Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 56
„Þessi bíll er sá allra glæsileg-
asti sem Daimler Chrysler hefur
framleitt,“ segir Hjörtur Jóns-
son sölustjóri hjá Master, en í
gær var nýr Mercedes Benz CLS
500 Coupé afhjúpaður hjá
Master í Glæsibæ. Hallgrímur
Gunnarsson, forstjóri Ræsis,
var sá sem afhjúpaði bílinn við
glæsilega athöfn, en eins og
margir muna þá voru samskipti
fyrirtækjanna tveggja fremur
stirð í upphafi. „Samstarf okkar
er mjög gott í dag og sér Ræsir
um öll okkar þjónustumál. Þetta
sýnir bara að menn geta
auðveldlega unnið saman og það
er það sem við erum að gera,“
segir Hjörtur.
Frumsýninguna á bílnum
vann Master í góðu samstarfi við
Ræsi en bíllinn var heimsfrum-
sýndur í Stuttgart í lok septem-
ber. „Það sýnir bara hversu
snemma við erum í því að frum-
sýna bílinn hérna heima,“ segir
Hjörtur og bætir við að bíllinn sé
augnayndi hvers bílaáhuga-
manns og á varla orð yfir að lýsa
glæsileikanum og íburðinum.
Bílinn er hægt að fá með öllum
hugsanlegum aukabúnaði og
kostar í kringum níu milljónir og
uppúr, alveg eftir því hverju er
bætt við. Honum fylgir mikill
lúxus eins og er hann jafnvel út-
búinn með sjónvarpi og dvd-
spilara.
„Vegna þess að hann er
fjögurra dyra hafa menn sett
spurningarmerki við að hann sé
nefndur Coupé, en það er orð
notað yfir sportbíla sem eru yf-
irleitt tveggja dyra og tveggja
sæta. Hinsvegar er hann fjög-
urra sæta þannig að hann fellur
undir skilgreininguna,“ segir
Hjörtur og telur að ekki sé hægt
að finna flottari sportbíl. ■
Startkaplar
Hafðu eitt sett af startköplum í skottinu. Á veturna getur allt gerst og fátt er leiðin-
legra en að sitja úti í köldum bíl sem vill ekki fara í gang. Auðvitað er líka hægt að
nota kaplana til að hjálpa öðrum í neyð, sem er ekki verra á þessum árstíma.[ ]
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Master og Ræsir afhjúpa
saman nýjan Benz
Sættir hafa náðst með fyrirtækjunum tveimur sem saman kynna
nú glænýjan Mercedes Benz CLS 500 Coupé.
Hjörtur Jónsson við Mercedes Benz CLS 500 Coupé bílinn sem afhjúpaður var í gær.
Touareg
fjórhjóladrifni
bíll ársins
Volkswagen Touareg var kosinn fjór-
hjóladrifni bíll ársins 2004 af lesend-
um Off Road tímaritsins nú á dögun-
um og var bíllinn öruggur sigurvegari.
Tæp 40% prósent þeirra sem greiddu
atkvæði kusu Touareg í hópi lúxus-
bifreiða og hafði hann meira en 20%
forskot á Porsche Cayenne og Volvo
XC90. Á sama tíma fékk Touareg verð-
laun í Ástralíu sem bíll ársins í sínum
flokki, en hann hefur fengið yfir 20 al-
þjóðleg verðlaun á þessu ári. Ein
ástæða fyrir velgengni Touareg er talin
vera margþættir tæknilegir kostir bíls-
ins. Hann er öruggur á malbiki sem
fólksbíll en ræður einnig við nánast
hvaða aðstæður sem er utan vegar.
Allur búnaður í bílnum er afar
glæsilegur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
Touareg er öruggur á malbiki sem
fólksbíll en ræður einnig við nánast
hvaða aðstæður sem er utan vegar.
B O S S A V E R M I R
Er kalt í bílnum?
Sætisáklæði í bílinn með hita
Aðeins 4.900 kr
Klettháls 9 • s: 587 5547 • www.ag-car.is/motorsport
Fæst einnig hjá
Bónstöðinni,
Njarðarnesi 1,
Akureyri