Fréttablaðið - 22.12.2004, Side 86
54 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Þegar jólin nálgast hafa bókaút-
gefendur í mörg horn að líta og
víst að sólarhringurinn er planað-
ur upp á mínútu. Einn þeirra
stærstu í bransanum er Jóhann
Páll Valdimarsson, útgáfustjóri
JPV útgáfu, sem engu að síður
gefur sér alltaf tíma til að leggja
sig í hádeginu; frá tólf til hálftvö.
„Ég á þrjá ketti og tek einn
þeirra, sem reyndar bíður alltaf
tilbúinn eftir mér, í hádegislúr-
inn en við sofnum saman yfir há-
degisútsendingu Ríkisútvarps-
ins, sem er mjög mikilvægur
þáttur í þessu öllu. Þá finnst mér
eins og veröldin sé ekki öll farin
til andskotans; að eitthvað sé til
sem ekki hefur gefið eftir,“ segir
Jóhann Páll, sem stundum nær
ekki að dorma fyrr en komið er
fram í veðurfréttir vegna
streitu. „En í öllu falli sofna ég
yfir veðrinu og er þá bókstaflega
kominn inn í móðurkvið,“ segir
hann hlæjandi og stillir vekjar-
ann á hálftvö.
Jóhann Páll segist hafa lagt sig
í hádeginu frá því í bernsku, en
faðir hans Valdimar hafði þann
háttinn á í bókaútgáfunni Iðunni.
„Alveg sama þótt pabbi væri
með blóðþrýstinginn í botni þá
slokknaði á honum um leið og
hann lagðist í sófann á skrifstof-
unni. Ég er því alinn upp við þetta
og þörfin fyrir hádegislúr er í
genunum hjá mér. Rútína er mér
líka mjög mikilvæg.“
Hann kallar svefnfélagann
Endurskoðandann, en kötturinn
sá er jafnan ekki tilbúinn að fara á
stjá upp úr hálftvö. „Ég kveð hann
með nokkrum góðum strokum, en
þetta er ómissandi regla hjá mér.
Ég er ómögulegur maður ef ég fæ
ekki þetta hádegi með kettinum
og gömlu gufunni. Þannig held ég
stressið út, en almennt vakna ég
ekki seinna en hálfsjö á morgn-
ana. Ég er svo kominn aftur í koju
klukkan átta á kvöldin og fer þá
nákvæmlega eins að; með Endur-
skoðandanum upp í rúm á meðan
ég næ mér niður; strýk honum og
horfi á sjónvarpsfréttir en fer svo
aftur fram úr að vinna. Þá get ég
haldið áfram til miðnættis, altsvo
ef ég hef náð að vinda ofan af mér,
en til þess er engin betri leið en að
tala við kettina.“
thordis@frettabladid.is
JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON: LÆTUR HÁDEGISLÚRINN GANGA FYRIR Í TILVERUNNI
Í móðurkviði með
endurskoðanda í hádeginu
Engin jól án skötu
„Ég er Vestfirðingur að
uppruna og alinn upp við
það hjá Dýrfirðingnum
föður mínum að engin jól
væru án skötu. Á Þorláks-
messu fylltist húsið af dá-
samlegum ilmi kæstrar
skötu. Eftir að ég varð full-
orðinn hef ég haldið þess-
um sið og áratugum sam-
an hef ég borðað skötu í
hópi ýmissa góðra félaga, á seinni árum oftast á veit-
ingahúsum sem hafa haft tilhneigingu til að hverfa í
gleymskunnar dá en ég hef jafnan fundið nýja staði til
að næra mig á þessum óviðjafnanlega kosti sem er
partur af íslenskri þjóðararfleifð. Það er enginn með
vestfirsk gen sem ekki borðar skötu á Þorláksmessu.“
Össur Skarphéðinsson alþingismaður
Viðbjóðslegasti matur á Íslandi
„Ég myndi ekki borða skötu þótt skammbyssu væri
beint að gagnauga mínu. Mér finnst þetta einfaldlega
viðbjóðslegasti matur sem
framreiddur er á Íslandi og
enn ein átylla Íslendinga til
að fara á fyllirí. Ég hef aldrei
borðað skötu, lyktin ein segir
allt sem segja þarf um þenn-
an viðbjóð.“
Ingvi Hrafn Jónsson
útvarpsmaður
Skemmtilegar skötu-
veislur
„Já, það geri ég gjarnan.
Fyrir austan, þar sem ég
ólst upp, var ekki reglu-
lega náð í skötu en síðan
ég varð fullorðin hef ég
yfirleitt borðað skötu á
Þorláksmessu. Mér hefur
oft verið boðið í skemmti-
legar skötuveislur. Rann-
veig Ágústsdóttir sem var
lengi framkvæmdastjóri Rithöfundasambandsins
bauð okkur Þorgeiri gjarnan í skötu. Frændfólk mitt
hefur fyrir sið að koma saman og borða skötu. Skata
finnst mér afskaplega góð.“
Vilborg Dagbjartsdóttir skáld
BORÐARÐU SKÖTU Á ÞORLÁKSMESSU?
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
...fá strákarnir í 70 mínútum fyrir
að hafa náð gullsölu á borðspili
sínu og platínusölu á DVD-diskn-
um. Allt sem þeir snerta breytist
í gull!
HRÓSIÐ
Varað við Steingrími
Njálssyni Lýgur
sig inn á
leikskóla og
brýnir hnífa
– hefur þú séð DV í dag?
Pakkatilbo›
Diskur, nemi og móttakari
24.900.-Tilbo›
Reikna›u dæmi› til enda og fá›u stafrænar opnar
sjónvarpsrásir um gervihnött.
B‡›ur ma. upp á BBC, Sky News, CNN o.fl.
Echostar DSB-780 FTA
Móttakari fyrir opnar rásir. Opi› laugardag f rá k l . 10 -16
Gæ›in hafa nafn
E I C O S k ú t u v o g i 6 S í m i 5 7 0 4 7 0 0 w w w . e i c o . i s
Lárétt: 1 koss,5ort, 6ko,7tf, 8dyr,
9garm,10sá,12sjó,13æra,15að,
16laug,18máir.
Lóðrétt: 1kotasæla,2orf, 3st,
4formóðir, 6kyrja,8das,11ára,
14aum,17gá.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Rússland.
Ronaldinho og Birgit Prinz.
Grindergirl.
Lárétt: 1 vináttuvottur, 5 samið, 6 úrslit í
boxi, 7 einkennisstafir flugvéla, 8 inn-
gang, 9 vesaling, 10 dreifa, 12 mar,
13 sómi, 15 til, 16 bað, 18 þurrkar út.
Lóðrétt: 1 mjólkurafurð, 2 amboð,
3 í röð, 4 amma, 6 syngja, 8 happdrætti,
11 hjúpur, 14 sár, 17 líta.
Lausn:
Í hinni undanúrslitaviðureign spurningakeppni
Fréttablaðsins, sem er byggð á Popppunktsspili Dr.
Gunna, mætast handboltakonan Harpa Melsted og
þingkonan Katrín Júlíusdóttir. Harpa lagði rithöfund-
inn Kristínu Ómarsdóttur í 8-liða úrslitum á meðan
Katrín bar sigurorð af leikkonunni Elvu Ósk Ólafs-
dóttur eftir æsilega baráttu. Sigurvegarinn í þessari
viðureign mætir í úrslitum rithöfundinum Stefáni
Mána, sem ku óttast Katrínu mikið. Verðlaunin eru
ekki af verri kantinum; sjálft Popppunktsspilið.
HARPA MELSTED Dvaldi lengi við
nafnið Bryan McFadden en hafði ekki
svarið. Hún var sérlega svekkt yfir því
að vita ekki nöfnin á plötum Bubba
og Ný danskrar.
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Segir
að keppnisskapið sé farið að
blossa upp í sér og stefnir að
sigri í keppninni.
1. (1969)
2. (Kanada)
3. (Pass)
4. (Pass)
5. (Blindsker)
6. (Rétt)
7. (Pass)
8. (Alelda)
9. (Pass)
10. (Rétt)
RÉTT/RANGT
1. (1963)
2. (Bandaríkjunum)
3. (Pass)
4. (New Kids on
the Block)
5. (Kona)
6. (Rétt)
7. (Pass)
8. (Ný dönsk)
9. (Pass)
10. (Rétt)
HARPA MELSTED KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
Katrín er komin í úrslit
eftir æsispennandi undanúr-
slit og mætir þar Stefáni
Mána rithöfundi.
Alls stig2 Alls stig2
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
RÉTT/RANGT
10 HRAÐASPURNINGAR
1. Hvaða ár fæddist Björk?
2. Í hvaða landi fæddist trommarinn Tommy Lee?
3. Með hverjum er lagið Blue Jean Queen?
4. Í hvaða hljómsveit syngur Bryan McFadden?
5. Hver er fyrsta sólóplata Bubba Morthens?
6. Hafa Foo Fighters spilað á Íslandi?
7. Í hvaða bandi trommar Larry Mullen Jr.?
8. Hvað heitir fyrsta plata Ný danskrar?
9. Hvaða sveit stofnaði Billy Corgan 2000?
10. Í hvaða hljómsveit voru bræður Andy Gibb?
5 AUKASPURNINGAR
11. Hvað heitir fyrsta sólóplata Britney Spears?
12. Með hvaða bandi er platan The Wall?
13. Hver söng um Gamla sorrí Grána?
14. Hvaða hljómsveit gerði plötuna Allt sem ég sé?
15. Í hvaða bandi voru Pollock-bræður með Bubba?
✓
✓
✓
✓
11. (Oops I Did it Again)
12. (Rétt)
13. (Rétt)
14. (Rétt)
15. (Egó)
RÉTT/RANGT
11. (Rétt)
12. (Rétt)
13. (Pass)
14. (Rétt)
15. (Rétt)✗
✗
✗
RÉTT/RANGT
✓
✓
✓
✓
✓
✓
✓
Alls stig5 Alls stig6
Rétt svör: 1:1965, 2:Grikklandi,3:Magnúsi Þór, 4:
Westlife, 5:Ísbjarnarblús,6:Já,7:U2,8:Ekki er á allt kos-
ið,9:Zwan, 10:Bee Gees, 11: Baby One More Time, 12:
Pink Floyd, 13: Megas,14: Írafár, 15:Utangarðsmönnum.
POPPFRÓÐASTI PÖPULLINN
6. UMFERÐ
Leiðrétting: Það var Stefán Máni sem
vann Steingrím J. í undanúrslitum í gær en
ekki öfugt eins og haldið var fram í blaðinu.
Einnig vantaði rétt svar við spurningunni:
Hvaðan er hljómsveitin Abba? Svarið er Sví-
þjóð. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
BÓKAÚTGEFANDINN JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON Afþakkar öll hádegisboð og
fundi í hádegishléinu en lætur hafa forgang að leggja sig undir hádegisfréttum Ríkisút-
varpsins með malandi Endurskoðandann á sænginni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
INGVI HRAFN
JÓNSSON
VILBORG DAGBJARTS-
DÓTTIR