Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 6
HJÁLPARSTARF Margir þeirra sem
leita sér aðstoðar hjá Fjölskuldu-
hjálp Íslands nú fyrir jólin er ungt
fjölskyldufólk sem hreinlega nær
ekki endum saman á laununum
sínum, að sögn Ásgerðar Jónu
Flosadóttur, formanns Fjölskyldu-
hjálparinnar.
„Það er síaukin þörf fyrir aðstoð
af þessu tagi,“ sagði hún og sýndi
blaðamanni tölvupóst og bréf sem
Fjölskylduhjálpinni höfðu borist
víðs vegar frá. Þar var undan-
tekningalaust verið að biðja um
aðstoð til handa þeim sem hvorki
áttu fjármuni fyrir mat né fatn-
aði. Í sumum tilvikum var beðið
um aðstoð fyrir ættingja sem ekki
höfðu komið sér til að hafa sam-
band sjálfir. Tiltekin félagsþjón-
usta hafði meira að segja sent er-
indi inn þar sem beðið var aðstoð-
ar við fólk í sveitarfélaginu, sem
átti tæpast málungi matar eftir
hörmungar í einkalífinu en „var
fyrir ofan mörk“ eins og það var
kallað.
„Það vill til að Fjölskylduhjálpin á
marga velunnara og stuðningsað-
ila, þannig að við getum sinnt
þessum beiðnum,“ sagði Ásgerður
Jóna,“ því þörfin er víða afar
brýn.“
- jss
6 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Skjólstæðingar Mæðrastyrksnefndar:
Nær þriðjungur af asískum uppruna
HJÁLPARSTARF Nýjum Íslendingum
af asískum uppruna sem leita sér
aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd
hefur farið stórfjölgandi að
undanförnu, að sögn Ragnhildar
Guðmundsdóttur, formanns
nefndarinnar,
„Í þau fjögur ár sem ég hef
verið hér hefur þeim farið stöðugt
fjölgandi og nú er svo komið að
þeir eru nær þriðjungur þeirra
sem hingað koma,“ sagði Ragn-
hildur. Hún kvaðst hafa miklar
áhyggjur af þessari þróun, því oft
reyndist fólkið vera skilríkjalaust,
tala lítið, stundum ekkert, í ís-
lensku og greinilega eiga í erfið-
leikum.
Sem dæmi má nefna föður sem
kom með dóttur sinni meðan
Fréttablaðið staldraði við. Hann
hafði komið áður að sögn Ragn-
hildar, skilríkjalaus, talaði ekki
orð í íslensku en dóttirin, sem tal-
aði hrafl, túlkaði fyrir hann.
„Ég hef miklar áhyggjur af
þessum hópi, sem stöðugt fer
stækkandi,“ sagði Ragnhildur. „Ég
hef áhyggjur af því hvernig líf
þessu fólki er boðið upp á hér. Mér
finnst að stjórnvöld þurfi að fylgj-
ast betur með því og við hvaða
kjör og aðstæður það býr. Við
hljótum að hafa metnað til að láta
fólkinu líða vel hér þegar það er
einu sinni flutt til landsins.“ - jss
Ungt fólk var í miklum meirihluta
þeirra sem leituðu aðstoðar
Mæðrastyrksnefndar og Fjöl-
skylduhjálpar í gær. Einnig voru
þar öryrkjar og eldri borgarar. All-
ir áttu það sameiginlegt að fá
úthlutað fatnaði og matvælum fyr-
ir jólin. Þetta voru þöglir hópar,
gjörsneyddir þeirri spennu sem
alla jafna einkennir velmegandi
landsmenn fyrir jólin.
Fréttablaðið heimsótti bæki-
stöðvar þessara tveggja hjálpar-
samtaka á þessum síðasta úthlutun-
ardegi fyrir jól.
Áberandi voru ungar mæður
sem voru að fá matvæli og ná sér í
fatnað fyrir börnin sín. Fólkið var
hreint og snyrtilegt, en fátæktin
greinilegur fylgifiskur þess. Það
valdi fatnað af kostgæfni og var
sýnilega ekki að taka meira heldur
en það vantaði.
Eftirtektarverð var ung móðir
með barn á handlegg. Hún var að
leita að skjólfatnaði fyrir barnið
sitt. Og mikil var gleðin í svipnum
þegar hún fann góðan vatteraðan
kuldagalla fyrir veturinn. Það snart.
Síðan fór hún og náði í matar-
skammtinn sinn og hvarf síðan út í
aðventurökkrið.
Hjá Mæðrastyrksnefnd var stöð-
ugur erill. Auk þeirra fjölmörgu
sem voru að leita sér aðstoðar
streymdu inn sendingar frá einstak-
lingum og fyrirtækjum, ýmist mat-
væli, bækur eða fatnaður. Flosi
Ólafsson Skruddumaður sendi tvo
fulla bókakassa, Hagkaup sendu all-
ar stærðir af nærfötum, hringt var
frá fyrirtæki sem ætlaði að leggja
inn peningaupphæð og einhver
hafði skilið eftir hlass af glænýjum
flauelsbuxum fyrir utan. Enginn
vissi hver það var, en þær voru
greinilega vel þegnar.
Hjá Fjölskylduhjálp Íslands
stóðu margir tugir fólks í biðröð í
rigningu og hráslaga, þegar Frétta-
blaðið bar að garði. Ósköp venjuleg-
ir borgarar á öllum aldri, en yngra
fólkið í meirihluta. Framlögin höfðu
streymt inn, meðal annars frá þjón-
ustuveri Íslandsbanka, sem lagði
fram matvæli fyrir á 7. tug þúsunda
króna. Ólafur Jóhann Ólafsson rit-
höfundur kom færandi hendi í gær
með fullan kassa af Sakleysingjun-
um, nýjustu bókinni, og hafði hann
áritað hvert einasta eintak. Þá hafði
hann rétt Fjölskylduhjálpinni 250
þúsund krónur fyrir um hálfum
mánuði. Þeim var varið til kaupa á
kjöti, meðan annars stöflum af ham-
borgarahrygg sem úthlutað var í
gær. jss@frettabladid.is
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða ríki var fellt úr flokki frjálsraríkja á dögunum?
2Hver voru valin besta knattspyrnufólkársins af FIFA?
3Hver mun hita upp fyrir grínistannJamie Kennedy þegar hann kemur
hingað til lands?
Svörin eru á bls. 54
Einar Már Guðmundsson
„Skemmtilestur“
„Bráðskemmtileg og fjörug bók.“
Þorsteinn Már, kistan.is
„Konan mín hélt að ég væri að verða eitthvað skrítinn.
Ég hló svo mikið.“
Gunnar Þórðarsson, tónlistarmaður
„Mikið vor og glettni í þessari bók ... Einar Már
beitir hér kunnuglegum aðferðum, blandar saman minnum
há- og lágmenningar ... skemmtilestur.“
Gauti Kristmannsson, RÚV
„Skáldið er í ham ...
Bítlaávarpið er
skemmtileg saga,
stráksleg og gosaleg í
sprúðlandi stílnum.“
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
8. sæti
Skáldverk
Félagsvísindastofnun
7. – 13. des.
2. prentun
uppseld
3. prentun
á þrotum
1. prentun
uppseld
Fischernefndin:
Fundað í
hádeginu
SAMKOMUR Haldinn verður fundur
um Bobby Fischer í Iðnó í Reykja-
vík í hádeginu í dag þar sem sagt
verður frá ævi bandaríska skák-
snillingsins, sem varð heims-
meistari í „einvígi allra tíma“ í
Reykjavík árið 1972. Á fundinum
á að segja frá ávinningnum sem
einvígið hafði í för með sér fyrir
landið.
- óká
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
BAKSVIÐS
FYLGST MEÐ ÚTHLUTUN
HJÁLPARSAMTAKA TIL
FÁTÆKRA
NÝIR ÍSLENDINGAR
Algengt er að nýir Íslendingar af asískum uppruna sem leita til Mæðrastyrksnefndar
tali litla sem enga íslensku.
JÓLAAÐSTOÐIN
Þeir voru margir sem sóttu jólabjörgina í bú til Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands á síðasta úthlutunardegi, sem var í gær.
VERNDARENGILLINN
Ásgerður Jóna Flosadóttir segir að Ólafur
Jóhann Ólafsson rithöfundur sé sannkall-
aður verndarengill Fjölskylduhjálparinnar.
Á myndinni eru hún og annar starfsmaður
Fjölskylduhjálparinnar við hluta af ham-
borgarhryggjunum sem hann gaf.
Skjólstæðingar Fjölskylduhjálpar Íslands:
Fólk sem nær ekki endum saman
NÁUNGAHJÁLP
Framlögin streymdu til hjálparsamtakanna
í gær í formi matvæla, peninga og jóla-
gjafa. Meðan starfsfólk Mæðrastyrksnefnd-
ar tók upp ný nærföt í öllum stærðum frá
Hagkaupum, stormaði inn maður með
bókakassa frá Skruddu, útgáfufélagi Flosa
Ólafssonar.
Öryggisvörður:
Grunaður
um íkveikju
LÖGREGLA Öryggisvörður er grun-
aður um að hafa kveikt í lyftara
við Rúmfatalagerinn á Smára-
torgi í Kópavogi aðfaranótt laug-
ardags. Maðurinn tilkynnti sjálf-
ur um eldinn og slökkti hann, en
myndir úr eftirlitsmyndavél urðu
til þess að maðurinn er grunaður
um verknaðinn.
Björgvin Björgvinsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Kópavogi,
staðfesti að maðurinn hefði legið
undir grun en hann vildi ekki
segja til um hvort öryggisvörður-
inn sæist beinlínis kveikja í lyft-
aranum á eftirlitsmyndunum.
Hann segir manninn neita sök en
málið er enn í rannsókn. - hrs
Ungt fólk í sárri
neyð leitar hjálpar
Það var fjölmennt í bækistöðvum Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands í gær, á síðasta
úthlutunardegi fyrir jól. Í meirihluta var ungt fólk að fá úthlutað matvælum og ná sér í föt á börnin sín.
Ungt fólk, sýnilega í sárri fátækt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA