Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 22
22 TÆP 11 PRÓSENT LANDSINS ERU HRAUN Heimild: Hagtölur landbúnaðarins SVONA ERUM VIÐ „Verslun fyrir jólin hefur enn sem fyrr vakið áhuga. Það sem vakti athygli mína var fréttaflutningur um að jóla- sveinninn gerði upp á milli barna,“ segir Marín Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri þjónustufyrirtækisins Practical. Svo virðist sem umtal um aukna verslun landsmanna fyrir jólin, bæði hér heima og erlendis, hafi hrundið af stað fréttaflutningi sem hvetji fólk til að eyða minna. „Að vissu leyti er verið að ýta undir að fólk leiðbeini jólasveininum að kaupa ekki of dýrar vörur fyrir börnin,“ segir Marín. Foreldrarnir verði að hugsa um börnin og hvernig þau beri saman skógjafirnar þegar komið sé í skólann: „Jólasveinninn verður að fara varlega.“ Marín segir verslun erlendis fyrir jól afleiðingu ódýrra samgangna. „Heim- urinn er alltaf að minnka þar sem auðveldara er að ferðast á milli landa. Í dag eru Íslendingar ekki bundnir við að versla innanlands,“ segir Marín: „Í rauninni er aðalmálið að fólk sé ekki að eyða um efni fram.“ ■ MARÍN MAGNÚSDÓTTIR Jólasveinninn fari varlega VERSLUN FYRIR JÓLIN SJÓNARHÓLL „Það eru fjölskyldusöguleg tímamót hjá mér,“ segir Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og vísar til kaupa danska málningarvöruframleiðandans Flugger á Hörpu-Sjöfn. „Fjölskylda mín keypti sig inn í Hörpu- Sjöfn árið 1961 og karl faðir minn stjórnaði því til ársins 1991. Þá tók bróðir minn við af honum en hann læt- ur af störfum í janúar. Ég man aldrei eftir sjálfum mér öðruvísi en í tengslum við þetta fyrirtæki og rek það meðal annars í bók minni Fortíðardraumar þegar ég stend við borðröndina hjá föð- ur mínum og horfi á hann skrifa bréf. Margt fólk í Hörpu-Sjöfn hefur verið þar í áratugi og aðrir eigendur hafa verið viðloðandi það síðan 1936. Þetta er því sannkallað fjölskyldufyrirtæki og mjög tilfinningaleg tímamót.“ Sigurður Gylfi er annars að jafna sig eftir lítilsháttar meiðsli og notar tímann til að lesa jólabækurnar. „Ég hef verið að þræða mig eftir stórvirkjunum þessi jól. Ég er ákaflega hrifinn af Vélum tím- ans eftir Pétur Gunnarsson. Pétur er snjall stílisti en fyrir okkur söguáhuga- fólk er áhugavert að sjá hvernig hann lítur á fortíðina sem efnivið sem hann mótar, en ekki fasta stærð eins og er al- gengt hjá þeim sem skrifa sögulegar skáldsögur.“ Sigurður Gylfi segir að þá marki ævi- saga Héðins Valdimarssonar eftir Matth- ías Viðar Sæmundsson tímamót; uppbygging og frásagnarháttur séu djarfari en menn eigi að venjast. „Mín bíður líka Halldór eftir Halldór Guð- mundsson og ég hef heyrt að hún sé afar vel unnin.“ ■ Þræði mig eftir stórvirkjunum HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: SIGURÐUR GYLFI MAGNÚSSON SAGNFRÆÐINGUR 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR Les jólakveðjurnar í síðasta sinn „Ég er að hætta því ég hef unnið svo lengi og ætla að njóta þess að vera til meðan ég held haus og heilsu,“ segir Gerður G. Bjark- lind. Hún heyrði auglýst starf á auglýsingadeild Útvarpsins í há- degi á sínum tíma og var komin til starfa um hálf fjögur þann sama dag. Síðar æxluðust mál þannig að Gerði bauðst að gerast þulur. „Jón Múli fór í háskóla og það þurfti einhvern til að leysa hann af. Guðmundur Jónsson, sem þá var framkvæmdastjóri Útvarpsins, spurði hvort ég vildi taka þetta að mér en mér leist ekkert á það og spurði hvort hann væri orðinn vit- laus. Hann sagði að ég gæti gert þetta alveg eins og hinir svo ég fór og prófaði og hef sum sé verið að í 30 ár.“ Gerður lætur vel af vistinni í Ríkisútvarpinu og er þakklát fyrir tímann þar. „Hér svífur svo góður andi yfir vötnunum. Ég hef átt dá- samlega samstarfsmenn og unnið með ótrúlega mörgu fólki. Það er eitthvað við þennan stað sem ger- ir það að verkum að maður vill vera hér. Þótt maður sé alveg hundóánægður með kaupið þá ein- hvern veginn finnst manni samt svo gott að vera hér. Ætli það stafi ekki af öllu þessu góða fólki.“ Gerður segir ekki alveg skilið við Ríkistúvarpið því hún mun áfram stýra Óskastundinni, óska- lagaþættinum á Rás 1 á föstudags- morgnum. „Ég er mjög þakklát fyrir að fá að vera áfram með Óskastundina því mér finnst það svo skemmtilegt. Það er gaman að vera í sambandi við fólk og fara hér í safnið og leita að gömlum lögum.“ Einstaka sinnum leikur Gerður lög Bítlanna í Óskastund- inni. Henni eru þeir kærir því hún sá þá á hljómleikum í Lundúnum 1964. „Það var mikil upplifun. Þvílíkt arg og garg. Megnið af tónleikagestunum voru konur frá fjórtán ára og upp úr og þær grétu og góluðu alla tónleikana.“ Sjálf hélt Gerður sig á mottunni. „Ég missti bara málið og hugsaði hvurslags villidýr þetta væru.“ Gerður G. Bjarklind er lífsglöð með eindæmum og lítur björtum augum til framtíðar. „Það er svo margt sem ég ætla að gera. Til dæmis eigum við sumarbústað og getum nú verið þar heila og hálfa sumarið. Svo ætlum við til Spánar eftir áramót og koma heim með farfuglunum.“ bjorn@frettabladid.is DV RÆÐIR VIÐ LOFT JENS SEM BANAÐI MANNI FYRIR RÚMRI VIKU „ÆTLA AÐ HALDA JÓLIN MEÐ KONUNNI OG MÍNUM NÁNUSTU” – hefur þú séð DV í dag? Bókasafnið á Akranesi: Lok, lok og læs á háannatíma Bókasafninu á Akranesi var lokað á laugardaginn og opnar ekki aft- ur fyrr en á mánudag. Skipta þarf um gólfefni í anddyri og útlána- sal, en sama filtteppið hafði verið á gólfunum í 32 ár. „Framleiðand- inn hefði mátt vera stoltur af endingunni,“ segir Halldóra Jónsdóttir, bæjarbókavörður á Akranesi, en fátítt er að filtteppi dugi svo lengi. Á stöku stað voru þó komin göt í teppið og var það hreinlega hættulegt gestum og starfsfólki safnsins. Halldóra samsinnir að slæmt sé að þurfa að loka einmitt þegar jólabækurnar eru nýkomnar í hús. „Auðvitað er hræðilegt að þurfa að loka á þessum tíma en það var ekki annað að gera. Reyndar voru allar nýjustu bæk- urnar þegar komnar í útlán.“ Safnið opnar aftur 27. desem- ber og ætti fólk sem ekki fékk óskabókina sína í jólagjöf að geta nálgast hana á milli hátíða. „Svo er mest að gera í janúar og þá verður allt fínt og gott á nýja gólfinu,“ segir Halldóar bæjar- bókavörður og nefnir Ólöfu eski- móa og bækur Þráins Bertelsson- ar og Einas Más sem dæmi um vinsælar bækur fyrir þessi jólin. „Annars er reyndar beðið um nán- ast allar nýjar bækur.“ - bþs Gerður G. Bjarklind er að hætta sem þulur hjá Ríkisútvarpinu eftir 30 ár í starfi. Hún hóf feril- inn hjá þar árið 1961 og vann á auglýsingadeild- inni í þrettán ár áður en hún settist í þularstól- inn. Gerður mun áfram stjórna hinni geisivin- sælu Óskastund á föstu- dagmorgnum. Hún er einn fárra Íslendinga sem séð hafa Bítlana á hljómleikum. DIMMT YFIR REYKJAVÍK Vetrarsólstöður voru í gær. Sól kom upp í Reykjavík laust fyrir hálf tólf og sólarlag var hálf fjögur. Reyndar sást aldrei til sólar því skýjað var yfir borginni og rigning bróðurpart dags. Nú tekur daginn að lengja og framundan er bjartari tíð. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA GERÐUR KVÖDD Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri færði Gerði þakklætisvott þegar hann kvaddi hana formlega á mánudag og þakkaði góð störf. GERÐUR G. BJARKLIND „Ég er mjög þakklát fyrir að fá að vera áfram með Óskastundina því mér finnst það svo skemmtilegt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.