Fréttablaðið - 22.12.2004, Qupperneq 10
22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Bandaríkjaforseti:
Íraskir hermenn
ekki tilbúnir
ÍRAK, AP George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, viðurkenndi í
gær að íraskir hermenn væru
ekki tilbúnir til þess að leysa
bandarískar hersveitir í Írak af
hólmi. Bush lét þessi orð falla á
sautjánda blaðamannafundinum
sem henn hefur haldið frá því að
hann varð forseti í ársbyrjun
2001. Bush sagðist telja árangur-
inn af því að þjálfa íraskar her-
sveitir vera misjafnlega góðan.
„Þegar hættu bar að létu þeir sig
hverfa af vettvangi. Það er óá-
sættanlegt. Íraski herinn er ekki
tilbúinn til bardaga.“
Bush skýrði frá því að hann
hygðist leggja fram fjárlagafrum-
varp fyrir 2006 í febrúar sem
hefði það að markmiði að helm-
inga fjárlagahallann á fimm árum
og auka aðhald í ríkisrekstri. Nið-
urskurður mun ekki bitna á hern-
um og heimavörnum í Bandaríkj-
unum. Tilkynnt var í dag að Bush
myndi hitta Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta á fundi í Slóvakíu í
febrúar. Bush sagði að samskiptin
við Rússland væru góð en Pútín
sætir miklu ámæli á Vesturlönd-
um fyrir íhlutun sína í málefni
Úkraínu og vaxandi einræðistil-
hneigingar. ■
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
68
88
1
2/
20
04
www.urvalutsyn.is
2 vikur
Verð frá:
59.900 kr.*
M.v. tvo í íbúð í 14 nætur
Enska ströndin - Montemar
1 vika
Verð frá:
44.900 kr.*
M.v. tvo í íbúð í 7 nætur
*Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Verð m.v. að bókað sé á netinu.
Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu
bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Brottfarir
5., 12. og 26. janúar - Aukaflug
19. janúar - Örfá sæti laus
Fáðu ferðatilhögun, nánari upp-
lýsingar um gististaðina og reiknaðu
út ferðakostnaðinn á netinu!
Reykjavíkurflugvöllur:
Hagsmunamál þjóðarinnar í heild
SAMGÖNGUR Að mati Kristjáns
Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á
Akureyri, eiga landsmenn allir að
vera með í ráðum varðandi fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar. Segir
hann aðalatriðið ekki vera stað-
setningu flugvallarins heldur að
samgöngur til og frá höfuðborg-
inni verði jafn greiðar og þær eru
í dag.
Kristján segir að þegar nýr
borgarstjóri Reykvíkinga, Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, segi að
það sé ekki spurning um hvort,
heldur aðeins hvenær, innan-
landsflugið flytjist frá Reykjavík
til Keflavíkur tali hún aðeins fyrir
hönd hluta umbjóðenda sinna.
„Reykjavík er höfuðborg landsins
í heild og því finnst mér vanta
ákveðin sjónarmið hjá henni í
þessa umræðu. Stóra málið er
tenging höfuðborgarinnar við
aðra hluta landsins en ekki að
borgina skorti byggingarland.
Ríkið á landið og þar með þjóðin
öll,“ segir Kristján. - kk
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
Bæjarstjórinn á Akureyri segir borgar-
stjórann í Reykjavík aðeins tala fyrir
hönd hluta umbjóðenda sinna þegar
hún segi að innanlandsflugið muni
flytjast frá Reykjavík.
GEORGE W. BUSH
Bandaríkjaforseti gagnrýndi hermennsku
Íraka á blaðamannafundi á mánudag.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 • Opið aðfangadag til 13.00
TILBOÐ
Skata
499kr/kg
VESTFIRSK KÆST SKATA
UTANRÍKISMÁL Ólíklegt er að mál
skákmeistarans Bobbys Fischer
geti til lengri tíma truflað sam-
skipti Íslands, Japans og Banda-
ríkjanna, að mati Baldurs Þór-
hallssonar, dósents í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands. „Ekki
er óeðlilegt að lönd takist á um
ákveðin mál, en vinni um leið
saman á öðrum sviðum,“ segir
hann og telur fyllilega eðlilegt að
Bandaríkjamenn komi sínum
sjónarmiðum á framfæri við ís-
lensk stjórnvöld og upplýsi um
stöðu mála í stjórnkerfinu þar.
„En stjórnvöld, hvort sem er í
Japan eða á Íslandi, þurfa líka að
geta tekið sjálfstæðar ákvarð-
anir,“ segir hann og telur utanrík-
isráðherra hafa stigið skref sem
sýni að stjórnvöld ætli ekki að láta
Bandaríkjamenn segja sér fyrir
verkum.
Baldur gagnrýnir hins vegar
að gleymst hafi meginforsenda
málsins, sem sé brot gegn við-
skiptabanni á Júgóslavíu árið
1992, og telur að stjórnvöld hefðu
átt að ígrunda málið betur og
horfa á það í alþjóðlegu samhengi.
„Viðskiptabanninu var komið á
vegna ógnarstjórnar sem reynt
var að stöðva með öllum tiltækum
ráðum og ankannalegt af skák-
sambandinu og stjórnvöldum að
blása bara á það í dag.“ Þá segir
Baldur boð stjórnvalda til handa
Fischer einkennilegt, með tilliti til
þess að þau hafi áður verið treg til
að veita fólki pólitískt hæli og
dvalarleyfi. „Við höfum í raun
verið allt of treg til þess og sýnt
óttalega þvermóðsku hvað það
varðar að aðstoða fólk sem hingað
hefur leitað í neyð sinni.“
Masako Suzuki, lögmaður
Fischers, gerir aðra tilraun í dag
til að funda með japönskum yfir-
völdum og ræða mögulega lausn
hans úr haldi. Að sögn Sæmundar
Pálssonar, vinar Fischers, kom í
ljós á fundi í gær að gögn vegna
Fischers höfðu verið flutt í
japanska utanríkisráðuneytið.
Hann segir lögmanninn þeirrar
skoðunar að yfirvöld ytra reyni að
tefja málið og draga, hvort sem
það sé að beiðni Bandaríkjamanna
eða af öðrum sökum. „Alla vega er
málið orðið það stórt að það hefur
verið flutt til ráðuneytisins,“ segir
Sæmundur og er nokkuð vonsvik-
inn yfir því hversu hægt þokast.
Hann sagði vonir hafa staðið til að
hægt yrði að fljúga utan fyrir
hádegi í gær. „Svo virðist sem
klukkan gangi hægar þarna en
annars staðar.“
olikr@frettabladid.is
Stjórnvöld hefðu átt
að ígrunda betur
Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði, telur að ígrunda hefði átt betur
ákvörðunina um að bjóða Bobby Fischer landvistarleyfi. Hann telur málið
ekki munu skaða samskipti Íslands, Bandaríkjanna og Japans.
SÆMUNDUR PÁLSSON
„Það er mikið álag sem fylgir þessu um-
stangi,“ sagði Sæmundur og kvaðst vera
með heimspressuna á herðunum vegna
máls Fischers.
BALDUR ÞÓRHALLSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
Baldur segir það sérstakt hversu mikið pólitískt vægi mál Bobbys Fischer hafi fengið hér
og kveðst tæpast sjá fyrir sér að utanríkisráðherrar annarra landa myndu blanda sér í
ámóta mál með beinum hætti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N