-
könnum, ílátum og öðrum hlutum
sem allir hafa eitthvert hlut-
verk.“
Sýningin, sem ber yfirskrift-
ina Á aðventu, er í stóru rými á
göngum heilsugæslustöðvarinn-
ar, þar sem góð aðstaða er til sýn-
ingarhalds.
Myndirnar bera allar með sér
átök litatóna í mjúkum formum.
Sigurrós segist hafa heillast af
formum og litum úr landslagi
þegar hún tók myndir úr flugi
fyrir nokkrum árum.
„Ég fékk þá alls konar form og
hugmyndir sem ég hef unnið út
frá síðan. Að vísu eru fáar mynd-
ir á þessari sýningu í þeim dúr,
en þó geta þessi mjúku form
komið þar fyrir.“
Á sýningunni í Hvammi gætir
einnig áhrifa frá eyjunni Krít,
sem Sigurrós ferðaðist til í sumar.
„Þar heilluðu mig þessir bláu
og hvítu litir sem eru svo áber-
andi. Þarna er hafið blátt og svo
eru húsin öll hvít, kannski með
rauðar hurðir. Þetta kemur tölu-
vert fram í myndunum mínum.“
Sigurrós hefur sett upp sýn-
ingar á hverju ári allt frá árinu
1997 þegar hún útskrifaðist úr
Myndlistarskólanum á Akureyri.
„Ég fór að vísu seint í skóla,
það var ekki fyrr en börnin voru
komin á legg og farin í fram-
haldsnám. Þá bjó ég á Sauðár-
króki en leigði mér íbúð á Akur-
eyri með dóttur minni sem var í
menntaskóla. Svo keyrði ég á
milli um helgar.“
Hvatann að myndlistarnáminu
má rekja til þess þegar hún
kenndi börnum í sex ára bekk á
Blönduósi.
„Þeim fannst svo gaman í
myndlist að þau lærðu hreinlega
að lesa í gegnum það. Þá var eins
og ég fengi þessa hugljómun.“ ■
Átök lita í mjúkum formum
SIGURRÓS STEFÁNSDÓTTIR Myndlistarsýning hennar í Kópavogi stendur væntanlega
fram í miðjan janúar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Egilshöll 13. Mars 2005
Lotion Promotion og Viva Art Music kynna með stolti:
Ana Maria Martinez
Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur - Óperukórinn
Eugene Kohn
Stjórnandi
Miðasala í verslunum Skífunnar og á www.domingo.is
Einstök jólagjöf