Fréttablaðið - 22.12.2004, Side 76

Fréttablaðið - 22.12.2004, Side 76
22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR ■ BÆKUR Lynghálsi 4 • 110 Reykjavk. S: 567 3300 info@hestarogmenn.is • www.hestarogmenn.is SENDUM Í PÓSTKRÖFUMunið vinsælu gjafakortin Reiðbuxur Vandaðar reiðb uxur með rennlás á skálmum. Verð frá aðein s kr. 6.900 ÓTRÚLEGT VE RÐ Nýjar vörur daglega! Úlpur, jakkar, peysur og hjálmar. Hanskar, nærföt og sokkar í úrvali. Hnakkar og beisli á jólatilboði. Elton John segir snæviþakin Alpafjöllin minna sig á fyrri daga þegar hann neytti eiturlyfja. „Þegar ég flýg yfir snæviþakta Alpana hugsa ég bara um „snjóinn“ sem ég tók einu sinni inn. Einhver reiknaði eitt sinn út að ég hefði eytt sjötíu milljónum dollara á tuttugu mánaða fresti á níunda áratugnum. Í hvað? Meðal annars kókaín,“ sagði söngvarinn. ■ ELTON JOHN Segir snæviþakin Alpafjöllin minna sig á kókaín. Alpafjöllin minna á kókaín Ritstjórinn og grínistinn Davíð Þór Jónsson sendi nýverið frá sér sínar fyrstu bækur; Vísur fyrir vonda krakka og Jólasnótirnar 13. „Fólki finnst þetta fyndið og skemmtilegt. Sumum finnst þetta samt fullóvenjulegt af því að þetta er ekki þessi sykursæta og silkiblíða barnabók sem margir vilja kannski frekar gefa börnum fremur en eitthvað með groddara- legum og kaldhæðnum húmor,“ segir Davíð um fyrrnefndu bók- ina. Hann bætir því við að allir hafi gott af fjölbreytilegum húmor. „Ég held að íslensk börn séu það þyrst í kveðskap og kvæði að það sé alveg pláss fyrir fleiri skáld og fjölbreyttari í þeim hópi. Ég er eiginlega að þessu af því að börn- in mín höfðu húmor fyrir þessu og ég treysti því að þau séu ekki ein á þeirri skoðun.“ Davíð hefur ort síðan hann man eftir sér og segist hafa byrj- að að ríma um svipað leyti og hann byrjaði að tala. „Þegar ég var ungur í sveit hjá afa kenndi hann mér vísur og útskýrði fyrir mér bragfræði. Ég byrjaði síðan á þessari bók um jólin 2000 og hélt síðan áfram næstu fjögur árin.“ Að sögn Davíðs er það algjör- lega ný lífsreynsla að halda á bók eftir sjálfan sig í höndunum, svo- lítið eins og að eignast barn. Hann segir það einnig mjög skemmti- legt að ferðast og kynna bækurn- ar sínar. „Það er mjög gaman að kynnast einhverju nýju og ég gæti alveg hugsað mér að halda þessu áfram. Ég hef þýtt marga söng- leiki og gert söngtexta fyrir hina og þessa tónlistarmenn en þetta er í fyrsta sinn sem ég sendi frá mér bundið mál á prenti.“ Davíð segir að bókin Jólasnót- irnar 13 hafi orðið til fyrir síðustu jól. Hann hafi ákveðið að sýna Rás 2 vísurnar sem hann hafði samið um þessar systur jólasveinanna 13 og þar hafi menn tekið vel í efnið. Vísurnar voru lesnar upp fyrir jólin í útvarpinu við mjög góðar undirtektir og í framhald- inu ákvað Davíð að gefa þær út á bók. „Ég held að það sé aldrei of mikið af bundnu máli og það er alltaf gott að fá nýjar vísur. Það eru síðan komandi kynslóðir sem ákveða hvort þær lifi eða ekki,“ segir hann. freyr@frettabladid.is Börn eru þyrst í kveðskap DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON Davíð Þór Jónsson segist hafa haft mjög gaman af því að lesa upp úr bókunum sínum. ■ FÓLK

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.