Fréttablaðið - 22.12.2004, Side 68
36 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
19 20 21 22 23 24 25
Miðvikudagur
DESEMBER
HANDBOLTI Viggó Sigurðsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik, mæt-
ir á HM í Túnis með gjörbreytt lið
frá því á ólympíuleikunum í
sumar.
Aðeins sjö leikmenn sem fóru
til Aþenu fara til Túnis. Ásgeir
Örn Hallgrímsson, Kristján
Andrésson, Róbert Sighvatsson
og Sigfús Sigurðsson eru allir
meiddir en Guðmundur Hrafn-
kelsson, Rúnar Sigtryggsson,
Gylfi Gylfason og Snorri Steinn
Guðjónsson hljóta einfaldlega
ekki náð fyrir augum landsliðs-
þjálfarans.
Viggó gaf það út að hópurinn
sem fór á heimsbikarmótið í Sví-
þjóð í síðasta mánuði yrði uppi-
staðan í þessum HM-hópi og því
kom fátt á óvart í vali Viggós
fyrir utan að hann valdi Arnór
Atlason í hópinn á kostnað Snorra
Steins Guðjónssonar.
„Ég ákvað að veðja á Arnór að
þessu sinni enda hef ég mikla trú
á honum. Ég hef líka mikla trú á
Snorra en hann hefur ekki verið
að leika vel undanfarið. Þetta er
mitt val núna en það kemur annað
mót síðar og þá metum við stöð-
una upp á nýtt,“ sagði Viggó að-
spurður af hverju hann hefði val-
ið Arnór frekar en Snorra.
Einn nýliði er í hópi Viggós en
það er Alexander Pettersons,
fyrrum leikmaður Gróttu/KR og
núverandi leikmaður Düsseldorf.
Þessi lettneski strákur verður
loks löglegur með íslenska lands-
liðinu í janúar og hann fær strax
tækifæri hjá Viggó. Hans hlut-
verk verður væntanlega að leika í
hægra horninu en það hefur verið
vandræðastaða hjá liðinu á síð-
ustu mótum.
„Alex var afgerandi leikmaður
þegar hann lék á Íslandi. Ég er
búinn að fara út og sjá hann spila
og hann hefur bætt sig mikið. Það
er kominn tími á að hann fái að
sanna sig,“ sagði Viggó en hann
sagði að einnig kæmi til greina að
setja Ólaf Stefánsson í hægra
hornið ef á þyrfti að halda.
Viggó gældi við að taka Patrek
Jóhannesson inn í hópinn á nýjan
leik en Patrekur er ekki nógu
heilsuhraustur til þess að geta
tekið þátt að þessu sinni.
Viggó ætlar sér stóra hluti
með íslenska landsliðið og hann
gerir engar tilraunir til þess að
draga úr væntingum fyrir heims-
meistaramótið.
„Við ætlum að vera á meðal
þeirra sex bestu og ég hef fulla
trú á því að við náum því tak-
marki. Getan er til staðar og því
er engin ástæða til annars en að
setja markið hátt,“ sagði Viggó
Sigurðsson landsliðsþjálfari.
henry@frettabladid.is
Arnór í stað Snorra
Viggó Sigurðsson valdi Arnór Atlason í stað Snorra Steins Guðjónssonar í
landsliðshópinn sem fer til Túnis. Alexander Pettersons er eini nýliðinn í
hópnum.
■ ■ SJÓNVARP
18.30 X-Games á Sýn.
19.20 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Real Madrid og
Sevilla í spænsku 1. deildinni í
fótbolta.
00.05 NBA-boltinn á Sýn.
Útsending frá leik Detroit Pistons
og Los Angeles Lakers í NBA-
deildinni í körfubolta.
Charlton bar sigurorð af Fulham, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í fót-
bolta á mánudagskvöldið. Jerome
Thomas kom
Charlton yfir á 27.
mínútu og varnar-
maðurinn Talal El
Karkouri bætti öðru
marki við á 66. mín-
útu. Kanadamaður-
inn Tomasz
Radzinski minnkaði
muninn fyrir Fulham átta mínútum
fyrir leikslok. Charlton komst með
sigrinum upp í sjöunda sæti deildar-
innar en Fulham er í fimmtánda sæti.
Yao Ming og Tracy McGrady voruí miklu stuði aðfaranótt þriðju-
dags þegar lið þeirra, Houston
Rockets, bar sigur-
orð af Toronto
Raptors, 114-102, í
NBA-deildinni í
körfubolta. Kín-
verski risinn Ming
skoraði 40 stig og
tók 10 fráköst og
McGrady bætti við
34 stigum og 12 fráköstum. Ming var
óstöðvandi undir körfunni og fór
hann oft illa með leikmenn Toronto
Raptors.
Svissneski tenniskappinn RogerFederer var í gær kjörinn tennis-
maður ársins af Alþjóða tennissam-
bandinu. Federer
fór mikinn á árinu
og vann alls ellefu
titla, þar á meðal
Wimbledon-mótið,
opna ástralska
meistaramótið og
opna bandaríska
meistaramótið. Hann hafði mikla yf-
irburði í karlaflokki á árinu og trónir á
toppi heimslistans.
Rússneska tenniskonan AnastasiaMyskina var kjörin tenniskona
ársins við sama
tækifæri. Myskina
vann opna franska
meistaramótið en
það sem gerði úts-
lagið hjá henni var
góð frammistaða á
Ólympíuleikunum í
Aþenu þar sem hún
komst í undanúrslit og frábær fram-
ganga fyrir rússneska liðið á Fed-
mótinu þar sem hún vann alla sjö
einliðaleiki sína.
Króatinn Velimir Zajec var í gærráðinn knattspyrnustjóri hjá
Portsmouth en hann var upphaflega
ráðinn til félagsins sem yfirmaður
knattspyrnumála. Ráðning hans í
það starf varð hins vegar til þess að
Harry Redknapp, þáverandi stjóri
Portsmouth, ákvað að hætta og því
voru góð ráð dýr. Gordon Strachan,
fyrrverandi knattspyrnustjóri Sout-
hampton, hafnaði boði um að taka
við liðinu vegna tengsla sinn við
grannana í Southampton og því
ákvað Milan Mandaric, eigandi
Portsmouth, að ráða Zajec en Króat-
inn hefur stjórnað liðinu með góðum
árangri allt frá því að Redknapp
hvarf á braut.
Scott Parker, miðjumaður hjáChelsea, verður frá næstu vikurn-
ar eftir að hann fótbrotnaði í leik
Chelsea og Norwich í ensku úrvals-
deildinni á laugardaginn. Parker,
sem kom inn á sem varamaður í
leiknum, hefur átt í basli með að
festa sig í sessi í byrjunarliði Chelsea
allt frá því að hann kom til félagsins
frá Charlton fyrir rúmar tíu milljónir
punda í janúar.
Santos tryggði sér brasilíska meist-aratitilinn í fótbolta aðfaranótt
þriðjudags þegar liðið bar sigurorð af
Vasco, 2-1. Ricardinho og Elano
skoruðu mörk Santos, sem vann sinn
annan meistaratitil á síðustu þremur
árum. Þjálfari liðs-
ins, Vanderlei Lux-
emburgo, fyrrum
lands l iðsþ já l f a r i
Brasilíu, vann titilinn
annað árið í röð en
hann stýrði Cruzeiro
til sigurs í fyrra.
Þetta var jafnframt fimmti meistara-
titill Luxemburgo því hann vann titil-
inn með Palmeiras árið 1993 og
1995 og Corinthians árið 1998.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
LANDSLIÐSHÓPURINN:
Markverðir:
Birkir Ívar Guðmundsson Haukar
Roland Valur Eradze ÍBV
Hreiðar Guðmundsson ÍR
Útileikmenn:
Einar Örn Jónsson Wallau Massenheim
Einar Hólmgeirsson Grosswallstadt
Ólafur Stefánsson Ciudad Real
Alexander Pettersons Düsseldorf
Dagur Sigurðsson Bregenz
Arnór Atlason Magdeburg
Jaliesky Garcia Padron Göppingen
Markús Máni Michaelsson Düsseldorf
Ingimundur Ingimundarson ÍR
Guðjón Valur Sigurðsson Essen
Logi Geirsson Lemgo
Róbert Gunnarsson Aarhus
Vignir Svavarsson Haukar
KÁTIR ÞJÁLFARAR Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður hans, Bergsveinn Bergsveinsson, voru í jólaskapi á blaða-
mannafundinum í gær. Fréttablaðið/Páll
Við hrósum...
... Eiði Smára Guðjohnsen fyrir að bregðast ekki félögum sínum í Chelsea. Hann valdi miðjumanninn Frank
Lampard bestan í heimi í kosningu Alþjóða knattspyrnusambandsins en hvort það var vinargreiði eða
hreinlega hans skoðun skal ósagt látið. Eiður Smári var ekki einn um að finnast Lampard bestur þannig að
sennilega sér hann lengra en nef hans nær líkt og fyrirliði Bosníu-Hersegóvínu, Sergei Barbarez.
Spænska úrvalsdeildin:
Carlos
heimtar sölu
FÓTBOLTI Brasilíski bakvörðurinn
Roberto Carlos er ekki ánægðasta
súperstjarnan í herbúðum
spænska liðsins Real Madrid
þessa dagana og hefur heimtað að
vera seldur frá liðinu eftir að hafa
þurft að dúsa á bekknum í karakt-
ersigrinum á Racing Santander
um síðustu helgi. Roberto Carlos,
sem er orðinn 31 árs gamall, hef-
ur gengið á fund Emilio Butra-
gueno, yfirmanns knattspyrnu-
mála, og heimtað að vera seldur
þegar leikmannaskiptamarkaður-
inn verður opnaður í janúar.
Roberto Carlos hefur leikið
með Real Madrid allar götur síðan
1996 og er með samning við
spænska liðið til 2007 en þetta er
þó ekki í fyrsta sinn sem hann
heimtar að vera seldur. Í eitt
skiptið var hann ekki sáttur við að
fá ekki sömu laun og menn eins og
Raul, Luis Figo, Zinedine Zidane,
Ronaldo og David Beckham, sem
fá allir yfir 500 milljónir skatt-
frjálst á ári. ■
EKKI SÁTTUR Á TRÉVERKINU Hinn
brasilíski bakvörður Roberto Carlos er einn
sókndjarfasti varnarmaður heims.
Sigurlás Þorleifsson:
Tekur við
kvennaliði
Eyjamanna
FÓTBOLTI Sigurlás Þorleifsson mun
stýra kvennaliði ÍBV í Lands-
bankadeildinni á komandi tímabili
eftir því sem fram kemur á frétta-
miðlinum Eyjafréttum.
Hann tekur við af Heimi Hall-
grímssyni sem stýrði liðinu til
sigurs í VISA-bikarkeppninni á
síðasta sumari.
Sigurlás er reynslumikill
þjálfari og hefur bæði þjálfað
karla- og kvennalið ÍBV áður.
Hann þjálfaði kvennaliðið síðast
sumarið 1998.
Hann tekur við góðu búi í
Eyjum en fær það verðuga
verkefni að fylla skarð Margrétar
Láru Viðarsdóttur, knattspyrnu-
konu ársins 2004, en hún gekk til
liðs við Íslandsmeistara Vals í
haust. ■
Á FIMMTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -