Fréttablaðið - 22.12.2004, Qupperneq 18
18 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
GRÆNFRIÐUNGAR MÓTMÆLA OF-
VEIÐI
Grænfriðungurinn Lutz Sengler frá Berlín í
Þýskalandi tók sér stöðu við hrúgu af fiski
og skelfiski fyrir framan höfuðstöðvar
ráðherraráðs Evrópusambandsins. Þar
hefst á morgun fundur sjávarútvegsráð-
herra Evrópusambandsins. Grænfriðungar
hvetja til þess að ráðherrarnir bregðist við
ofveiði og mengun.
Alcoa og Bechtel greiði fimmtung:
Knattspyrnuhöll á Reyðarfirði
SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjaryfirvöld
í Fjarðabyggð eiga í viðræðum við
Alcoa og Bechtel um kostnaðarþátt-
töku í nýju fjölnota íþróttahúsi á
Reyðarfirði. Lausleg kostnaðará-
ætlun hljóðar upp á hálfan milljarð
króna og ganga viðræðurnar út á
það að Alcoa og Bechtel greiði
tæpar 100 milljónir króna.
Glúmur Baldvinsson, forstöðu-
maður almannatengsla hjá Bechtel,
segir að ákvörðunar sé að vænta
fljótlega eftir áramót. „Alcoa og
Bechtel hyggjast verja 1,3 milljón-
um dollara til að koma upp íþrótta-
aðstöðu fyrir starfsfólk sitt á Reyð-
arfirði. Viðræðurnar við bæjaryfir-
völd snúast um það að við leggjum
þá fjármuni í varanlegt íþrótta-
mannvirki, sem ekki verður tekið
niður aftur, og í staðinn fái
starfsfólkið aðgang að íþróttamann-
virkjum í sveitarfélaginu,“ segir
Glúmur.
Samkvæmt heimildum blaðsins
stendur hugur bæjaryfirvalda í
Fjarðabyggð til að reisa sambæri-
legt hús og Bogann á Akureyri.
Komi Alcoa og Bechtel að
fjármögnun er talið líklegt að húsið
verði reist á milli álversþorpsins og
byggðarinnar á Reyðarfirði. -kk
Grunur um
undanskot eigna
Nauðungaruppboð var haldið á húseignum á
Brjánsstöðum á Suðurlandi, þar sem rekið er 37
herbergja hótel, fyrir tæpum þremur vikum.
BÆNDAGISTING Upp kom gunur um
að búið væri að selja fimm smáhýsi
og hugsanlega eitthvað af innbúi
eða innréttingum, áður en kom til
nauðungaruppboðs á húseignunum
að Brjánsstöðum þar sem rekið
hefur verið hótel. Uppboðið sjálft,
sem haldið var fyrir tæpum þremur
vikum, gekk snurðulaust fyrir sig.
Verðmæti smáhýsanna og inn-
réttinganna getur numið að minnsta
kosti 2,5 milljónum króna. Gylfi
Sigurðsson, fyrrverandi eigandi og
einn af kröfuhöfum í eignina, segist
búast við að gerð verði kyrrsetning-
arkrafa, riftunarkrafa eða jafnvel
kært vegna undanskots eigna.
Málavextir eru þeir að hluta-
félagið Karat ehf., Sigrún Hauks-
dóttir og Jón Þorsteinn Hjaltason,
keypti bændagistinguna á Brjáns-
stöðum fyrir tveimur árum fyrir
165 milljónir króna. Þau tóku yfir
þær skuldir sem hvíldu á eigninni
og greiddu kaupverðið m.a. með
skuldabréfi og veði í smáhýsunum.
Ekki hafði verið gefið út afsal.
Hjónunum tókst ekki að standa í
skilum og var því haldið nauðungar-
uppboð að beiðni Skeiða- og
Gnúpaverjahrepps, Landsbanka Ís-
lands og Eignanets ehf.
Á uppboðinu bauð hæst Gylfi
Sigurðsson, sá sem byggði upp
bændagistinguna og seldi hjónun-
um fyrir tæpum tveimur árum á
165 milljónir króna. Tilboði hans
upp á 141 milljón var tekið og fékk
hann nokkra daga til að ganga frá
greiðslunni. Það tókst þó ekki og
fékk því næsti uppboðsbjóðandi,
KB banki, eignina fyrir 140 milljón-
ir.
Hjónin á Brjánsstöðum keyptu
bændagistinguna ásamt fasteignum
fyrir tveimur árum. Kaupin vöktu
undrun á þeim tíma því að þau
höfðu þá nýverið orðið gjaldþrota
með minni rekstur að Efri-Brú. Rík-
ið keypti þá eign undir Byrgið og
hjónin keyptu bændagistinguna að
Brjánsstöðum og reka þar nú Hótel
Heklu.
Lögmaður Karats ehf. segir að
um misskilning og mistök sé að
ræða. Munnleg heimild hafi verið
gefin fyrir sölu smáhýsanna og
fyrir því séu vitni. Sigrún Hauks-
dóttir segir að engu hafi verið skot-
ið úr búinu á Brjánsstöðum. Smá-
hýsin séu í nágrenni jarðarinnar.
ghs@frettabladid.is
!
" #$%&'
() &'*
('+
,-./0-#12345%*(-657*-"888
8889:*-;*(*<<*55=
3*->?6-;#*@5*;@- <*@(*@<"
A
8 B
:'! ! C>/)
5!)! ' D#$%
?
8'2!
BE'A
8
#! +E
+
B=
D#$%&'
@FGF
F
H
>#02"#6>:J55@5=
7)E! '
K8L
!
7 E B
,-./0-7:#1;=
>/2
2!:%
@2/F8
,E ! &B'
'
%?%M-GN
E &,-977
8OO8
) 8OO8
8OO8
)G8OO8
FO8OO8
)K8OO8
K8OO8
) 8OO8
O8OO8
)'FK8OO8
/&
P<B)!
/'
B( 2
FK Q8
E'FF
1B 50>/9#*270;"
RRR827*-78"2 (5@5*-793*- 23.-*#"5%
-64
<1*
56
2/-
*@7
UPPSAGNIR Ráðgert er að segja upp
starfsmönnum hjá Ratsjárstofnun
á Stokksnesi við Hornafjörð. Þar
starfa nú 12 til 13 manns en ekki
liggur fyrir hvort öllum verður
sagt upp.
Albert Eymundsson, bæjar-
stjóri á Hornafirði, segir að meiri-
hluti starfsmanna á Stokksnesi sé
tæknimenntað fólk og hæpið að
það fái atvinnu við sitt hæfi á
Höfn. Því sé mikil hætta á að
starfsmennirnir og fjölskyldur
þeirra, samtals 46 manns, flytjist
brott af svæðinu. „Það er algjör-
lega óviðunandi ef nota á tækni-
þróunina til að flytja fólk af lands-
byggðinni og á suðvesturhorn
landsins. Við munum eiga fundi
með framkvæmdastjóra Ratsjár-
stofnunar og fulltrúum utanríkis-
ráðuneytisins til að fá botn í þetta
mál,“ sagði Albert.
Ástæða uppsagnanna er aukin
sjálfvirkni í rekstri ratsjárstöðv-
anna og áform um að leggja af
mannaðar sólarhringsvaktir í
þremur af fjórum stöðvum
stofnunarinnar; á Stokksnesi,
Bolafjalli og Gunnólfsvíkurfjalli.
-kk
Uppsagnir hjá Ratsjárstofnun:
Víðtæk áhrif
á Hornafirði
GÖNGUFÓLK Á HEKLU
Á Brjánsstöðum er Hótel Hekla rekið. Nauðungaruppboð var nýverið haldið á
fasteignunum. Grunur leikur á að fimm smáhýsum hafi verið skotið undan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Iceland Express:
Vísar ásök-
unum á bug
FERÐAMÁL Iceland Express segir
yfirvöld ferðamála sjálf hafa brugð-
ist ferðaiðnaðinum með því að tefla
á tæpasta vað varðandi lögmæti
fjárveitinga og vísar á bug full-
yrðingum ferðamálastjóra á netinu.
Fyrirtækið segir ekki hægt að
tengja afturkallaða kæru Iceland
Express til ESA, eftirlitsstofnunar
EFTA og sjálfstæða rannsókn ESA á
því hvort fjárveitingar til markaðs-
mála íslensku ferðaþjónustunnar
geti flokkast undir ólögmætan ríkis-
styrk. Fjárveiting til markaðsmála
ferðaþjónustunnar var lækkuð um
170 milljónir króna á fjárlögum
næsta árs. -óká
HÖFN Í HORNAFIRÐI
Bæjarstjórinn á Höfn segir það óviðunandi
ef nota á tækniþróun til að flytja fólk á
höfuðborgarsvæðið.